Alþýðublaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 2
Fimmtudagur 12. janúar 1978
Krafla:
Landsigid hægir enn
og skjálftum fækkar
—„Hér i Mývatnssveit er
ekki mikiö að frétta",
sagði Páll Einarsson jarð-
fræðingur, þegar Alþýðu-
blaðið ræddi við hann i
gær. skjálftum hefur að
visu fækkað, en enn eru
stórir skjálftar innan um.
Fyrir um það bil 5 minút-
um síðan urðum við t.d.
varir við einn, sem var
eitthvað yfir 4 stig". —
Sagöi Páll enn fremur, aö land-
sigiö á Kröflusvæöinu heföi enn
hægt, þótt talsverös sigs gætti enn
sem komiö væri. Samkvæmt
hallamælingum næöi þaö 75 cm
þar sem mest væri.
„Þaö er ekki gott aö segja hvert
framhaldiö veröur. En viö eigum
von á aö hér taki aö kyrrast, þvi
um leiö og landsigiö hægir, taka
skjálftarnir aö minnka”, sagöi
Páll Einarsson.
Sérsamningur Starfs
mannaf. ríkisstofn-
ana til kjaranefndar
I nýútkomnum félagstíð-
indum SFR segir, að nú sé
Ijóst að kjaranefnd muni
fá til meðferðar sérkjara-
samning starfsmannafé-
lagsins, þar sem samkomu-
lag hefur ekki tekist við
ríkisva Idið.
í lögunum um kjarasamninga
BSRB er gert ráö fyrir þvi, aö
einstök bandalagsfélög og viö-
semjendur þeirra hafi 45 daga frá
þvi aö aöalkjarasamningur er
geröur, til þess aö ná samkomu-
lagi um sérkjarasamninga. Náist
slikt samkomulag hins vegar ekki
á þeim tima, skal visa ágrein-
ingsefnum til kjaranefndar, sem
hefur 45 daga frest til aö f jalla um
máliö og leggja fram endanlegan
úrskurö.
Ekki er hægt aö segja, aö
raunverulegar samningaviö-
ræöur hafi farið fram á milli full-
trúa SFR og fjármálaráöuneytis-
ins um nýjan sérkjarasamning.
Þaö kemur til af þvi, aö fulltrúar
rikisvaldsins hafa á engan hátt
verið reiöubúnir til aö ræöa um
efnisatriði nýs samnings viö full-
trúa SFR. Og þaö þrátt fyrir þá
staðreynd, að kröfur SFR um
breytingar á sérkjarasamningi
voru mjög hóflegar.
Þegar þetta er ritaö hefur ekki
endanlega verið gengiö frá kröfu-
gerö SFR fyrir kjaranefnd, en fé-
lagið hefur frest til 9. janúar aö
leggja hana fram. Þó má telja
vist, aö hún dragi mjög dám af
upphaflegri kröfugerð félagsins.
I bréfinu segir aö slæmt sé til
þess aö vita, aö fulltrúar rikis-
valdsins skuli ekki vera til viö-
ræöu um hinar minnstu lagfær-
ingar á sérkjarasamningum fé-
jagsins. Rikisvaldiö er i reynd aö
óviröa þaö atriöi i samningsrétt-
arlögunum, sem gerir ráö fyrir
raunverulegum samningaviöræö-
um milli aöiia um sérkjarasamn-
ing, þegar fulltrúar þess ganga
þannig út frá þvi sem visu I upp-
hafi, aö máliö eigi aö fara i heild
sinni til kjaranefndar til úrskurö-
ar.
Af hálfu félagsins er hins vegar
ekki um annaö aö ræöa en aö búa
máliö sem best fyrir kjaranefnd
og reyna þar aö fá fram meö
skynsamlegum rökum sem mest-
ar leiöréttingar fyrir sem flesta
félaga i SFR.
Fræösluerindi
um auðhringa
Dagana 13. og 17. janúar
n.k. ætla herstöðvaand-
stæðingar i Kópavogi að
standa fyrir fræðsluerind-
um um eðli heimsvalda-
stefnunnar og fjölþjóða
hringa. Samheiti erind-
anna er: „NATO OG
FJÖLÞJÓÐA
AUÐHRINGIR: TVÆR
GREINAR AF SAMA
STOFNI".
Framsöguerindi heldur
Elías Davíðsson, kerfis-
fræðingur, sem hefur um
árabil starfað hjá einum af
stærstu auðhringum ver-
aldar og rannsakað þessi
mál ýtarlega. I kjölfar
hvers framsöguerindis er
gert ráð fyrir frjálsum
umræðum, þar sem mönn-
um gefst tækifæri til að
koma með athugasemdir
og varpa fram spurning-
um.
Fræösluerindin veröa haldin aö
Auglýsinga-
síminn er
14906
V.—iii -......■/
Þinghóli (Hamraborg 11, á efstu þeim, sem langar til að fræöast
hæö) i Kópavogi og hefjast ki. um þessi mál og skiptast á
20.30. Fundirnir eru opnir öllum skoðunum.
Tilboð óskast i að útvega, smiða og seíja upp loftræstikerfi
fyrir göngudeildarálmu Borgarspitaians Fossvogi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3.
R. gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á
sama stað fimmtudaginn 2. febrúar n.k. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvtgi 3 — Sími 25800
Ferðist erlendis
á eigin bifreið
Félag islenzkra bifreiðaeigenda hyggst
skipuleggja 3—4 fjögra vikna ferðir til
Rotterdam i sumar, bifreiðar verða flutt-
ar með m/s Bifröst til Rotterdam en far-
þegar fara þangað flugleiðis. Brottför
verður um miðjan júni, júli og ágúst.
