Alþýðublaðið - 04.01.1978, Side 7
Miðvikudagur 4. janúar 1978
7
STEFNUMI
Rikisst jórn Geirs Hallgrimssonar virðist sizt
til þess fallin að eyða misræmi og ójöfnuði.
Skömmu fyrir áramót gengu i gildi reglur sem
gera fólki mögulegt að ávaxta fé sitt I is-
lenzkum krónum, dönskum krónum, dollurum,
mörkum og pundum. Sá hængur er hér á að
ekki verður sagt að öllum sé gert jafn auðvelt
að velja um gjaldmiðil til þess að ávaxta fé sitt.
Allur þorri landsmanna býr við þau kjör að fá
þvi aðeins gjaldeyri að honum skuli varið til
þess að standa straum að kostnaði vegna utan-
landsferðar. öðru máli gegnir um ráðamenn
og eigendur islenzkra fyrirtækja sem stunda
erlend viðskipti, virðast möguleikar þeirra til
öflunar tekna i formi gjaldeyris margs konar!
Áður giltu þær reglur að menn voru skyldaðir
til þess að skila slikum tekjum heim og breyta
þeim i islenzkar krónur. Af EINHVERJUM
ÁSTÆÐUM tregðuðust þó menn við að hlita
reglunum, kusu að gerast lögbrjótar og ávaxta
pund sitt erlendis.
íslenzk stjórnvöld lokuðu augunum fyrir
þessari staðreynd, þangað til erlend yfirvöld
tóku að staðfesta með opinberum hætti að ekki
væri lengur um að villast að margir beztu synir
íslands væru lögbrjótar. Sú reglan, að islenzk
yfirstétt geri aldrei rangt hefur ekki enn verið
vefengd og því þótti ekki ástæða til að bregða
út af vananum og brugðið til þess ráðs að
heimila sparnað hérlendis I erlendri mynt,
auka ennfrekar á misrétti og ójöfnuð en verið
hefur.
Til skýringar skal tekið dæmi og ráð fyrir þvi
gert að reglumar hefðu gilt frá 1974 i upphafi
árs. Tveir menn, sem lögðu I banka jafnvirði
323,32 islenzkra króna 3. jan. 1974, annar i is-
lenzkum krónum, hinn 1 danska krónu,l dollar,
1 mark og 1 pund sterling fengju mismikið i
dag er þeir tækju höfuðstól og vexti út. Sá er
ávaxtaði fé sitt i islenzkum krónum fengi 510
krónur, hinn með gjaldeyrinn fengi rúmar 900
krónur. íslenzku krónumar gáfu að meðaltali
12% vexti, erlendi miðillinn mældur i íslenzk-
um krónum 22,8% i vexti á ári að meðaltali.
Hins vegar er á þá staðreynd að lita að mælt i
erlendum gjaldmiðli eru vextirnir að meðaltali
um 4%. Astæðan fyrir mismuninum er stjórn
efnahagsmála hérlendis#i þessum málum sem
öðrum ber allt að sama bmnni að tryggja
ójöfnuð og misræmi. Hefði maður haldið að
verðbólgan dyggði til að færa sumum umfram
aðra, sú er þó ekki raunin, nú bætist enn eitt
nýtt form við i kerfi óskapnaðar islenzks efna-
hagslifs. Vel má vera að lög sem þau að meina
mönnum að eiga erlendan gjaldmiðil fái ekki
staðizt, það að svo sé réttlætir þó á engan hátt
siðustu aðgerðir stjómvalda. Aðgerðir sem
eingöngumiða að þvi að fela sjúkdómseinkenni
en ekki að þvi að ráða bót á meinsemdinni
megna ekki að réttlæta þá afskræmingu heil-
brigðs efnahagslifs sem af aðgerðinni hlýst.
