Alþýðublaðið - 15.02.1978, Qupperneq 10

Alþýðublaðið - 15.02.1978, Qupperneq 10
Miðvikudagur 15. febrúar 1978 mSSSST' 10 Bréf frá Bíldudal Eydimerkur- þorsti tónlist- ar og söngiífs úr sögunni Eyðimerkurþorsti tónlistar og sönglifs er úr sögunni hér á Bildu- dal þvi hingað er kominn ungur tónlistarkennari. Hann heitir Kjartan Eggertsson og er úr Reykjavik. A Bildudal hefur ekki verið maður, sem hefur haft þetta með höndum i fjölda ára. Þvi að þaö fólk sem stóð að tónlistar- starfi er ýmist flutt af staðnum eða komið yfir i eilifðina. Þessi ungi maður kennir á gitar, flautu og pianó og annað fleira sem viö- kemur tónlist. Hann æfir kirkju- kórinn og er að setja á fót karla- kór. Það er mjög mikill áhugi fyr- ir hendi á staðnum fyrir þessum málum, og er mér kunnugt um að tónlistarkennarinn hefur yfirdrif- ið að gera og vinnur langt fram á kvöld. Hann sinnir þessu af mik- illi elju og áhuga, og er það alltaf góðs viti þegar hugur og hönd fylgja þeim störfum sem menn vinna. Ég þakka fyrir mina hönd og ég veit aö allir staðarbúar hljóta að vera mér sammála og vona ég að við fáum að njóta hans kunnáttu sem allra lengst. Jón Kr. Ólafsson. „Grenada min” t laugardaginn kemur, mun MÍR gangast fyrir kvikmynda- sýningu i húsakynnum sinum að Laugavegi 178, og verður sýnd kvikmyndin „Grenada min,” heimildamynd um spænskt efni, sem gerð er af hinum þekkta kvikmyndageröarmanni, Roman Karmen. Sýning kvikmyndarinnar hefst kl. 15.00 og er öllum heimill ókeypis aðgangur. MIR hefur leitast við að sýna kvikmyndir alla laugardaga i vetur og mun sá háttur á hafður, fram eftir vetri. spékoppurinn Það er rétt... forstjórinn viidi að sonurinn sæti stjórnar- fundinn sem verður á eftir. Danski rithöfundurinn Elsa Gress heldur fyrirlestur i kvöld kl. 20:30 „Indirkete og direkte brug af virkeligheden i kunsten”: Verið velkomiB. NORRÆNA HÚSIÐ 3ja herbergja íbúð óskast 2 stúlkur utan af landi óska eftir 3ja herb. ibúð nálægt miðbænum. Einhver fyrirframgreiðsla ef óskað er. Upplýsingar i sima 38377. Fóðurbætir 12 ritaðir við danska fyrirtækiö Lumino i Esbjerg 27. janúar sl. Hér gæti orðið um mikilvægt mál að ræöa, bæði fyrir islenzkan sjávarútveg og landbúnað, en fóðurbætir i þessari mynd er langtum ódýrari en innfluttur fóðurbætir eða fiskimjöl. Fyrir- tækið sem á skipið hefir langa reynslu af framleiðslu og dreif- ingu og fóðrun dýra. Hagkvæm samvinna gæti tekizt viö fýrir- tækið, sem er kaupandi að 10—20 þúsund tonnum af framleiðslu skipsins. Stefnt mun aðþvi, þrátt fyrir að framleiðslan fari af stað i danska skipinu, að vinna hráefnið siðar meir i islenzkum landsstöðvum og um borð i togurum. ES Starfsemi 3 skjólstæðinga hafi fengið fjár- hagsaðstoð, þótt tekjur viðkom- andi framfærenda hafi verið nokkuð miklar sbr. skattskrá. Upplýsingaskráning Félags- málastofnunar er einnig gagn- rýnd talsvert, enda virtist svo sem töluverður hluti styrkveit- inga og lána hafi ekki verið sam- þykktur á afgreiðslufundum, en starfsreglur stofnunarinnar kveða á um að slikt skuli gert. Þegar lánaafgreiðslur