Alþýðublaðið - 15.02.1978, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 15.02.1978, Qupperneq 6
6 AAiðvikudagur 15. febrúar 1978 AAiðvikudagur 15. febrúar 1978 7 Frá verksmidju fslenzka járnblendifélagsins á Grundartanga Stærsta idnadarfjárfesting sem íslendingar hafa tekid áhættu af — þrjátíu lodnuveidiskip, tólf fiskimjöls- verksmidjur, eða fimm hundrud bújardir með allri áhöfn, viömiðunarstæröir „Að frátöldu álverinu í Straumsvík er járnblendi- verksmiðjan stærsta iðn- aðarfjárfesting, sem ráð- ist hef ur verið í hér á landi og sú langstærsta, sem Is- lendingar hafa sjálfir ráð- ist í og tekið áhættu af. Fjárfestingin er kannske á borð við 25-30 vel búin loðnuskip eða 10-12 stórar fiskmjölsverksmiðjur, eða nær fimm hundruð góðar bújarðir með allri áhöfn", sagði Jón Sigurðsson aðal- framkvæmdastjóri Is- lenska Járnblendifélags- ins, á fundi með biaða- mönnum, sem haldinn var i síðustu viku, meðan á stóð kynnisferð fjölmiðla á Grundartanga, þar sem Is- lenska Járnblendifélagið er að reisa kísiljárnverk- smiðju, í samvinnu við norska fyrirtækið Elkem- Spegerverket a/s. Á blaðamannafundinum flutti Jón nokkurs konar greinargerð um járn- blendiverksmiðjuna, til- komu hennar og annað henni viðkomandi. Fer sú greinargerð hér á eftir. Aðdragandi að stofnun Járnblendifélagsins og að- ilar að því. Upphaflega var ætlunin að reisa kisiljárnverksmiöjuna i samvinnu viö bandariska fyrir- tækið Union Carbide Corporation. Er undirbúningur að þeirri bygg- ingu var nokkuö á veg kominn, dró þetta fyrirtæki sig hins vegar i hlé. Islenska járnblendifélagið hafði þá þegar verið stofnað sam- kvæmt sérstökum heimildarlög- um þar um, en Union Carbide hvart frá aðild að þvi og greiddi skaðabætur vegna þeirrar riftunar á samningum, til bóta- greiðslna vegna riftunar á samn- ingum félagsins við Landsvirkjun um orkusölu. Það var siðan vorið 1976 að hafnar voru viðræöur við norska fyrirtækíð Elkem-Spiegerverket a/s um þátttöku þess i tslenska járnblendifélaginu hf. sem hlut- hafa á móti rikinu og var samn- ingum um slika samvinnu lokið að áskildu samþykki Alþingis i árslok 1976. Heimildarlögin, sem staðfesta aðalsamning rikis- stjórnarinnar og Elkem-Spiger- berket voru siöan samþykkt á Alþingi voriö 1977. Elkem-Spigerverket a/s var stofnaö árið 1972 með samruna tveggja gamalla og gróinna fyrir- tækja, Kristiania Spigerverket, sem stofnað var 1853 og Elkem a/s sem stofnað var 1904. Hið sameinaða fyrirtæki er hlutafélag með hiutabréf aö nafnvirði 195 milljónir norskra króna. Hluta- fjáreign i félaginu er mjög dreifð, hluthafar eru norskir og er talið að um 9% hlutafjárins sé i eigu aðila, að mestum hluta fyrir- tækja, sem skrásett eru i Noregi, en að nokkru leyti i eigu útlendra aðila. Elkem-Spigerverket fæst viö fjölbreyttan atvinnurekstur, að verulegu leyti i járn- og stáliðn- aði, en einnig við álframleiöslu, framleiðsluýmissa neytendavara eins og verkfæra, lása og annarra járnvara, einangrunarefnis, trefjaglervara o.fl., auk þess sem fyrirtækið rekur nokkurn námu- gröft og frramleiöslu og sölu á bræðsluofnum i þungaiðnaði. Árssaia