Alþýðublaðið - 26.01.1977, Qupperneq 13
alþýöu* •
biaóíA jMiðvikudagur 26. janúar 1977
i...TIL KVðLDS 13
|ý*varm
7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10 Morgun-
leikfimikl. 7.15 og 9.05. Fréttir
kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dag-
bl.j 9.00 og 10.00. Morgunbæn
kl. 7.50. Morgunstund barnanna
kl. 8.00: Herdis Þorvaldsdóttir
les framhald sögunnar „Berðu
mig til blómanna” eftir Walde-
mar Bonsels (9). Tilkynningar
kl.9.30. Þingfréttir kl. 9.45 Létt
lög milli atriða. Andleg ljóðkl.
10.25: Sigfús B. Valdemarsson
les sálma eftir Fanny Crosby
og segir frá höfundinum.
Kirkjutónlist kl. 10.40. Morgun-
tónleikar kl. 11.: Burghard
Schaeffer og kammersveit
leika Flautukonsert i G-dúr
eftir Pergolesi: Mathieu Lange
stj. / Janet Baker syngur með
Ensku kammersveitinni
„Lucreziu” kantötu eftir
Handel: Raymond Leppard stj.
/ Félagar úr Saxnesku rikis-
hljómsveitinni leika Hljóm-
sveitarsvitu i D-dúr eftir Tele-
mann: Kurt Lierch stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar Viö vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Bókin um
litla bróöur” eftir Gustaf af
Geijerstam Séra Gunnar Arna-
son lýkur lestri þýðingar sinnar
(11).
15.00 Miðdegistónleikar Willv
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir.)
16.20 Popphorn
17.30 Útvarpssaga barnanna:
„Borgin við sundið” eftir Jón
Sveinsson (Nonna) Freysteinn
Gunnarsson fslenzkaði. Hjalti
Rögnvaldsson les (3).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Dulræn reynsla Dr. Er-
lendur Haraldsson lektor flytur
sfðara erindi sitt um könnun á
reynslu tslendinga af dulræn-
um fyrirbrigðum.
20.00 Kvöldvaka a. Einsöngur:
Maria Markan syngur lög eftir
Sigvalda Kaldalóns, Sigfús
Einarsson, Sigurö Þórðarson,
ÞórarinGuðmundsson, Markús
Kristjánsson og Eyþór Stefáns-
son. Beryl Blanche. Fritz
Weisshappel og Ólafur Vignir
Albertsson leika á pianó. b.
„Hvort er þá nokkuð sem
vinnst?” Halldór Pétursson
flytur frásöguþátt. c. Kvæði
eftir Ingiberg Sæmundsson
Valdimar Lárusson les. d. 1
vöku og draumi Guðrún Jóns-
dóttir segirfrá reynslu sinni. e.
Um islenzka þjóðhætti Arni
Björnsson cand. mag flytur
þáttinn. f. Kórsöngur Félagar
úr Tónlistarfélagskórnum
syngja lög eftir Ólaf Þorgrims-
son: dr. Pálllsólfsson stjórnar.
21.30 (Jtvarpssagan: „Lausnin”
eftir Arna Jónsson Gunnar
Stefánsson les(10).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Kvöldsagan:
„Minningabók Þorvalds
Thoroddsens” Sveinn Skorri
Höskuldsson les (36)
22.40 N útim atónlist Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
18.00 Hviti höfrungurinn.
Franskur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Ragna Ragnars.
18.15 A vit hins ókunna. Mynd
þessi er svokallaður visinda-
skáldskapur og lýsir ferö
tveggja fjölskyldna um himin-
geiminn með eldflauginni
Altares, sem náð getur hraða
ljóssins. Ferðinni er heitið til
stjörnu, sem er i fjörutiu
milljón km fjarlægö frá jörðu.
Þýðandi Ingi Karl Jóhannes-
son.
19.05 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Meðferð gúmbjörgunar-
báta.Fræðslumynd um notkun
gúmbáta og fleiri björgunar- og
öryggistækja. Kvikmyndun
Þorgeir Þorgeirsson. Inn-
gangsorð og skýringar Hjálm-
ar R. Bárðarson, siglingamála-
stjóri. Siðast á dagskrá 1.
febrúar 1976.
