Alþýðublaðið - 15.02.1978, Síða 3
3
Miðvikudagur 15. febrúar 1978
Flokksstjórn Alþýduflokksins:
Mótmælir sölu Landssmiðju
og Siglósfldar slær ryki í augu fólks
Eftirfarandi ályktun borin
fram af Finni Torfa
Stefánssyni var einróma
samþykkt á fundi flokks-
stjórnar Alþýðuf lokksins
síðastliðinn mánudag.
#
Alyktun um Landssmiðj-
una og Siglósild
Flokkstjórnarfundur Alþýöu-
flokksins haldinn 13.2. 1978 mót-
mælir efndregiö áformum rikis-
stjórnarinnar um sölu Lands-
smiðjunnar og Lagmetisiöjunnar
Siglósfldar.
Flokksstjórnin bendir á að
rekstur beggja þessara fyrir-
tækja gengur með ágætum og
fjöldi fólks á atvinnu sina undir
þeim komið. Engin rekstrarleg né
þjóðfélagsleg rök styðja þvi
áform rikisstjórnarinnar. Til-
gangur hennar getur aðeins verið
sá að stofna til ágreinings i
áróðursskyni til þess að slá ryki i
augu fólks og hylja mistök sin við
meðferð efnahagsmála.
Núverandi rikisstjórn er kunn
að þvi, að ausa fé i taprekstur og
óarðbærar framkvæmdir. Nú
hyggst hún leysa sinn sjálf-
skapaða efnahagsvanda með þvi
að leggja niður eða selja arðbær
fyrirtæki. Þessi stefna yrði aug-
ljóslega afdrifarik fyrir starfsfólk
Þingfundir til kl. 4.30 í fyrrinótt
Framsókn hundsaði
þingfundinn stjóriiarlidsins
Landssmiðjuog Siglósfldar. Hún Islendingar hafa ekki efni á
hefur einnig reynst islenzku þjóð- þessari stefnu né heldur þeirri
inni dýr. rikisstjórn sem ber hana fram.
40 ára
afmælishátíð
Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur
Þingfundir stóðu til kl.
4.30 í fyrrinótt/ eftir að
dagurinn á undan hafði all-
ur farið i fundarhöld
stjórnarliðsins. Var áber-
andi að þar með var öll
orka þeirra manna á þrot-
um, því mjög þynntist lið
þingmanna þegar á leið.
Athygli vakti i lok fundarins, að
tveir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins, þeir Guðmundur H. Garðars-
Athugun á starfsemi
Félagsmálastofnunar:
Starfsreglur
stofnunarinnar
þverbrotnar?
Að undanförnu hafa fé-
lagsmálaráð og borgarráð
i samvinnu við hagsýslu-
skrifstofuna unnið að ítar-
legri athugun á starfsemi
Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar.
Björgvin Guðmundsson
var flutningsmaður tillögu
þeirrar i borgarstjórn, er
fól i sér að gerð yrði grein-
argóð úttekt á starfi stofn-
unarinnar, einkum með til-
liti til eðlilegs fjölda
starfsmanna og hvort ráð-
stöfunarfé stofnunarinnar
væri í samræmi við eðiileg-
ar þarfir hennar.
Skýrsla hagsýsluskrifstofunnar
hefur nú verið lögð fram og rædd i
borgarstjórn. Kemur m.a. fram i
henni að heildarmannafli talinn i
mannárum hefur rúmlega tvö-
faldast frá árinu 1969. Virðist þó
enn vanta talsvert upp á að stofn-
unin geti sinnt öllum þeim verk-
efnum er henni berast. Á það
einkum við um rekstrar- fjár-
mála- og fjölskyldudeild.
Enn fremur segir i skýrslunni,
að svo virðist sem allstór hópur
Frh. á 10. siðu
Björgvin Guðmundsson,
borgarfulltrúi:
Vil að Aðalstrætis-
skipulagið verði
kynnt á sýningu
— ádur en borgarstjórn tekur
endanlega afstöðu
Á fundi borgarráðs í gær
var rætt um þá tillögu
Björgvins Guðmundssonar
að efna til kynningar á
skipulagshugmyndum
þeim um Aðalstræti, sem
mest hefur verið deilt um
undanfarið. A slíkri kynn-
ingu gæfist almenningi
kostur á að koma með
athugasemdir og ábend-
ingar.