fyrirtækisins er hálfur þriðji milljarður norskra króna og hefur málmblendi af ýmsu tagi lengst af verið stærsti þáttur þeirrar sölu. Hjá félaginu starfa rúmiega niu þúsund manns á þrjátiu verkmiðjustöðum. Hlutafé islenska járnblendifé- lagsins hf. er ákveðið jafnviröi 24 millióna bandarikjadollara oe er eignarhluti islenska rikisins 55% . af þvi, en hluti E-S 45%. Aðstaða islands sem fram- teiðanda á járnblendi. Járnblendifélaginu er ætlað aö hafa með höndum framleiöslu á kisiljárni og tengdan atvinnu- rekstur. Kisiljárn er ein af mörg- um tegundum málmblendis, sem notað er i alls kyns málmiðnaði til framleiðslu á mismunandi málm- blöndum til ýmissa nota. Járn- blendi er mjög orkufrekt i fram- leiðslu og þarf niu til tiu þúsund kiiówattstundir af raforku til að framleiða hvert tonn af kísiljárni. Raforka á tiltölulega hagstæðu veröi er þvi forsenda fyrir kisil- járniðnaði. Kisiljárn er meðal til- tölulega fárra efna, sem eru svo orkufrek i framleiðslu og kom þess vegna til álita, þegar sú stefna var uppi hér I landinu aö nýta orkulindir þess til fram- leiöslu útflutningsvara. I rauninni er framleiðsla og útflutningur kisiljárns þannig fyrst og fremst aðferð til að flytja út orku. Til þessarar framleiðslu hefur Island i rauninni ekki upp á neitt annað að bjóða en orkuna. Orku- verðið veröur þar á ofan að vera lægra en gerist i nágrannalönd- unum til að bera uppi það óhag- ræði og kostnað, sem stafar af fjarlægð iandsins frá hráefnis- lindum og markaðssvæðum þess- arar vöru. 1 greinargerö með frumvarpi til laga um járnblendiverksmiöju I Hvalfirði, sem var til meðferðar 1974/75 kemur fram, að ein af ástæðunum til þess aö kisiljárn var valið sem aðferð til að flytja út orku var á þeim tima sú að ál- verið i Straumsvik var þegar til i landinu og þótti æskilegt, aö orku- frekur útflutningsiðnaður sé af fleiri en einni tegund. Annað mikilvægt atriði, þegar járn- blendiiðnaður var á þessum tima tekinn fram yfir frekari áliðnað var sú staðreynd, að orkueftir- spurnarkröfur járnblendiiönaðar eru ekki eins strangar og áliðn- aðar. Þannig getur járnblendi að talsverðu leyti nýtt afgangsorku, sem á hverjum tima er fyrir hendi i orkuveitukerfinu. Þvi er orkusala raforkukerfisins til beggja þessara framleiðslu- greina samhliða talin hagstæö. Járnblendifélagið hefur gert samning viö Landsvirkjun um kaup á raforku. Gert er ráð fyrir 68 MW (Megawött) afli að meðal- tali, þegar verksmiðjan er komin að fullu i rekstur og 550 GWst (Gigawattstundir) orku á ári. Af þessari orku er gert ráö fyrir 306 GWst afgangsorku, en 244 GWst grunnorku. Til samanburðar tek- ur álverið i Straumsvik 140 MW og um 1100 GWst á ári, allt grunn- orku. Staðarval verksmiðjunnar I greinargerð með upphaflega frumvarpinu um þessa verk- smiöju var við staðarval hennar gengiö út frá þeirri forsendu, að orkufrekur iðnaður, sem nýtti orku frá Sigöldu, hlyti aö verða suövestanlands. Slðan voru gerð- ar samanburðar-athuganir á fjór- um stöðum suðvestanlands og komist að þeirri niðurstöðu að Grundartangi væri hagkvæmasti staður fyrir fyrirtækið. Jafnframt var það haft