Alþýðublaðið - 26.05.1977, Page 1
FIMMTUDAGUR 26. MAÍ
108. tbl. — /977 — 58. árg.
Áskriftar-
síminn er
f 14-900 |
12 dóttur- og hlutdeildarfyrirtæki
skráð hjá Flugleiðum
I skýrslu um rekstur Flug-
leiða sem lögð var fram á aðal-
fundi félagsins i vikunni, er m.a.
listi yfir stöðu dótturfyrirtækja
og hlutdeildarfyrirtækja Flug-
leiða á tslandi og i öðrum lönd-
um. Dótturfyrirtækin erutalin3:
International Air Bahama
Ltd. Velta fyrirtækisins var
$14.1 milljónir á árinu 1976 og
hafði aukizt um 2.1% frá árinu
áður. Nokkurt tap er sagt á
rekstrinum 1976. Yfirvöld
Bahama hafa endurnýjað flug-
rekstrarleyfi félagsins til 5 ára,
en f yrirtækið er skráð i Nassau,
Bahama. Það er að fullu eign
Hekla, Holdings Ltd.,sem aftur
er að fullu i eigu Flugleiða hf.
Þriðja dótturfyrirtækið er Hótel
Esja hf., en það fyrirtæki
keyptu Flugleiðir i april 1974.
Velta Hótels Esju á árinu 1976
varð 318.0milljónir, en var 195.2
milljónir árið áður. Tap er sagt
á rekstrinum árið 1976.
Auk framangreindra dóttur-
fyrirtækja eru dótturfyrirtæki
Flugleiða, sem hafa verið
mynduð um söluskrifstofur er-
lendis vegna lagaákvæða i við-
komandi löndum. „Rekstrar-
kostnaður þessara fyrirtækja er
kostnaður vegna markaðs- og
sölustarfsemi i þessum löndum,
og er hann borinn af umboðs-
launum til þessara dótturfyrir-
tækja, en þau eru gjaldfærð i
reikningum Flugleiða hf.M
segir i skýrslunni. Þessi dóttur-
fyrirtæki eru: Loftleiðir Ice-
landic Airlines, S.A., Luxem-
burg: Loftleiðir Icelandic Air-
lines S.A.R.L., Paris: Icelandic
Airlines, Inc., New York, og
Icelandic de Colombia, Ltda.,
Bogota, Colombia. „Vegna
breyttra markaðsaðstæðna i
Colombiavar ákveðiðá árinu að
leggja siðastnefnda fyrirtækið
niður, og hætti það starfsemi
sinni i byrjun október 1976”,
segir i skýrslu aðalfundarins.
Svo eru það hlut-
deildarfy rirtækin...
„Hlutdeildarfyrirtæki” Flug-
leiða eru talin eftirfarandi 6
fyrirtæki:
Cargolux Airlines Inter-
national S.A. Meginþátturinn i
starfeemi fyrirtækisins er fragt-
flug á alþjóðlegum flutninga-
markaði. Um 50% flutninganna
eru til og frá Austurlöndum
fjær, en einnig er um að ræða
verulega flutninga til og frá
Afriku. Þá rekur fyrirtækið við-
gerðadeild i Luxemburg, þar
sem höfuðstöðvar þess eru.
Velta fyrirtækisins jókst veru-
lega á árinu 1976 og nam $53.3 á
gengi i árslok 1976. Aukningin
frá árinu áður nam 31%.
Ferðaskrifstofan Crval hf.
Fyrirtækið hefur sérhæft sig i
skipulagningu og sölu ferða til
sólarlanda, auk þess sem það
selurhverskonar farseðla til út-
landa og annast tilsvarandi
starfsemi. Þá annast skrifstof-
an Umboðsrekstur fyrir Smyril
á Islandi. Nettó velta fyrirtæk-
isins á árinu 1976 varö 219
milljónir.
Kynnisferðir f erðaskrifstof-
anna sf. Fyrirtækið er sameign
Flugleiða og feröaskrifstofa i
Reykjavik.Eiga Flugleiðir 45%
i fyrirtækinu. Ársveltan á árinu
1976 var 77 milljónir og nam
veltuaukning 43% frá árinu áð-
ur.
Flugfélag Noröurlands hf.
Flugleiðir eiga 35% hlutafjár i
fyrirtækinu, en að öðru leyti er
Framhald á bls. 10
HNEYKSLANLEG VIÐ-
SKIPTI í KÓPAVOGI
1 siðasta tölublaði Alþýöu-
blaðs Kópavogs er greint frá
furöulegum og jafnframt
hneykslanlegum húsaleigu-
samningi sem meirihluti
bæjarstjórnar Kópavogs gerði
við einn af fulltrúum Sjálf-
stæöisflokksins I þessum sama
méirihluta.
