Alþýðublaðið - 20.01.1977, Side 11
Carter ti íkur við embætti Ban idarí kjaforseta í dag
asbJSf’Cf-t' ~4jl - yfc! »j1'-* '-á»4k <>?•'48?’^staflK<v ■ ■.*"
Bæjarmörkin I Plains
HVER ER HANN, HVAÐAN KEMUR
HANN OG HVERT ÆTLAR HANN?
Hér segir frá Plains, heimabæ Carters í Georgiu
í dag tekur Jimmy Carter við embætti forseta
Bandarikjanna, og verður um ieið einn voldug-
asti maður veraldar. — Margt hefur verið skrifað
og skrafað um þennan mann: hver er hann,
hvaðan kemur hann og hvert ætlar hann?
Einni þessara spurninga er leitast við að svara
i þessari grein. Hún segir frá þvi umhverfi, sem
Carter ólst upp i, bænum Plains i Georgiu. —
Þessi grein er eftir norskan biaðamann, Kirsten
H. Buzzi, og fer hér á eftir þýdd og endursögð.
Daglega flykkjast feröamenn
þúsundum saman til Plains i
Georgiu. Þessi smábær er
aðeins byggður 684 ibúum og
var áður kyrrlátt og friðsamt
byggðarlag. En eftir að Jimmy
Carter var kosinn forseti hefur
bærinn orðið fjölsóttasti ferða-
mannaáfangi i Bandaríkjunum.
Flestir forseta Bandarikj-
anna, varaforseta og frambjóð-
enda til forsetakjörs hafa komið
frá smábæjum, þrátt fyrir það
að meginhluti Bandarikja-
manna býr i stórborgum. Það
eru aðeins 3 af 20 Bandarikja-
forsetum á siðastliðnum 100
árum, sem hafa átt uppruna i
stórborgum. Þeir eru Theodore
Roosevelt frá New York, Taft
frá Cincinnati og John F.
Kennedy frá Boston.
Aðrir hafa komið frá smá-
stöðum með nöfnum eins og
Stonewell, Point pleasant,
Russel og Caldwell, sem aldrei
hefðu komizt á blað I veraldar-
sögunni, hefði það ekki verið
vegna þess að þeir voru æsku-
stöðvar forseta.
En smábærinn Plains i
Georgiu er þó smæstur allra
með aðeins 684 ibúa.
Bandariskir sálfræðingar og
félagsfræðingar fullyrða, að
smástaðir þroski fremur öðrum
forystuhæfileika manna. Þar
þekki allir alla og hver einstak-
lingur beri viðtækari ábyrgð,
hver fyrir öðrum. Þar hafi
menn einnig ineiri áhrif, hver
og einn, á það sem er að gerast
hver ju sinni og auðveldara sé að
sjá árangurinn af starfi manna.
Uppvöxtur i smábæ knýi menn
til að þroska persónuleika sinn
jafnframt þvi sem samhygð
með öðrum aukist rikulegar en i
stórborgum.
En hvort sem menn álykta, að
það sé vegna þess, að Jimmy
Carter er uppfæddur i smá-
bænum Plains, eða ekki að hann
var kjörinn forseti, er það eitt
vist, að Carter hefur haft si
áhrif á staðinn.
Enda bótt Carter hafi verið
rikisstjóri i Georgiu og hann og
fjölskylda hans hafi verið
áhrifarik i Plains, var staðurinn
með öllu óþekktur i Banda-
rikjunum eins og utanlands þar
til Jimmy Carter kom fram á
sjónarsviðið sem frambjóðandi
við forsetakjör!
Nú er þessi fámenni og frið-
sæli Suðurrikjabær, með sina
684 ibúa daglega heimsóttur af
um 2000 ferðalöngum. Við það
bætist, að 3 stærstu sjónvarps-
félög Bandarikjanna, hafa
þarna hvert sina sjónvarpsblla
með áhöfnum og fullt er af
fréttamönnum og ljós-
myndurum viðsvegar að.
Akvörðun Carters um að búa i
heimabæ sinum til þess tima að
hann tekur við forseta-
embættinu, hefur einnig valdið
þvi, að þangað er stöðugur
straumur leiðtoga, pólitikusa og
ráðgjafa, til að taka þátt i alls-
kyns ráðstefnum. Þarna eru þó
hvorki hótel né mótel og sam-
göngurnar við bæinn eru ekki
beysnar. Aðeins smáflugvélar
geta lent á flugvellinum, járn-
brautarviðkomur engar s.l. 20
ár og aðeins ein áætlunarbilferð
á dag!
Þarna er raunar pósthús, sex
til sjö sölubúðir, bankaútibú,
hárgreiðslustofa, bensinaf-
greiðsla, sem Billy, bróðir Cart-
ers rekur og fornverzlun, sem
frændi hans Hugh A. Carter á.
Fram að þessu hefur þetta verið
allt, sem byggðarlag af þessari
stærð þarfnaðist. Hinsvegar eru
6 kirkjur i bænum og þar af 2
babtistakirkjur þar sem þel-
dökkir áttu ekki aðgang að
kirkju hinna hvitu og urðu að
byggja sér kirkju i öðrum
bæjarhluta!
En eftir að Carter hafði verið
kosinn forseti, beitti hann sér
fyrir þvi að söfnuðirnir samein-
uðust, enda hafði hann fengið
um 80% af atkvæðum hinna þel-
dökku!
