Alþýðublaðið - 10.03.1978, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 10.03.1978, Qupperneq 5
Föstudagur 10. marz 1978 5 SKOÐUN Gunnlaugur Stefánsson skrifar: Stjórnmálaflokkur til sölu? Undanfarnar vikur hafa and- stæöingar Aiþýöuflokksins, og þá sérstaklega andstæðingar vinstri samvinnu innanAlþýðu- bandalagsins, fordæmt Alþýðuflokkinn fyrir aö þiggja fjárstuðning tii starfsemi flokksins frá verkalýðshreyf- ingunni og jafnaðarmönnum á Norðurlöndum. Ég hef áður i Alþýðublaðinu haldið fram þeirri skoðun að það eitt hvernig islenzkir stjórn- málaflokkar fjármagna starf sitt og miiljónatugafjárfesting- ar sinar á undanförnum árum sé nauðsynlegt rannsóknarmál. Alþýðuflokkurinn einn allra stjórnmálaflokka gaf þjóðinni allar upplýsingar um fjármál sin. Þar kom i ljós að halli af flokksstarfinu á undanförnum árum hafði veriö slikur að flokknum lá við gjaldþroti. Ef til vill er slik fjárhagsstaða isienzks stjórnmálaflokks ekki óeðliieg. Stjórnmálaflokkur er ekki stofnaður sem fyrirtæki, vegna þess að hann á ekki að hafa neina vöru til að selja, heldur er stjórnmálaflokkur hreyfing fólks er vinnur að þjóð- félagsmálum og er þannig undirstaða iýðræðisins. En aör- ir stjórnmálaflokkar en Alþýöu- flokkurinn hafa allt sitt f járhald i leyniskiiffum þar sem almenn- ingur nær ekki til. Það er eigi að siður áleitin spurning, sem ýmsa væntir svars við, hvað húsbyggingaflokkarnir hafa selt á undanförnum árum eöa hvaða viðskipti þeir hafa stundað sem fært hefur þeim upp i hendurnar tugi fasteignatryggðra milljóna i gróða. Alþýðuflokkurinn hefur ekki staðið i húsbyggingum á undan- förnum árum, en Alþýöuflokk- urinn hefur átt i fjárhagsvand- ræðum. Komið var á fót al- mennri fjársöfnun á meðal flokksfólks til að rétta fjárhag- inn litið eitt við. Sú söfnun tókst framar vonum. Alþýðuflokkurinn á rætur sin- ar i Islenzkri og alþjóðlegri verkalýðsstétt. Um margra áratugaskeið hafa jafnaðar- menn um heim allan haft með sér náið samstarf. Sérstaklega hefur þó samstarf jafnaöar- manna og verkalýðshreyfingar- innar verið náiö á Noröurlönd- um. Sú samvinna einkennist af jafnrétti og bræöralagi, þeim grundvallarþáttum sem jafn- aðarstefnan berst fyrir að móti gerð þjóðfélagsins. Þannig styðja jafnaðarmenn um heim allan hvor aðra málefnalega og fjárhagslega, ef nauðsyn kref- ur. t þvi felst jafnrétti og bærðralag jafnaðarstefnunnar. T.d. hafa jafnaðarmenn staðið að stuðningi við baráttufélaga i Portúgal, á Spáni, i Chile, i Viet- nam o.fl. löndum. Andstæöing- um Alþýðuflokksins þarf þvi ekkert að koma á óvart þó Alþýðuflokkurinn njóti heiðar- legs stuðnings frá áratugagöml- um samstarfsflokkum á Norðurlöndum, þegar flokkur- inn á við erfiöa fjárhagsstöðu að striða. Annað væri nánast óeðli- legt þegar flokkarnir á Norður- löndum hafa fjárhagslegt bol- magn til sliks stuðnings. Nauðsynlegt er að staða 8tjórnmálaflokka i islenzku þjóðfélagi verði tekin til gagn- gerðrar umræðu. Stjórnmála- flokkar gegna lykilhlutverki i lýðræðisskipulaginu. Slikum grundvallareiningum verður að veita starfsöryggi til að skila hlutverki sinu. Ejármálabrask er hlutverki stjórnmáiaflokks óviðkomandi. Slikt má aldrei hafa áhrif á starf og stefnumót- un stjórnmálaflokks. Þvi miöur tel ég, aö islenzk- ar aðstæður bjóði til sliks. Nauösynlegt er að stjórn- málaflokkar verði gerðir fjár- hagslega sjálfstæðir með fjár- framlögum til starfs flokkanna frá Alþingi. Slikri skipan hefur verið komiö á i flestum nálæg- um vestrænum lýöræðisrikjum. Þykir slik skipan sjálfsögð þar