Alþýðublaðið - 16.07.1977, Blaðsíða 4
4
Laugardagur 16. júlí 1977
Ferð, sem seint mun gleymast
100 norrænir jafnaðarmenn um landið þvert og endilangt
Eins og sagt hefur ver-
ið frá i Alþýðublaðinu
komu hingað til lands 100
konur úr jafnaðarmanna-
flokkum Noregs, Svíþjóð-
ar og Finnlands í lok júní-
mánaðar. — Konurnar
dvöldust hér á landi frá
26. júní til 3. júlí, og ferð-
uðust víða.
Ferðin í heild heppnað-
ist mjög vel og má segja
að sól hafi skinið á kon-
urnar nærallan tímann, ,
sem þær voru hér, en slíkt
er óvenjulegt á þessum
síðustu og verstu tímum.
Það var Samband
Alþýðuf lokkskvenna,
sem hafði veg og vanda
af undirbúningi ferðar-
innar undir ötulli forystu
Kristínar Guðmundsdótt-
ur, formanns Sambands-
ins. Alþýðuf lokkskonur
voru með norrænu gest-
unum allan tímann. Þær
hittu Alþýðuf lokkskonur
á Akureyri, og áttu kvöld-
stund á heimilum Alþýðu-
flokksfólks í Reykjavík.
Þarna sköpuðust ómetan-
leg kynni fjölda fólks
með sömu stjórnmála-
skoðanir.
Norrænu gestirnir
ferðuðust m.a. til
Laugarvatns, Gullfoss og
Geysis, fóru norður Kjöl í
Mývatnssveit til Akur-
eyrar og komu við í Reyk-
holti á leiðinni til Reykja-
vikur. Margt kom gestun-
um ókunnuglega fyrir
sjónir, en mesta athygli
vakti heita vatnið og
hverirnir. Konurnar
héldu svo hver til síns
heima með ánægjulegar
minningar eftir góða
ferð.
Hér á siðunum birt-
ast nokkrar myndir frá
ferðalaginu.
:
Hér eru konurnar á leiö noröur Kjalveg. A myndinni lengst til vinstri er sænsk
kona, þá kemur Helga Einarsdóttir, Kristin Guömundsdóttir, formaöur Sam-
bands Alþýöuflokkskvenna, og Rannveig Edda Hálfdánardóttir, en þær voru,
ásamt fleirum meö hópnum alla feröina.
1 Dimmuborgum var boröaö. Þaö þurfti býsna margar brauösneiöar fyrir þenn
an stóra hóp, enda riflega skammtaö.
'
H!
Þaö var gottaö hvila þreytta fætur eftir gönguferö á Hveravöllum, og ekki var lakara aö geta setiömeöþær Iheitrilaug. Þetta þótti erlendu konunum mikiö ævintýri, aö komast I
heita laug á fjöllum uppi.