Enn einu sinni hefur núverandi stjórn sýnt
getuleysi sitt. 1 skjóli vanþekkingar láta
islenzkir fjölmiðlar sem ekkert sé nema þá
helztgott eitt um aðgerðina að segja. Eða hvað
veldur? Bjarni S. Magnússon
Þrítugasta og fyrsta þing
Sambands ungra jafnaðar-
manna var haldið i Vikingasal
Hótels Loftleiða helgina 10.-11.
desember siðastliðinn. Fer hér
á eftir stutt frásögn af störfum
þingsins.
Laugardagur
10. desember
Fráfarandi formaður SUJ,
Sæmundur Pétursson, setti
þingið um kl. 14.45. Embættis-
menn þingsins voru kosnir:
Þingforseti Sigurður Blöndal,
Reykjavik: 1. varaforseti Gunn-
ólfur Arnason, Keflavik: og 2.
varaforseti Þorbjörn Pálsson,
Vestmannaeyjum. Ritarar
þingsins voru kjörnir þeir
Sæmundur Pétursson og Kjart-
an OttóssonReykjavik. Þá voru
athuguð kjörbréf þingfulltriia 47
að tölu og samþykkt. Þau
skiptust þannig á milli ein-
stakra félaga að FUJ i
Reykjavik átti 16 fulltrúa. Þá
átti FUJ i Kópavogi 3 fulltrúa,
félagið i Garðabæ 1, Vest-
mannaeyjingar áttu 5 fulltrúa
og Siglfirðingar sendu 1.
Fleiri kjörbréf voru samþykkt
seinna á þinginu. Þannig bætt-
ust við, auk nokkurra vara-
fulltrúa, þrir fulltrúar FUJ á
Akureyri og einn frá Akranesi.
Atti þvi sæti á þinginu 51 fulltrúi
9 aðildarfélaga. Til samanbur
ðarmá geta þess, að á næst-
siðasta þing, sem haldið var á
Akureyri, komu 19 fulltrúar og á
þingið þar áður, á Akranesi,
mættu 28.
Sæmundur Pétursson frá-
farandi formaður flutti skýrslu
stjórnar. Skýrslur undirnefnda
framkvæmdastjórnar fluttu
þeir Gunnlaugur Stefánsson,
fyrir utanrikismálanefnd, og
Guðmundur Bjamason, af háifu
stjórnmálanefndar. Ekki var
flutt skýrsla verkalýðsmála-
nefndar, þar sem sú nefnd haföi
ekki starfað.
Umræður um skýrslur
o.fl.
Þá hófust umræður um þessar
skýrslur. Voru þær harðar á
köflum og all-persónulegar.
Einnræðumaður lýsti því svo að
tvö andstæð öfl flyttu framboðs-
ræður sitt á hvað, þvi vitað var
aðþeir Bjarni P. Magnússon og
Jónas M. Guðmundsson gáfu
báðir kost á sér til formanns
sambandsins. Klukkan 16 var
þessum umræðum hætt og gefið
kaffihlé.
Eftir kaffihlé voru álit fasta-
nefnda SUJ á dagskrá. Bjarni
P. Magnússon mælti fyrir áliti
stjórnmálanefndar. Þeir
Gunnlaugur Stefánsson, Jónas
Guðmundsson og Guðmundur
Bjarnason fyrir áliti utanrikis-
málanefndar, en ekkert álit
barst frá óvirkri verkalýðs-
málanefndinni.
Þá hófustalmennar umræður.
Þessir mæltu þar fyrir til-
lögum: Bjarni P. Magnússon,
fyrir tillögu um rekstur utan-
rikismálanefndar SUJ, tillögu
um drög að starfsáætlun SUJ
1978, tillögu um vinnumál og um
afvopnunarmál. Steingrímur
Steingrimsson mælti fyrir til-
lögu um félagsmálaskóla
alþýðu og um félagslegar ibúða-
byggingar, Tryggvi Jónsson
fyrir tillögu um námslán og
annarri um atvinnubann á v-
þýzka róttæklinga, Agúst
Einarsson flutti tillögu um Chile
og Gunnlaugur Stefánsson til-
lögur um störf Alþingis og störf
þingmanna Alþýðuflokksins.