Þeir sem áhuga hafa á ferðum þessum
hafi samband við skrifstofu F.l.B. sem
veitir nánari upplýsingar.
Félag islenzkra bifreiðaeigenda
Skúlagötu 51.
Simi 29999.
Getraunaspá Alþýöublaösins:
Ekki afturfarar
að vænta þrátt
fyrir langt jólafrí
Getraunaspáin hefur
nú göngu sina á nýjan leik
eftir langt jólahlé. Sér-
fræðingur vor í getraun-
um hefur þó haldið sér
vel við í jólaleyfinu
þannig að ekki er að
vænta afturfarar úr
þeirri áttinni.
i siðustu leikviku kom
fram einn seðill með 11
réttum. Sá getspaki varð
þar með hálfri milljón
króna ríkari. 9 raðir voru
með 10 rétta og fékk hver
þeirra 23.800 kr.
Arsenal — Wolves.
Við vindum okkur í
leikina.
© The Football Loague
Lelkir 14. Janúar 1978
Arsenal - Wolves.......
Blrmlngham - Leeds ...
Bristol City - Leicesier
Coventry - Chelsea ...
Derby, - Nott’m Forest .
Everton - Aston Villa ..
Ipswich - Man. Utd. ...
Man. City - West Ham .
Newcastle -
Q.P.R. - Norwich .....
W.B.A. - Liverpool ...
Hull - Crystal Palace ..
Liö Arsenal er mjög sterkt núna enda taliö aigurstranglegast f
bikarnum og i fjórða sæti i deildarkeppninni. Liöiö er nánast
óvinnandi vigi á heimavelli og viö spáum öruggum heimasigri.
Birmingham — Leeds
Leeds hefur fikrað sig smám saman upp listann eftir slaka
byrjun. Liðið er sterkt og við spáum útisigri i þessum leik en
jafntefli til vara. (Fyrsti tvöfaldi leikurinn)
Bristoi City — Leicester
Þó svo lið Bristol City sé ekkert sérstakt ætti heimasigur að
vera nokkuð öruggur. Leicester situr nú eitt og yfirgefiö á botn-
inum, þremur sigum á eftir næsta liði sem hefur leikið einum
leik færra. Það er ekki heil brú i leik liðsins enda hefur aðeins
einn sigur unnizt. Það bætast varla stig i safn Leicester á laugar-
daginn.
Coventry — Chelsea
Það verður að setja stórt spurningamerki viö þennan leik. Við
sáum þann kost vænstan að spá jafntefli en staðreyndin er sú að
leikur þessi getur fariö hvernig sem er. Bæði eru liðin „óstabil”
og illa séð af opinberum getraunasérfræðingum. Jafntefli.
Derby — Nottingham Forest
Þetta verður leikur vikunnar. Verði Derby liðið i stuöi mun það
áreiðanlega gera leikmönnum Forest lifið leitt á laugardaginn.
Forest er nú með fimm stiga forystu i 1. deildinni og leikur hvern
leikinn öörum betur. Við spáum útisigri.
Everton — Aston Villa
Villa hefur ekki gengið sem skyldi að undanförnu. Þess er
skemmst að minnast að liðið tapaði illilega um siðustu helgi fyrir
Everton. Sá leikur var liður i bikarkeppninni og er næsta vist að
Villa-liðið tekur sig verulega saman i andlitinu fyrir þennan leik
og nær jafntefli. Til vara spáum við heimasigri. (Annar tvöfaldi
leikurinn.
Ipswich — Manchester United
Ipswich-liðið hefur átt góða leiki á heimavelli sinum en enn
ekki tekizt að sigra á útivelli. Bæði liðin eru mun lélegri en við
var búizt fyrir þetta keppnistimabil. Við spáum jafntefli en
heimasigri til vara. (Þriðji tvöfaldi leikurinn).
Manchester City — West Ham
Enn er West Ham i dúndrandi fallhættu og sú hætta mun auk-
ast eftir þessa umferð. Liðið tapar fyrir City, sem aftur er tekið
að færast upp listann eftir djúpann öldudal.
Newcastle — Middlesbro
Spáin er jafntefli. Sérfræðingur vor lét þau orð fylgja spánni að
þetta hafi verið þrautalendingin. 1 23 leikjum hefur Newcastle
aðeins gert tvö jafnteflLliðið beinlinis hatar jafntefli. En þessi
leikur sem sennilega verður leiðinlegasti leikur vikunnar að
þessu sinni býður ekki upp á tilkomumeiri spá.
QPR — Norwich
Norwich hefur aðeins einu sinni sigrað á útivelli i vetur. Ef sú
staðreynd lægi ekki fyrir hefðum við samvizkulausir spáð úti-
sigri. En til að gera alla ánægða spáum við jafntefli til vara.
(Fjórði og siðasti tvöfaldi leikurinn).
WBA — Liverpool
Nú er erfitt að spá. Bæöi berjast liðin á toppinum. WBA hefur
verið i lægð undanfarnar vikur og þvi er Liverpool að öllum
likindum sterkara liðið. En heimavöllur hefur mikið að segja
sérstaklega fyrir WBA. Þess vegna spáum við jafntefli.
Hull — Crystal Palace
Hull er i bullandi fallbaráttu og leikur ekki sem bezt. Palace
verður ekki skotaskuld úrþvi að sigra og það með góðum mun.
—ATA
Tilboð óskast i efni i loftræstikerfi fyrir göngudeildarálmu
Borgarspitalans.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3,
R
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 7. febrúar
n.k. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvcgi 3 — Sími 25800