i huga að bygging verksmiöjunnar á þessum stað, ásamt góðri höfn, myndi hafa mikla þýðingu til eflingar byggða- og atvinnuþróunar I sunnanverðu vesturlandskjör- dæmi. Bent var á að hafnarskil- yrði eru mjög góð og stækkunar- möguleikar hafnar miklir, mikiö landrými fyrir hendi og góð skil- yrði fyrir myndun þéttbýlis- kjarna. Ennfremur var bent á, að staðurinn liggur i þjóðbraut, ekki einungis innan vegakerfisins, heldur einnig orkukerfisins, þeg- ar höfð er i huga byggðalinan til norðurlands. Þá var einnig til þess litiö, að staðurinn er utan áhrifasvæðis Reykjavikur, en þó ekki fjarlægari en svo, aö þangað má sækja nauðsynlega sérhæfða þjónustu, án þess að höfuðborgar- svæðið hafi veruleg dagleg áhrif. Verksmiðjan er reist á lóð i eigu rikisins, sem félagið hefur á leigu. Lóðin leyfir nokkra stækk- un verksmiðjunnar umfram þær áætlanir, sem nú er unnið eftir. Samkvæmt þeim áætlunum verö- ur verksmiðjan reist i tveim áföngum. Grundartangahöfn Hafnarmannvirkin, sem gerð eru að Grundartanga, eru i eigu sameiginlegs hafnarsjóðs sveit- arfélaganna i Borgarfjarðarsýslu og Akraneskaupstaðar. Höfnin er undir sérstakri stjórn skipaöri fulltrúum sveitarfélaga I nágrenni verksmiðjunnar og sýslumanni i Borgarfjarðarsýslu, en er fjármögnuð með lánum sem útveguð eru aö tilhlutan rikisins. Fjármögnun verksmiðj- unnar AB þvi leyti, sem hlutafé Járn- blendifélagsins ekki hrekkur til, er bygging verksmiðjunnar fjár- mögnuö með erlendum lánum. Þannig hefur verið samið um eft- irtalin lán: Frá Nordiska Investeringsbanken n.kr. 200 millj. Frá Norsk Exportfinans, N.kr. 125 millj. Frá Samsteypu lánastofnana undir forystu Den norske Credit- bank og Landsbanka Islands (timabundin lánsfyrirgreiðsla á byggingartima), US $ 10 millj. Frá Den norske Creditbank (rekstrarfé), US $ 6 millj. Kostnaðaráætlun gerir ráð fyr- ir 500 milljón N.kr. byggingar- kostnaöi vefksmiðjunnar að meö- töldum vöxtum á byggingartima. Sú áætlun gæti raskast vegna verðþróunar. Hlutur járnblendi- verksmiðju I heildarmynd iðn- þróunar á islandi. Bygging og rekstur járnblendi- verksmiðjunnar flytur til lands- ins margbrotna tækniþekkingu, sem hér er ekki til fyrir. Þessi tækniþekking er sérstök og afmörkuð. Framleiðsla járn- blendis tengist ekki teljandi nein- um sérstökum framleiðsluiönaði hér innanlands og hefur þannig væntanlega ekki bein áhrif á iðn- þróun út fyrir fyrirtækið sjálft. óbein áhrif af byggingu og rekstri verksmiðjunnar á iðnþróun, ekki sist i ýmsum greinum þjónustu- iðnaðar hljóta hins vegar að verða allmikil. Þá er ekki unnt að spá, hver áhrif bygging járn- blendiverksmiðjunnar kann að hafa þegar frá liður og fyrirtæk- inu vex svo fiskur um hrygg, aö það getur ráðist i frekari upp- byggingu en þá, sem nú er unnið að. Opinber umræða um járn- blendiverksmiðjuna. Að frátöldu álverinu I Straums- vik er járnblendiverksmiðjan stærsta iðnaðarfjárfesting, sem ráðist hefur verið I hér á landi og sú lang stærsta sem íslendingar hafa sjálfir ráðist i og tekið áhættu af. Fjárfestingin er kannski á borð við 25-30 vel búin loönuskip, eða 10-12 stórar