Alþýðublaðið - 10.03.1978, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 10.03.1978, Qupperneq 1
FÖSTUDAGUR 10. MARZ 50. TBL. — 1978 — 59. ÁRG. Ritstjórn blaðsins er til húsa í Síðumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (91)81976 Kaupum olíu frá Portúgal til að greiða fyrir saltfisksölu í þessari viku geröu is- lendingar samning við Portúgal um olíukaup. Er þetta fyrsti samningur þessarar tegundar milli rikjanna. i viötali viö blað- ið sagði Ólafur Jóhannes- son, viðskiptaráðherra, að vafalaust muni samningur þessi greiða fyrir saltfisk- sölu til Portúgals, en sem kunnugt er hefur illa horft með þau viðskipti. Portú- galir hafa verið stærsti sa Itf iskkaupandi okkar og hafa tekíð við nær því helmingnum af öllum blautverkuðum fiski héð- an. óiafur sagði þó að Portúgalir hefðu ekki lofað neinu endanlega með salt- fiskkaup þrátt fyrir oliu- samninginn en vafalaust myndi hann greiða fyrir. Verðmæti þeirrar oliu sem ts- lendingar kaupa frá Portúgal samkvæmt ofangreindum samn- ingi mun vera 1.3 milljarðar króna. Hér er um að ræða 35.000 tonn af gasoliu og 7 þúsund tonn af benzini. Það er fyrirtækiö iwiiwwmw blað hvaða 1,'indSmanna?? I fyrradag A alþJAMegam baráttudegi kvenna voru haldnlr tveir baráttufundir I Reykjavik I tilefni dagsins. Annar fundurinn var haldinn á vegum 8. marz hreyfingarinnar I Tjarnarbúö og hinn á vegum samfyikingar Rauðsokkahreyfingarinnar, MFtK og Kvennfélags sósialista i Félagsheimili stúdenta. Nánar er sagt frá fundum þessum á bls. 2, en þessi mynd var tekin i Tjarnar- búð. Varnarlidid fær nýjar orustuvélar Varnarliðið á Kefla- víkurflugvelli er nú að hefja endurnýjun á flota þeim af orustuþotum, sem það hefur haft yfir að ráða. Mánudaginn 13. þessa mánaðar kemur fyrsta nýja vélin til Kefla- vikur. Hún er af gerðinni F-4E Phanton II og leysir af hólmi F-4C, sem tal- aldar eru íreltar. Ekki hefur komið fram hvað nýju flugvélarnar verða margar. Þær eru endurbætt og endurnýjuð utgáfa af þeim vélum, sem fyrir eru. Hreyflar þeirra eru öflugri og þær geta þvi borið meiri þunga. Einnig eru þær snarari i snúningum en þær gömlu. Nýju vélarnar, sem raunar eru ekki nýsmiðaðar, hafa vervð endurbættar og eru tæknilega mjög fullkomnar. Rafeindakerfi i þeim er svo nýtt, að flugvélar ár- gerð ’77, hafa ekki slikt kerfi. Varnarliðiö hefur boðið frétta- mönnum að skoða og taka myndir af nýju flugvélunum, en aö und- anförnu hefur talsvert verið um það rætt að vélakostur varnar- liösins væri úreltur og litils virði. Petrogal sem samið var við. Við- skiptaráðuneytið er formlegur samningsaðili, en framselur sið- an samninginn til olíufélaganna þriggja. Ölafur Jóhannesson sagði aö ol- íusamningur þessi gerði þó nokk- uð til að brúa þann greiðsluhalla sem verið hefur á viðskiptum Portúgals og tslnds, Portúgölum i óhag. Meira þarf þó að koma til og er nú hugað að ýmsum mögu- leikum. Meðal þess sem hugað hefur verið að, er að senda islenzk skip til viðgerða I portúgöslkum skipasmiðastöðvum. ólafur Jóhannesson gat þess einnig að Portúgalir hefðu veriö meðal þeirra