Alþýðublaðið - 08.06.1977, Page 2
2 STJÚRNMÁL/ FRÉTTIR
Miðvikudagur 8. júní 1977 ^faéfsJ1
Ctgcfa.idi: Alþýðúflokkurínn.
Reksiur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson. _ „ .
Aðsetur ritstjórnar er i Slðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906.
Askriftorsími 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftarverð: 1100 krónur á mánuð^og 60 krónjr i lausasölm
Engin pólitísk hrossakaup
Fulltrúar Alþýðu-
flokksins og Kjördæmis-
ráðs Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna á
Vestfjörðum áttu fyrir
skömmu viðræður í
Hnífsdal, þar sem Sam-
tökin höfðu óskað eftir að
kanna, hvort Alþýðu-
flokkurinn væri reiðubú-
inn til samstarfs við þau
fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. Fundur þessi og
eftirleikur hans hafa
vakið mikla athygli um
allt land.
Svo er að sjá, að full-
trúar Samtakanna á
Vestfjörðum hafi komið
fram sem stjórnmála-
flokkur og óskað eftir
samningum um fram-
boðssæti, eins og oft hafa
tíðkast fyrr á árum í ís-
lenzkri flokkapólitík.
Fulltrúar Alþýðu-
flokksins gerðu hins veg-
ar grein fyrir því, að
samkvæmt lögum flokks-
ins sé skylt að viðhafa op-
ið, f rjálst próf kjör um val
á f rambjóðendum f lokks-
ins í ölium kjördæmum
við alþingiskosningar.
Reglur um prófkjörið eru
á þá lund, að allir geta
boðið sig fram, sem eru
kjörgengir og fá 25
flokksbundna alþýðu-
flokksmenn til að mæla
með sér, en 50 í Reykja-
vík og á Reykjanesi. Þá
geta allir kosið í próf kjör-
inu, sem eru 18 ára að
aldri og ekki félags-
bundnir í öðrum stjórn-
málaflokkum. Þessar
reglur geta ekki frjálsari
verið og þykir meira að
segja mörgum, að Al-
þýðuflokkurinn taki all-
mikla áhættu með því að
ganga svona langt í
frjálslyndisátt.
Formaður Alþýðu-
flokksins, Benedikt
Gröndal, sem tók þátt í
viðræðunum í Hnífsdal,
hefur lýst yfir, að Al-
þýðuf lokkurinn muni
samkvæmt lögum sínum
standa á eigin fótum og
bjóða fram í öllum kjör-
dæmum við næstu alþing-
iskosningar, en flokkur-
inn rétti fram hendi og
bjóði öllum fylgismönn-
um jafnaðarstefnu þátt-
töku í frjálsu, opnu próf-
kjöri, ef þeir vilja sam-
starf og samfylkingu lýð-
ræðissinnaðra vinstri-
manna í einum flokki.
Um hrossakaup upp á
gamla mátann er ekki að
ræða.
Viðræðunefnd frjáls-
lyndra á Hnífsdalsfund-
inum lýsti yfir, að henni
bæri skylda til að leggja
niðurstöður fyrir fund i
kjördæmisráði flokks-
ins á Vestf jörðum, og er
það lýðræðisleg og eðlileg
afstaða. Þess vegna hef-
ur það vakið nokkra at-
hygli, að forustumaður
frjálslyndra þar vestra
Karvel Pálmason al-
þingismaður, hef ur þegar
gefið yfirlýsingar í fjöl-
miðlum, þar sem hann
virðist hafna tilboði Al-
þýðuf lokksins — eða fer
mjög neikvæðum orðum
um það, að ekki sé meira
sagt.
I Alþýðuflokknum fer
nú fram margvíslegur
undirbúningur að próf-
kjörum, sem helzt er bú-
izt við að fari f ram næsta
haust, verði ekki efnt til
haustkosninga í skyndi.
Komið hefur i Ijós, að í
öðrum stjórnmálaf lokk-
um, sem viðhafa prófkjör
í einstökum kjördæmum
er áhugi á því kosninga-
kerfi sem Alþýðuflokkur-
inn hef ur ákveðið að nota,
enda skiptir miklu hvern-
ig prófkjör er fram-
kvæmt.
Prófkjör Alþýðuf lokks-
ins byggist á bjartsýni og
víðsýni. Flokkurinn
treystir fólki, sem áhuga
hefur á heiðarlegum og
lýðræðislegum stjórn-
málum, til að hagnýta
kjörið og gera það að
virku tæki til að auka á-
hrif almennings á val
kjósenda. Prófkjör má
auðvitað misnota, eins og
önnur kerfi til vals kjós-
enda, en treysta verður
hinu góða frekar en hinu
illa í þessum efnum.
