Alþýðublaðið - 04.01.1978, Side 1
i
\
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR
2. TBL. — 1978 — 59. ÁRG.
.Ritstjórn bladsins er
til húsa íSídumúia 11
— Sími (91)81866
— Kvöldsími frétta-
vaktar (91)81976
FYRIRTÆKIIULLAR-
IÐNADIILLA REKIN?
Framkvæmdastjórinn hefur framkvæmdastjórn að auka-
starfi, verkstjórinn litla reynslu og enn minni völd og prjóna-
maðurinn enga starfsþjálfun, segir Útflutningsmiðstöd lönaðarins
//Fram undan eru míkil
átök um framleiöniaukn-
ingu óg bætt gæði. Hvoru
tveggja krefst aukinnar
sérþekkingar/ en sér-
þekking byggist seint upp
þar sem framkvæmda-
stjórinn hefur fram-
kvæmdastjórnina sem
aukasfarf/ verkstjórinn
hefur litla reynslu og enn
minni völd og prjóna-
maðurinn hefur ekki orð-
ið neinnar starfsþjálfun-
ar aðnjótandi. Því miður
einkennast nýju fyrirtæk-
in allt of oft af þessu"/
segir i fréttabréfi frá Ot-
flutningsmiðstöð
iðnaðarins/ þar sem f jall-
að er um ullar- og skinna-
iðnað frá ýmsum sjónar-
hornum.
t fréttabréfinu segir aö i árs-
lok 1977 hafi verið starfandi
fimmtán prjónastofur á land-
inu, sem framleiöa til útflutn-
ings og heföi þvi fjölgað um
tvær á árinu. Segir aö prjóna-
stofurnar séu mjög misjafnar
aö stærö, meö allt frá einni
prjónavél upp yfir tuttugu. öll
þessi fyrirtæki reka jafnframt
saumadeildir, en auk þeirra eru
tólf fyrirtæki á landinu, sem
eingöngu reka saumastofur og
byggja mikiö á útflutningi.
Hefur þeim fjölgaö um þrjil á
árinu.
I fréttabréfinu segir svo:
„Vi:taö er nú um fyrirhugaöa
stofnun nýrrar prjónastofu og
tveggja nýrra saumastofa.
Þaö fer ekki á milli mála, aö
ekki heföi veriö unnt aö auka út-
flutning um 50% á árinu 1977 ef
ekki heföi komiö til mikil af-
kastaaukning. Hins vegar má
velta þvl fyrir sér hvort fjölgun
prjóna- og saumastofa sé æski-
leg frá sjónarmiöi heildarinnar.
Þaö er margt sem bendir til
þess, aö til þess aö unnt sé aö
knýja fram framleiöniaukningu
þurfi stærri einingar, aö
minnsta kosti er þaö reynslan I
Evrópu. Þaö segir sig líka sjálft
aö 8-12 manna saumastofa á I
erfiöleikum meö aö standa und-
ir framkvæmdastjóra og verk-
stjóra, snlöamanni meö reynslu
og svo framvegis.”
Slöan segir I fréttabréfinu aö
markaösútlitiö á árinu sem nú
er byrjað sé gott, um þaö beri
öllum saman. Hins vegar sé
varla unnt aö gera ráð fyrir
meiri hækkun á erlendum
mörkuöum en tlu af hundraöi,
og raunhæfara væri sjálfsagt aö
segja 5-10% I erlendum gjald-
> eyri.
Bruninn á
Þórshöfn:
Kaup-
félagið
bætir
tjón
Það er auðvitað augljóst að
tjón skiptir tugum milljóna en
enn er of snemmt að nefna
ákveðnari tölur I þvl sam-
bandi, sagði kaupfélagsstjór-
inn á Þórshöfn við AB I gær, en
sem kunnugt er eyöilagðist
verkstæði Kaupfélags Lang-
nesinga I eldi 29. desember s.l.