Um fimm-leytið var gerthlé á
þessum umræöum, meðan
Benedikt Gröndal flutti ávarp.
Hann flutti þinginu kveðju
flokksins og ræddi stööu hans
nú, fjárhag hans og Alþýðu-
blaðsins, nýju stefnuskrána,
aukið fræöslustarf og próf-
kjörin. Alþýðuflokkurinn hefði
aldrei haft jafn gott tækifæri til
að verða stór, eins og einmitt
nú.
Nefndir starfa
Aö loknum þessum almennu
umræðum hófst starf i nefndum
þingsins. Guðmundur Bjarna-
son var umsjónarmaöur stjórn-
málanefndar, Gunnlaugur
Stefánsson fyrir utanrikismála-
nefnd, Gunnólfur Arnason fyrir
verkalýösmálanefnd og
Sæmundur Pétursson fyrir
starfsnefnd. Þessar nefndir
störfuðu þá um kvöldið og
morguninn eftir.
Sunnudagur
11. desember
Um morguninn var haldið
áfram nefndarstörfum eins og
fyrr segir.
Um kl. hálfþrjú hófust almenn
þingstörf á ný með álitum
nefndanna og umræðum um
þau.
Fyrst mælti Guðmundur
Bjarnason fyrir áliti stjórn-
málanefndar og Sæmundur
Pálsson fyriráliti starfsnefndar
og nokkru siðar mælti Gunnólf-
ur Amason fyrir áliti verkalýðs-
málanefndar.
Miklar umræður spunnust út
af áliti stjórnmála- og verka-
lýösnefndar. Tillögurnar frá
fyrri degi þingsins voru allar
endurfluttar sem viðaukatillög-
ur og margar aðrar bættust við.
Gunnlaugur Stefánsson bar
fram 4 tillögur um þjóönýtingu,
þær voru felldar utan ein, um
þjóönýtingu heildverzlunar.
Guðmundur Arni Stefánsson
átti 3 tillögur. Sú fyrsta var, að
samin skyldi stefnuskrá fyrir
SUJ. Onnur var sú að kratar
skyldu beita sér gegn Sjálf-
stæöismönnum i forystu ASI.
Urðu nokkrar deilur um þessa
tillögu, heini m.a. andmælt á
þeim forsendum að berjast yrði •
innan verkalýðsfélaganna
sjálfra og ólýöræðislegt væri að
útiloka ákveðin hóp á ASÍ-þingi.
Þriðja tillaga Guðmundar
vakti einnig deilur. Hún var
þess efnis, að kratar mættu ekki
vera frimúrarar.
Guömundur Bjarnason mælti
með samstarfi við unga Alþýðu-
bandalagsmenn um málefni
ungs verkafólks. Bjarni P.
Magnússon mælti fyrir tillögu
um störf aldraðra og öryrkja og
verndaða vinnustaði, Kjartan
Ottósson fyrir tillögu um land-
búnaðarmál.
Nú var gert hlé á umræðum,
meðan reikningar sambandsins
voru afgreiddir. Endurskoðend-
ur Gylfi Om Guðmundsson og
Marias Sveinsson undirrituðu
þá með fyrirvara v. utanrikis-
málanefndar, en fráfarandi for-
maður hennar Gunnlaugur
Stefánsson gerði munnlega
grein fyrir fjárreiðum hennar.
Voru r e i k n i n g a r n i r
samþykktir með þorra atkvæða
gegn atkvæði Gisla Más Helga-
sonar. Þá var gefið kaffihlé kl.
rúmlega hálf-fimm.
Eftir hléð voru tekin til af-
greiðslu álit nefndanna þriggja,
starfs-, stjórnm.- og verka-
lýðsm. nefndar, ásamt breyt-
ingum og viðaukatillögum.