Er hér um að ræða kjallara-
húsnæði I Hamraborg 1—3
sem bærinn tók á leigu fyrir
félagsstofnun aldraðra, en
einn af eigendum húsnæðisins
er bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins I Kópavogi.
Einnig er ráögert að hýsa i
kjallaranum eitthvaö af
Iþróttakennslu skólanna „þótt
svo að húsnæðiö sé litt fallið til
þeirra afnota”, svo notuð séu
orð blaðsins.
Bærinn fékk húsnæðið i
hendur fullmúraö með frá-
genginni raflögn, en mun að
öðru leyti hafa tekið að sér að
fullgera húsnæöið. Er sá
kostnaður bæjarins nú kominn
I 15—16 milljónir króna.
Húsaleiga sú sem bærinn
greiðir fyrir afnot afþessuhús-
næði er visitölutryggð og nam
i marzmánuði kr. 236.304.
Ofan á þessa húsaleigu bætast
siðan ákvæöi i leigusamning-
inn sem gera ráð fyrir að hús-
eigendur eignist að 5 árum
liönum 4/5 hluta af öllu þvi
sem bærinn hefur gert fyrir
húsnæðið og allt ef leigan er
framlengd.
Ef 4/5 af 15 milljónum sem
eru 12 milljónir kr. er deilt
Framhald á bls. 10
HERJÓLFUR SIGLIR Á NÝ
Herjólfur hefur nú aftur byrj-
að siglingar á milli Vestmanna-
eyja og fastalandsins. Eins og
kunnugt er fór fram mikil og
dýr viögerð á skipinu vegna
galla, sem komu fram I því. Nú
sr viðgerðinni iokið, titringur-
inn horfinn og allt komið I samt
lag.. ítmyndinni sést Herjóifur
leggja af stað I fyrstu feröina að
iokinni viðgerð og innanborðs
eru 30 bflar.
Ekkert þokaðist í gær
Aðalsamningafundi i gær lauk
laust fyrir kl. 18 án þess að þar
gerðist eitthvað fréttnæmt og
hefur annar fundur veriö
boöaður kl. 16 i dag.
A þriöjudagskvöldiö féllust
atvinnurekendur á 2 1/2%
kauphækkun til lausnar á sér-
kröfum verkalýösfélaganna, en
I þvi voru einmitt tillögur sátta-
nefndar fólgnar.
Formannafundur verkalýðs-
félaganna i Reykjavik og
Hafnarfirði samþykkti enn-
fremur á þriöjudagskvöldið, að
beina þvi til félaganna á höfuð-
borgarsvæöinu að boða til alls-
herjarverkfalls föstudaginn 3.
júni. Þá verða hliðstæðar
verkafallsaðgeröir I öllum
landsfjóröungum dagana 3.-9.
júni. —hm
Jón Sigurðsson rit-
stjórnarfulltrúi Tímans
Allt frá þvl aö þaö kvisaðist út
að Alfreð Þorsteinsson hyggðist
hætta störfum við dagblaðiö
Tlmann, hafa verið á lofti get-
gátur um að von væri á Jóni
Sigurðssyni til starfa við blaðiö.
Jón Sigurösson hefur komið
talsvert við sögu Framsóknar-
flokksins og hóf meðal annars
aö skrifa vikulegar greinar I
Timann um svipað leyti og Al-
freö hætti.
Erfiölega hefur gengiö aö fá
þessa lausafréttstaðfesta þar til
i gær að Jón Sigurðsson gekkst
við henni I samtali viö blaða-
mann Alþýðublaösins.
Að sögn Jóns mun hann um
næstu mánaöarmót taka við
starfi ritstjórnarfulltrúa sem
Freysteinn Jóhannsson gegndi
áöur, en Freysteinn hóf fyrir
nokkru störf sem blaðamaður
við Morgunblaðiö.
Sagði Jón að ráðning hans
væri ekki sfzt til kominn vegna
þess að þeir Freysteinn og Al-
freð hafa báðir hætt störfum viö
Tlmann, svo og vegna þess að
Þórarinn Þórarinsson mun á
næstunni dvelja langtlmum er-
lendis, þar sem hann situr Haf-
réttarráöstefnu Sameinuðu
þjóöanna. Þvi væri ljóst að
fjölga þyrfti I starfsliði blaðsins.
Aðspurður kvað Jón óráðið
hvort ráðning hans væri til
frambúðar, það yrði tlminn að
leiða I ljós.
—GEK
l®|
BUtstJórn Sfóumúla II - Sfmí 8I8ÓÓ