Alþýðublaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 7
ssa- Fimmtudagur 12. janúar 1978 7 Noregur Misþyrming- ar á börnum æ tídari og hroðalegri Myndirnar hér á síðunni voru birtar í norska blaðinu Arbeiderbladet/ í samráði við Peer Skjælaaen lækni. Sýna þær, að misþyrmingar á börnum eru stundum annað og meira en skellur á bossann. Séu börn beitt likamlegu ofbeldi, hefur það bein skaðleg áhrif á þau, áhrif sem geta varað ævilangt og valdið varanlegri örorku. Staðreyndir um mis- þyrmingar I Noregi koma fram um fjögur hundruö ný tilfelli ár- lega, þar sem börn hafa veriö beitt likamlegu ofbeldi. ■ Fæst þeirra uppgötvast svo sannaö veröi. ■ i 90-95% þessara tilfella skaddast húöin verulega. ■ Og i 10-20% tiifella er um aö ræöa húöskemmdir af völdum bruna. Hafa þá veriö notaöar sigarettuglóöir, heitt vatn eöa heit straujárn. ■ Þriöja til fjóröa hvert barn, sem veröur fyrir misþyrm- ingu fót- eöa handleggsbrotn- ar. Höfuökúpubrot er jafnvel nefnt lika. ■ i þrjátiu prósent tilfella fá börnin heilablóöfall, sem staf- ar af þvi aö þau eru hrist ofsa- lega eöa barin. Þennan heilsu- brest veröa þau aö bera ævi- langt. ■ i hverju tilviki sem barn veröur fyrir likamlegu of- beldi, veröur vart viö andleg- ar eftirverkanir. ■ Misþyrming á börnum er oftast talin stafa af þvi aö þau gráta þegar foreldrunum finnst aö þau eigi aö þegja. ■ Orsakir misþyrminga geta einnig veriö þær, aö barniö hegöi sér ekki eins og foreldr- arnir óska. ■ Þá hafa margir foreldrar, sem misþyrma börnum sinum þaö i huga, aö: Brennt barn foröast eldinn. Þrátt fyrir aö athygli hafi veriö vakin rækilega á misþyrmingum á börnum á siðasta ári, hafa yfir- völd litiö lagt af mörkunum, til aö reyna aö koma i veg fyrir þennan vanda. A sama tima eru f jölda- mörg börn beitt likamlegu of- beldi. Mörg þeirra deyja, eöa i þessu tilfelll sögöu foreldrarn- ir, aö barniö heföi klemmt sig milli stafs og huröar. Staö- reyndin er hins vegar sú, aö barnið hafði þann siö að vakna oft að nóttu til og ambra. I lang- an tima hafði faðirinn reynt aö koma i veg fyrir þetta ónæði með þvi aö brenna fótinn með sigarettuglóð. ísland Þetta barn datt ekki ofan af eldhúsboröinu, eins og foreldrar þess sögöu I fyrstu. Stóru blóðhlaupnu blettirnir eru tilkomnir vegna langvarandi barsmiöa. 1 fyrstu var rannsakaö hvort blettirnir gætu hugsaniega stafaö af tilteknum blóösjúkdómi — en svo reyndist ekki vera. hljóta varanlegan skaða vegna misþyrminganna, segir Peer Skjælaaen læknir. Hann staöhæfir einnig, aö sú andúö, sem barna- verndarnefndinni I Osló hafi veriö sýnd, hafi þaö i för meö sér, aö ennþá erfiöara sé aö fylgjast meö þessum tilteknu fjölskyldum en ella. Aivarlegasta afleiöingin sé sú, aö starfsfólk, sem skipaö hefur verið til aö koma upp um hvar misþyrmingar eiga sér staö, hef- ur tekið þann kostinn aö horfa framhjá öllu þvi er aflaga fer, þvi þaö veit aö afskaplega tilgangs- litiö er, aö blanda sér I málin. — Fram til þessa hefur ekki borizt einn eyrir frá opinberum aöilum til aö kosta beina vinnu heima hjá þessum