Alþýðublaðið - 07.10.1977, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 7. október 1977
Föstudagur 7. október 1977
7
Á slóðum Fram
sóknaræsku
og tetínsla
' /
Blómsveigur UgAur viö minnisvaróa I Klev.
Myndir og texti:
Gunnar E. Kvaran
A þessari götumynd frá Tblisi má sjá hvar fest hefur verið upp mynd af einni hinna framúrskarandi tetfnsla.
Stjórnarráðið I Tblisi
1 þessari kirkju dönsuðu og sungu grúsiskir
listamenn fyrir islenzku gestina.
Fyrir framan Stjórnarráðið stóðu þessir þrir
vinir, frá vinstri Jón örn Marinósson, Magnús
Finnsson, og V.V. Anikin (frá Moskvuútvarp-
inu.”??)
i Framsóknarhöllinni dönsuðu strákarnir m.a. Kósakkadansa með miklum ærslum.
eru börnin siðan i Ungkommún-
istahreyfingunni, en geta siðan
sótt um aðild að flokknum. Þess
má geta að af hinum 250 milljón
ibúum Sovétrikjanna eru um 15
milljtínir i flokknum samkvæmt
þeim tölum sem okkur voru gefn-
ar.
Ekki verður annað sagt en að
islenzka forsætisráðherranum og
fylgdarliði hans hafi verið tekið
með kostum og kynjum i Fram-
sóknarhöllinni. Þegar gengiö var
inn i höllina hafði Framsóknar-
æskan stillt sér upp i anddyri og á
göngum og klöppuðu börnin i takt
við lúörasveit sem blés kröftug-
lega á hæðinni fyrir ofan. Var
gengið um höllina og heilsað upp
á hina ýmsu námshópa sem þar
voru að störfum og hvarvetna þar
sem staldraö var við, voru tals-
menn hópanna tilbúnir til að
flytja stuttar greinargerðir um
það starf sem unnið væri i viö-
komandi starfshóp.
I hátiöarsal Framsóknarhall-
arinnar, var sett á svið geysilega
kröftug danssýning þar sem m.a.
ungir Georgiustrákar dönsuðu
Kósakkadansa af ógleymanleg-
um eldmóði.
Heimsókninni i höllina lauk svo
i samkomusalnum þar sem popp-
hljómsveit Framsóknaræskunnar
tróð upp og lék nokkur valin lög.
Hljómsveit þessi sem var ein-
göngu skipuö stúlkum var búin
ágætum tækjakosti, rafknúnum.
Mátti þar sjá rafmagnsgitara og
Framhald á bls. 10
1 þessari þriðju og liklega sið-
ustu grein um ferö mina til Sovét-
rikjanna mun ég greina frá heim-
sókn okkar íslendinganna til
Tblisi höfuðborgar Grúsiska so-
vézka sósialiska lýðveldisins, en
þar dvaldi hópurinn hálfan annan
dag, 24.-25. september.
Það sem vakti fyrst athygli
mina mina þegar komiö var til
höfuðborgar Grúsiu (Georgiu),
var hið fagra bæjarstæði sem
borgin stendur á, en þvi miður
spilltimisturogloftmengun útsýn
yfir borgina.
Annað sem óneitanlega vakti
forvitni voru myndir af þreklega
vöxnu kvenfólki sem festar höfðu
verið upp meðfram aðalgötu
borgarinnar. Þegar ég spurðist
fyrir um þessar myndir var mér
tjáð, að sama daginn og við kom-
um til borgarinnar hefði verið
haldin nokkurs konar uppskeru-
hátið, en þá var teuppskerunni
rétt nýlokið. A þessari uppskeru-
hátið var þaö lið tetinslukvenna,
sem skarað hafði fram úr viö
uppskerustörfin heiðrað sérstak-
lega og munu þær i tilefni dagsins
hafa fengið gljáandi orður til aö
hengja i barminn.
Þegar myndirnar af tetlnslun-
um (tetinslukonunum) voru
skoðaðar nánar kom i ljós að
sumar hverjar höfðu þær fengið
viðurkenningu fyrr og að minnsta
kosti ein eða tvær voru bókstaf-
lega þaktar orðum og medalium.
