Alþýðublaðið - 09.06.1977, Síða 1
FIMMTUDAGUR 9. JUNI
Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra í viðtali:
„Við erum alltaf tilbúnir
að ræða fiskverndarmál
en viðskiptamál ræðum við ekki við fulltrúa EBE”
— Við vitum auðvitaö að þeir
vilja ræða við okkur um fisk-
veiðiréttindi við ísland, en ég tel
að fyrri afstaða um að hafna öll-
um beiðnum um slikt sé óbreytt
afokkar hálfu. Ég hefihins veg-
ar aldrei fariö dult með þá skoð-
un mina að ég tel eðlilegt að
geröur sé fiskverndarsamning-
urvið Efnahagsbandalagið, þar
sem skýrt sé tekið fram að hvor
aðili um sig hafi sitt óskorðaða
vald til að vernda fiskistofna
innan eigin lögsögu. Við erum
alltaf tilbúnir að ræða fisk-
verndarmál við erlendar þjóöir,
enda er það í anda frumvarps
þar að lútandi sem nú liggur
fyrir hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu Þjóðanna. En um við-
skiptamálmunum við ekkiræða
við fulltrúa Efnahagsbanda-
lagsins.
Framangreint kom fram i
máli Matthiasar Bjarnasonar,
sjávarútvegsráðherra, isamtali
við Alþýðublaðið f gær. Ráð-
herrann var þá inntur eftir af-
stöðu hans til fundarins með
fulltrúum EBE, sem stendur jff-
ir í Reykjavik i dag.
— Ég vil jafnframt segja, að
þó ég telji ekkert vit i samning-
um um fiskveiðar eins og nú.
stendur, að þá þarf sú afstaöa
ekki að vara um alla framtið. Ef
við fáum hagstætt tilboö um
veiðar hjá öðrum þjóðum, hag-
stæða sölusamninga i öðrum
limdum o.s.frv., þá munum við
auðvitað endurskoöa afstöðuna.
Við verðum aö gera okkur grein
fyrir þvi að við erum ekki einir 1
heiminum og þurfum þess
vegna á þvi að halda að hafa góð
samskipti við aðrar þjóðir.
Vantrú á öllu nýju
Sjávarútvegsráðherra var þvi
næst spurður um hugsanleg-
ar aðgerðir, sem á döfinni væru
hjá stjórnvöldum i þvi skyni að
draga enn úr sókn i þorskstofn-
ana.
— Ég tel að við höfum nú þeg-
ar gert mjög mikið i þvi skyni
að friða þorskinn og að
Matthias Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra
friðunaraðgerðir Islendinga séu
i raun og veru viðtækari en
þekkist annars staðar i heimin-
um. A ég þar fyrst og fremst við
það að möskvastærö hefur verið
stækkuð mjög mikið — er nú
komini 155 millimetra, og veiöi-
Framhald á bls. 10
MEGA NU VERZLA FYRIR
14 ÞÚSUND í FRÍHÖFN
Viðskiptaráðuneytið hefur aö
höfðu samráði viö Seðlabank-
ann breytt reglum þeim, er
gilda um inn- og útflutning pen-
inga.
Hefur ný reglugerö verið sett
um þetta efni, er tekur gildi 10.
júni n.k., og er ástæða til aö
leggja áherslu á nokkur aðal-
atriði hennar.
Að þvi er varðar Islenska
peninga fá innlendir og erlendir
feröamenn heimild til að flytja
inn og út úr landinu allt að fjór-
tán þúsund krónum, þó ekki I
seðlum að verðgildi yfir eitt
þúsund krónur.
Viðskipti I Frihöfninni á
Keflavikurflugvelli meö
islenskum peningum mega þó
ekki nema samtals hærri fjár-
hæð en sjö þúsund krónum viö
brottför eða komu til landsins I
hvort sinn. Veröur tekin upp
áritun á brottfararkort farþega
um kaup þeirra I Frihöfninni til
eftirlits.
Hin heimilaöa fjárhæö til
kaupa I Frihöfninni við komu til
landsins i krónum (7000) hefur
meðal annars verið ákveðin
Bullandi tap á framrúðutryggingum á íslandi:
Tapið hjá Samvinnutrygg-
ingum einum 1S.7 millj.
