Alþýðublaðið - 10.12.1976, Side 7
ssa- 'Föstudagur 10. desember 1976
VERKALÝDSMAL 7
Ályktanir
ASÍ
Ríkisstjórnin er fjandsam-
leg verkalvóssamtökumim
Ríkisstjórnin er f jandsam-
leg verkalýðssamtökunum
Tónninn á Alþýðusam-
bandsþingi var mjög í þá
átt að á Islandi sæti ríkis-
stjórn, sem væri fjand-
samleg verkalýðssamtök-
unum og láglaunafólki al-
mennt. Frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um stéttar-
félög og vinnudeilur er að
mati þingsins ein staðfest-
ing á þessari afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til vinnandi
fólks í landinu.
Eftirfarandi ályktun var
samþykkt um vinnulög-
gjöf ina:
33. þing ASI mótmælir
harðlega frumvarpi þvi til laga
um stéttarfélög og vinnudeilur,
sem rikisstjórnin hefur boðað að
lagt verði fyrir Alþingi það sem
nú situr þar sem það myndi ef að
lögum yrði þrengja mjög
athafnafrelsi verkalýðssamtak-
anna. Þau myndu þvi lita á sam-
þykkt frumvarpsins sem fjand-
samlega lagasetningu, fyrst og
fremst ætlaða til að veikja þau i
kjarabaráttu sinni. Þvi vill þingið
lýsa þvi yfir að verkalýðssamtök-
in muni berjast af alefli gegn
hverri þeirri breytingu á lögum
um stéttarfélög og vinnudeilur,
sem áformuð væri án fulls sam-
ráðs og samþykkis þeirra.
Þörf skjótra breytinga í
málefnum lífeyrissjóða
Alþýðusambandsþing gerði
eftirfarandi samþykkt um lif-
eyrismál:
33. þing ASt telur að meðal
mikilvægustu réttinda, sem
verkalýðshreyfingin hefur áunnið
sér á siðustu árum séu lifeyris-
réttindin. En þrátt fyrir mikils-
verðan áfanga á þessu sviði,
skortir mjög á, að lifeyrisréttindi
hins almenna tryggingakerfis og
lifeyrissjóðanna veiti viðunandi
elli- og örorkulifeyri. Þörf er_
skjótra breytinga til hins betra”
Leggur þingið þvi áherslu á að
endurskipulagningu lifeyris-
kerfisins verði hraðað svo sem
kostur er, eins og ákveðið var
með kjarasamningunum I febrú-
ar 1976.
Þingið telur að meginmarkmið
endurskipulagningarinnar skuli
vera þessi:
Að samfellt lifeyriskerfi taki til
allra landsmanna.
Að stefna beri að þvi að lifeyris-
þegar fái sem jafnastar greiðslur.
Að verkafóik öðlist rétt til verð-
tryggðs lifeyris, er fullnægi þörf-
um lifeyrisþega á hverjum tima.
Að full eftirlaun og ellilífeyrir
miðist við 65 ára aldur.
Að hlutur einhleypinga i hinu
almenna tryggingakerfi verði
bættur sérstaklega frá þvi sem nú
er, svo og að hlutur ekkna látinna
félagsmanna i stéttarfélögum er
létust fyrir 1970, verði bættur sér-
staklega.
Að skerðingarákvæði verði ekki
beitt á tekjutryggingu vegna
þeirra lifeyrisgreiðslna, sem
eftirlaun aldraðra og lffeyrissjóð-
ir-verkalýðsfélaganna greiða.
Dagvistunarmálin i ólestri
Allmiklar umræður urðu um
dagvistunarmál. Hér er um að
ræða mjög aðkallandi mál, sem
hefur hreinlega dagað uppi i kerf-
inu. Að visu hefur málið oft verið
rætt af opinberum aðilum, nefnd-
ir skipaðar og frumvarp flutt, en
aðgerðir jafnan verið litlar.
Meðal ályktana um dag-
vistunarmál er eftirfarandi:
Breyttir þjóðfélagshættir hafa
valdið þvi, að konur leita nú i vax-
andi mæli út á vinnumarkaðinn,
enda er vinna þeirra algjör for-
senda mikilvægra þátta atvinnu-
lifsins og óhjákvæmileg til þess
að sjá mörgum heimilum far-
borða.
