Alþýðublaðið - 06.10.1977, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 06.10.1977, Qupperneq 8
8 HEYRT, SÉÐ OG HLERAÐ V_____J Heyrt: Að ekki sé fráleitt, að peningayfirvöld þessa lands hyggi á enn frekari vaxta- hækkanir fyrir eða um næstu áramót. Einnig séu i bigerð ráðstafanir til að tryggja betur sparifé en gert hefur veriö hingað til. Annars mun stjórn islenzkra peningamála þessa dagana vera erfiðari en hún hefur verið um langt ára- bil, og sjá visir menn ekki út úr þvi efnahagsöngþveiti, sem hér á landi er að skapast og á eftir að versna. ☆ Tekiö eftir: Að Þjóðviljinn og Timinn eru komnir i hár saman útaf Þjóðviljahúsinu, sem Timinn hefur gefið i skyn að hafi veriö reist fyrir „dularfulla” fjármuni. Oft hefur getum verið að þvi leitt, að Alþýðubandalagið væri mun glúrnara i peninga- málum en eölilegt gæti talist af fiokki, sem kveðst berjast fyrir alþýðuna. t skrifum sinum má Timinn ekki gleyma þvi, að Þjóðviljanum kemur fjármagn frá ýmsum fyrir- tækjum, sem peningamanna- félag Alþýðubandalagsins hefur hönd i bagga með. Það gæti lika orðiö erfitt fyrir Þjóðviljamenn að gera grein fyrir þvi frá hvaða mönnum peningar hafa komið i húsiö. Það er ekki vist að allir vilji láta nafns sins getið i þvi sam- bandi, né hve háar upphæðir þeir hafa gefið. ☆ Tekið eftir: Að kjaradeilu- nefnd, sem ákvarðar að miklu leyti undanþágur fra hugsan- legu verkfalli opinberra starfsmanna, geri tollvörðum skylt að sjá til þess að óheim- ill varningur berist ekki inn i landið meðan á verkfalli stendur. Hins vegar er ekki tiltekið hvort aðferðin skuli vera toll- skoöun eða alger stöövun tollafgreiðslu. Ekki sem verst aðferð við að láta vinnuveitanda greiða verkfallsvörslu. Starfsmenn i vinnu á fullum iaunum og vinnan fólgin i þvi að sjá um að þeir sjálfir inni ekki vinnu af hendi. Fimmtudagur 6. október 1977 bSa^íti' Neyðarsímar Slökkvilið Slökkvilið og sjúkrabílar i Reykjavik — simi 11100 i Kópavogi — Simi 11100 i Hafnarfirði — Slökkviliðiö simi 51100 — Sjúkrabill simi 51100 í Lögreglan | Lögreglan i Rvik — simi 11166 I Lögreglan i Kópavogi — simi 41200 Lögreglan i Hafnarfirði — simi 51166 Hitaveitubilanir simi 25520 (utan vinnutima simi 27311) Vatnsveitubilanir simi 85477 Simabilanir simi 05 Rafmagn. 1 Reykjavik og Kópa- vogi i sima 18230. 1 Hafnarfiröi i sima 51336. Heilsugæsla Slysavaröstofan: simi 81200 Sjúkrabifreiö: Reykjavík og Kópavogur, simi 11100, Hafnar- fjörður sími 51100. Reykjavik — Kópavogur Dagvakt: Kl. 08.00-17.00. Mánud. föstud. ef ekki næst i heimilis- lækni, simi 11510. Læknar Tannlæknavakt i Heilsuverndar- stöðinni. Slysadeild Borgarspitalans. Simi 81200. Siminn er opinn allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidaga- varsla, sími 21230. Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00- 08.00 mánudag-fimmtud. Simi 21230. A laugardögum og helgi- dögum eru læknastofur lokaðar en læknir er til viðtals á göngu- deild Landspitalans, simi 21230. Upplýsingar um lækna- og lyf ja- búðaþjónustu eru gefnar i sim- svara 18888. Hafnarfjörður Upplýsingar um afgreiðslu i apó- tekinu er i sima 51600. Hafnarfjörður — Garðahreppur Nætur- og helgidagagæsla: Upplýsingar á Slökkvistöðinni simi 51100. Kópavogs Apótekopiðöll kvöld til kl. 7, nema laugardaga kl. 9-12 og sunnudaga lokað. i llafnarfirði — Slökkvilið simi 51100 — Sjúkrabfll simi 51100 51166, slökkviliðið simi 51100. Sjúkrabifreið simi 51100. Tekið við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgar- innar og i öðrum tilfellum sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Ýmislegt MÍR-salurinn Laugav. 178 Kvikmyndin „Lenin i Póllandi” verður sýnd á laugardag kl. 14. — Aðgangur ókeypis og öllum heim- ill. — MÍR. Borðtennisklúbburinn ÖRNINN Æfingar hefjast mánudaginn 10. okt. Æfingatimart Laugardalshöll frá kl. 18, mánudaga, miðviku- daga og fimmtudaga. Skráning mánudaginn 10. okt. og fimmtudaginn 13. okt. frá kl. 18 i Laugardalshöll (uppi). Æfingagjöld kr. 5.500,- greiðast við skráningu. Stjórnin. i UTiVISTARFERÐiP' Föstud: 7/10, kl. 20 Kjölur, Beinahóll, Grettishellir, Hveravellir. Fararstj.: Hall- grimur Jónasson og Kristján M. Baldursson. Gist i húsi. Upplýs- ingar og farseðlar á skrifstofunni Lækjargötu 6, si 14606. Otivist. Prófkjör Alþýðuflokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra um skipan efsta sætis á fram- boðslista til alþingiskosninga, fer fram dag- ana 15. og 16. október n.k. I efsta sæti listans, sem um er kosið, hafa borist þrjú framboð: Arni Gunnarsson, Reykjavík. Bárður Halldórsson,Akureyri. Bragi Sigurjónsson, Akureyri. Kosningin fer fram á þeim tímum og stöðum, sem að neðan greinir: Akureyri: Alþýðuhúsinu kl. 14-19 báða dag- ana. Dalvík: Timi og staður auglýst síðar. Grenivík: Barnaskólanum kl. 14-17 sunnudag 16. okt. Hrísey: Staður augl. síðar. Kosið kl. 14-17. sunnud. 16 okt. Húsavík: Félagsheimilinu kl. 14-19 báða dag- ana. Olafsfjörður: Verkalýðshúsinu kl. 14-19 báða daqana. Kosið verður ennfremur hjá eftirtöldum trúnaðarmönnum yfirkjörstjórnar kl. 14-17 sunnudaginn 16. október. Grímsey: Sigurjón Jóhannsson kennari. Hauganes: Árni Ólason, Klapparstíg 14 Raufarhöfn: Karl Ágústsson framkvæmdar- stj. Reykjahlíð: Isak Sigurðsson, Helluhrauni I. Þórshöfn: Pálmi Ölason skólastjóri. Utankjörstaðakosning fer fram bréf lega 8,- 14. október: Kjörseðlar fást hjá formönnum kjörstjórna: Akureyri: Snælaugur Stefánsson, Víðilundi 8c simi 11153 Húsavík: Guðmundur Hákonarson,Sólvöllum 1, sími 41136 Ólafsf jörður: Sigurður Jóhannsson^ölafsvegi 43,sími 62260 Skrifstofa Alþýðuf lokksins, Reykjavík, sími 29244. Allir 18 ára og eldri sem lögheimili eiga í kjördæminu og ekki eru f lokksbundnir í öðrum stjórnmálaf lokkum hafa þátttökurétt í próf- kjörinu. Fh. yfirkjörstjórnar Alþýðuf lokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. Þorvaldur Jónsson form. ( Flokksstarfíó ~ j Simi fiokks- skrifstof- unnar i Reykjavik er 2-92-44 Auglýsing um prófkjör i Vesturlandskjör- dæmi Alþýðuflokkurinn efnir til prófkjörs I Vesturlandskjör- dæmi um val frambjóðanda á lista flokksins við næstu Al- þingiskosningar og mun prófkjörið fara fram i siðari hluta nóvember n.k. Kjósa ber i