Alþýðublaðið - 04.01.1978, Qupperneq 12
alþýðu-
blaóió
' (Jtgefandi Alþýöuflokkurinn
Ritstjórn Aiþýðublaðsins er að Sfðumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild blaðsins er að
Hverfisgötu 10, sími 14906 — Askriftarsimi 14900.
MIÐVIKUDAGUR
4 JANÚAR 1978 "
Útgáfufélag Alþýðublaðsins og Reykjaprents:
Sjö mánaða samstarfs-
samningur undirritaður
Útgáfufélags Alþýöu-
blaðsins hf. og Reykja-
prent hf. hafa gert meö
sér viðbótarsamning við
samstarf ssamning frá
24. desember 1975.
Samningaviðræður hafa
staðið yfir frá því fyrir
nýár. Vegna óvissu um
ýmsa þætti í rekstri dag-
blaða á þessu ári, og
erfiðleika, sem við blasa,
er samningurinn ekki
gerður nema til 7 mán-
aða.
Samningurinn.
Samningurinn fer hér á eftir
orðréttur:
„I framhaldi af samstarfs-
samningi dags. 24. desember
1975 gera undirritaðir aðilar,
Útgáfufélag Alþýðublaðsins hf.
og Reykjaprent hf. með sér svo-
felldan
viðbóta|rsamning
um rekstur Alþýðublaðsins.
1. gr. Gildistimi samstarfs-
samnings aðilanna framlengist
til og með 31. júli 1978.
2. gr. Fyrir 1. marz n.k. skal
gert sérstakt samkomulag um
aukna útgáfu Alþýðublaðsins i
sambandi við væntanlegar
kosningar til sveitarstjórna og
alþingis, stærð blaðsins, upplag
og kostnað.
3. gr. Vegna reksturs Alþýðu-
blaðsins á samningstimabilinu
greiðir Útgáfufélag Alþýðu-
blaðsins hf. til Reykjaprents hf.
rekstrartap blaðsins samkvæmt
samþykktri rekstraráætlun
fyrir timabiiið 1/1 — 31/7 1978.
4. gr. 1 öðrum efnum en að
framan eru talin gildir áfram
samstarfssamningur aðilanna
dags. 24. desember 1975.
5. gr. Risi mál út af samningi
þessum má reka það fyrir
bæjarþingi Reykjavikur, án
þess að leggja það fyrst fyrir
sáttanefnd.
Samningur þessi er gerður i
tveimur samhljóða eintökum og
heldur hvor samningsaðili sinu
eintaki.
Samningi þessum til staðfestu
rita fyrirsvarsmenn aðilanna
nöfn sin hér undir.”
Undirskriftir.
Mikill sparnaður
I tilefni samningsins snéri
Alþýðublaðið sér til Benedikts
Gröndal, formanns Alþýðu-
flokksins, og spurði hann álits á
samkomulaginu. Hann sagði, að
tvimælalaust hefði orðið mikill
sparnaður i rekstri i þvi sam-
starfi, sem þessir aðilar hefðu
átt með sér s.l. tvö ár. Nær öll
islenzku dagblöðin ættu nú við
fjárhagsörðugleika að striða, og
aukið samstarf af þessu tagi
væri nauðsynlegt, ef dagblöðin
ættu að geta starfað.
Reksturskostnaður dagblaða,
eins og annarra fyrirtækja,
hefði aukizt gifurlega i seinni
tið. Fyrirsjáanlegur væri veru-
legur halli i rekstri Alþýðu-
blaðsins á næsta ári. Honum
yrði mætt með fjáröflun meðal
flokksmanna, eins og ávallt áð-
ur, en auk þess myndi A-press-
en, samtök blaða jafnaðar-
manna á Norðurlöndum, sem er
i eigu jafnaðarmannaflokkanna
og verkalýðssambandanna,
veita Alþýðublaðinu nokkra að-
stoð. Hvernig hún yrði væri ekki
vitað á þessari stundu.
Oft er margt um manninn f Bláfjöllum, þegar snjór er nægur, en nú verða menn að láta ntegja að finna
sér „góðan skafl.”
Skíóastaðurinn í Bláfjöllum opnaður
HAMSKIPTI
FRÉTTA
FRÁ SOVÉT
Fréttir frá Sovétrikjunum, sem
Novosty-fréttastofan á islandi
gefur út, breytir talsvert um svip
nú um áramótin. llingað til hefur
það komið út i timaritsformi einu
sinni I mánuði, en framvegis
munu Fréttirnar koma út á hálfs-
mánaðar fresti i dagblaðsformi.