fisk- mjölsverksmiöjur, eöa nær fimm hundruð góðar bújarðir með allri áhöfn. Akvörðunin, sem tekin var um að ráðast I þetta fyrirtæki, fól i sér a.m.k. tvö veigamikil stefnu- atriði. Hið fyrra var að halda lengra á braut orkufreks iðnaðar eftir iðjuverið i Straumsvik, en hið siðara eins og áður var getið að taka meirihluta áhættu og ávinnings af þeim rekstri i okkar eigin hendur. Opinberar umræður um verk- smiöjuna hafa hingaö til gjarna snúist um hvort sú stefna, sem þarna var mörkuð, er rétt eða röng. Um það má að sjálfsögðu deila eins og allar stjórnmálaleg- ar ákvarðanir. Mismunandi mat manna hvers og eins ræður af- stööunni til þess máls og annarra slikra, sem á eftir munu koma til ákvörðunar. Ljóst er, að enginn iðnrekstur verður settur á fót án þess að ein- hverju sé til þess fórnað. Höfn verður ekki byggð án þess að skemma fjöruna. Skipaumferð getur valdiö óþrifum. Verksmiöja veröur ekki reist án þess að hún sjáist. Verksmiðjurekstri fylgja ýmiss óæskileg áhrif, sem lands- menn þekkja mæta vel, svo sem hávaði, reykur, óþefur o.s.frv. Allt eru þetta meira og minna óhjákvæmilegir fylgifiskar iðn- þróunar. Allt þetta hafa þeir kjörnu for- ystumenn, sem ákváðu byggingu verksmiðjunnar, haft i huga, þeg- ar sú ákvörðun var tekin. ABal- atriðið er, að hún hefur með lög- mætum hætti veriö tekin ag nú er það viðfangsefni þeirra, sem treyst hefur veriö fyrir forystu- hlutverkum i rekstri fyrirtækis- ins, að gera þaö sem frekast er kostur til að þetta verði gott fyrir- tæki, sem gefur fólkinu, sem hér mun starfa áreiðanlega atvinnu við bestu möguleg skilyrði, lán- veitindum timanlega endur- greiðslu lána, eigendum góðan arð og þjóðarbúinu nýja, styrka stoð undir efnahagsframfarir I landinu. Þess mun verða freistað að draga úr hinum óæskilegu áhrifum af verksmiðjurekstrin- um eins og frekast er kostur. Eins og nú standa sakir skipta þessi jákvæðu atriði ein raun- verulegu máli og þurfa að verða rikjandi i umræðu um þetta fyrir- ‘æki.” Tæki eru farin að berast til kisiljárnverksmiðjunnar þótt blaðamanni sé ekki kunnugt um hvers kyns - Myndir og texti: Halldór Valdimarsson „Nokkrir Sviar eru starfandi I byggingavinnu á Grundartanga. ís- lenzku verkamennirnir voru óhressir með þann samanburð er þeir gáfu tilefni til. Ekki i launum, þótt Sviarnir væru launaðir margfalt á við íslendingana, heldur i öryggisútbúnaði og vinnubúnaði öllum, sem er miklu fremri hjá Sviunum. „Þessi mengunarmál voru sennileg eitt hiö fyrsta# sem upp kom sem virkilegt vandamál í við- ræðunum við útlendingana um samninga varðandi þessa verksmiðju. Meng- un frá henni errykmengun/ sem ekki er hægt að kom- ast hjá/ því með henni fara forgörðum hráefni/ sem hægt væri að nýta. Ryk- mengun þessi hefur þann ókost heistan að hún er sýnileg. Hins vegar veld- ur hún ekki tjóni á dýrum eða gróðri. Hún er fyrst og fremst hvimleið fyrir aug- að/ sagði Jón Steingríms- son, verkfræðingur, á blaða manna f undi um mengunarmál, sem hald- inn var meðan á kynnis- ferð fjölmiðla á Grundar- tanga stóð í síðustu viku. Jón skýrði þar aðgerðir, sem fyrirhugaðar eru, til þess að mæta