Starfsáætlun var samþykkt
samhljóöa , svo og viöauki um
stefnuskrárnefnd, sem viðauki
um samstarf við unga Alþýðu-
bandalagsmenn með .18 atkv.
gegn 7. Stjórnmálaályktunin
var einnig samþykkt samhljóða
og þessir viðaukar: um Félags-
málaskóla alþýðu, námslán
(með 12 á móti 8), frimúrara-
regluna (12gegn 7), störf aldr-
aðra og öryrkja, þjóðnýtingu
heildverzlunar, um tengsl
alþingis við athafnalifog fólkiö 1
landinu (9 gegn 7), gegn auka-
störfum þingmanna flokksins og
með auknu starfi þeirra i
flokknum og loks tillaga um
1 a n d b ú n a ð a r m á 1 (meö
mótatkvæði Gisla Más). Alit
verkalýðsmálanefndar var
samþykkt samhljóða, sömuleiö-
istillaga Bjarna P. Magnússon-
ar um vinnumál. Tillagan gegn
sjálfstæðismönnum i ASI var
samþykkt með 1 mótatkvæði.
Utanrikismálanefnd
Þá var lagt fram álit utan-
rikismálanefndar. Hún lagöi til,
að samþykktyrði tillaga fráfar-
andi utanrikismálanefndar SUJ
um S-Afriku, Urugay,
Argenti'nu, Sahara, Kýpur og
Norðurlandaráð: gegn Æsku-
lýðssambandi EBE: um störf
IUSY, alþjóðasambands ung-
krata: gegn aronskunni, veru
tsiands i NATO og hernum og
um samstarf við norræna ung-
krata i FNSU. Að auki var lagt
til að samin yrði skýrsla um
málefni þróunarlandanna og
reglugerð um þátttöku ungkrata
i erlendum ráðstefnum og
fjármál utanrikismálanefndar.
Þá lagði nefndin fram ýtarlega
tillögu um atvinnubann —
Berufsverbot — á v-þýzka
róttæklinga, þar sem þvi er
mótmælt, og nýja tillögu um af-
vopnunarmál. Endurflutt var
tillaga frá fyrradegi um stuön-
ing við stofnun ungkratahreyf-
ingar á Grænlandi og i Færeyj-
um. Gunnlaugur Stefánsson
mælti fyrir áliti nefndarinnar.
Bjarni P. Magnússon dró af-
vopnunartillögu sina frá fyrra
degi til baka.
Guðni Kærbo lagði til að hald-
in yröi ráðstefna hér um jafn-
aöarstefnu i febrúar eða marz
og boðið einhverjum þekktum
fulltrúa hennar.
Guðmundur Arni Stefánsson
flutti tillögur gegn fjölþjóðaauð-
hringjum, skertu lýðræði i USA
og þá þriöju um friöarviðleitni
Sadats.
Agúst Einarsson endurflutti
tillögu um Chile.
Þá var gengið til atkvæða og
allar tillögurnar samþykktar
mótatkvæðalaust.
Kosning
Eftir að tillögurnar höfðu
hlotið samþykki var gengið til
kosninga i stjórn og nefndir.
Formaður var kjörinn Bjarni
P. Magnússon og hlaut hann 16
atkvæöi. Varaformaður var
kosinn Gunnólfur Árnason,
Keflavik, meö 23 atkv. Snorri
Guðmundsson, Reykjavik laut
17 atkv. einn seðill var auöur.
Ritari var kjörinn Marias
Sveinsson og gjaldkeri Óskar
Karlsson, Hafnarfiröi. Ritstjóri
málgagna var kosinn Kjartan
Ottósson, en meðstjórnendur
Gisli Ólafsson, Hafnarfirði, og
Rebekka Ingvarsdóttir,
Reykjavik.
Formaður utanrikisnefndar
var kjörinn Guðmundur
Bjarnason, meðstjórnendur þau
Guðni Kjærbo, Sjöfn Jóhannes-
dóttir, og Gylfi órn Guðmunds-
son. Formaður Verkalýðsmáia-
nefndar var kjörinn Steingrim-
ur Steingrimsson, en með-
Framhald á bls. 10