sem buðu i Hrauneyjar- fossvirkjun. Tilboð þeirra hefði þó ekki verið lægst, en vafalaust myndi það hjálpa upp á sakirnar ef þeir fengju að taka að sér ein- hver slik verkefni hér á landi. I gær var Fjólmundi Karlssyni afhent verðlaun úr Verðlaunasjóði Iðnaðarins. Verðlaunin námu 1 milljón króna. Fjólmundur rekur hljóðkútaverk- smiðju á Hofsósi og framleiðir þar fyrir 1/4 hluta innanlandsmarkaðar. Sjánánar á baksíðu. Frumvarp um frjálsa verzlunarálagningu fyrir páska? Geir Hallgrímsson sagði á aðalfundi Kaupmanna- samtakanna í gær, að hann vonaðist til að unnt yrði að leggja fram stjórnarfrum- varp á alþingi fyrir páska. Geir Hallgrimsson forsætisráð- herra sagði að á aðalfundi Kaup- mannasamtakanna i gær aö hann vonaðist til þess að stjórnarfrum- varp um verðmyndun og verð- lagningu verði lagt fram á Alþingi fyrir páska. Lét hann og i ljós vonir um að unnt yrði að koma frumvarpinu gegnum þing- ið fyrir þinglok i vor. t þvi sam- bandi hvatti hann kaupmenn til að standa með stjórnvöldum til aö svo megi verða. lagningu, þegar samkeppni i þeirri verzlunargrein sem um ræðir i það og það skiptið teljist nægilega frjáls. Ef samkeppni sé ekki nægilega frjáls þá veröi sett- ar afgerandi reglur um opinbera ihlutun, hvernig henni eigi að vera háttað og i hvaða tilíellum eigi að beita henni. Geir sagði að frumvarp þetta fullnægði ekki að öllu kröfum þeim sem hann gerir til sliks fyrirkomulags, en gat þess að hér væri um að ræða áfangaskipti, — timamót — ef frumvarpiö næði fram að ganga fyrir þinglok. ES Geir sagði að i frumvarpinu væru ákvæði um frjálsa verð- 67% hækkun iðgjalda á bifreiðum? Sem kunnugt er hafa tryggingarfélögin farið framáhækkun iðgjalda af bifreiðatryggingum um 67%. Slík hækkun mundi þýða að árs- iðgjald af minni fólks- bílum færi upp í 74.600 kr, en var áður 44.700. Þeir, sem eiga bifreiðar i milliflokki, t.d. Cortinu munu verða að greiða 89.000,00 kr. i stað 53.000.00 áður og eigendur stærri bifreiða, svo sem jeppa og stærri fólksbifreiöa, munu verða að greiða iögjöld yfir 100.000,00. Er þessi upphæð miðuö viö að beiðnin verði samþykkt óbreytt og er hér ekki reiknað með neinum bón- us og á hér eftir að bæta við söluskatti. Væri fróðlegt að fá úr þvi skorið hvað kostar að eiga bil á þessum erfiðu tim- um yfir árið. Neita aó greióa afnotagjöld Allir sjónvarpseigendur i Saurbæjarhreppi Dalasýslu hafa nú undirritað svohljóð- andi mótmælaorðsendingu og er henni beint til Innheimtu- deildar Rikisútvarpsins/Sjón- varps: „Vegna slæmra skilyrða og tiðra bilana neitum viö undir- rituð að greiða afnotagjöld af sjónvörpum okkar nema fulln- aðarviðgerð fari fram á endurvarpsstöðinni á Reyk- hólum, A-Barðastranda- sýslu.” Að sögn talsmanns Saurbæ - inga hafa truflanir á sjón- varpsútsendingum til þeirra færzt mjög i aukana upp á sið- kastið. Truflanirnar lýsa sér sem skyndilegar og óvæntar þá er útsending sjónvarpsins stendur sem hæst. Talsmaður- inn kvað mótmælaorösending- una lagöa fyrir Innheimtu- deildina i dag þ.e. 9. marz.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.