Járnbrautin klýfur Plains i
tvo hluta. öðru megin hennar
eru stór ibúðarhús, vel máluð og
rikuleg, en hinum megin er allt
fátæklegra. Þar búa þeir svörtu.
Flestir ibúanna lifa af jarð-
hneturækt, annaðhvort sem
ræktunar- eða vinnumenn á
ekrunum. Carterfjölskyldan á
og rekur meirihlutann af ekrun-
um i Plains og Billy Carter
hefur tekið við rekstrinum, sem
Jimmy ánafnaði fjölskyldunni
þegar hann var kosinn forseti.
Hann vildi ekki vera bendlaður
við að nota aðstöðu sina sér til
fjárhagslegs framdráttar.
Að öðru leyti er einnig ræktað
dálitið af baðmull, mais og
soyabaunum umhverfis Plains
og þar er einnig rekin tilrauna-
stöð fyrir landbúnað.
Það kostar alls ekki svo mikið
að fara sýniför um Plains og
nágrenni og sjá þar allt það
sem á einhvern hátt er bundið
Carter. Þar má meðal annars
nefna sjúkrahúsið þar sem hann
fæddist, tréð sem hann lék sér i
sem krakki, staöinn þar sem
hann bað konunnar sinnar, en
hún er einnig ættuð frá Plains,
og skólann þar sem yngsta dótt-
irin, Amy, hefur sótt fram til
þessa.
Aki menn hægt framhjá
bústað Carters má sjá I svip
ibúðarhús hans bakvið nokkur
tré. Hans er nú vandlega gætt af
öry ggislögreglumönnum.
Flestir ibúar Plains virðast
kæra sig kollótta um allan þenn-
an fyrirgang, ennþá að minnsta
kosti.
þessum aldri sem ég hefi náð.”
En þeldökku unglingarnir eru
alls ekki uppi i skýjunum vegna
lifsmöguleika i Plains. Þeir láta
óspart I ljós, að þeir myndu
flytja burtu ef kostur væri,
vegna rótgróins atvinnuleysis
langtimum saman.
öðru máli gegnir um verzl-
unarstéttina I Plains. Flestir
hafa tifaldað umsetningu sina á
árinu sem leið og ætla að stækka
við sig. Uppi eru áform um að
koma á fót ferðaskrifstofu, til
þess að dreifa mannfjöldanum á
nærliggjandi staði, þar sem
margt merkilegra er að sjá en I
Plains.
En ferðafólkið kemur hingað,
þó hér sé ekkert að sjá, segja
þeir höfuðhristandi!
Fasteignaverð hefur rokib
Lillian, móöir Carters, skrafhreifin, þrátt fyrir 79 árin
Eftir forsetakosningarnar
komst Plains sannarlega i
sviðsljósið. Ferðamenn
flykkjast um verzlanirnar og
kaffihúsin við aðalgötu
bæjarins. Þeir standa i löngum
biðröðum, til þess að fá eigin-
handaráritanir og örstutt spjall
viö „gamla kvenskörunginn”
Lillian, móðir Jimmy Carters er
79 ára að aldri og tók ákafan
þátt i ksoningabaráttunni. Nú
fer hún daglega niður á kosn-
ingaskrifstofuna, til að spjalla
og gefa eiginhandaáritanir. í
Plains er hægt að fá allt mögu-
legt og ómögulegt milli himins
og jarðar, sem merkt er Jimmy
Carter og minjagripasalarnir
lifa sina gullöld.
Stofnað hefur verið til
jarðhnetusafns, þar sem hægt
er að fá að vita alla hluti um
jarðhnetur.
En þó flestir, sem til Plains
koma láti nú lita svo út sem þeir
hafi kosið Carter, fékk hann
ekki nema 481 atkvæði þar en
Ford 99.
„Enginn hafði heyrt um
Plains fyrr en öll þessi ósköp
duttu á”, segir landbúnaðar-
verkamaður, sem hefur átt
þarna heima i meira en 50 ár.
„Nú streymir hingað fólk frá
öllum heimshornum. Okkur
Hkar vel hér og fjölskyldu minni
þykir bara gaman að
öllum fyrirganginum”, bætir
hann við. „En hér hafa menn
engin uppgrip, fremur en
annarsstaðar I Suðurrikjunum.
Bróðir minn hefur t.d. flutzt til
. Norðurrikjanna og vinnur þar
fyrir miklu hærri launum. En
þar er lika dýrtiðin miklu meiri,
svo ég fer ekki héðan. Auk þess
er mesti galsinn úr manni á
upp úr öllu valdi i Plains. Allir
vilja búa i grennd við forsetann
þó öðrum þjóðum sé slikt tor-
skilið. En þeir eru einnig til,
sem eru ekki hrifnir um skör
fram, t.d. fjölskylda, sem hafði
flutt þangað fyrir tveim árum
og hafði rétt hreiðrað notalega
um sig og axlaði sin skinn i flýti,
þegar ósköpin hófust, og varla
var þverfótað um göturnar fyrir
ferðalöngum!
Trúlegt er að þetta haldi
áfram næstu fjögur ár, þvi for-
setinn hefur sagt, að hann muni
nota hvert tækifæri, sem hann
færfrá embættisstörfum til þess
að „koma heim”.
Billy bróðir hans sótti nýlega
um starf sem formælandi
bæjarins og undir þvi kjörorði
að viðhalda þvi sem er og hamla
móti breytingum og útþenslu i
Plains og reyna að losa sig við
feröamannastrauminn. Hann
féll I þeim kosningum!