Alþýðublaðið - 10.12.1976, Page 14
Föstudagur 10. desember 197ólt»l!iSid'
14
Þjóðleikhúsið:
Síðustu sjjningar á
f myndu narveikinni
Sýningum er nú aö ljúka i
Þjóöleikhúsinu á hinu vinsæla
gamanleikriti Moliéres
IMYNDUNARVEIKINNI, sem
sýnt hefur veriö við mjög góða
aðsókn frá þvi i fyrravor. Sið-
ustu sýningárnar verða á
fimmtudags- og laugardags-
kvöld og verða sýningar þá alls
orðnar 35. Það er Bessi Bjarna-
son, sem leikur hinn imyndun-
arveika, Herdis Þorvaldsdóttir
leikur vinnukonuna Toinette.
Leikstjóri er Sveinn Einarsson.
1 sýningunni eru bæði dansar og
tónlist og er hún eftir Jón Þórar-
insson. Leikritið verður ekki
tekið upp aftur eftir jól.
Nótt ástmeyjanna.
Vinsæl sýning á Litla sviði
Leikritið Nótt ástmeyjanna á
Litla sviði Þjóðleikhússins hefur
vakið verðskuldaða athygli og
hlotið afbragðsviðtökur leikhús-
gesta. I leikritinu er fjallað um
sænska leikritaskáldið Ágúst
Strindberg og hjónaband hans.
Erlingur Gislason leikur Strind-
berg og Helga Bachmann konu
hans Siri von Essen. Aðrir leik-
arar eru Edda Þórarinsdóttir,
Sigmundur örn Arngrimsson
eða Bessi Bjarnason. Sýning
þessi er sú fyrsta af f jórum I röð
leikrita, sem i vetur verða sýnd
á Litla sviðinu undir samheitinu
Nútimaleikritun. Æfingar
standa yfir á næsta verkefni,
sem er Meistarinn, nýtt leikrit
eftir Odd Björnsson. Fer
sýningum á Nótt ástmeyjanna
að fækka af þeim sökum. Næsta
sýning erá fimmtudagskvöld og
siðasta sýning fyrir jól er
þriðjudaginn 14. desember.
Leikstjóri er Helgi Skúlason.
Myndin er af Arna Tryggvasyni og Bessa Bjarnasyni i hlutverkum sinum í Imyndunarveikinni.
LIONSMENN GEFA
ÚT JÓLAMERKI
1 ár hefur Lyonsklúbburinn
BJARMI, Vestur-Húnavatns-
sýslu, útgáfu jólamerkja, sem
verður framvegis árlegur við-
burður i starfsemi klúbbsins. Er
þessi útgáfa með nokkuð sérstöku
sniði, þar sem um 11 ára áætlun
er að ræða.
I Vestur-Húnavatnssýslu eru 10
kirkjur og er fyrsta áætlunin
bundin þvi að gefa árlega út
merki i 10 ár með einhverri
þeirra, jafnvel stundum á merk-
um byggingarafmælum, en siöan
11. árið verður mynd af þeim
öllum i örkunum, ein á hverju
merki. Þá er næsta áætlun að
taka t.d. fyrir merkustu sögustaði
og kynna þannig sýsluna og sér-
kenni hennar meðal safnara og
Lionsmanna.
Á þessu fyrsta merki er mynd
af kirkjunni á Breiðabólsstað, en
þar er hvort tveggja i senn gömul
kirkja, frá 1894 sú bygging er þar
stendur nú, en auk þess einn af
merkari sögustöðum sýslunnar.
Nægir þar að nefna lagaritun
Hafliða Mássonar og upphaf
prentlistar.
Merkin eru eins og áður sagði
10 i örk. Þau eru i þrem litum,
blá, hvit og rauð. Kirkjuna teikn-
aði Helgi Ölafsson, en rammann
hannaði Sigurður Þorsteinsson.
