Alþýðublaðið - 10.12.1976, Side 5
Þing sambands byggingarmanna telur að unnt sé að lækka byggingarkostnaðinn
verulega til hagsbóta fyrir allan almenning.
meta hverjum verði falin útgáfan
siðara árið, með tilliti til fenginn-
ar reynslu.
Fræðslumiðstöðin skal gera
sambandsstjórn grein fyrir störf-
um sinum að loknu ársstarfi, og
leggja fram áætlun um starfs-
semina á næsta ári og gæta þess
jafnframt að allar upplýsingar
um starfsemina séu tiltækar
aðildarfélögunum á hverjum
tima.
Stjórn fræðslumiðstöðvarinnar
skal koma saman þegar i byrjun
næsta árs og gera áætlun um
fræðslustarfið og hefja viðræður
við Menningar og fræðslusam-
band alþýðu um samstarf þess-
ara aðila, svo og við hin einstöku
félög innan sambandsins.
Þá skal miðstöðin leita sam-
starfs og upplýsinga við félaga
okkar á hinum Norðurlöndunum i
þessum efnum.
Stjórn fræðslumiðstöðvarinnar
skal hafa heimild til að veita aðil-
um sem hún telur mikilvæga fyrir
starfsemina, styrki til einstakra
verkefna og aðstoða fjárvana
félög við þátttöku i félagsmála-
skóla alþýðu og annarri starfsemi
af sama toga.
7. þing Sambands bygginga-
manna vill taka undir þau sjónar-
mið, sem fram koma i drögum að
ályktun um fræðslu- og menn-
ingarmál og liggja munu fyrir 33.
þingi A.S.l.
Þingið vill þó leggja áherslu á
nokkur atriði i þessum efnum:
Hinn langi vinnudagur er einn
aðal hemillinn á að fólk noti fri-
stundir sinar til þess að auka
þekkingu sina á fjölmörgum svið-
um, jafnt verkalýðsmálum sem
öðrum.
Þess vegna er raunveruleg
stytting vinnutimans ein af þeim
forsendum, sem nauðsynleg er til
þess að efla fræðslustarfið innan
verkalýðshreyfingarinnar.
Krafan um dagvinnutekjur til
menningarlifs, er þvi jafn brýn og
áður og timabært að verkalýðs-
hreyfingin beiti afli sinu til þess
að afnema nauðsyn aukavinnu
fyrir margar fjölskyldur og þann
óheyrilega langa vinnudag, sem
þvi fylgir.
Þingið fagnar þeim áfanga i
fræðslustarfi verkalýðshreyfing-
arinnar, sem Félagsmálaskóli al-
þýðu er, og skorar á aðildarfélög
sambandsins að efla skólann og
nota þau tækifæri, sem hann
býður fram til menntunar félags-
mönnum verkalýðssamtakanna.
Þá ber að halda á lofti kröfunni
um sérstakt fræðslusjóðsgjald,
sem atvinnurekendur greiði i
fræðslusjóði verkalýðshreyf-
ingarinnar.
Ályktun um frumvarp til
laga um stéttarfélög og
vinnudeilur.
Frumvarp það til laga, um
stéttarfélög og vinnudeilur, sem
boðað hefur verið að lagt verði
fyrir Alþingi, er samið án
nokkurs samráðs við verkalýðs-
hreyfinguna.
Frumvarpinu er fyrst og fremst
ætlað að skipa innri málum
verkalýðsfélaganna og þrengja
ákvæði núgildandi laga um
starfshætti og samnings- og verk-
fallsrétt félaganna.
Enda þótt i frumvarpinu megi
finna ákvæði, sem við fyrstu sýn
virðast vera til hagsbóta frá
sjónarmiði verkafólks þá er þar,
ef grannt er skoðað, um að ræða
atriði, sem stór hluti verkalýðs-
félaganna hafa samið um i
frjálsum samningum við samtök
atvinnurekenda.
I heild er frumvarpið neikvætt,
og þar með fjandsamlegt hags-
munum verkalýðshreyfingar-
innar, og ber þess glöggt vitni að
verið er að mæta siendurteknum
óskum og kröfum atvinnurek-
endavaldsins um breytingar á nú-
gildandi lögum.
Þvi ályktar 7. þing Sambands
byggingamanna:
Enda þótt gildandi lög um
stéttarfélög og vinnudeilur séu að
ýmsu leyti gölluð, þá hafa um
framkvæmd þeirra skapast þær
venjur, sem sæmilega má við
una.
Þvi mótmælir þingið harðlega
lagafrumvarpi, sem ætlað er að
þrengja stórlega réttarstöðu og
sjálfsákvörðunarrétt verkalýðs-
félaganna og heitir á verkalýðs-
samtökin að berjast af alefli gegn
þvi að frumvarpið verði lagt fyrir
Alþingi.
Alyktun um heilbrigöis-
mál.
1. Þingið lýsir yfir áhyggjum
sinum vegna þeirra niðurstaðna,
sem rannsóknir visindamanna
gefa til kynna, um skaðsemi upp-
lausnarefna og ryks á heilsu
manna i byggingariðnaði, sem
ýmist kemur fram strax eða á
lengri tima.
