Alþýðublaðið - 15.02.1978, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.02.1978, Blaðsíða 1
Daginn lengir nú óðfluga og geðið léttist. Þó getur snjór og kuldi skapraunað þeim, sem þurfa að fóta sig á hálku með storminn i fangið. En á þessari mynd er hvorki snjór né hálka, heldur litill sumarbústaður, sem býður þess að vorið komi með hlátrasköll og hreyfingu ibúa, yl og tilgang. Og birtan yfir myndinni gefur til kynna, að óðum styttist i vorið. (ABmynd KIE) Jón G. Sólnes varamaður f bankarádi Sedlabankans Ef til vill er fáum kunnugt um að Jón G. Sólnes á sæti sem vara- maður i bankaráði Seðlabankaíslands, en til þess var hann kjörinn frá ársbyrjun 1977 og er kosinn til 4 ára. Margir undrast vegna þessa, hve langar leiöslur sýnast liggja á milli bankaráösvaramannsins og ýmissa deilda innan bankans, sem hafa meö hin og þessi mál að gera, sem ekki eru hann alveg ó- varðandi. Vegna fréttar i blaðinu i dag, þar sem Jón undrast hve menn i gjaldeyriseftirliti eru illa með á nótunum, ætti honum að vera innan handar að krefjast at- hugunar á starfsháttum þar. I J6n G. Sólnes: Hér hefur leynd verið rofin af hálfu opinberra aðila — Lætur ,,Ég barma mér hvorki né kveina,” sagði Jón G. Sólnes i viðtali við Alþýðublaðið i gær. ,,Auk þess hef ég engu að bæta við yfirlýsingu mina i Morgunblaðinu uppi hve mikill hluti fjárins er yfirfærdur finnst að þið þarna á Al- þýðublaðinu ættuð að hafa samband við Vil- mund Gylfason og spyrja hann út úr, — bæta fleiri persónum i góða sögu, ekki skrifa aðeins um þennan Jón frá því á dögunum. Mér Sólnes, sem getur varla Nýtt verð á loðnu til bræðslu Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar- útvegsins hefur verið á stööugum fundum aö undanförnu til þess að ákveða lágmarksverð á loðnu til bræðslu frá og með 15. þ.m. A fundi nefndarinnar í gærkvöldi var ákveðið að verðið skuli vera kr. 8.80 hvert kg. Verðiö er miðað við 8% fituinnihald og 16% fitu- fritt þurrefni og breytist til hækk- unareða lækkunar við breytt fitu- eða þurrefnismagn. Auk þess greiða kaupendur 30 aura fyrir hvert kg i loðnuflutningasjóð. Verðið gildir til loka loðnuvertiö- Ákvæði um verð Urgangs- loðnu frá frystihúsum eru hin sömu og á vetrarvertið 1977. Verðið var ákveðið af odda- manni og fulltrúum seljenda gegn atkvæöum fulltrúa kaupenda. 1 yfirnefndinni áttu sæti: Jón Sigurðsson, forstj. Þjóðhags- stofnunar, sem var oddamaður nefndarinnar, Kristján Ragnars- son og Óskar Vigfússon af hálfu seljenda og Guðmundur Kr. Jóns- son og Jón Reynir Magnússon af hálfu kaupenda. endalaust vakið athygli fólks.” Jón G. Sólnes sagði að hann hefði ekki hugmynd um hvernig Vilmundur hefði komist yfir hinar frægu upplýsingar um innistæður hans og reikningsnúmer. Hér hlyti þvi leynd að hafa verið rofin af opinberri hálfu og áður en op- inber ákæra hefði verið gefin út, og vissi hann ekki betur en að það væri refsivert athæfi. Þó væri ekki fyrir þann möguleika að synja að Vilmundur kynni að hafa sagnaranda.” Blaðið spurði Jón einnig um hvað hann hefði að segja um þau svör gjaldeyriseftirlitsforstjóra, Sigurðar Jóhannessonar, aö hann kannaðist ekki við að Jón hefði látið uppskátt um inneign sina i danska bankanum, eins og Jón kveðst hafa gert þegar i ágúst 1977. Svaraði Jón þvi til að hann hefði fengið á þeim tima yfir- færzlu (að visu ekki i Seðlabank- anum) og útfyllt tilskilin eyðublöð þá, sem gjaldeyriseftirlit hlyti að hafa aðgang að og kæmi sér svör þeirra þvi mjög á óvart. Ekki léði Jón máls á að upplýsa hve mikill hluti fjárins hefði verið yfirfærð- ur, þessi svör hlytu að nægja. AM Landssmiðjumenn undirbúa vörn Að sögn Ágústs Þor- steinssonar forstjóra Landssmiðjunnar undir- býr nú fyrirtækið stjórn- endur þess, í samráði við starfsfólk og með aðstoð sérfræðinga, vörn gegn tillögum nefndar um minnkun rikisumsvifa. I áfangaskýrslu nefndar- innar segir: „Meginnið- urstaða nefndarinnar um Landssmiðju er sú, að sem ríkisfyrirtækiskuli hún lögð niður og þeir fjármunir fyrirtækisins, sem ríkið kýs ekki að nota til annarrar starfsemi, verði seldir." Nefndin var sem kunnugt er skipuð af fjármálaráðherra 30. marz 1977 og lagði hún fram álit sitt þann 19. desember s.l. Breyti stjórnvöld i samræmi við tillögur nefndarinnar er framtið Landssmiðjunnar sett aö veöi. Það er gegn ofangreindri til- lögu um niðurlagningu fyrir- tækisins, sem starfsmenn þess hyggjast nú beyta sér. Agúst Þorsteinsson sagði rök þeirra Landssmiöjumanna gegn fram- ,settum rökum nefndar um 'minnkun rikisumsvifa mundu færð fram á morgunn, nánari frétta mun þvi að vænta af mál- inu þá.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.