Prentmót gerði Myndamót h/f, en
prentun annaðist Páll Bjarnason.
Kosta merkin 25,00 stykkið eða
kr. 250,00 örkin.
Þá eru auk þess gefin út skala-
þrykk i ótökkuðum örkum. Er þar
eitt merki aðeins i rauðum, annað
aðeins i hvitum og þriðja i báðum
litum. Þessi skalaþrykk eru seld i
arkarsettum á 500,00 krónur örk-
in, eða 1,500,00 kr. settið.
Upplag hinna venjulegu jóla-
merkja er aðeins 500 arkir og er
ekki ætlunin að auka það, til að
merkin haldi verðgildi sinu fyrir
þá er safna þeim. Skalaþrykkin
eru svo gefin út i 100 númeruðum
arkasettum. Verður það upplag
heldur ekki aukið.
A þennan hátt hyggst Lions-
klúbburinn Bjarmi ekki aðeins
vinna að menningarlegri
kynningu sýslu sinnar, heldur og
safna fé til starfs sins. Næsta
verkefni klúbbsins er kaup á
hjartagæslutæki fyrir Sjúkrahús-
ið á Hvammstanga. Til þess þarf
mikið fé og léttir þessi útgáfa
vonandi þann róður.
Einstaklingar eða klúbbar og
félög geta pantað merkið frá:
Lionsklúbburinn Bjarmi, fjár-
öflunarnefnd, Hvammstanga.
Verða pantanir afgreiddar jafn-
óðum og þær berast og upplag
endist.
Tækni/Vísindi
Leikfélag Hveragerðis sýnir:
KÁTLEGAR KVONBÆNIR
Leikfélag Hverageröis frum-
sýnir i kvöld enska gamanleik-
inn Kátlegar kvonbænir (She
Stoops to Conquer) eftir Oliver
Goldsmith. Leikstjóri er Bene-
dikt Árnason en leikmynd gerði
Jill Brooke. Leikritið, sem er i
þýðingu Bjarna Guðmundsson-
ar, hefur verið fært upp einu
sinni hér á landi áöur, á Herra-
nótt fyrir rúmum áratug og þá
einnig undir leikstjórn Bene-
dikts. Með helztu hlutverk i sýn-
ingu Leikfélags Hveragerðis
fara: Svava Hauksdóttir, Aðal-
björg M. Jóhannsdóttir, Inga
Wiium, Sigurgeir Hilmar Frið-
þjófsson, Guðjón H. Björnsson,
Steindór Gestsson og Niels
Kristjánsson. Enginn vafi er á
þvi að þessi bráðlétti gaman-
leikur á eftir að laða að sér
marga áhorfendur I Hveragerði
og viðar um Súðurland, en ráð-
gert er að ferðast um með leik-
inn, svo sem venja er hjá leik-
félaginu.
,,Frosk augu” til flugleiðsagnar 4.
Skrifið eða hringið
í síma 81866
ans dæmir þessi sjónboð þau
vekur,
ekki
Þetta stafar
sjónboð,
ónothæf og sendir þau
áfram til heilans
af þvi að flugan er á leiðinni frá
froskinum og hann getur þvi
ekki náð henni.
1. En hvernig geta hinir til-
tölulega fáu sjóntaugaþræðir
sent þann aragrúa boða sem
sjónfrumurnar taka við til heil-
RECeÞTCRS
IN RETINÓ,
2. Visindamenn komust aö
þeirri niðurstöðu að likt og tölva
þá vinsaði sjóna augans úr þau
boð sem höfðu einhverja þýð-
ingu fyrir froskinn og sendu þau
áfram.
3. Við skulum til dæmis
imynda okkur að fluga fljúgi i
áttina frá froskinum. Sjóna :
4. Sama er að segja um litla
hluti sem ekki eru á hreyfingu.
Froskur umkringdur dauðurn
flugum gæti til dæmis dáið úr
NEfcVE FIBRES
IN OPTIC NERVE
au