Alþýðublaðið - 26.01.1977, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9
ass- Miðvikudagur 26. janúar 1977
„Dagur iðnaðar-
ins” í Kópavogi:
Skólafólkið tekur að sér að kynna iðnaðar-
framleiðslu bæjarins í skólunum í Kópavogi
Föstudaginn 28.
janúar verður „Dagur
iðnaðarins” i Kópa-
vogi, en áður hefur
hann verið haldinn á
Akureyri, Egilstöðum
og Borgarnesi.
Undirbúningur að
deginum hefur staðið
lengi og hefur sérstök
undir búnings nef nd,
skipuð af bæjarráði
Kópavogs haft það
verk með höndum.
Formaður hennar er
Bragi Mikaelsson
bæjarfulltrúi, en fram-
kvæmdastjóri Sigur-
laug Guðmundsdóttir.
Dagskrá „Dags iðnaöarins” i
Kópavogi veröur i stuttu máli
þannig, aö kl. 08.45 mun skóla-
hljómsveit Kópavogs leika viö
Félagsheimili Kópavogs og kl.
9.00 veröa fánar dregnir aö hún.
Þá mun Gunnar Thoroddsen
iönaðarráðherra heimsækja
iönfyrirtæki i bænum, i fylgd
með ýmsum forystumönnum is-
lenzk iðnaðar. Kl. 11.00 veröur
opnuð sérstæð sýning á iönaði i
bænum.
Sýningin verður i Þing-
holtsskóla og Vighólaskóla, en
nemendur þar hafa undirbúiö
kynningu á islenzkum iðnaði
með nokkuð nýstárlegum hætti.
Þeir hafa i samráði við kennara
sina kynnt sér starfsemi fjöl-
margra iðnfyrirtækja i Kópa-
vogi. Hafa nemendurnir farið i
smáhópum i fyrirtækin og tekiö
saman greinargeröir um starf-
semi þeirra. Að þvi loknu hafa
nemendurnir tekið sér fyrir
hendur að kynna viðkomandi
fyrirtæki með þvi að setja upp
sýningu i skólum sinum á fram-
leiösluvörum fyrirtækjanna. I
Vighólaskóla fer m.a. fram
kynning á húsgagnaiðnaði, fata-
iðnaði og listiðnaði, en i Þing-
LÉR K0NUNGUR
j ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Hjá Þjóðleikhúsinu eru nú
hafnar æfingar á leikritinu „Lér
konungur” eftir William Shake-
speare. Þekktur leikstjóri frá
Bretlandi, Hovhannes I. Pilikian,
hefur verið fenginn til að leik-
stýra verkinu, en honum til að-
stoðar er Stefán Baldursson.
Myndin er tekin á æfingu fyrir
nokkrum dögum, brezki leikstjór-
inn er vinstra megin við boröið, á
s
milli Steinunnar Jóhannesdóttur
leikkonu og Stefáns Baldursson-
ar.
Annar þekktur Breti gerir leik-
myndina fyrir ,,Lé konung”.
Hann heitir Ralph Koltai og er
ungverskur að uppruna, en flutt-
ist til Bretlands áriö 1939 og hefur
búið þar siðan. Hann mun talinn i
hópi beztu leikmyndateiknara
heimsins um þessar mundir.
—ARH
BORGARAFUNDUR UM
ORYGGISMÁL Á
AKRANESI I KVÖLD
Blaöinu hefur borizt eftirfar-
andi fréttatilkynning frá fram-
kvæmdanefnd Slysavarnardeild-
anna á Akranesi og blaðinu Um-
broti:
Slysavarnardeildirnar á Akra-
nesi og blaðið Umbrot gangast,
fyrir almennum borgarafundi um
öryggismál Akurnesinga i Bió-
höllinni á Akranesi i kvöld klukk-
an 20.30.
Framsögu um öryggismálin
hafa fulltrúar opinberra aöila, er
að þessum málum starfa, þar á
meðal frá Akranesbæ, bæjarfó-
getaembættinu, Slökkvistöð og
fleirum.
A fundinum munu koma fram
upplýsingar er varöa öryggismál
Akurnesinga. Þar verður einnig
svarað fyrirspurnum og ábend-
ingum frá bæjarbúum. Þá verða
einnig bornar upp tillögur til úr-
bóta á ýmsum þáttum öryggis-
mála, svo sem varöandi löggæzlu,
öryggisvakt allan sólarhringinn,
aukið brunaeftirlit og fræðslu.
Einnig, að Almannavarnir Akra-
ness verði betur virkjaðar með
búnaði og æfingum.
Framkvæmdanefnd borgara-
fundarins hvetur Akurnesinga til
að mæta vel, þvi þá má vænta
góðs árangurs.
holtsskóla mun byggingaiðnað-
ur, matvælaiðnaöur, þjónustu-
iðnaður og prentiönaður veröa
kynntur.
Sýningar þessar verða opnar
almenningi frá kl. 14.00 á föstu-
dag og lýkur kl. 22.00 á sunnu-
dagskvöld. Þá má geta þess, að
i Þingholtsskóla, þar sem mat-
vælaiönaðurinn veröur kynntur,
gefst gestum kostur á þvl aö
bragða á þeim réttum sem fram
eru bornir. Tizkusýningar verða
haldnar i Vighólaskóla, þar sem
fataiðnaðarsýning fer fram og
eru það nemendur skólans sem
sýna.
K. 14.00 hefst fundur um mál-
efni iðnaðarins i Félagsheimili
Kópavogs. Þar mun Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
flytja árvarp, en framsöguer-
indi flytja Björgvin Sæmunds-
son bæjarstjóri og Davið Sch.
Thorsteinsson formaður Félags
islenzkra iðnrekenda. Fundin-
um stjórnar Magnús Bjarn-
freösson bæjarfulltrúi.
Þá má geta þess aö lokum, að
á „Degi iönaðarins” munusam-
tök iðnaðarins heiðra ýmsa
aöila fyrir störf að iðnaöarmál-
um. —ARH