Alþýðublaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 1
Senda þrjá menn til
viðræðna við
forsætisráðherra
— skipin fara ekki á veiðar fyrr en sendimenn
hafa lagt fram greinargerd um ferð sína
500 lodnu-
sjómenn á
Akureyri:
,,A fundinum voru valdir þrir
menn, sem ætlað er að ganga á
fund forsætisráðherra i Reykja-
vik. Eiga þeir að ræöa viö hann
hvort hugsanlega fáist leiðrétt-
ing á verðákvörðun Yfirnefndar
verðlagsráðs sjávarútvegsins”,
sagði Baldvin Þorsteinss., skip-
stjóri á Súlunni frá Akureyri, er
blaðið ræddi við hann eftir 4
tima fund loðnusjómanna. sem
haldinn var i Nýja-Biói á Akur-
eyri i gær. „Þangaö til þessir
menn hafa lokið ferð sinni, og
haldið fund með þeim sjómönn-
um sem hér eru staddir, hreyfir
ekkert skip sig úr höfn”, sagði
Baldvin.
Þeir sem valdir voru til farar-
innar eru: Magni Kristjánsson,
skipstjóri á Berki frá Neskaup-
stað, Björgvin Gunnarsson,
skipstjóri á Grindvikingi frá
Grindavik og Björn Þorfinns-
son, skipstjóri á Flfli frá
Hafnarfirði.
Baldvin sagöi að á fundinum i
dag hefðu veriö á sjötta hundraö
manns og mikill einhugur rikt
meðal þeirra. Auk þeirra voru
viðstaddir fulltrúar sjómanna i
verðlagsnefnd og foringjar
stéttasamtaka þeirra. Þá var
þar staddur Kristján Ragnars-
son, framkvæmdastjóri Lands-
sambands tslenskra útvegs-
manna. Oddamanni i Yfirnefnd
verðlagsráðs mun hafa verið
boðið til fundarins, en hann, ein-
hverra hluta vegna, ekki séð sér
fært að mæta.
Baldvin kvað sjómenn
ekki allskostar ánægöa meö
hvernig staðið væri aö verö-
ákvörðunum i Yfirnefnd. Þann-
ig háttar til, að þar eiga sæti
fulltrúar frá kaupendum og
seljendum, tveir frá hvorum,
svo og oddamaður. Það er þvl i
raun og veru I höndum odda-
manns að ákveða endanlegt
verð. Þykir sjómönnum sem
hann fari þarna með óeðlilega
mikið vald, og vilja að aö þessu
verði staðið á einhvern annan
hátt.
Þá telja sjómenn þaö hafa
dregist óeðlilega lengi að ganga
frá verðákvörðun, en sem kunn-
ugter átti þvi lögum samkvæmt
að vera lokið fyrir áramót. ÖU
gögn sem lutu að verðákvörðun
voru tilbúin nokkru fyrir ára-
mót og muni verðákvöröunin
hafa dregist lengur en nauðsyn-
legt var.
iRramhald á bls. 10
35 loðnubátar á
Akureyri í gær
Logn og blfða og ÍO stiga frost
nyrðra
„Þeir byrjuðu að tínast
inn um f jögur leytið i nótt
og ég held að sá síðasti hafi
komið nú um hádegið,"
sagði Björn Baldvinsson,
hafnarvörður á Akureyri,
þegar blaðið hafði sam-
band við hann í gær.
Björn taldi að nú lægju 34-5 bát-
ar á Akureyri og hefðu allir kom-
ist aö bryggju. Væri þetta hinn
friðasti floti og lægju viöast þrlr
eða fjórir bátar hver utan á öör-
um. Sunnangola var á Akureyri I
gær og hið bezta veður, þótt frost
væri um 10 stig.
Björn haföi átt annrikt við að
koma bátunum fyrir við
bryggjurnar og haföi því ekki enn
gefist tlmi til að kanna hvort
mikil breyting heföi orðið á
bæjarbrag, þegar svo margir að-
komumenn væru i bænum, en
lýsti fullum skilningi sinum á af-
stöðu sjómanna og þessari aðgerð
þeirra, sem eðlilegum viðbrögð-
um við hina lága veröi. „Hvernig
eiga menn að sætta sig við sjö
krónur, þegar Færeyingum eru
greiddar 15?” spurði Björn.
Tjónagreidslur trygginga-
féiaga 1976 námu 1/6 Kluta
fjárlaga — sjá baksfðu
Eins og sjá má á myndinni lágu skipin hvort utan á öðru við Torfunefið. Svipaða sjdn bar fyrir augn við
aðrar bryggjur á Akureyri.en alls munu um 40 loðnuskip vera þar meðan deilan nm loðnuverðsákvörð-
unina er ekki leyst. Ljósm. Stefania S.
Gott útlit í freðfiskmarkadsmálum:
Verð aldrei hærra og eng-
ir söluerfiðleikar
— segir Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, forstjóri SH
„Almennt veröur ekki
annað sagt en aö útlitið er
gott hjá okkur. Markaðs-
verð hefur aldrei verið
hærra á frystum fiski en
nú er og þótt breytingar
hafi oft orðið með snögg-
um hætti þar á, bendir ekk-
ert til þess í dag að þær geti
orðið. Söluerfiðleikar eru
nákvæmlega engir fyrir
hendi. Sölur okkar hafa
farið stöðugt vaxandi und-
anfarin ár, enda hefur
framleiðslan aukist a11
nokkuð. Til dæmis he-fur
markaður í Englandi verið
mjög góður undanfarið og
þar hefur orðið veruleg
aukning á sölum okkar síð-
asta ár, aukning sem við
gerum ráð fyrir að haldi
áfram, sagði Eyjólfur Is-
feld Eyjólfsson, forstjóri
Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna, í viðtali við
Alþýðublaðið í gær.
„Vafalitið skapast markaös-
aukningin I Bretlandi að hluta til
af þvi aö þeir hafa orðiö aö hætta
veiðum á Islandsmiöum, vegna
útfærslu okkar i tvö hundruð mll-
ur,” sagöi Eyjólfur ennfremur,
,,en annað atriöi hefur einnig
verkað jákvætt fyrir okkur, þaö
er hvernig þrengst hefur að verk-
smiöjutogurunum, sem lögðu
mikið upp I Bretlandi. Mörgum
þeirra hefur hreinlega verið lagt,
öðrum breytt til þess aö vinna við
oliuborpallana, og þaö hefur
skapað jákvæðar aðstæöur fyrir
okkur og aðra þá, sem selja fryst-
an fisk til Bretlands.
Um önnur markaösmál en þau
er snerta þessar helstu fiskteg-
undir og fiskafurðir okkar er yfir-
leitt svipað aö segja, en meö und-
antekningum þó, þar sem er salt-
fiskur, ef til vill má telja skreið og
fleira til lika.
I
Viö gerum ráð fyrir þvi að við-
skiptin við Sovétrlkin verði svip-
uð og siöasta ár, þótt samningar
liggi ekki fyrir og raunar sé ekki
einu sinni byrjaö aö ræða um þá i
dag.
Þau viðskipti fara þó mikið
eftir þvi hvernig veiðum veröur
stjórnaö hérna á árinu og hvert
togaraflotinn beinir sér.”