Alþýðublaðið - 13.10.1977, Blaðsíða 3
tt' Fimmtudagur 13. október 1977
3
Slegin skjaldborg um lágfótu!
Hið íslenzka tófu-
vinafélag stofnað!
Stofnað hefur verið í
Reykjavik Hið íslenzka
tófuvinafélag (HIT)/ en
heimili þess og varnarþing
mun hins vegar vera á
Akranesi og geta menn
komizt í samband við fé-
lagsskapinn gegnum póst-
hólf 81 þar í bæ. Stjórn
Tófuvinafélagsins skipa
þeir Sigurður Hjartarson/
Akranesi, forseti, Þor-
steinn Jónsson, Reykjavik,
Grétar H. Jónsson,
Reykjavík og Arni Hjart-
arson, Tjörn í Svarfaðar-
dal, en Arni er jafnframt
útbreiðslustjóri félagsins
og tengiliður tófuvina við
bændur.
t lögum eru markmið tófuvina
rakin i ótal liðum:
1. að vinna markvisst að lit-
breiðslu tófunnar um land allt
2. aö standa dyggan vörð um
fornhelgan rétt tófunnar i land-
inu
3. að skapa islenzka tófustofnin-
um viðunandi lifsskilyrði, eink-
um á vetrum, og skal unnið að
þvi að afréttir verði eigi jafn
samvizkusamlega smalaðar og
verið hefur
4. að sporna gegn miskunnar-
lausum ofsóknum á hendur
tófustofninum islenzka
5. að beita sér fyrir að Alþingi Is-
lendinga leiðiilög eftirfarandi:
a. að islenzki tófustofninn verði
alfriðaður
b. að tófan fái sinn sess i nátt-
úruverndarlögum
c. að innflutningur á útlendum
tófum verði bannaður
d. að gömul verzlunarákvæði
um útflutning á melrakka-
belgjum verði numin úr gildi
e. að embætti veiðistjóra verði
lagt niður
f. að áreitni snjósleðamanna
við frjálsar tófur verði bönn-
uð
g. að þyrlur verði bannaðar I
eftirleit
h. að bannað verði að lifláta
tófur nema i eftirfarandi
undantekningartilfellum:
1. að tófa sé sannanlega stað-
in að þvi að hafa drepið
meira en nemi vikuforða
Framhald á bls. 8
Tillaga á Þingi Landss. slökkvilidsmanna:
Skóli fyrir
slökkviliðsmenn
5. þing Landssambands
Slökkviliðsmanna var
haldið nýlega.
Formaður sambandsins,
Ármann Pétursson setti
þingið en ávörp og erindi
fluttu Gunnar Thoroddsen,
félagsmálaráðherra, Guð-
mundur Haraldsson, fyrr-
verandi formaður LSS, Ás-
geir ólafsson, formaður
stjórnar Brunamálastofn-
unar ríkisins og Rúnar
Bj arnason, slökkviliðs-
stjóri.
Seinni þingdaginn skiluðu
nefndir áliti. Þar kom m.a. fram,
að laga yrði laun lausráðinna
slökkviliðsmanna verulega og
ýmsar aðrar breytingar væru
nauðsynlegar, svo sem trygging-
arbætur fyrir tjón á fatnaði, fleiri
tima fyrir hvert útkall og fleira.
öryggis- og heilbrigðisnefnd
óskaði eftir þvi að Brunamála-
stofnun rikisins gefi út reglugerð
um það, hvað sé slökkviliðið og
hvað sé lágmarks tækjabúnaður.
Einnig var skorað á þá, er sjá
um innkaup á útbúnaði fyrir-
slökkvilið, að aðeins það bezta
verði keypt hverju sinni.
Miklar umræður urðu um ör-
yggismál slökkviliðsmanna og
skipuð var nefnd til að vinna að
þvi i samráði við stjórnvöld að
koma á skóla fyrir slökkviliðs-
menn.
Ármann Pétursson var endur-
kjörinn formaður Landssam-
bands slökkviliðsmanna en aðrir i
stjórn eru nú: Gunnlaugur Búi
Sveinsson, Halldór Vilhjálmsson,
Egill Ölafsson, Þórður Kristjáns-
son, Stefán Teitsson og Erlingur
Gunnlaugsson.
Þingforseti var Eggert Vigfús-
son.
Ósóttir vinningar í
Iðnkynningarhappdrætti
Barmmerki Iðnkynningar,
sem dreift var til verzlun-
ar- og iðnverkafólks í
Reykjavík, voru númeruð
og giltu sem happdrættis-
miði.
Dregið hefur verið i
þessu happdrætti og komu
vinningar upp á eftirfar-
andi númer:
Happdrætti verzlunarfóiks
1. 3241 Mokkakápa/frakki frá''
Gráfeldi hf.
2. 3535 Stockholm sjónvarpsstóll
frá Módel húsgögn
3. 2648 5 manna tjald meö himni
frá Belgjagerðinni
Happdrætti iðnverkafólks
1. 1194 Mokkakápa/frakki frá
Gráfeldi hf.
2. 553 Stockholm sjónvarpsstóll
frá Módel húsgögn
3. 2303 5 manna tjald með himni
frá Belgjagerðinni
Nokkrir vinningar hafa veriö
sóttir, en þeir, sem hafa barm-
merki með einhverjum af ofan-
töldum númerum, eru beðnir um
að hafa samband við Iðnkynningu
i Reykjavik, Hallveigarstig 1,
simi 2 44 73, fyrir 20. október n.k..