A borgarráðsfundinum var
ákveðið að visa tillögunni til
borgarstjórnar þar sem hún verð-
ur tekin fyrir um leið og skipu-
lagstillagan.
1 viðtali við blaðið sagði Björg-
vin Guðmundsson að hann legði
áherzlu á að kynning þessi færi
fram áður en lokaákvörðun hefði
verið tekin i málinu. t þvi skyni
kvað hann æskilegt að borgar-
stjórn frestaði enn um sinn af-
greiðslu sinni. Björgvin kvað það
hinsvegar vera skilning borgar-
stjóra á þessu rrTili að sýningin
ætti ekki rétt á sér fyrr en að lok-
inni afgreiðslu borgarstjórnar.
Björgvin kvaðs aðaliega færa
tvær ástæður fyrir máli sinu. I
fyrsta lagi að hann teldi rétt að
gefa almenningi kost á að kynna
sér málið áður en ákvarðanir
væru teknar, og hins vegar að
honum fyndist nokkurs misskiln-
ings hafa gætt i umræðu um
skipulagstillöguna.
son og Pétur Sigurðsson, lýstu yf-
ir að þeir mundu greiða atkvæði
gegn þriðju grein frumvarps
stjórnarinnar, þar sem kveðið er
á um óbeinu skattana, enda eiga
þessir menn báðir aðild að stjórn
launþegasamtaka. Er þannig
ljóst, þótt þeir styddu frumvarpið
að öðru leyti, að eindrægni er ekki
um málið i stjórnarflokkunum,
sem varla er von, svo langt sem
hér er gengið á hlut alls almenn-
ings.
S t jórnarliðar ráðskuðust með
daginn til sérfunda, og heimtust
illa þegar þingfundur hófst seint
og um siðir. Verulega athygli
vakti hve framsóknarmenn
hundsuðu fundinn með fjarveru
sinni, en þeir sváfu sælir heima,
nær allir, og var Vilhjálmur
Hjálmarsson eini framsóknar-
ráðherrann sem þar sást, — i
mýfluguliki þó.
Stjórnarandstæðingar töluðu
sem vænta mátti mestan tima
fundarins og kom fram hörð
gagnrýni á hinar dæmalausu ráð-
stafanir, sem þingmenn stjórnar-
flokkanna heyrðu þó minnst af,
þvi einn þingmanna hóf mál sitt á
að ávarpa „forseta og 58 tóma
stóla.”
AM
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur
efnir til afmælishátiðar i tilefni af
40 ára afmæli félagsins. Alþýðu-
flokksfólk i Reykjavik er hvatt til
að fjölmenna á þessa hátiðar-
samkomu, sem haldin verður i
Þórscafé sunnudaginn 26. febrúar
n.k. og hefst kl. 3.15 e.h. Fjöl-
breytt skemmtiatriði — kaffi-
drykkja. Miðar verða seldir á
skrifstofu Alþýðuflokksins,
Hverfisgötu 8-10, sima 2-92-44.
Miðaverð 1.000.- krónur.
Stjórn Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur
Aðför ríkisstjórnarinnar
að verkalýðshreyfingunni
Verkalýðsmálanefnd Alþýðuflokksins boðar til ráð-
stefnu um verkalýðsmál í Iðnó, uppi, klukkan 10
f.h. laugardaginn 18. þessa mánaðar.
Björn Jónsson, forseti ASI og ritari Alþýðuflokks-
ins, og Haukur Helgason, skólastjóri, f jalla um að-
för ríkisstjórnarinnar að verkalýðshreyfingunni.
Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuf lokksins, og
Kjartan Jóhannsson, varaformaður f lokksins, ræða
stefnu Alþýðuflokksins i efnahagsmálum.
Allir, sem áhuga hafa á verkalýðsmálum, eru vel-
komnir á þessa ráðstefnu.