A aðalfundi Samvinnu-
trygginga, sem haldinn var 2.
júni kom meðal annars fram I
ræðu stjórnarformanns, aö
hæpinn rekstrargrundvöllur
/irðist vera fyrir rekstri
/ramrúöutrygginga á íslandi.
Arið 1976 var hvorki meira né
minna en 18.7 milljón kr. tap á
þessum þætti Samvinnutrygg-
inga, en það er litiö eitt hærri
upphæö en tapiö á framrúöu-
tryggingum 1975.
Þá kom fram að nokkrir stað-
ir á landinu viröast skera sig
áberandi úr hvaö varöar tiöni
framrúðubrota og var á þaö
bent að sennilega stæöi þetta I
Fyrsta lán Norræna fjárfestingarbankans
til járnblendiverksmiðjunnar afgreitt:
Samanlögð upphæð allra
lánanna er 7.4 milljarðar
1. júni var afgreitt fyrsta lán
Norræna fjárfestingarbankans i
Helsinki til tslenzka járnblendi-
félagsins vegna byggingar kisil-
járnverksmiðju að Grundar-
tanga i Hvalfirði. Lán þetta er
að fjárhæð tæplega 9.5 millj.
dollara eða 1837millj. isl. króna.
Hefur Norræni fjárfestinga-
bankinn nýlega boðið út skulda
bréf I Bandarikjunum, aö fjár-
hæö 40milljónirdala,ogerlánið
hluti af andviröi þeirra. Vextir
eru8.85% á áritil 1. júni 1984, en
verða þá endurskoöaðir með
hliðsjón af lántökukostnaði
bankans á þeim tima. Endur-
greiðsla fer fram á árunum
1982-1992, þannig aö lánstimi
verður alls 15 ár.
1 frétt frá Islenzka járblendi-
félaginu hf. segir, að lán þetta
sé tryggt með veði i verksmiöju
tsl. járblendifélagsins, og
verði veð Norræna fjárfesting-
arbankans eina veðið á verk-
smiðjunni. Ganga hluthafar
félagsins, fsl. rikið og Elkem-
Spigerverket a/s, ekki i ábyrgð
fyrirláninu. A hinn bóginn hef-
ur verið gerður samningur milli
félagsins og hluthafa þess, þar
sem hluthafarnir taka að sér aö
tryggja útvegun á nægilegu
fjármagni handa félaginu til að
ljúka við byggingu verksmiðj-
unnar. Er þetta svonefndur
lúkningarsamningur, geröur
með heimild i 6. gr. laga um
járnblendiverksm iðju á
Grundartanga. Hann var undir-
ritaður hinn 31. mai s.l. og á
bankinn aðild að honum.
Þess má að lokum geta, að
fyrrgreint lán frá Norræna fjár-
festingarbankanum er hiö
fyrsta af þremur, sem hann
mun veita til járnblendiverk-
smiðjunnar i Hvalfirði. Mun
fjárhæð allra lánanna verða
samtals sem svarar 200
miiljónum norskra króna, eða
um 7370 milljónir isl. króna á
núverandi gengi.
—ARH
með hliðsjón af reglum tolla-
yfirvalda um leyfileg kaup þar.
Af framangreindum ástæðum
er tilefni til aö vara ferðamenn
viö þvi að taka 5000 króna seðla
með sér til útlanda til skipta
þar. Þá er notkun ávisana
(einka tékka I islenskum krón-
um) utanlands og i Frihöfninni
ekki heimil.
Engin veruleg efnisbreyting
er á gildandi reglum um inn- og
útflutning erlendra peninga.
Hin nýja reglugerð er birt I
Stjórnartlðindum og Lögbirti-
ingablaðinu.
sambandi við gerð ofaniburðar
á þessum vegarköflum. Meðal.
vegakafla sem reynst hafa
framrúðum hættulegir undan-
farin ár eru: vegurinn um Mela-'
sveit, vegurinn undir Hafnar-
fjalli og vegurinn frá Þjórsá og
austur fyrir Hvolsvöll.
—ARH
• ;,>v • . : . ; . ■ , -. •:<vWar-€!Srf