2. Þingið iitur svo á að tryggja
verði að vinnustaðir launafólks
verði lausir við öll slik efni.
öryggi starfsfólks sitji i fyrir-
rúmi fyrir ágóðasjónarmiði.
3. Þingið hvetur til að sett verði
samnorræn löggjöf um skilgrein-
ingu á mengun og um upplýsinga-
og skráningarmiðstöð allra efna,
sem á markaðinn koma.
á.Þingið hvetur til að upp verði
teknar á kerfisbundinn hátt,
rannsóknir varasamra efna i
samvinnu við hin Norðurlöndin.
Launþegasamtökin verða að hafa
aðstæður til að fylgjast með og
taka þátt i skipulagi slikra rann
sókna.
5. Launþegasamtökin sjálf
verða að hafa meiri möguleika
varðandi eftHit með reglugerðum
sé framfylgt.
6. Samnorrænt merkingarkerfi
allra varasamra efna er knýj-
andi, og bendir þíngið sérstaklega
á lim, upplausnar- og málningar-
efni i þvi sambandi.
7. Þingið leggur áherslu á að
innflytjendum og innlendum
framleiðendum verði gert skylt,
að allar upplýsingar um meðferð
og innihald slikra efna verði á
islenzku.
Þingið samþykkir að kjósa tvo
menn til að hrinda af stað heiid-
arúttekt á menntamálum islend-
inga. Skulu þeir leita samvinnu
og samstarfs við önnur stéttar-
sambönd um viðfangsefnið.
Markmiðið með starfi nefndar-
innar skal vera að rannsaka
menntakerfið, með tilliti til hags-
muna og sjónarmiða verkalýðs-
stéttarinnar og leita svars við þvi
hvort menntakerfið og heildar-
stefnan i menntamálum, þjóni
hagsmunum alþýðu eða yfir-
stétta.
I fyrstu skal nefndin beina
starfi sinu að athugun á eðli og til-
gangi fjölbrautarskóla.
Nefndin skal leggja niðurstöður
sinar og tillögur fyrir næsta þing
S.B.M.
Ályktun um menntamál
7. þing Sambands bygginga-
manna vill nú, minna á álit siðasta
þings SBM um iðr.fræðslu, en sú
ályktun er i dag að verulegu leyti
i-fullu gildi, vegna þess að litið
hefur þokast i framfaraátt á
þessu sviði undanfarin tvö ár.
Þó vill þingið lýsa ánægju sinni
yfir þróun mála við Iðnskólann i
Reykjavik, þar sem hlutur svo-
nefnds verknámsskóla og þar
með tréiðndeildar hefur verið
aukinn og getur, ef að likum læt-
ur, annast verklega menntun iðn-
aðarmanna i nokkrum greinum
byggingariðnaðar. Enn eru þó
allmargar greinar, sem að nær
öllu leyti eru háðar meistarakerf-
inu svokallaða, sem fyrir löngu
hefur sýnt vanmátt sinn við
menntun iðnaðarmanna til
starfa. Þó Iðnskólinn i Reykjavik
sé sæmilega búinn tækjum eru
Iðnskólar úti um hinar dreifðu
byggðir landsins nær gjörsam-
lega óhæfir til þess að sjá fyrir
verklega þættinum i iðnmenntun-
inni. Hér verður að gera stórátak
og eyða þessum mismun, sem
fólkið er byggir sveitir landsins
og hin fámennari byggðarlög býr
•við. Verknámsskólar þurfa þvi að
risa viðar en i þéttbýiiskjarnan
um við Faxaflóa.
Þegar litið er á einstaka þætti
er augljóst að brýnasta verkefnið,
sem nú blasir við er að tryggja
fræðslunefndum iðngreinanna
fjármagn og starfsskilyrði, svo
þær geti annast þau verkefni, sem
þeim er ætlað, eins og gerð náms-
skráa. Undir þetta mál hyllir nú,
þar sem fræðslunefndir iðngrein-
anna eru um það bil að hefja störf
með aðstoð starfsfólks Iðn-
fræðsluráðs. Enn vantar þó á að
framvinda þessara mála sé
tryggð af stjórnvatda hálfu, með
nægjanlegu fé til starfsins.
Þingið bendir á þá þróun sem á
sérstaö i réttindamálum iðnaðar-
manna, sem birtist m.a. i þvi
hversu auðvelt er að fá ráðherra
réttindi. Þetta gerist samhliða
þvi, sem aukin sérhæfing á sér
stað i þjóöfélaginu. Sé haldið á-
fram á sömu braut, stefnir til
kyrrstöðu eða jafnvel afturfarar i
sumum iðngreinum.
Þingið furðar sig á þeim drætti,
sem orðið hefur á mótun heildar-
stefnu i verkmenntun af hálfu
stjórnvalda, og minnir á það
starf, sem unnið hefur verið á
undanförnum árum i nefndum á
vegum Menntamálaráðuneytis-
ins, en þrátt fyrir það hefur ekk-
ert enn komið fram á Alþingi hér
um. Heildarstefna á sviði verk-
menntamála, sem tengist öðru
námi i framhaldsskólastigi, er
eitt mikilvægasta skólamálið i
dag og þvi brýnt að löggjafinn
taki á þvi sem skyldi.