Hið opinbera, riki og sveitar-
félög, hefur ekki staðið við þau
fyrirheit, sem gefin hafa verið
með margvislegri iöggjöf um
stofnun og rekstur dagvistunar-
stofnana og eru nú horfur á, að a\-_
varleg stöðnun komi i byggingd6
nýrra barnaheimila á sama tima
og þörfin er meiri en nokkru sinni
fyrr, svo að langir biðlistar eru
við öll barnaheimili.
33. þing ASt beinir þvi til
Alþingis, rikisstjórnar og
byggðastjórna að hækka framlög
til dagvistunarheimila veruiega
og felur miðstjórn að knýja á hið
opinbera um úrbætur i þessum
efnum, eftir öllum tiltækum leið-
um sbr. sameiginlega yfirlýsingu
verkalýðssamtaka og atvinnu-
rekenda i febrúar 1974 svohljóð-
andi.
„Samingsaðilar eru sammála
um að beita sér fyrir þvi, að þjón-
usta barna-og skóiaheimila verði
aukin og framkvæmd þannig, að
þau nýtist starfsfólki við fram-
leiðslustörf betur en nú er.”
Þingið átelur tómlæti hins
opinbera
Þá var gerð eftirfarandi sam-
þykkt, þar sem þingið átelur tóm-
læti hins opinbera um dag-
vistunarmál og beinir þeirri ósk
til stjórna lifeyrissjóðanna hvort
þeir geti hlaupið undir bagga.
Samþykktin er svohljóðandi:
33. þing ASt haldið 29. nóv. - 3.
des. ’76 leggur áherslu á, að af
hálfu hins opinbera verði jafnan
veitt nægilegt fjármagn til dag-
vistunarheimila.
Átelur þingið tómlæti þessara
aðila gagnvart þessum málum.
Með tilliti til þess, virðast vera
litlar horfur á, að á næstunni
verði leyst úr þvi alvarlega
ástandi er nú rikir i dagvistunar-
málum. Þessvegna beinir þingið
þvi til stjórna lifeyrissjóðanna að
þær athugi, hvort ekki komi til
greina, að sjóðirnir láni það fjár-
magn er á skortir til að fullnægja
brýnni þörf fyrir dagvistunar-
heimili.
Lán til nauðsynlegra fram-
kvæmda verði veitt á sömu kjör-
um og sjóðirnir njóta við kaup á
visitölubréfum Byggingasjóðs.
Dagvistunarheimili fyrir
aldrað fólk
Eftirfarandi tiilaga var sam-
þykkt um dagvistunarheimili
fyrir aldrað fólk:
1 tilefni af timabærri og ágætri
hvatningu frá Verkakvennafélag-
inu Framsókn til stjórnar ASt um
dagvistunarheimili barna vilja
undirritaðir koma eftirfarandi á
framfæri við 33. þing ASt:
Hér á tslandi hefur litilli athygli
verið beint að dagvistun fyrir
aldrað fóik nema á allra siðustu
timum. Er slik starfsemi þó
vel þekkt meðal nágrannaþjóða
okkar og að nokkru hefur starf-
semi þessi verið tekin upp i hinum
stærri sveitarfélögum hér á landi.
Er þetta starf þó takmarkað við
fáar klukkustundir á viku hverri,
og er frekar i formi tómstundaaf-
þreyingar en þess sem hugsað er
með hinum eiginlegu dag-
vistunarheimilum.
Nú er i byggingu i Hafnarfirði á
vegum samtaka sjómanna auk
dvalarheimilis, fullkomið dag-
vistunarheimili fyrir aldrað fólk.
Er til ætlast að það sjálft eða með
aðstoð ættingja og vina verði flutt
þangað að morgni og verji deg-
inum þar. Það mun fá alla þjón-
ustu bæði læknis- og hjúkrunar-
hjálp alls konar, böð, mat og
hvildaraðstöðu ásamt matar-
pakka til að taka heim með sér að
kvöldi. Einnig er fyrirhugað að
fylgjast með hinum öldruðu ef um
veikindi þeirra er að ræða, senda
þeim mat og sjá fyrir annarri
nauðsynlegri þjónustu.
Þingið telur að slik þjónusta sé
brýn i hinum stærri sem smærri
sveitarféiögum og muni að
nokkru létta á hinni miklu þörf,
sem nú rikir á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum aldraðra.
