Alþýðublaðið - 13.10.1977, Page 1
FIMMTUDAGUR 13. OKTOBER
Ef blaðiö berst ekki
kvartið til
AlþýðubSaðsins í
síma (91) 14900
Eigendum fjölgar f Landsýn:
SÍS og Samvinnutrygg-
ingar kaupa helminginn
Eins og sagt var frá í
Alþýöublaðinu í gær hafa
veriö uppi hugmyndir um
ákveönar breytingar á
rekstrarfyrirkomulagi
Alþýðuorlofs og Land-
sýnar nú um nokkurt
skeið. Þessar hugmyndir
eru nú komnar til fram-
kvæmda og eru þær
breytingar fólgnar i því
aö samvinnuhreyfingin
mun ganga til samstarfs
viö verkalýðshreyfing-
una um rekstur ferða-
skrifstofu, hliðstætt því
sem á sér stað á öðrum
Norðurlöndum, þar sem
verkalýðsfélögin og sam-
vinnuhreyf ingin hafa
haft með sér náið sam-
starf á þessu sviði um
áratugaskeið.
Samstarfinu verður
komið á með aðild sam-
vinnuhreyfingarinnar að
Landsýn, sem rekin hefur
verið af verkalýðshreyf-
ingunni einni hingað til.
Samþykkti aðalfundur
Landsýnar, sem haldinn
var í fyrradag, að auka
hlutafé fyrirtækisins í 25
milljónir (en það var að-
eins 130 þúsund krónur
fyrir) og gefa jafnframt
samvinnuhreyfingunni
kost á að gerast helm-
ingseignaraðili ífyrirtæk-
inu ásamt verkalýðs-
hreyfingunni.
Samvinnuhreyfingin ákvað á
fundi i gærmorgun að taka
þessu boði og mun Samband is-
lenzkra samvinnufélaga leggja
fram helming hlutafjárins i fé-
lagi við Samvinnutryggingar,
en Alþýðusamband fslands hinn
helminginn ásamt Alþýðuorlofi
og einstökum verkalýðsfélög-
um.
Frá þessu verður endanlega
gengið á framhaldsaðalfundi
Landsýnar hf., en hann verður
haldinn að 7-10 dögum liðnum.
— hm.
Björn Jónsson um vangaveltur
fjármálaráðherra:
Alvarlegt mál
verdi samn-
ingum rift
— Ég verð nú að segja
það, að hafi ríkisvaldið
haft eitthvað annað i
huga en að standa við
skuldbindingar sinar,
þegar kjarasamningar
voru gerðir i júni siðast-
liðnum, þá hefði það bet-
ur komið fram þá, en
ekki eftir að samningur-
inn hefur verið gerður,
sagði Björn Jónsson for-
seti Alþýðusambands
íslands, þegar blaðið
ræddi við hann i gær.
1 athugasemdum fjármálaráö-
herra við frumvarp til fjárlaga
fyrir árið 1978 segir, að með
frumvarpinu sé gert ráð fyrir 15
kröna hækkun bensingjalds og
hliðstæðri hækkun þungaskatts til
að efla fjárhag Vegagerðarinnar
og auka vegaframkvæmdir. Slð-
an segir orðrétt i athugasemdum
ráðherra:
„Með tilliti til þess aö allt þetta
fé, og reyndar meira, rennur til
þess að bæta þjónustuna við veg-
farendur, þ.e. allan almenning, er
ekki skynsamlegt að lita á þessa
gjaidtöku sem tilefni verðbóta-
hækkunar launa.”
Það var vegna þessarar setn-
ingar sem Alþýðublaðið leitaði til
Björns Jónssonar i gær.
— Þaðeraðvisu spurning.sem
hvert einasta verkalýðsfélag á
landinu þyrfti að svara, hvort það
vildi gefa eftir þennan hluta af
kaupinu sinu, sagði Björn, þegar
hann var að þvi spurður, hvort
hann áliti að verkalýðshreyfingin
myndi gefa slikt eftir, — en held-
ur finnst mér það óliklegt við nú-
verandi aðstæður, að slikt yröi
samþykkt. Menn hafa hreinlega
ekki efni á þvi, og þetta er hluti af
kaupinu.
Það þýðir auðvitað ekkert fyrir
menn að koma, eftir að samning-
ar hafa verið gerðir, og segja að
þetta eða hitt atriði hafi verið
óskynsamlegt. Það verða þeir að
gera um leiö og samningar eru
gerðir, en ekki eftir á.