prófkjörinu um tvö efstu sæti á væntanlegum framboðslista Alþýðuflokksins. Kjörgengi hafa allir þeir sem kjörgengi hafa til Alþingis og hafa meömæli minnst 25 flokksbundinna og atkvæðis- bærra Alþýðuflokksmanna i kjördæminu. Tillögur um framboð skulu sendast formanni yfirkjör- stjórnar Braga Nielssyni, lækni, Borgarnesi,og verða jiær að hafa borist honum eða verið póstlagðar til hans fyrir 29. október n.k. og veitir hann jafnframt allar nánari upplýs- ingar. F.h. kjördæmisráðs Alþýðuflokksins i Vesturlandskjör- dæmi, Bragi Nielsson, læknir, Borgarnesi Prófkjör Alþýðuflokksins i Reykjaneskjör- dæmi. Prófkjör um skipan 2ja efstu sæta á lista Alþýðuf lokksins í Reykjaneskjördæmi í næstu alþingiskosningum fer fram laugardaginn 8. okt. og sunnudaginn 9. okt. n.k. Á laugardegin- um verður kjörfundur frá kl. 14 til 20, en á sunnudeginum frá kl. 14 til 22. Frambjóðendur eru þessir, sem gefa kost á sér í neðangreind sæti: Hilmar Jónsson, Hátúni 27, Keflavik, i 1. og 2. sæti. Gunnlaugur Stefánsson, Austurgötu 29, Hafnarfirði, í 2. sæti. Jón Ármann Héðinsson, Kópavogsbraut 102, Kópavogi, i 1. sæti. Karl Steinar Guðnason, Heiðarbrún 8, Keflavik, i 1 og 2. sæti. Kjartan Jóhannsson, Jófriðarstaðavegi 11, Hafnarfirði, i 1. og 2. sæti. Ólafur Björnsson, Drangavöllum 4, Keflavik, i 1. og 2. sæti. Orn Eiðsson, Hörgslundi 8, Garðabæ, i 2. sæti. Kjörstaðir verða eftirgreindir og er formaður undirkjör- stjörnar á hverjum stað tilgreindur með kjörstaðnum: Brúarland, Mosfellssveit: Kjörstaður fyrir ibúa Kjósar- sýslu, utan kaupstaða. Form. Kristján Þorgeirsáon. Hamraborg 1, Kópavogi: Form. Steingrimur Steingrimsson. Melabraut 67, Seltjarnarnesi. Form. Guðmundur Illugason. Gamli gagnfræðaskólinn við Lyngás, Garðabæ. Form. Rósa Oddsdóttir. Alþýðuhúsið, Hafnarfirði. Form. Sigþór Jóhannesson. Glaðheimar, Vatnsleysustrandarhreppi. Form. Simon Kristjánsson. Stapi, Njarðvikum. Stapi er jafnframt kjörstaður fyrir ibúa Hafna hrepps. Formaður Guðjón Helgason Tjarnarlundur, Keflávik. Formaður Guðleifur Sigur- jónsson. Tjarnarlundur er jafnframt kjörstaður fyrir ibúa Gerðahrepps. Leikvallahúsið, Sandgerði. Form. ólafur Gunnlaugs- son. Vikurbraut 21, Grindavik. Formaður Svavar Arnason. Atkvæðisrétt hafa allir íbúar Reykjaneskjör- dæmis 18 ára og eidri, sem ekki eru flokks- bundnir i öðrum stjórnmálaf lokkum. Kjósendum ber að kjósa á kjörstað í því sveitarfélagi, sem þeir eru búsettir, sbr. þó undantekningar um ibúa þeirra sveitarfélaga, þar sem ekki er opinn kjörstaður, sbr. hér að ofan. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla er óheimil Hverjum kjósanda ber að kjósa frambjóðend- ur í bæði sætin. Óheimilt er að kjósa sama frambjóðanda í bæði sætin. Ekki má kjósa aðra en þá, sem í framboði eru. Niðurstöður prófkjörsins eru bindandi um skipan 2ja efstu sæta listans/ ef f rambjóðandi í hvort sæti fær a.m.k. 1/5 hluta þeirra at- kvæða, sem framboðslisti Alþýðuflokksins í kjördæminu, hlaut í síðustu alþingiskosning- um. Reykjaneskjördæmi, 26. sept. 1977, Kjörstjórnin.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.