kröfum yfirvalda um að komið verði i veg fyrir mengun frá kisiljárnverksmiðjunni á Grundartanga. „Miðað við þá ársframleiðslu, sem fyrirhuguö er hér á kisil- járni, sagði Jón á fundinum, myndu fara um hundrað og fimmtiu tonn af þessu ryki upp I loftið á ári. Ef logn væri, er ég hræddur um að þess myndu sjást merki hér. Eins og ég sagði er ekki hægt að koma i veg fyrir þessa rykmynd- un. Arangur við rykhreinsun er hins vegar miklu betri, að ég held svo góður að ég á ekki von á endurbótum þar á, nema þá til þess að lækka kostnaðinn. Þróunin hefur þegar gengið i þá átt, þvi þegar málið var fyrst rætt við fulltrúa Union Carbide, var áætlað að stofnkostnaður við ryk- hreinsun, yrði um sjötti hluti byggingarkostnaðar verksmiðj- unnar, en nú er hann nær sex af hundraði (6%). Rykhreinsunin fer fram i griðarstórum pokasium. Fyrst er reykurinn frá bræðsluofnunum kældur niður og stærstu eindirn- ar, sem kunna að vera glóandi kol eða kvartz, skildar frá. Siðan fer reykurinn i gegn um þessa poka, sem hefta rykið og það sest innan á þá. Þá lokst er reyknum hleypt út i andrúmsloftið. Það hefur verið talað um að þessar pokasiur taki um niutiu og niu af hundraði ryksins úr reykn- um. Þegar siurnar eru komnar i notkun verður hreinsunin þó nær 99.9%, þvi pokarnir þéttast af rykinu. Rykið er ákaflega fingert, nán- ast eins og reykur af tóbaki. Það er erfitt að meðhöndla þetta, þvi það er svo fint og þétt. Þvi er það kögglað með vatni, ekki ósvipað og sement. Hugað hefur verið að endur- notkun ryksins, sem hráefnis, en talið er að þaö gæti eyðilagt pok- ana. Mengunarmörk í fyrsta sinn Þessi verksmiðja hefur fengið starfsleyfi hér, en i þvi eru, i fyrsta sinn hérlendis, sett mengunarmörk, bæöi I útblæstri frá verksmiðjunni, svo og á vinnustað. t útblæstri mega ekki vera meir en 100 milligrömm af ryki á rúmmetra, og á vinnustað ekki meir en 5 milligrömm. Loftræsting innandyra er flókið fyrirbæri og byggist hönnun hennar á likantilraunum, sem gerðar voru i Noregi. Þar er verksmiðja ekki ósvipuð þess- ari, sem likan var gert af. Þess þarf að gæta að ryk berist ekki þangað sem menn vinna. Sums staðar verður aö kæla loft- ið, en framkvæmd er háð þvi að loftblástur má ekki valda drag- Heil steypustöðhefur verið fiutt á Grundartanga, til að anna framkvæmdum þar. Hún þykir meir að segja full smávirk og segja verkamenn á staðnum hana tefja fyrir sér. Kostnaður við meng unarvarnir hefur minnkað mikið frá upphaflegri áætlun súg eða kulda sums staðar annars staðar. Þvi er þetta ákaflega flók- ið. Til þess að hreinsa gólf og veggi verður sett upp ein ryksuga, með mörgum föstum útsogum. Við þau er svo hægt að tengja slöngu, sem færð verður á milli, en hún verður tiu metra löng. Er það mun hagkvæmara en einhver vél, sem þyrfti að fara um gólf og ylli jafnvel sjálf mengun, annað hvort með hávaða eða útblæstri. Utan dyra verður ekki mikil mengun. Þó geta hráefni fokið og því er byggt yfir öll færibönd, sem þau fara um. Hávaði — birta — hita- geislun Hávaöi, birta og hitageislun eru þættir sem brugðist er við á hefð- bundinn hátt. Fyrst og fremst er reynt