20.55 Vaka Dagskrá um bók-
menntir og listir á liöandi
stund. Umsjónarmaður
Magdalena Schram. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
21.45 Maja á Stormey. Finnskur
framhaldsmyndaflokkur i sex
þáttum, byggður á skáldsögum
eftir álensku skáldkonuna Anni
Blomqvist. 2. þáttur. Við hafið.
Efni fyrsta þáttar: Alenska
stúlkan Maria Mikjálsdóttir
giftist unnusta sinum, Jóhanni,
árið 1847. Þau ætla aö hefja bú-
skap á Stormey, sem er langt
utan alfararleiðar. Móöir
Mariu reynir að búa hana sem
best undir það erfiöislif, sem
hún á i vændum. Þýöandi Vil-
borg Sigurðardóttir. (Nord-
vision — Finnska sjónvarpið)
22.45 Dagskrárlok.
Siónvarp
Á VIT HINS ÓKUNNA
>• £0 ‘ J jLmJf'*' • i
Hflp £ Sð&rrSÍX
A vit hins ókunna nefnist kvik-
mynd sem er á dagskrá sjón-
varpsins kl. 18.15 I dag.Mynd
þessi er svokallaður visinda-
skáldskapur og lýsir ferö
tveggja fjölskyldna um himin-
geiminn með eldflauginni
Aitares, sem náð getur hraða
Ijóssins. Feröinni er heitiö til
stjörnu sem er i fjörutiu milljón
km fjarlægð frá jöröu. Þýðandi
er Ingi Karl Jóhannesson.
Tylltu þér við vinnuna
Er þannig háttað til viö vinnu
þína aö þú þarft að standa upp á
endann mestan hluta dagsins pg
getur vart tyllt þér niður né i
matar og kaffitimum? Ef svo er
þá veistu áreiðanlega hvaö það
er að vera þreyttur i fótunum.
Vestur Þjóðverjar hafa löngum
verið snjallir menn og nú hafa
þeir sett á markað stólinn sem
gefur að lita á myndinni hér að
ofan. Svo sem sjá má er verka-
maðurinn lltið hærri I loftinu en
ef að hann stæöi uppréttur.
Á síðasta ári settu
Vestur-Þjóðverjar ný lög um
aöbúnað á vinnustöðum og það
var vegna þessarar lagasetn-
ingar sem ráðizt var i gerð
stólsins. Hann hefur hlotið
meðmæli heilbrigöisyfirvalda
og að sögn þeirra sem reynt
hafa dregur hann stórlega úr
bakverkjum og fótaþreytu, sem
oft fylgir miklum stöðum. S.vo
sem sjá má er unnt að stilla hæð
stólsins svo hann ætti þvi að
geta hentaö háum sem lágum.
AF HVERJU ER BARNIÐ
HRÆTT VIÐ LÆKNINN?
Flest börn eru hrædd við
lækna. Sum eru jafnvel svo ótta-
slegin, ef þau verða að fara til
læknis, að meðferðin kemur
þeim að litlu gagni.
En visindin láta ekki að sér
hæða frekar en fyrri daginn, og
nú er það ætlun sérfræðinga i
Hámborg, aö reyna að komast
aö þvi af hverju þessi ótti við
mennina og konurnar i hvitu
sloppunum stafar. Fer
rannsóknin þannig fram, að
myndavélum er komið fyrir,
þar sem börnin verða þeirra
ekki vör. Siðan eru heimsóknir
þeirra til læknisins festar á
filmu. Auk þess er rafskautum
komið fyrir á likama viðkom-
andi barns, og á þann hátt er
hægt að skrá kviöa barnsins, þó
hans verði ekki vart að öðru
leyti.
Auk þess fá foreldrar og börn
spurningalista sem þeim er ætl-
að að útfylla eftir beztu
samvisku, eftir að rannsóknin
hefur farið fram.