Eitt var þó sameiginlegt þeim öll-
um, aö þær voru heldur þungar á
brúnina á þessum opinberu
myndum, en það hafa likast til
bara verið þreytumerki eftir hina
erfiðu vinnu.
Hveragerði
Sökum þess hve seint við kom-
um tilTblisi frá Ye revan, en það
mun hafa verið um klukkan 19 að
kvöldi laugardagsins 24. septem-
ber, var hin opinbera dagskrá
forsætisráöherra i styttra lagi.
Gafst okkur fréttamönnunum þvi
kærkomið tækifæri til þess aö
slaka á og að lita i kringum okkur
án þess að þurfa að hafa áhyggjur
af hinni prentuöu dagskrá heim-
sóknarinnar.
Ekki þurftum við að óttast villi-
götur i þessari framandi borg,
þvi sérstakur erindreki Intourist
fylgdi okkur á kvöldgöngu um
Tblisi. Skýröi hann mér frá þvi að
borgin væri talin um 1500 ára
gömul og aö nafn hennar, Tblisi,
mætti á ensku útleggja sem „The
Hot Place” sem á islenzku gæti
kallast „Hveragerði”.
Sagði leiösögumaöurinn enn-
fremur að fyrir 1500 árum hefði
konungurinn Vakhtang Gorgasali
verið á veiðum á þeim slóðum
sem borgin nú stendur. Segirsag-
an aö fugl sem Gorgasali hæfði á
flugi, hafi hafnað á jörðinni i ná-
munda viö laug með heitu vatni.
Er sagt að þegar konungurinn
fann laugina hafi hann ákveðiö aö
reisa sér borg á þessum stað.
„Sight seeing"
Sunnudagurinn 25. september
stofnanda borgarinnar Gorgasali.
1 kirkjunni var stutt dagskrá þar
sem nokkrir grúsiskir listamenn
sungu og dönsuöu. Þá var farið I
þjtíðlistarsafn Grúsiu þar sem
varðveittar eru ýmsar gamlar og
fágætar helgimyndir. Siðan var
komið við i óperuhúsi borgarinn-
ar, sem nýlega hefur verið lokið
við aö endurbyggja eftir að það
brann nánast til grunna fyrir um
fjórum árum siðan. 1 óperuhúsinu
var sinfóniuhljómsveit lýðveldis-
ins ásamt nokkrum söngvurum
að æfa italska óperu sem ég kann
ekki að nefna lengur hvað hét.
Eftir að hlýtt haföi verið á nokkr-
ar ariur, var skoðunarferðinni
um borgina haldið áfram og end-
að að lokum i stofnun sem sovésk-
ir kusu að nefna „the Palace of
Pioneers” sem á islenzku mætti
útleggja sem Framsóknarhöllina.
Framsóknarhöllin
Framsóknarhöllin og sú starf-
semi sem þar fer fram er þriðji og
siðasti hlekkurinn i þeirri upp-
eldiskeðju sem Kommúnista-
flokkurinn rekur og öll börn eru
skyldug að ganga i gegnum.
Svo reynt sé að gera nánari
grein fyrir þessari uppeldiskeöju
þá hefst hún á þvi að á aldrinum
6-9 ára ganga börnin i hreyfingu
sem kölluð er Oktoberistar. Þeg-
ar börnin hafa náð 9 ára aldri
ganga þau siðan i Framsóknar-
hreyfinguna (Pioneers) og eru i
henni til 13 ára aldurs, eftir þaö
og allt þar til skólaskyldu lýkur
Frá Tblisi
rann upp og virtist hann ætla aö
verða nokkuö þungbúinn framan
af, en þó birti upp er á leið. t end-
urminningunni telst þessi dagur
vera nokkuö hefðbundinn a.m.k.
allt fram undir kvöldið. Að lokn-
um viðræðum Geirs Hallgrims-
sonar við forsætisráðherra
grúsiska lýðveldisins, Zurab A.
Pataritse, var haldið i rúmlega
þriggja klukkustunda langa öku-
ferð um borgina með viökomu á
ýmsum stöðum. Af stöðum sem
skoðaðir voru má nefna kirkju
sem stendur við minnismerki
A flugveliinum I Tblisi mátti sjá
þessa grúsfsku útgáfu af is-
lenzka fánanum.
tJr óperuhúslnu i Tblisi