Próf kjörið fer fram opin-
berlega, og ætti það að
draga verulega úr göllum
þess. Alþýðuf lokkurinn
starfar fyrir opnum
tjöldum. Hann er nú að
efla til muna allt félags-
og fræðslustarf sitt, en
með því eflist lýðræðið í
flokknum. —ó—
Mesta hlutdrægnisbrot
í sögu Ríkisútvarpsins
Fyrir nokkrum vikum
benti Alþýðublaðið á það í
ritstjórnargrein, að lestur
á endurminningum Jóns
Rafnssonar sem ,,kvöld-
sögu" í Ríkisútvarpinu
væri gróft brot á kjarna
útvarpslaganna, sem er
ákvæðið um óhlutdrægni
stofnunarinnar. í þessum
endurminningum ræðst
höfundur, sem var yfir-
lýstur kommúnisti, á Al-
þýðuflokkinn og nafn-
greinda forustumenn
hans af pólitísku'
miskunnarleysi, sem
tíðkast í hita baráttunnar,
en á auðvitað ekki heima í
Ríkisútvarpinu.
Lestur þessarar
„kvöldsögu" heldur
áfram viku eftir viku.
Fleiri og fleiri alþýðu-
flokksmenn, sumir látnir
en aðrir aldraðir menn,
verða fyrir pólitískum
árásum í þessum lestrum
án þess að þeir eigi þess
kost að verja hendur sín-
ar. Blekkingum um flokk
og menn er hellt yfir
nýja kynslóð hlustenda
sem ekki þekkir til að-
stæðna og ef til vill
treystir stofnun eins og
Ríkisútvarpinu.
Þær „afsakanir" voru
bornar fram í biöðum, að
Alþýðusamband islands
hefði óskað eftir lestri
þessarar sögu. Enda þótt
svo væri, þá er ekki hlut-
verk Alþýðusambandsins
eða annarra samtaka að
gæta óhlutdrægni í dag-
skrá útvarpsins. Það er
verkefni útvarpsráðs og
því verkefni hefur ráðið
brugðizt á hrikalegan
hátt. Þetta er tvímæla-
laust mesta hlutdrægnis-
brot í sögu Rikisútvarps-
ins, ekki framiðaf einum
fyrirlesara, heldur fyrir-
fram undirbúið og sam-
þykkt af útvarpsráði.
Ætlar ráðið að láta við
svo búið sitja og gera ekki
neitt? Ætlar það að láta
fjölda einstaklinga, að
ekki sé mii*nzt á heilan
stjórnmálaf lokk, sitja
undir slíkri svívirðu án
þess að ráðið hafi mann-
dóm í sér til að segja eitt
orð? Er ekki vottur af
siðferðis- eða réttlætis-
kennd í ráðinu?
—B.Gr.—
ÚR YMSUM ÁTTUM
Núna i þessum mánuöi stend-
uryfir útbreiðsluherferð hjá Al-
þýðublaðinu. Markmiðið er 250
nýir áskrifendur i júni. Að visu
má segja að ekki hafi vel tekizt
til um timasetningu herferðar-
innar, þvi ekkert dagblaðanna
hefur orðið jafn illilega úti i yf-
irvinnubanninu og Alþýðublað-
ið. Helgarblöðin hafa dottið nið-
ur og auk þess hefur orðið að
skera stærð blaðsins niöur i 12
siður hvað eftir annað.
Þátt fyrir þessa erfiðleika
hefur áskriftasöfnunin borið
árangur, þvi daglega berast á-
skrif tarbeiðnir hvarvetna að af
landinu.
Eftir að Reykjaprent tók við
rekstri Alþýðublaðsins um sið-
ustu áramót bar allmikið á þvi
að flokksbundnir Alþýðuflokks-
menn segðu upp blaðinu. Astæð-
an fyrir þvi mun fyrst og fremst
hafa verið sú, að menn óttuðust
að stjómendur Visis og Reykja-
prents mundu reyna að hafa á-
hrif á stefnu og stjórnmálaskrif
blaösins.
Nú hefur komið i ljós að þessi *
ótti hefur reynzt ástæðulaus,
með öllu. Samskipti blaðstjórn-
arinnar og Reykjaprents hefur
verið með slikum ágætum, að
ekki verður á betra kosið.
Hinsvegar hefur stjórn
Reykjaprents lagt áherzlu á
aukna hagræðingu, sem miðaði
að þvi að blaðið gæti staðið f jár-
hagslega undir eigin rekstri.
Slika bjartsýni hafa forsvars-
menn Alþýðublaðsins ekki leyft
sér að láta uppi árum saman,
enda hefur Alþýðuflokkurinn
orðið að standa undir halla-
rekstri blaðsins allt fram til sið-
ustu áramóta, er Reykjaprent
tók við rekstrinum.
Eins og áður segir hafa Al-
þýðuflokksmenn um alltland nú
tekið höndum saman við að út-
breiða blaðið, og sýna þar með i
verki að þeir kunna að meta
drengilega og kraftmikla sam-
starfsaðila.
