Alþýðublaðið - 13.12.1976, Page 3
agjr Þriðjudagur 14. desember 1976
3
Þing norrænna jafnaðarmannahreyfinga í Helsinki:
Barizt skal gegn kenning-
um auðvaldsins um rétt
sterkari
hins
Dagana 25. og 26.
nóvember siðast liðinn
var haldið i FolketsHus i
Helsinki i Finnlandi
þing norrænna jafnaðar-
manna hreyfinga. Þing
þetta sátu af hálfu
islenzka Alþýðuflokks-
ins þau Benedikt Grönd-
al, Gylfi Þ. Gislason,
Kristin Guðmundsdótt-
ir, Bjarni P. Magnús-
son, Jón Helgason og
Jón Karlsson. Hófst
þingið með setningar-
ræðu Kalevi Sorsa, for-
manns Finnska jafnað-
armannaflokksins. For-
setar þingsins voru
kosnir þeir, Olov Palme,
Kalevi Sorsa og Bene-
dikt Gröndal.
Islendingar skiptu þannig meö
sér þátttöku i þingstörfunum, aö
Gylfi b. Gislason, flutti inngangs-
erindi i Menningarmálanefnd,
Benedikt Gröndal átti sæti f nefnd
er f jallaöi um stööu Noröurlanda I
heiminum, og samskipti þeirra
viö aörar þjóöir, Kristin Guö-
Nordlsk Arbejderkongres
Norræoa VErkalýrfsráiístefnan
24.25.t1.197B
Merki þingsins.
mundsdóttir átti sæti i nefnd er
fjallaöi um félags- og fjölskyldu-
mál. Jón Helgason sat i Atvinnu-
málanefnd, Bjarni P. Magnússon
gegndi formennsku i nefnd um
endurnýjun atvinnulifsins og Jón
Karlsson átti sæti i nefnd er ræddi
um atvinnu fyrir alla og stefnu I
innfly tjendamálum.
Fyrri dag þingsins störfuöu
nefndir, en seinni daginn luku þær
störfum en þingiö hélt áfram aö
ræöa nefndarálit og afgreiöa þau,
auk þess sem fulltrúar flokkanna
fluttu þinginu ávörp, þar á meöal
Benedikt Gröndal fyrir hönd Al-
þýöuflokksins.
Loks kynnti Reiulf Steen, for-
maöur Norska Alþýöuflokksins
sameiginlega stefnuyfirlýsingu
þingsins, þarsemlögövar áherzla
á, aö verkalýöshreyfingin á Norð-
urlöndum byggöi framtiöarstarf
sitt á samstarfi og einingu, berö-
ist gegn kenningum auðvaldsins
um rétt hins sterkari enda sé einn
mikilvægasti hæfileiki mannsins
sáaðvinna meösamborgurunum
en ekki á móti þeim.
bá var einnig lögö áherzla á
rétt mannsins til að fá vinnu viö
sitt hæfi, er þjónaöi bæöi hags-
munum einstaklingsins og þörf-
um þjóðfélagsins, svo og aö fá-
mennir hópar innan þjóöfélagsins
hefjist ekki til auös og valda á
kostnaö annarra.
Minnt var á mikilvægi þess að
hið faglega og pólitiska starf
verkalýöshreyfingarinnar og
verkalýösflokkanna fari saman;
talið var aö höfuðmarkmið þess
samstarfs ætti aö felast i baráttu
fyrir atvinnu viö allra hæfi, þar
með taliö öryrkja og þeirra, sem
af einhverjum ástæöum eru sér-
lega illa settir, umhverfisvernd
og verndun náttúruauölinda til
sjós og lands, sem Norðurlöndin
eru svo rik aö, jafnari skiptingu
eigna og tekna, hóflegu verðlagi
nauðsynjavara, réttlátari niöur-
jöfnun skatta, bættum kjörum
aldraðra, öryrkja og barna, jafn-
réttikvenna og karla, auknu lýð-
ræði i atvinnulifinu með meiri
áhrifum hvers einstaklings á
framgang og úrslit mála, bættum
Nokkrir af erlendu fulltrúunum á þinginu: Benedikt Gröndal, Gunnar
Strang, Sviþjóö, Ejner Hovaard Christiansen, Danmörku og Oddvar
Nordli, Noregi.
aðbúnaö á vinnustööum sem
dragi úr slysahættu og hættu á
heilsutjóni af öðrum ástæöum, og
aukinni hlutdeild launþega i
aröi fyrirtækjanna.
Loks var minnt sérstaklega á
mikilvægi þess að friöur haldist i
heiminum, þar sem þaö væri ein-
mitt megin forsenda félagslegrar
og efnahagslegrar velferöar
mannkynsins og undirstrikað aö
jafnaðarstefnan ætti erindi til
allra þjóða jafnt, þar sem i henni
fælist hinn gullni meðalvegur á
milli kommúnismans meö öllu
sinu eyöileggingarafli og kapital-
ismans meö mannt’yririitningu
sinni.
Lýst var yfir samúð og
stuöningi á jafnréttisbaráttu
manna i suöurhluta Afrfku, þar
sem stefnt er aö afnámi
kynþáttamisréttis og nýlendu-
stefnu ianda jafnaðarstefnunnar,
og i þvi sambandi minn á skyldu
þróunarrikjanna til að veita van-
þróuöum þjóöum alla þá aöstoö,
er þau mega, innan ramma Sam-
einuðu þjóöanna og i samræmi
viö samþykktir bandalagsins um
að veita 0,7% brúttóþjóðartekna
til þeirra hluta.