fjölskyldum, né til aö styrkja þaö fyrirbyggj- andi starf sem hefur veriö unniö. Afmarkaöir hópar innan heil- brigöisþjónustunnar hafa starfaö aö þessum málum, og oft hefur aöalstarfiö verið unniö utan eig- inlegs vinnutima. Einstaka sinn- um hefur þó náöst jákvæöur árangur, þrátt fyrir skort á fé, að- stööu og jafnvel tima, segir Peer Skjælaaen. — Fyrir nokkrum árum voru að meðaltali 14 börn lögð inn á Ullevaal-spítalann árlega vegna likamlegra misþyrminga. Nú er talan heldur lægri. Þýöir þetta, að siik ofbeldisverk séu á undán- haldi? — Nei, þvi miöur. Tölurnar frá Ullevaal gefa engan veginn rétta mynd af raunveruleikanum. Þær sýna aftur á móti vel, hve mikil þörf er á að ráða fólk til eftirlits- og þjónustustarfa. Dr. Skjælaaen kveöst enn frem- ur vilja leggja áherzlu á, að mjög erfitt sé að aðskilja barn og for- eldra. Enn erfiðara verði það vegna þeirrar almennu gagnrýni, sem barnaverndarnefndin i Osló hafi hlotiö. Sú gagnrýni hefur ekki aöeins lamaö starfsemi nefndarinnar heldur einnig starfsfólk þess, sem hefur bein afskipti af viökomandi heimilum. Þetta telur dr. Skjælaaen, að valdi þvi, að eftirlitsfólk beinlinis loki augunum fyrir þvi sem sé aö gerast i kringum það. Brunasár af þriöju gráðu, sem þetta niu mánaöa barn haföi á fætinum, reyndu foreldrarnir aö útskýra með þvi aö barnið hefði klemmst milli stóls og ofns. Sannieikurinn var allur annar, eöa só, að foreldrarnir höföu lagt heitt straujárn aö hné barnsins og legg. Þetta ráö átti aö duga til að fá barnið til að hætta að gráta. 400 ný tilfelli árlega Þrátt fyrir þetta, hefur verið leitast við að auka þá starfsemi, sem koma mætti I veg fyrir þetta vandamál, og eru þar til geröar stofnanir starfandi viða i Noregi. „En á flestum stööunum fálma menn I blindni án þess aö vita hvers þeir raunverulega leita, og hvert þeir eiga að snúa sér.” — Þetta virðist vonlaust eins og er. Fyrir það fyrsta vitum viö að misþyrmingar á börnum eru alvarlegt vandamál hér i Noregi. Heynslan hefur kennt okkur, aö á hverju ári fáum við um fjögur hundruö ný tilfelli. 1 ööru lagi vitum við aö sér- fræðingar hafa meira vit og betri innsýn I þessi mál en við hin. Þetta fólk veröum við að hagnýta okkur eins og hægt er, ef viö á annaö borð viljum gera eitthvaö til aö koma i veg fyrir þann siend- urtekna harmleik, sem hér á sér stað. tþriöja lagirSvo lengi sem ekki er hægt að koma I veg fyrir lik- amlegt ofbeldi með fyrirbyggj- andi aðgerðum, gleymist hið sál- arlega tjón sem barniö biöur,, En skv. erlendum skýrslum er það fjórum sinnum algengara aö and- legt ofbeldi sé unnið á börnum en likamlegar misþyrmingar, segir læknirinn. Hann segir að lokum, aö ófært sé að eftirláta þau vandamál, sem hrúgist upp umhverfis barnaverndarnefndina, áhuga- mönnum til lausnar. En þaö virð- ist sannarlega, sem ráðamenn hafi enn ekki gert sér grein fyrir alvöru málsins. Eitt af þýðingarmestu atriöun- um sé, að koma upp duglegum hópi skipuðum fólki frá félags- mála- og heilbrigðisþjónustunni. Sá hópur gæti bæöi samhæft vinn- una og verið ráðgefandi fyrir aöra