7. þing Sambands bygginga-
manna vill minna á að verk-
menntunin hefur verið hornreka i
fræðslukerfinu. Við svo búið má
ekki standa. Auka verður veg og
virðingu þeirra starfa, sem unnin
eru hörðum höndum við fram-
leiðslustörf og sköpun verðmæta.
Iðnaðarmenn þurfa að ganga þar
fram, ásamt öðru verkafólki og
tryggja að hlutur hins vinnandi
manns verði metinn til jafns við
aðra, ekki sist hvað varðar
menntun til starfa.
Frumvarpið um fullorðins-
fræðslu, sem i þriðja skipti liggur
nú fyrir Alþingi, en varla hefur
fengist rætt, verður á yfirstand-
andi þingi að fá fullnægjandi af-
greiðslu. Annað hlýtur að teljast
fullkoniin hneisa fyrir stjórnvöld,
einkum þau, sem með mennta-
mál fara.
Þingið vekur athygli á þeirri á-
byrgð og skyldu, sem stjórnvöld
bera gagnvart þvi fólki, sem
stundað hafa þau störf, sem eiga
undir högg að sækja vegna stór-
fellds aukins innflutnings erlends
iðnvarnings. Þetta fólk á tvi-
mælalaust rétt á starfsfræðslu og
endurmenntun til starfa. Að öðr-
um kosti er afkomu þess stefnt i
hættu.
SÓLHEIMAR
4—5HERB.9. HÆÐ.
1 >lo(a oi hjónahcrberfl meó ivölum.
Inherbeifl ■'
HLlÐAHVERFI,
— LAUS STRAX.
3JA HERB. 110 FERM.,
■f aukaherb. I rial.
UJöf alór Ibóó mlóoö vló herberfj*
fJðldR 2 itórtr itofur <M ferm og 18
ferm) meö euðvestunvOlum. genglð I
bóðir itofur úr holl. Hjóniherbergl
(1S ferro) meö Innbyggöum fituklp.
beóherbergl nýniieligt of eldhúi roeó
nýmáluóum Innréttlngum Ibúóln er
ÖU nýlegi máluö. teppl á hoU. Sér
geýmili I rtil. Verö: 8.8 M
HÖRGSHLlÐ
3JA HERB. VERÐ7.5M.
Juöhjeö (genftð betnt tnn). Stofi.
hjóniherberfi m ikáp of blmeher-
bergl m ikáp. F.ldhúi m. fóðum inn-
réttlngum og borökrók. Þvottihúi
gott og hreinlegt, meö geymilupláni.
TUtikanlegi miktð geymilu og ikápa-
fylftr Ibúólnnl. Tvöfalt gler. Sér
Ibóéln fe-il I ikiplum fyrlr éra herb.
VESTURBORG
SERH/EÐ M. BlLSKtlR.
éra—5 herbergja efrt h»ó. ca léO
ferm 2 itofur itórar. 2 rúmgóö ivefn-
herbergI. itórt hoL Eldhúi og búr Inn
af þvl. BaóherbergL Vandaó tréverk
og Innréttlngar. Geymila I kjallara
Sérhltl. Verö: 18,8Mútb: 12.0 U.
HRAUNBÆR
3JAHERB. 70 FERM.
Elmtaklega vönduó og rúmgðö Ibúð á
neöitu harö. meö ivölum Stór itofa
•klptanlef. ivefnherb. m ikápum eld-
húi m vönduðum Innréttlngum og
baöherbergl. TeppL Verö: Ö.S millj.
AlftamYri
4—5 HERB. M. BlLSKtlR
VERD: 11,5 M. tJTB: 7,5 M.
HS ferm Ibúð á SJu hieö I fjölbýlli-
húil lem er é haólr of kjallarl Slór
tvUklpt, luöunvallr. 3 - *
% w
: V/
1
'S
/ ini'f*0urrZ?* «
, >/8o! u"> 10 i,8"•‘'•"a
J ssari
£<£& &7~z.
„3« l'«rl>
Ibúð . , .
t*gar. *-3 fnilll.
'bóð i 3‘ *"*»*ÖIU 4 K
norOu,J, h*ð Hj./.V*'6
VSf/ aWsssbS',. ..
iVf/ ftwúá,
I V -V
r=tW,.!i;gif|SiÍPlí
EHSISSÍfelil'
i |S?9J ?«fi!
hfh íifs
igHiLI íh
Þingið telur það hneisu hve fasteignasalar halda íbúðaverðinu háu.
Starfskraftur
Alþýðubankinn hf. óskar að ráða starfs-
kraft i afgreiðslusal.
Hálft starf kemur vel til greina.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
starfsreynslu sendist Alþýðubánkanum
hf. fyrir 14. þessa mánaðar.
Alþýðubankinn hf.
Laugavegi 31.