Félags- málastofnunar i marz 1976 og i ágúst 1975 voru t.d. bornar við spjaldskrá kom fram að aöeins láfyrir samþykki afgreiðslufunda fyrir um 60% þeirra lána sem greidd voru á þvi timabili. A þvi ári sem könnunin tekur til hafi Félagsmálastofnun þannig afgreitt lánveitingar að upphæð 5 millj. umfram það sem afgreitt var á löglegum afgreiðslufund- um. A þessu ári sem um ræðir námu veitt lán samtals 24 milljónum króna. Þar af voru þvi aðeins af- greiddar um 19 milljónir á lögleg- um afgreiðslufundum. Hinum 5 ráðstöfuðu forráðamenn Félags- stofnunar utan lögboðinna leiða, að þvi er segir I skýrslu hagsýslu- skrifstofunnar. f ^ 86611 11798 oc 19533. OLOUGOTU3 18.-19. febrúar kl. 07 Þórsmörk Hin árlega vetrarferð i Þórsmörk verður um næstu helgi. Farið veröur kl. 07 á laugardag og komið til baka á sunnudagskvöld. Farnar verða gönguferöir um Mörkina og komið að Seljálands- fossi i heimleiö. Fararstjóri: Þor- steinn Bjarnar. Nánari upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni öldugötu 3. Félagsmála- námskeið II Æskulýðsráð rikisins hefur ákveðið að efna til framhaldsnámskeiðs fyrir um- sjónarmenn félagsmálanámskeiða dag- ana 3.-5. mars n.k. að Laugarvatni. Þátt- taka verður að þessu sinni takmörkuð við þá sem kennt hafa námsefni Æskulýðs- ráðs rikisins (Félagsmálanámskeið D. Námskeiðið hefst föstudaginn 3. mars kl. 13.00 og lýkur sunnudaginn 5. mars kl. 16.00. Tilkynningar um þátttöku þurfa að hafa borist skrifstofu æskulýðsfulltrúa, menntamálaráðuneytinu, fyrir26. febrúar n.k. Æskulýðsráð rikisins. Fyrirlestur um verkalýðsmál Gleb Simonenko forstjóri Tryggingadeild- ar Alþýðusambands Sovétrikjanna sem hér er i boði Alþýðusambands íslands heldur fyrirlestur um verkalýðsmál í Sovétrikjunum að Hótel Loftleiðum (Vik- ingasal) fimmtudagskvöld 16. febrúar kl. 20.30 öllum heimill aðgangur Alþýðusamband íslands Menningar- og fræðslusamband alþýðu Hesthúsalóðir - Hafnarfjörður Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mun úthluta lóðum fyrir hest- hús á svæði við Kaldárselsveg. Hestamannafélagið Sörli mun veröa ábyrgt fyrir umhirðu svæðisins og útliti hús- anna. Leyfishöfum verður gert að hlýta almennum skil- máium bæjarstjórnar og sérstökum skilmálum Sörla um uppbyggingu umhirðu o.fi. Nánari uppl. veitir skrifstofa bæjarverkfræðings. Umsóknum skal skila á þar til gerð- um eyðublööum eigi síðar en 3. marz 1978. Eldri umsóknir þarf að endurnýja. Bæjarverkfræðingur. Sementsverksmiðja ríkisins óskar að ráða skrifstofustjóra sem hefur lokið prófi i viðskiptafræðum eða hefur sambærilega menntun. Laun samkvæmt kjarasamningi opin- berra starfsmanna (BHM). Umsóknir sem greini frá námi og störfum sendist Sementsverksmiðju rikisins, Akranesi, fyrir 6. marz n.k. Sementsverksmiðja ríkisins Hafnfirðingar Óskað er eftir umsóknum i 3. herbergja i- búð að Sléttuhrauni 24, Hafnarfirði. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif- stofu bæjarverkfræðings og skilist þangað fyrir 24. febrúar 1978. Stjórn Verkamannabústaða.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.