slika I öðrum landshlutum. Ósóttir vinn- ingar í Happ- drætti Krabba- meinsfélagsins Eins og áður hefur verið sagt f rá var dregið í Happ- drætti Krabbameins- félagsins 24. desember síðastliðinn. Vinningar voru átta talsins. Ekki hef- ur enn verið vitjað um vinninga sem komu upp á nr. 48660 (BMW-bifreið) og 19391 (Grundig-litsjón- varpstæki). Miðar þessir voru seldir i lausasölu en ekki er vitað hvort þeir seldust á Akureyri, I Kefla- vik eða úr happdrættisbilnum 1 Reykjavik. Krabbameinsfélagiö biður þá sem hafá keypt miöa á þessum stöðum sérstaklega að gæta að þvl hvort þeir eigi þá miöa sem hér um ræðir. Hand- hafar miðanna eru beönir að hafa samband við skrifstofu Krabba- meinsfélags Reykjavikur að Suöurgötu 24 (slmi 19820) sem allra fyrst. Lítid um Bíkams- ð Andlegar misþyrm mm ingar algengari segir formaður Barnaverndar Alþýöublaðið snéri sér til Jóns Magnússonar formanns Barna- verndarnefndar og innti hann eftir, hvemig þessum málum væri háttaö hér á landi, hvort einhver brögð væru að þvi, aö foreldrar misþyrmdu börnum sinum og hvort sérstakt eftirlit væri starfandi, til að finna þessi heimili ef einhver væru. — Hérna hafa slík mál komiö upp gegnum árin, sagði Jón Magnússon, en I þeim hefur að jafnaöi gengiö dómur, ef um verulegar likamsmeiöingar hef- ur veriö að ræöa. Eftirlít hefur ekki veriö annaö en þaö, sem komiö hefur frá einstaklingum svo og lögreglunni. Getur þá veriö til i dætninu, aö slikar misþyrmingar eigi sér stað, án þess aö Barnaverndar- nefnd fái nokkurn tima að vita um þær? — Ég tel að svo sé ekki. Þjóð- félagið er enn svo litiö að náung- inn hefur tækifæri til að fylgjast vel með. Fólk er sem betur fer opið og vakandi varðandi það sem gerist I kringum það, enda berast stanzlausar ábendingar og kvartanir, þótt þar sé ekki um llkamlegar meiöingar aö ræða. Andlegar meiðingar eru sizt betri, og fóik skiptir sér af og gerir viðvart, ef vitaö er til þess að börn veröi fyrir siiku. Eigi ég að taka af eigin reynslu, þegar ég segi að viö sé- um færri og smærri, og látum okkur náungann meiru skipta en gengur og gerist útii hinum stóra heimi. Misþyrmingar foreidra á börnum sinum gætu ekki gengiö hér, án þess að þaö uppgötvaðist fyrr en siöar. Oft- ast eru fleiri en ein fjölskylda i sama húsi, og það eitt er nóg til þess að fyrirbyggja slikt. — Er langt siöan að siðasti dómur var kveöinn upp i máli vegna misþyrminga? — Já, það eru oröin nokkur ár siðan. Ég hef setib á áttunda ár i Barnaverndarnefnd og á þeim tima hefur ekki komiö upp eitt einasta mál, þar sem kært hefur veriö fyrir iikamlega refsingu. Þetta tel ég að við eigum m.a. samkennd fólksins að þakka. Aftur er mikið leitað til Fé - lagsmálastofnunar vegna þess aö böm verða fyrir andlegum misþyrmingum. Þau eru þá vanrækt eöa skilin eftir ein, og oftast er þá áfengi með I spilinu. Það er alltaf eitthvaö um þetta I Reykjavlk og annars staðar og það er auövitað ekkert betra en aðrar misþyrmingar, sagöi Jón Magnússon formaður Barna- verndarnefndar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.