Þá hefur umbrot blaðsins og
prentun verið færð i Blaðaprent,
en síðufjöldinn veröur 16 i hvert
sinn.
Blaðamenn AB geröu stiu Þjóð-
viljans i Blaðaprenti heimsókn i
gær, en þar var friður flokkur
þjóna prentlistarinnar að hefja
umbrot á fyrstu siðum blaðsins.
Þar varð einnig fyrir Maria Þor-
steinsdóttir, sem er titluð ábyrgð-
armaður Frétta frá Sovétrikjun-
um. Skýrði hún svo frá að þessi
breyting á málgagninu væri
væntanlega skref fram á við,
enda rúmaðist þar nú meira og
ferskara efni en áður. Væri þessi
breyting i samræmi við hliðstæð
blöð Novosty á Norðurlöndum.
— Og hvernig fjármagnið þið
svo þetta? spurði blaðamaður.
— Blaðið verður selt i áskrift
eins og verið hefur, auk þess sem
lausasala verður reynd.
— Auglýsingar?
— Nei.
— Þannig að borgaðar áskriftir
hafa staðið undir útgáfunni?
— Já, það er reynt. Annars
vilja rukkanir með giróseðlum
skila sér illa. Menn henda þessum
seðlum eins og gengur. — ARH.
Skíðalyftunum verður
ekki við komið ennþá
Bláfjallanefnd hefur blaðinu borizt frétt frá
ekki setið auðum höndum i nefndinni um ýmsar um-
sumar og hefur Alþýðu- bætur, sem gerðar hafa
Vélainnflutningur Sambandsins
f hálfa öld
Vagnhjól og
valtamót
— meðal innflutnings 1927-’32
í nýútkomnum Sam-
bandsfréttum er þess getið
að á árinu 1977 er liðin hálf
öld frá því að Sambandið
hóf að flytja inn búvélar.
Allan þann tíma hefur
Sambandið flutt inn handa
islenzkum bændum vélar
og tæki frá fyrirtækinu
International Harvester,
en það er eins og kunnugt
er eitt hið öf lugasta í sinni
grein í heiminum.
Þessa var minnzt sérstaklega i
hófi.sem International Harvester
hélt fyrir umboðsmenn sina viðs
vegar um heiminn i tengslum við
Smithfield landbúnaðarsýning-
una i Lundúnum i siðasta mánuði.
Þar afhenti Mr. Larry Abbott,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins i
Bretlandi, skrautritað perga-
mentskjal, sem það hafði látið út-
búa sérstaklega sem viöur-
kenningarvottort til Sambandsins
fyrir hálfrar aldar gott samstarf.
Af hálfu Sambandsins veitti Jón
Þór Jóhannsson frkvstj. skjalinu
viðtöku. Framhald á bls. 10
verið þarna upp frá:
I sumar hefur verið unnið að
lagfæringu vegar og gerð nýrra
bilastæða.
Þá hefur verið bætt við einni
skiðalyftu fyrir almenning og
lýsing á brekkum endurbætt. A
næstunni eru væntanleg tæki,
sem tengja má við snjótroðar-
ann og auðvelda lagningu
göngubrauta og sléttun svig-
brauta.
I vetur verður opið i Bláfjöll-
um sem hér segir:
Mánudaga
Þriðjudaga
Miðvikudaga
Fimmtudaga
Föstudaga
Laugardaga
Sunnudaga
kl. 13.00—19.00
kl. 13.00—22.00
kl. 13.00—22.00
kl. 13.00—22.00
kl. 13.00—19.00
kl. 10.00—18.00
kl. 10.00—18.00
Eins og sakir standa er ekki
nægilegur snjór til þess að reka
lyfturnar, en göngufæri er ágætt
og skaflar á stöku stað, sem
nota má til svigæfinga.
Skiðastaðurinn hefur verið
opnaður og starfsmenn á staön-
um alla daga frá kl. 13.00.
Upplýsingar um færð og lyft-
ur eru gefnar i sima 85568.
F.h Bláfjallanefndar,
Stefán Kristjánsson.
Abyrgðarmaður Frétta frá Sovétrfkjunum, Marfa Þorsteinsdóttir,
fylgdist náið meö vinnslu fyrsta töiublaðsins I Blaðaprenti I gær. (AB-
mynd: GEK)
RIKJUNUM