Alþýðublaðið - 18.09.1977, Side 1
alþýóii"
SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER
193. TBL. — 1977 — 58. ÁRG.
Bros í umferðinni Mynd:
Axel Ammendrup
Ráðstefna
mormóna
Kirkja Jesú Krists af siöari-
daga heilögum, ööitu nafni nefnd
Mormónakirkjan, heldur ráB-
stefnu i fundarsal Lagadeildar
Háskóla Islands að Lögbergi,
sunnudaginn 18. september kl.
10.00 f.h.
ödlungur Joseph B. Wirthlin,
einn af ráðamönnum kirkjunnar,
verður viðstaddur ásamt eigin-
konu sinni. Einnig Roger L.
Hansen forseti og hans kona, en
hann er forseti trúboðsstöðvar-
innar i Kaupmannahöfn, Dan-
mörk. Munu þeir báöir flytja
ræður á ráðstefnunni. Ræður
verða fluttar eða túlkaðar á
islenzku og er ráðstefnan opin öll-
um sem á vilja hlýða.
Meðlimir kirkjunnar á Islandi-
eru nú 55 og þar að auki eru um 75
bandariskir meðlimir á Kefla-
vikurflugvelli. Kirkjan hefur ný-
lega samþykkt byggingu kapellu
á Islandi og er vonast eftir að
framkvæmdir geti hafizt fljót-
lega. Meðlimir Mormónakirkj-
unnar um allan heim eru nú
4.000.000 (fjórar milljónir) og
25.000 ungir menn þjóna sem trú-
boðar i 2 ár, á sinn eigin kostnað.
14 þeirra eru hér á íslandi.
Mánudags-
myndin í
Háskólabíói:
Eggiö er
laust
Myndin „Eggið er laust”, sem
Haskólabió sýnir næstu mánu-
daga, hefur fengið ágæta dóma
hjá flestum gagnrýnendum, sem
telja hana gott dæmi um ógöngur
þær, sem mörg iðnaðar þjóöfélög
hafa lent i á siðustu áratugum.
Þessi mynd fjallar i stuttu máli
um iðnaðarþjóðfélag nútimans,
sem margir telja vitskert i hag-
vaxtarviðleitni sinni (þótt fæstir
vilji þó afþakka hagvöxt og þau
gæði sem honum fylgja), og leitar
lokstil náttúrunnar á ný. Myndin
hefur fengið þá einkunn, að hún sé
„harðsoðinn gamanleikur”, og
má það vel til sanns vegar færa,
þvi að aðalpersóna myndarinnar
hefur erft leynilega uppskrift á
aðferð til að breyta nýjum hænu-
eggjum i plastefni með alveg sér-
stökum einkennum.
Max von Sydow, einn bezti leik-
ari Svia núna, leikur stórbónda og
iðjuhöld, sem hefur erft þetta
mikla leyndarmál. Úr efni þvl,
sem kallað er „ovoiit”, er tæki,
sem heitir hjá framleiðanda
„Nixitch” og er ætlað bæði körl-
um og konum, þegar á þau sækir
kláði aftan til i líkamanum.
Sydow beitir alla kúgun, bæði
fjölskyldu og starfslið, og sonur-
inn ákveður loks að skjóta harð-
stjórann, en sá góði maður hefur
átt von á sliku, svo aö hann hefur
aflað sér skothelds vestis. Hyggst
karlinn siðan drekkja syni sínum
i mýrarfeni. Það tekst þó ekki,
þvi að sonurinn getur haldið and-
litinu upp úr i hálft ár, uns vindur
ber hann að landi. Verður þá að
kenna honum að tala á ný.
En á meðan ungi maðurinn hef-
ur verið i pyttinum, hefur upp-
reisn veriö gerð á Skáni, svo að
framleiðslan á kláðabætinum
hefurstöövast og hungursneið er i
landi. Kemur manninum þá I hug,
að bezt sé að snúa öllu viö og
breyta „Nixich” á ný i gómsæt ,
nærandi egg.