1 brunanum eyðilagöist einnig
varahlutalager og margs kon-
ar tæki og vélar, snjóblll,
vörubill, fólksbill og snjósleð-
ar tveir. Þá eyðilögðust og öll,
tæki verkstæðisins til viðgerða
á bátum, en verkstæðið á
Þórshöfn hefur þjónað útgerö-
inni þar jafnhliða plássinu
sjálfu og nærliggjandi sveit-
um.
Kaupfélagsstjórinn sagði
vitað, að tryggingarupphæðin
á verktæðinu nægði hvergi til
að greiða það tjón sem verður
I tölum talið og myndi kaup-
félagið trúlega reyna að bæta
að verulegu leyti tjón það sem
einstaklingar urðu fyrir i
brunanum, þ.e. eigendur véla
og tækja sem brunnu.
1 ráði er að koma upp bráða-
birgðaaðstöðu til viðgerða
sem fyrst til að sinna brýn-
ustu verkefnum, en ljóst er að
vandræði viðskiptamanna
verkstæðisins vegna brunans
verða afar mikil næstu mán-
uðina. A verkstæðinu unnu 7-
10 manns og ganga þeir fyrir
við vinnu við að koma bráða-
birgðaaðstöðunni upp. —ARH
Vetur í Reykjavfk Mynd: GEK
FramlxK’ilisti Sjálfstædisflokksins:
Lagdur fram í janúar?
Alþýðublaðið átti í gær-
kvöldi tal við Sigurð Haf-
stein/ framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisf lokksins/ og
spurðist fyrir um hvenær
mætti vænta þess að Sjálf-
stæðismenn birtu fram-
boðslista sinn í Reykjavik.
Sigurður kvaðst ætla að fram-
boðslistinn yrði birtur I þessum
mánuði, en kjörnefnd sú, sem
fulltrúarráð kaus I október sl.
hefur nú málið til umfjöllunar.
Yrði þá að likindum send út yfir-
lýsing um málið og ekki trúlegt að
neinum sögum fari fyrr af hug-
leiðingum nefndarinnar, né
hvernig henni sýnist að taka beri
á niðurstöðum hins eftirtektar-
verða prófkjörs.
Við inntum Sigurð eftir skoðun
hans á þeirri tilgátu Dagblaðsins I
gær, að kosningum verði flýtt og
þær haldnar i april, en Sigurður
kvaðst enga ástæðu sjá til að þær
yrðu ekki haldnar á réttum tima,
eins og raunar hefur verið lýst yf-
ir að gert muni. am
Jón Sigurdsson
um verd-
bólgunefnd:
Skili áliti
í næsta
mánudi
„Undirbúningsstarf verö-
bólgunefndar er nokkuð langt
komið nú, en þó er a 11 mikiö
starf eftir. Fyrir nefndinni
hefur legið a 11 viöamikið
uppkast, sem þarf að forma og
ýmislegt annað þarf að gera,
áður en nefndin telst hafa
lokið störfum. Ég á ekki von á
að nefndin komi saman til
fundar fyrr en um það bil er
þing hefur störf að nýju, en
unniö er aö verkefni hennar
fyrir þvi og stefnt er að þvi að
hún skili áliti I næsta mánuði,
sagði Jón Sigurðsson, for-
stööumaður Þjóðhagsstofnun-
ar, i viðtali við Alþýðublaðið I
gær en Jón á sæti i svonefndri
verðbólgunefnd, sem rikis-
stjórnin skipaði til að leita
leiða til úrlausnar verðbólgu-
vandanum.
„Ég vil litiö segja um
einstök atriði í störfum nefnd-
arinnar að sinni, sagði Jón
ennfremur i gær, anhað en að
það verður fjallað um tvennt.
Annars vegar hinn aðsteðj-
andi verðbólguvanda á allra
næstu mánuðum. Verður
reynt að benda á leiðir til að
hamla gegn verðbólgu á þessu
ári. Hins vegar og ekki siöur
mun nefndin reyna að skyggn-
ast dýpra i málið og kanna
ástæður verðbólgunnar hér á
landi á undanförnum árum og
áratugum og þá jafnframt
reyna að benda á úrræði til
þess að draga úr verðbólgu til
lengri frambúðar, þótt þær
ábendingar kunni að breyta
litlu alveg á næstunni.”