að einangra mengunar- valdinn, þannig að ekki þurfi að verja starfsmennina hvern og einn. Hávaði verður mestur þar sem efnið er malað og i pökkun. Það er malað i kvörn og inni i kvarnar- húsinu verður hávaðinn um 105 desibel. Þvi er gert ráð fyrir hljóðeinöngruðum veggjum. Loks má svo geta um fosfór- vetni og arsenvetni. Það eru efni sem losna þegar kisiljárnið brotnar, vatn kemst að brotsár- inu og kemur þessum efnum, sem bæði eru eiturefni, út i andrúms- loftið. Mengun af völdum þeirra er of litil til að valda umhverfis- spjöllum, en gæti orðið skaðleg mönnum, ef varúðarráðstafanir kæmu ekki til. Þar gripa inn i ákvæði um geymslu fullunnins efnis i ákveðinn tima, i þar til gerðum silóum, áður en skipa má þeim út og flytja á sjó. Atvinnusjúkdómar Atvinnusjúkdómar, i tengslum við verksmiðjur af þessu tagi, eru fáir þekktir. Raunar er aðeins um einn að ræða, svokallaða kisil- veiki. Rannsóknir, sem gerðar hafa verið, benda þó til þess að ekki þurfi að óttast þennan sjúk- dóm, þvi i ljós hefur komið að flestir þeir sem hafa verið rann- sakaðir meðan þeir störfuðu i verksmiðju af þessu tagi og reyndust hafa sjúkdóminn, höfðu jafnframt unnið niðri i kvartz- námum og mun liklegra að sjúk- dóminn væri þangað að rekja. Engu að siður verða fram- kvæmdar kerfisbundnar læknis- skoðanir á starfsmönnum hér, fyrst þegar þeir koma til starfa og svo allar götur siðar. Tilgangur þeirra verður að ákvaröa at- vinnusjúkdóma og finna hverja þeirra má rekja til þessarrar verksmiðju. Vettvangsrannsóknir Þá má skýra frá þvi að nokkuð viðamiklar rannsóknir á lifrikinu i umhverfi verksmiðjunnar, eiga að fara fram, til þess aö reyna að ákvarða áhrif hennar þar á. Þarf þá fyrst að komast að niðurstöðu um ástand lifheimsins áður en verksmiðjan tekur til starfa, ákvarða hluti eins og kvikasilfur i hagamúsum, ef svo má að orði komast, og siðan kanna þróun mála eftir að starfræksla hefst hérna.” — hv Maðurinn fremst tii hægri á myndinni er við vinnu I grunni reykhreinsunarhússins. Sökklar eru margra manna hæða háir og hið mesta þing. t baksýn sést I enda ofnhússins. Sementsverk- smidjan notar mengunina frá Grundartanga //Rykíð/ sem hreynsað verður úr reyknum frá bræðsluofnum kísilrárn- verksmiðjunnar er hægt að nýta til sementsgerðar. Það hefur verið notað með góðum árangri við slika framleiðslu annarsstaðar og sementsverksmiðjan á Akranesi getur notað bróð- urpartinnaf þeim hundrað og fimmtíu tonnum sem til falla á ári hjá okkur, sögðu forráðamenn máimblendi- verksmiðjunnar á grund- artanga, við blaðamenn. þegar á kynnisferð á Grundartanga stóð, í vik- unni er leið. I þeim viðræðum við þá kom fram, aö notkun rykkögglanna er þeim erfiðleikum háð, að i þá skortir óhreinindi af ákveðinni tegund, nánast súrál. Hefur verið athugað hvort mögulegt væri að fá það hjá álverinu i Straumsvik meö litlum tilkostnaði, en hins vegar komið i Ijós að þeir herrar eru ekki tilbúnir til að selja ódýrt. Hins vegar mun Akranesverk- smiðjan nota þennan úrgang frá Grundartangaverksmiðjunni, engu að siður. —hv

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.