Björn sagði, að það kæmi að
visu ekki beinlinis fram að ætlun-
in væri að framkvæma þá kjara-
skerðingu sem i athugasemdum
fjármálaráðherra fælist, — en
þeir virðastaö minnsta kosti vera
að fara á fjörumar með það.
— Að sjálfsögöu myndi maður
lita þaö alvarlegum augum ef
teknar yrðu ákvarðanir um að
rifta eða breyta samningi sem
nýbdiö er að gera,sagði Björn, —•
auk þess sem þaö verður að segj-
ast að með svo gifurlegum hækk-
unum sem orðiö hafa á rekstrar-
liðum bifreiða, eru það nánast að
verða sérréttindi hálaunahópa að
eiga og reka bifreiðir. Það er ver-
ið að hindra það að fólk geti átt
bifreiöir og ferðast.
Auk þess má gera ráö fyrir að
fyrir áramót verði bensinlitrinn
kominn upp i hundrað krónur, úr
þeim 93 krónum sem hann kostar
núna, með gengissigi og öllu. Það
er áður en þessi skattur verður
lagöur á, sem fjármálaráöherra
ijar að. Sennilega dýrasta bensin
sem hægt er að fá I Vestur-
Evrópu. Fjármálaráðherra ætti
einnig að gaumgæfa þann athygl-
isverða sannleik, að eftir þvi sem
bensinið hefur hækkað hefur ben-
sinsala dregizt saman. Þannig
hefur bensinsala ekki aukizt þrátt
fyrir sifellda aukningu bifreiða.
Tekjustofninn gætisemsé farið að
rýrna og eilifar verðhækkanir þvi
misst marks.
— hm
Nú eru trillukarlarnir farnir að ganga frá trillunum sfnum og þeirra vertið er lokið, þessi mynd er tekin
vestur á Ægisiöu viðsólsetur i fyrrakvöld, en þeir eru margir trillukarlarnir sem gera út,af Ægisiðunni.
Útgerdarmenn í Þorlákshöfn
fremja verkfallsbrot:
Brutust inn og
stálu rafmagni
Nokkrir aðilar I Þorlákshöfn,
flestir þeirra útgerðarmenn,
frömdu gróft verkfallsbrot seint
á þriðjudag og i gærmorgun,
þegar þeir brutust inn i skúr i
höfninni þar, hleyptu rafmagni
á bryggjurnar og skrúfuöu frá
vatni.
Þeir starfsmenn er sjá um
rafmagn og vatn i höfnum eru i
verkfalli, svo sem aðrir félagar
i BSRB, og var húsið er raf-
magnstaflan og vatnshanar eru
i læst.
Tóku útgerðarmennimir sig
til, brutu húsið upp og náðu sér i
rafmagn til að skipa upp úr bát-
um slnum fiski, sem þeir siðan
fluttu til vinnslustöðva.
Auk verkfallsbrotsins er
þarna um innbrot að ræða, sem
varðar við refsilöggjöf, og var
það kært sem slikt til lögregl-
unnar.
Verkfallsverðir BSRB á
staðnum höfðu strax afskipti af
málinu, en lentu i stælum við
verkfallsbrjótana. Voru sendir
verkfallsverðir til viðbótar frá
Reykjavik og tókst þá að fá
brjótana ofan af þvi að halda
áfram vinnu.
Að sögn eins verkfallsvarð-
anna hétu þeir þvi að fara ekki i
skúrinn aftur, en það var þó
ekki fyrr en lögreglan var kom-
in i málið og búið var aö kæra
innbrotið sem slikt.
Undir venjulegum kringum-
stæðum er útgerðarmönnum
selt rafmagn i höfnum, en i
þessu tilviki var enginn hafnar-
starfsmaður á staðnum til aö
mæla það, þannig að rafmagnið
var tekið ófrjálsri hendi.
Samningar á
Neskaupstað
í gær voru undirritað-
ir nýir kjarasamningar
milli starfsmanna Nes-
kaupstaðar og sveitarfé-
lagsins.
Launaliðir nýja sam-
ko mula gsin s er u
ákvarðaðir með þvi að
fara mitt á milli siðasta
tilboðs er Bandalagi
starfsmanna rikis og
bæja barst frá rikinu,
áður en upp úr viðræð-
um slitnaði og þess sið-
asta er BSRB lét frá sér
fara.
Þýðir það þvi sem næst þrjú
þúsund krónu hækkun á lægstu
laun, frá siðasta tilboði rfkisins,
en eitthvað minna á aðra flokka.
Nánarifregnir af samkomulagi
þessu tókst ekki að ná i i gær.