Vikið var sérstaklega að sam-
norrænum verkefnum á sviði
verkalýösmála og jafnaöarstefnu
og bar þar margt á góma sem að
likum lætur, þ.á m. nauösyn þess
að efla Norræna fjárfestingar-
bankann, koma á fót samnorr-
ænni vinnumiðlun, en Noröur-
löndin hafa i meira en tvo áratugi
haft sameiginlegan norrænan
vinnumarkaö, auðvelda ibúum
Norðurlanda aö flytjast á milla
landanna, búsetja sig þar og
stunda þar atvinnu, aukin sam-
skipti útvarps- og sjónvarps-
stöðva á Norðurlöndunum um
efni, samræmingu norrænnar
tryggingalöggjafar, stóraukin
áhrif Norðurlandaráös i norrænni
samvinnu á ýmsum syiöum, 40
stunda vinnuviku á Noröurlönd-
unum öllum meö hæfilegri
skiptingu vinnu-, hvildar- og
námstíma, o.fl. o.fl.
Aö lokum var minnt á gildi
þess, aö norrænu verkalýössam-
böndin og verkalýösflokkarnir
kæmu fram sem ein heild út á viö
isamskiptum sinum viö skoöana-
systkin og andstæöinga annars
staðar i heiminum, þar sem slikt
gerði þau aö mun sterkara og
áhrifameira afli i alþjóöasam-
skiptum.
Siðari hluta fimmtudagsins 26.
nóvember flutti fyrrum forsætis-
ráöherra Svia Olov Palme ræðu
og sleit þvi næst þinginu. Aö ræöu
hans lokinni söng allur þingheim-
ur Internationalinn, Alþjóðasöng
jafnaðarmanna.
Um kvöldið sóttu þingfulltrúar
siðan tónleika i Folkets Hus, þar
sem fram komu skemmtikraftar
frá öllum Norðurlöndunum en
fulltrúar Islands voru þau Ing-
veldur ólafsdóttir og Gunnar
Friðjónsson, félagar i FUJ i
Hafnarfirði og var þeim vel fagn-
aö. Loks sungu menn enn einu
sinni Internationalinn og var þaö
minnistæö stund aö heyra þennan
blandaöa 800 manna kór af Norö-
urlöndunum syngja hinn aflþjóö-
lega sigursöug jafnaöarmanna af
krafti og innlifun. — KG
JÓN AUÐUNS
, Uf og
UFSVIÐHORF
Séra Jón Auðuns, frjálshyggju-
maður í trúmálum, orðsnjall í
ræðu sem riti, rekur hér æviþráð
sinn.Hann segir frá uppvaxtar- og
námsárum, afstöðu til guðfræði-
kenninga, kynnum af skáldumog
menntamönnum og öðru stór-
brotnu fólki og hversdagsmann-
eskjum, sem mótuðu lífsviðhorf
hans og skoðanir.
MÐmMim
SKIP&TJÖRINN
Fjórtán þættir um fiskimenn
og farmenn, skráðir af börnum
þeirra. Þeir voru kjarnakarlar,
þessirskipstjórar.allir þjóðkunnir
menn, virtir og dáðir fyrir kraft og
dugnað, farsælir í störfum og
urðu flestir þjóðsagnapersónur
þegar í lifanda lífi. - Ósvikin og
saltmenguð sjómannabók.
1-ÓKOIMHIt
MISSON -
HÚSFREYJAN
A SANDI
Fagur óður um móðurást og
makalausa umhyggju, gagnmerk
saga stórbrotinnar og andlega
sterkrar og mikilhæfrar alþýðu-
konu, saga mikilla andstæðna og
harðrar en heillandi lífsbaráttu,
þar sem togaðist á skáldskapur og
veruleiki, því Guðrún Oddsdóttir
vareiginkona skáldbóndans Guð-
mundar á Sandi.
Kiuni\Ki it
sict iuisso.v
I MOLDINNI ■
GL.ITRAR
GUL.L.IO
Hi. tt liHi.lv: tl
Opinskáar og tæpitungulausar
sögur úrfórumævintýramannsins
og frásagnarsnillingsins Sigurðar
Haralz, mannsins sem skrifaði
Emigranta og Lassaróna. Fjöldi
landskunnra manna kemur við
sögu, m.a. Brandur í Ríkinu,
Sigurður í Tóbakinu, Þorgrímur í
Laugarnesi og þúsundþjalasmið-
urinn Ingvar ísdal.
FARMAÐUR
I FRIOI OC STRÍDt
Jóhannes fer hér höndum um
sjóferðaminningar Ólafs Tómas-
sonar stýrimanns frá þeirri kvöld-
stund að hann fer barn að aldri i
sína fyrstu sjóferð á Mótor Hans
og til þeirrar morgunstundar að
þýzkur kafbátur sökkti Dettifossi
undir honum í lok síðari heims-
styrjaldar. - Hér er listilegfrásögn
og skráð af snilld.
Einn allra mesti fjallagarpur og
ævintýramaður heims segir frá
mannraunum og hættum. Bók
hans er skrifuð af geislandi fjöri
og leiftrandi lífsgleði og um alla
frásögnina leikur hugljúfur og
heillandi ævintýrablær, tær og
ferskur eins og fjallaloftið. - Þetta
er kjörbók allra, sem unna tjall-
göngum og ferðalögum.