Um leið og þingið skorar á
Alþingi og rikisstjórn að stuðla að
framgangi þessa máls styður það
eindregið að horfið verði til hins
fyrra ráðs, að rikissjóður styðji
þau sveitarfélög með fjárfram-
lögum, sem i byggingu dvalar- og
hjúkrunarheimila ráðast.
Málefni sjómanna
Alþýðusambandsþing tekur
undir og mælir með samþykktum
frá 10. þingi Sjómannasambands-
ins. Þar er megináherzla lögð á
aukna vinnuvernd, öryggi sjó-
manna og fyrirbyggjandi aðgerð-
ir.
Ályktunin um þessi mál eru
svohljóðandi:
Þingið bendir enn eiriu sinni á
nauðsyn þess, að öryggi i höfnum
sé aukið. Lýsing sé bætt, land-
gangar til staðar auk annars
öryggisbúnaðar. Þingið skorar á
Slysavarnarfélag Islands og sjó-
slysanefnd að fylgja þessum mál-
um eftir.
Þingið feiur væntanlegri stjórn
að vinna að þvi að lögum um
slysa- og örorkutryggingu sjó-
manna verði breytt þannig að
tryggingarupphæðir haldi sinu
raungildi og sé þá miðað við
setningu laganna 1972.
Þingið bendir á og lýsir yfir að
fyrirbyggjandi aðgerðum gegn
eldsvoðum i skipum sé mjög
ábótavant. Telur þingið að stór-
aukið álag á rafala ýmissa skipa
geti þar átt hlut að. Handslökkvi-
tæki verði af viðurkenndri gerð,
og islenskir leiðarvisar fylgi
hverju tæki og kennsla i meðferð
slökkvitækja verði framkvæmd
af kunnáttumönnum og verði fjöl-
miðlar notaðir til þeirra hluta.
Þá telur þingið vegna fenginnar
reynslu grannþjóða okkar, að nú
beri að undangenginni vandlegri
rannsókn að kalla inn alla gúmm-
björgunarbáta sem framleiddir
eru fyrir árið 1960, vegna þeirra
tæknigalla sem fram hafa á þeim
komið.
Þingið telur að stórauka þurfi
Skipaeftirlit rikisins og bendir
enn einu sinni á fyrri kröfur um
að eftirlitsmenn fari á milli staða
og framkvæmi skyndiskoðanir.
Þingið þakkar Slysavarnar-
félagi Islands fyrir framkvæmd
tilkynningaskyldu skipa og einnig
verði Landssima Islands falið að
bæta aðstöðu strandstöðva og
benda sérstaklega á Breiðafjörð,
sunnanverði Vestfirði og fyrir
norð-austurlandi.
Hornstrendingabók
Þórleifs Bjarnasonar
að miklu leyti nýtt verk í þremur bindum og myndskreyttum kassa.
Prýdd 80 Ijósmyndum, sem margar hverjar hafa hvergi birst áður.
Hornstrendingabók greinir frá byggöarlögum Hornstranda og mannlifi þar um slóðir um langan
aldur, harðri lífsbaráttu fólksins í þessum afskekkta og hrjóstruga landshluta, en jafnframt
sérstæöri menningu þess og einkennilegum háttum. Drjúgur hluti bókarinnar er sagnaþættir og
þjóðsögur af Hornströndum, og tekst höfundi að bregða sterku Ijósi á liðnar aldir. Horn-
strendingabók er eitt af merkilegustu átthagaritum á íslenskri tungu og frábært rit vegna
fróðleiks og ritsnilli Þórleifs Bjarnasonar.
Baldur Guðlaugsson og Páll Heiðar Jónsson
Þrítugasti marz 1949
mestu innanlandsátök frá siðaskiptum
Þann 30. mars 1949 fékk innibyrgð spenna, tortryggni og gagn-
kvæm andúð útrás í athöfnum og átökum, sem ekki hafa orðið
önnur og meiri síðan um siðaskipti. Bókin er byggð á innlendum
og erlendum gögnum úr skjalasöfnum ráðuneyta og hæstaréttar
og viðtölum við stjórnmálamenn, lögreglumenn, varaliðsmenn,
áhorfendur og sakborninga. í bókinni eru 60 Ijósmyndir, flestar
áðuróbirtar, þ.á m. úr kvikmynd.
Góð bók er gulli betri
ffl ÖRN OG ÖRLYGUR
Vesturgötu 42, Sími: 25722