Alþýðublaðið - 24.02.1977, Síða 14

Alþýðublaðið - 24.02.1977, Síða 14
141LISTIR/MEMMING Fimmtudagur 24. febrúar 1977 alþýðu- bladið Sýning á palestínskum Síðastliðinn mánudag opnaði Pálestinunefndin á Islandi sýn- ingu i Gallerý Súm á palestinsk- um plakötum og fleiri munum. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu við væeu verði. en aðgangur er ókeypis. Um leið og Eitt plakatanna á sýningunni. Ab. mynir — GEK sýningin var opnuö, hófst fjár- söfnun til styrktar Rauða hálf- . mána Palestinu, sem eru llknarsamtök á svipuðum grundvelli og Rauði krossinn. t frétt frá nefndinni i tilefni sýningarinnar segir meðal ann- ars: „ARt fram á siðustu ár hef ur umheimurinn neitað að viðurkenna Palestinuaraba sem þjóð, en kosið að lita á þá ein- göngu sem flóttamenn, án for- tiðar og framtiðar. En vegna þrotlausrar baráttu palestinsku þjóðarinnar, undirforystu PLO, hefur umheimurinn neyðst til að viðurkenna að til er palestinsk þjóð og að henni ber sjálfs- ákvörðun i eigin landi. Hér á Islandi hefur áróður gegn Palestinuaröbum verið gifur- lega sterkur. I fréttum fjölmiöla vaða uppi lygar og rangtúlkanir og svo virðist sem svo miklu hafi verið logið að allt i lagi sé að slá fram „staðreyndum” að Palestinuarabar vilji alla gyöinga feiga o.sv.frv.” Sýningin verður opin fram til 6. marz alla virka daga kl. 4—8 og laugardaga og sunnudaga kl. 2—10. —GEK plakötum Styrktarfélag vangefinna: „Verkamaður” gefur 230 þús. Styrktarfélagi vangefinna hafa borizt margar stórar gjafir að undanförnu. 1 janúarmánuði siðastliðnum bárust félaginu peningagjafir fyrir alls kr. 486.854. Stærsta gjöf sem félag- inu barst var gjöf frá „Verkamanni” sem ekki vill láta nafnsins getiö, en hann gaf alls kr. 231.000. Er þetta i f jórða sinn semhann færir styrktar- félaginu stórupphæðir. Börn Gunnvarar Magnúsdótt- urfærðufélaginu minningargjöf um móöur sina að upphæð kr. 100.000. Lionsklúbburinn Baldur gaf kr. 50.000 til Lyngásheimilisins, Guðlaug Ingvarsdóttir í Nes- kaupstað og Jón Runólfsson i Reykjavik gáfu 50.000 hvort. Aðrar gjafir voru minni. Þrir hópar með hlutaveltur söfnuðu kr. 25.354 og gáfu til félagsins. A árinu 1976 námu gjafir til Styrktarfélags vangefinna kr. 368.139, en margar hlutaveltur voru haldnar það ár til styrktar félaginu. —AB SINFÓNÍUTÓNLEIKAR 10. reglulegu tónleikar Sinfóniuhljómsveitarinnar veröa haldnir I Háskólabiói fimmtudag- inn 24. febrúar, og eru það 2. tónleikar á nýbyrjuðu siðara misseri starfsársins 1976/77. Stjórnandi er franski hljóm- sveitarstjórinn Jean-Pierre JacquiIIat, sem er þegar orðinn einkar vinsæll meðal Islenzkra tónleikagesta eftir fyrri heimsóknir hans hingað, en þetta er I f jórða sinn sem hann stjórnar VIPPU - BliSKÚRSHURÐIN Sinfónluhljómsveit Islands. J.P. Jacquillat hefur starfað sem fastráðinn hljómsveitar- stjóri við Orchestre de Paris, Angers Philharmonic Orchestra og farið i hljómleikaferðir með þeim hljómsveitum. Siðar var hann ráðinn aðalhljómsveitar- stjóri óperunnar I Lyon, og jafn- framt varð hann gesta-hljóm- sveitarstjóri við ótal óperur i Evrópu og Ameríku. Frá árinu 1975 er hann fastráðinn listrænn ráðunautur hinnar þekktu Lamoureux hljómsveitar I Paris. Einleikari á þessum tónleikum er Jónas Ingimundarson pianó- leikari, og mun hann flytja einleikshlutverkið I pianókonsert nr. 2 eftir Saint-Saens. Jónas hefur viða komið fram ýmist sem einleikari eða undir- leikari og ennfremur I kammer- sveitum. Hann starfar einnig sem kórstjóri karlakórsins Fóst- bræðra og fór á siðastliðnu sumri með kórnum i söngför um Finnland, Rússland og Lithauen. Skömmu siðar lék Jónas einleik i pianókonsert Griegs meö Sinfóniuhljómsveitinni I Tampere I Finnlandi. Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270sm Aðrar stærðir.smffiaðar eftir beiðni. GLUGGAS MIÐJAN Síðumúla 12 - Sími 38220 Tækni/Vísindi í þessari viku: Helium-þverrandi frumefni? 3. í fyrri heimsstyrjöldinni lét bandarikjastjórn byggja nokkrar stórar helium vinnslu- stöðvar sem sjá skyldu hernum fyrir nsgu magni -heliums I njósnaloftskip. Eftir striðið höfðu visinda- menn yfir meira magni heliums að ráða heidur en áður og jukust þvi rannsóknir á hinum merkilegu eiginleik- um þessa frumefnis að mun. Þessir eiginieikar heliums hafa gert það að verkum að það er mjög verðmætt sem varnartæki i kjarnorkuverum. Helium brennur ekki og springur ekki, verður ekki geislavirkt, leiðir hita vel, en leysist illa upp i vökvum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.