Alþýðuflokksmenn sjá siður
ensvo hag i þvi að láta Reykja-
prent standa undir taprekstri
Alþýðublaðsins. Þvertá móti er
það öllum Alþýþuflokksmönn-
um fagnaðarefni aö tekizt hefur
samvinna við rekstraraðila,
sem kunna vel tii verka ogvirða i
einu og öllu óskoraðan rétt Al-
þýðuflokksins og ritsjóra Al-
þýðublaðsins.
Rétt er að undirstrika, að At-
þýðublaðið er ekki, hefur aldrei
verið og mun aldrei verða hlut-
laust dagblað svo lengi sem Al-
þýðuflokkurinn gefur það út. Al-
þýðublaðið er fyrst og fremst
málgagn Alþýðuflokksins og
jafnaðarstefnunnar á Islandi,
og með það i huga er vissulega
ástæða til að hvetja alla stuðn-
ingsmenn flokksins og fylgjend-
ur jafnaðarstefnu að gerast á-
skrifendur blaðsins og vinna um
leiö aðþvi að Alþýðublaðið verði
áhrifameira og sterkara en
nokkru sinni fyrr.
— BJ
ión Skúlason fékk
ekki sjónvarpstæki
frá Ríkisútvarpinu
Alþýðublaðið greindi fyrir
nokkru frá athugasemdum
endurskoðunarmanna rikis-
reiknings 1975, og svari Rikisút-
varpsins, þar sem meðal annars
kom fram, að Jón Skúlason,
póst- og simamálastjóri, hefði
fengið sjónvarpstæki endur-
gjaldslaust frá Rikisútvarpinu,
ásamt með fleiri mönnum.
Jón Skúlason mótmælti þessu
og kom fram, að hann hefði
fengið sjónvarpstæki að gjöf frá
fjölskyldu sinni. Siðan kom
athugasemd frá endur-
skoðunarmönnum, æði undar-
leg.
Þá hefur Jóni Skúlasyni nú
borizt yfirlýsing frá Rikisút-
varpinu, þar sem fram kemur,
að Jón hefur ekkert tæki fengið
frá Rikisútvarpinu. 1 rikisreikn-
ingnum er þvi ranglega farið
með. Jón Skúlason hefur aldrei
notið þeirra hlunninda, sem þar
eru talin upp.
Nú skal skrá
gönguferðir
Útivist hefur gefið út
skemmtileg fjalla- og göngu-
kort, þar sem þátttakendur i
ferðum félagsins geta fært inn
ýmsar upplýsingar um ferðalög
sin. Þessi útgáfa stefnir að þvi
að örva almenning til útivistar
og gönguferða.
Göngukortið er miðað við
einsdagsferðir, hálfsdagsferðir
og kvöldferðir. Þátttakandi
skráir nafn sitt og heimilisfang,
færirinn dagsetningu og ferð og
fararstjóri kvittar siðan fyrir.
Þeir, sem slfk kort bera, fá fritt
i tiundu hverja ferð.
1 f jallakortið er fært á svipað-
an hátt, þ.e. dagsetning og ferð-
ir á fjöll og hæðir, sem eru yfir
500metrar. Þar er einnig greind
hæð fjallsins og fararstjóri
kvittar.
A baksiðu kortanna er mynd
af trimmkarlinum og setn-
ingarnar: „Trimm er fyrir
alla” „Gönguferð er gott
trimm”.
BSRB rekur
orlofsheimili að
Staðarfelli í Dölum
í sumar
Eins og Alþýðublaðið greindi
frá i gær, var Húsmæðraskólinn
að Staðarfelli i Dölum ekki
starfræktur siðastliðinn vetur,
vegna skorts á nemendum. Þvi
hefur verið ákveðið, að reka þar
skólastofnun fyrir þroskahefta
framvegis.
Þá hefur skólahúsnæðinu á
staðnum einnig verið ráðstafað í
sumar, þvi bandalag starfs-
manna rikis og bæja hefur tekið
það á leigu. Er ætlunin, að reka
þar orlofsheimili á vegum
BSRB á tímabilinu 24. júni til 2.
setpember.
Verða leigðar ibúðir og
tveggja manna herbergi og
miðað við vikudvöl. Er um að
ræða 4 ibúðir með eldhúsi, svo
og ellefu 2ja manna herbergi
með aðgangi að sameiginlegu
eldhúsi, setustofu og borðstofu.
Auk þess er svefnpokapláss
fáanlegt, fyrir þá sem þess
óska.
Þörfin fyrir orlofsdvalarstaði
á viðráðanlegu verði er nú orðið
mjög mikil, að þvi er segir i
fréttfrá BSRB, og þess vegna er
nú leitazt við að halda orlofs-
heimili á fleiri stöðum en að
Munaðarnesi. Þvi er þessi til-
raun gerð nú i sumar, og mun
skrifstofa BSRB annast útleigu
til félagsmanna og veita allar
nánari upplýsingar.
—JSS