Alls var 6000 barmmerkjum
dreift i Reykjavik og verðmæti
vinninga um kr. 450.000.-.
Getraunaspá
Alþýdubladsins:
Stefnum að 9
réttum Kr. 100
Eftir viku hlé tökum við aftur
til við getraunaspána. Eftir
stöðuga framför i nokkrar vikur
kom afturkippur fyrir hálfum
mánuði og við fengum ekki
nema 6 rétta. Þetta hafði þau
áhrif á umsjónarmann get-
raunaþáttarins, að hann hafði
helzt uppgjöf i huga en nú hefur
hann ákveðið að halda áfram og
stefnir að vinningi innan
tveggja vikna. Takmark okkar
að þessu sinni er 9 réttir.
© Tho Football Loaauo
Lelkir 15. október 1977
Arsonal - O.P.R.
Aston Villa - Norwioh
Chelsea - Middlesbro
Derby - W.B.A. .
Everton - Bristol City
Ipswich - P.irmingham
Leeds - Liverpool ...
Leicestor - Coventry
Man. Ulci. - Newcasttd
Nott'm For. - Man. City
Wolves - Wes'. Ham . . .
Hull - Blackpool .......
r7W
X 2
m
a
Arsenal-QRP
Arsenal er nú statt um miðbik deildarinnar með 10 stig. Liðinu
hefur ekki gengið eins vel og menn áhtu von á. Reyndar hafa
liðsmenn verið óheppnir, eins og t.d. á laugardaginn. Þá léku
þeir gegn Manchester City i Manchester og hófu leikinn á þvi að
skora sjálfsmark og töpuðu leiknum með einu marki gegn
tveimur. QPR er neðarlega i 1. deildinni um þessar mundir og á
Highbury eiga þeir ekki að geta náð stigi af Arsenal. Heimasig-
ur.
Aston Villa-Norwich.
Villa hefur heldur ekki gengið vel i haust, liðið hefur þegar tap-
að þremur heimaleikjum, en á heimavélli hefur liðið nánast ver-
ið ósigrandi til þessa. Samt spáum viö þvi, að Villa takist að
klekkja á Norwich, sem skyndilega er komið i toppbaráttuna.
Heimasigur.
' Chelsea-Middlesbro.
Við höfum þá trú, að Chelsea takizt að koma sér af mesta
hættusvæðinu á laugardaginn með þvi að vinna Middlesbro.
Chelsea-liðið ieikur þokkalega knattspyrnu þó liðinu hafi ekki
tekizt að hala inn mörg stig. Heimasigur.
Derby-WBA.
Derby hefur tekið fjörkipp undanfarnar vikur komist þar með
af botninum og er nú um miðbik deildarinnar. Þeir ættu þvi að
standa nokkuð i WBA, liðinu, sem komið hefur undirrituðum
mest á óvart allra liða i haust Jafntefli, en útisigur til vara
(Fyrsti tvöfaldi leikurinn).
Everton-Bristol City.
Lið Everton hefur farið hamförum á knattspyrnuvellinum
undanfarnar vikur og tætt i sig andstæðingana, þannig að vart
hefur staðið steinn yfir steini. Bristol City verður þeim tæpast
þrándur i götu á laugardaginn.
Ipswich-Birmingham.
Þetta verður örugglega tvisýnn leikur. Birmingham hefur náð
ser nokkuð á strik og fengið fimm stig i þrem siðustu leikjum. Þó
er liklegt, að Ipswich nái að knýja fram sigur á heimavelli sin-
um.
Leeds-Liverpool.
Liverpool er i toppbaráttunni og má ekki við þvi að missa stig.
Það verður erfitt á laugardaginn þvi Leedsliðið er ekkert til að
hlæja að. Við spáum þvi aö Liverpool takizt að knýja fram sigur
á elleftu stundu.
Leicester-Coventry.
Leicester liðið er algerlega heillum horfið og tapar hverjum
leiknum á gætur öðrum enda er liðið nánast lélegt. Útisigur.
Manchester United-Newcastle.
Það sama má segja um Newcastle. Liöið situr eitt og yfirgefiö
á botninum með aðeins tvö stig eftir 10 leiki. Heimasigur.
Nottingham Forest-Manchester City.
Þetta er greinilega leikur vikunnar, tvö efstu liðin leiða saman
hesta sina. Forest hefur gengið vel á heimavelli sinum, unnið
fjóra leiki gert eitt jafntefli og engum tapað. Við spáum þvi
heimasigri, en jafntefli til vara (Annar tvöfaldi leikurinn).
Wolves-West Ham.
Liö West Ham hefur verið ótrúlega óheppið i haust og er það
aðalástæða þess, að liðið er enn á botninum. Við trúum þvi, að nú
taki gæfuhjólið að snúast liðinu i vil. Þeir vinna þvi Úlfana á
laugardaginn en til vara spáum við jafntefli (Þriðji tvöfaldi leik-
urinn).
Hull-Blackpool.
Blackpool er mun betra lið en Hull og ætti þvi að vinna, en oft
hefur heimavöllur komið Hull til góða. Spáin er þvi útisigur en
jafntefli til vara (Fjórði og siðasti tvöfaldi leikurinn).
—ATA