Alþýðublaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 3
:xsxr Föstudagur 10. desember 1976
VERKALÝDSNIJIL 3
Frá Sögusýningu A.S.I.
Brugðið upp mynd
úr baráttusögu ís-
lenzk verkalýðs
í þessu húsi á Seyðisfirði var fyrsta verka-
lýðsfélag stofnað á íslandi árið 1897
Hvaö þarf aö varðveita?
Þeir sem skoða Sögusýningu
verkalýðshreyfingarinnar 1976
sjá hve mikið vantar á að
varðveist hafi mikilvægar
sögulegar minjar og hve mjög
skortir á að vitað sé um alls
kyns heimildir, sem til eru hér
og þar i kjallarakompum,
háaloftum og kistubotnum.
Allar þessar heimildir þarf að
varðveita. Til þess þarf ræktar-
semi og söfnunaráhuga hjá
hverju ' verkalýðsfélagi á
landinu og fé þarf til að koma
upp sögusafni tengdu A.S.t.
En hvað þurfum við i verka-
lýðshreyfingunni að varðveita?
Taka þarf viðtöl við eldra
félagsfólk. skrásetja upp-
lýsingar, safna ljósmyndum og
kvikmyndum af markverðum
viðburðum úr stéttabaráttunni.
Fundargerðarbækur,
reikningar. skjöl, bréf, blöð.
bækur, ritlingar. fregnmiðar,
samningar. veggspjöld, merki-
miðar. borðar, fánar o.fl. — allt
þetta og meira til veitir upp-
ívsingar um sögu verkalýðs-
tirevfingarinnar og segir þeim
er taka við forvstu i öflugri
verkalýðshrevfingu mikið um
það. hvaða fórnir það kostaði að
gera A.S.l. að þvi sem það er i
dag
—BJ
Um þessar mundir er
opin, i Listasafni ASi,
sögusýning í tilefni af 60
ára afmæli Alþýðusam-
bandsins.
Sögusýningin verður
opin daglega frá kl. 4 til
kl. 10, til 12. desember.
t Sögusýningarnefnd eru þeir
Stefán ögmundsson, Hjörleifur
Sigurðsson, Helgi Skúli
Kjartansson og Ólafur R.
Einarsson.
Um tilgang sýningarinnar
segir svo i sýningarskrá:
Tilgangur sögusýningarinnar
er að bregða upp mynd af bar-
áttusögu islenskrar verkalýðs-
hreyfingar og aðstöðu islensks
verkafólks á fyrri áratugum.
Leitast er við að sýna hið um-
fangsmikla starf verkalýðs-
samtakanna og pólitiska bar-
áttu stjórnmálasamtaka verka-
lýðsins. Brugðið er upp mynd-
um úr atvinnulifinu, einkum er
sýna starfshætti og verkmenn-
ingu liðinna ára.
Lýst er i myndum húsa-
kosti þeim er alþýðufólk bjó við
og þeim breytingum er verka-
lýössamtökin knúðu fram á
sviði húsnæðismála. Reynt er að
gripa niður i stéttabaráttuna og
bregða upp myndum af
verkfallsátökum og baráttu-
fundum.
Útgáfustarfsemi alls konar
hefur verkalýðshreyfingin
staðið að og er á sýningunni
sýnishorn af málgögnum verka-
lýðsins á ýmsum timum og
sérstök kynning á dreifiritum og
fregnmiðum sem sjaldséðir eru
nú á dögum. Þá hefur sýninga-
nefndin fengið léða ýmsa dýr-
mæta sögulega gripi og skjöl hjá
ýmsum verkalýðsfélögum og
einnig fána og kröfuspjöld.
Siðan segir svo um stofnun
sögusafns verkalýðs-
hreyfingarinnar:
Með sögusýningu sem þessari
er ógerningur að sýna nema visi
þess er koma skal. Þessi sögu-
sýning þarf eins og sýningin
1973 að verða verkalýðssam-
tökunum hvatning til að forða
mikilvægum sögulegum
heimildum um verkalýðs-
baráttuna frá glötun. Vorið 1974
var samþykkt reglugerð fyrir
Sögusafn verkalýðshreyf-
ingarinnar er starfar undir
stjórn MFA og var samþykkt
sambandsstjórnar A.S.Í. fyrsta
'jtto-'l'rnóLCcjíi’ u.-/—
f'r- &***«-+£&
v ///
Frá kreppuárunum i Hafnarfiröi
k JUÁri .
Gamlar myndir úr
safninu.
skrefið i þá átt að koma hér á
stofn Sögusafni verkalýðs-.
hreyfingarinnar, en slik söfn
hafa verkalýðssamtökin á
hinum Norðurlöndunum þegar
starfrækt i áratugi með riflegri
aðstoð hins opinbera. Markmið
sögusafnsins er að koma upp á
einum stað veglegu sögu- og
minjasafni verkalýðs-
hreyfingarinnar. Ljóst er, að ef
verkalýðssamtökin og verka-
lýðssinnar taka ekki höndum
saman og safna sögulogum
heimildum og minjum úr
baráttusögunni á næstu árum,
þá fara forgörðum mikilvægar
heimildir um stéttabaráttuna og
hlutur verkalýðshreyfingar-
innar i þjóðarsögunni verður
vanmetinn.
60-90 ár.
Alþýðusambandið heldur nú
hátiðlegt 60 ára afmæli sitt. En
á næsta ári verða liðin 90 ár frá
stofnun fyrsta stéttarfélagsins á
íslandi og 80 ár frá stofnun
fyrstu almennu verkamanna-
félaganna. Þessi timamót eiga
að vera okkur i verkalýðs-
samtökunum hvatning til að
leggja rækt við minningu braut-
ryðjendanna, þeirra starf
verðskuldar að við sýnum þá
ræktarsemi að varðveita
baráttusögu islenskrar alþýðu.
Talkór FUJ, Stefán ögmundsson framan við myndina.
Frá baráttu kvenna i verkalýðsstétt