I löndum. í þessum efnum hafa tslendingar gerzt eftirbátar ná- grannaþjóða. Ég held, að timi fordóma sé liöinn. Stjórnmála- flokkum, sem máttarstoðum lýðræðis, verður þjóðfélagið að búa svo að, að lýðræöinu sé ekki hætta búin. Koma veröur i veg fyrir að lýöræðið veröi haft að söluvöru. SKOÐUN Rósa Sveinbjörnsdóttir skrifar: Hugmynd sú, sem ég ætla að reyna að lýsa, er mikið búin að brjótast i huga mlnum, ásamt ýmsum öðrum (jafn fáránleg- um? ). En hvernig á fáfróð og ó- lærð alþýöukona, sem „bara” vinnur i fiski alla daga ársins, að koma hugmyndum sinum á framfærián þessað verða að at- hlægi frammi fyrir alþjóð? Nú hef ég séð og heyrt, að Al- þýðuflokkurinn sé að flytja frumvarpum lækkun kosninga- aldurs, og ber það vott um, að hann beri hug unga fólksins að einhverju leyti fyrir brjósti, eða eru það einungis atkvæðaveið- ar? Ég vona samt, að svo sé ekki, heldur einlægur vilji fyrir velferð æsku þessa lands. Ég ætla engan dóm að leggja á frumvarp þetta, en það ber aö minnsta kosti merki þess, að flokkurinn beri traust til unga fólksins og ætli þvi þá dóm- greind að velja og hafna yngra en áður, enda ætti það að vera eölileg afleiöing af allri þess skólagöngu og itroðslu, sem það er búið að meðtaka 18 ára gam- alt — en nóg um það. Ef ég væri þingmaður, mundi ég leggja fram frumvarp til laga um veganesti! Og er ég þá loksins komin að erindi þessa greinarkorns. t fyrsta lagi: Leggja skal nið- ur allt, sem heitir námslán og styrkir i hvaða mynd, sem er. Veganesti t öðru lagi: Taka skal upp í staðinn gjöf eða „veganestí” til allra unglinga, sem ná 18 ára aldri. A átjánda afmælisdegi hvers unglingsskal islenzka rikið færa afmælisbarninu að gjöf sem svarar árslaunum verkamanns, sem væri ef tir verðlagi i dag um ein milljón króna. Gjöf þessi ætti aö öllu leyti að vera kvaða- laus og skattfrjáls, og væri þvi algerlega á valdi hvers ein- staklings, hvernig hann spilaði úr sinu veganesti, hvort hann mundi nota það til áframhald- andi náms, til kaupa á húsnæði, tíl kaupa á atvinnutæki, legði það inn til ávöxtunar eða sóaði þvi i óreglu. Hann einn gæti ráð- stafað fé þessu og allir sætu jafnir. Þyrfti þvi enginn annan að öfunda. Mörg eru vandamálin I nú- tima þjóðfélagi, þótt ýms séu tilbúin ogléttvæg, en einna ugg- vænlegast þykir mér vera upp- lausn heimilanna, sem hljóta að vera hornsteinar hvers þjóðfé- lags. Fólk fer kornungt út i bú- skap og hjónaband, en i þessum tröllaukna óskapnaöi verðbólg- unnar, sem við hin eldri berum ábyrgð á, gefast alltof margir hreinlega upp á fyrstu mánuð- um og árum búskapar, sem er engin furða. Þess vegna held ég, aö svona gjöf eða nesti út i lffið gæti mörgu ungmenninu bjarg- að frá uppgjöf, væri að minnsta kostí mikil hjálp. Ég geri mér það fyllilega Ijóst, að þetta hefði ýmsa ann- marka, en ég held aö með góð- um vilja mætti koma þessu i kring. Ég geri ráö fyrir, að há- værustu mótbárurnar kæmu frá fjárveitingavaldinu, en þá er það að athuga, að niöur féUu námslán og styrkir, sem að minu viti hafa verið mjög órétt- látir gagnvart þeim ungmenn- um, sem ekki hafa „vit” eöa löngun til að leggja út i lang- skólanám, sem fram aö þessu hefur veriö talin besta fjárfest- ingin og verður ekki uppétin af veröbólgunni. Ég reikna einnig með, að einmitt þessi hópur fólks muni reka upp gól og telja þessa upphæð aUtof lága. Þá er það min hugmynd, að opin ætti að vera leið til viðbótarlána tii þeirra eins og annarra þegna þessa lands og á sömu kjörum. Ég álit, að þessi upphæð mundi létta mjög undir hjá flestum ungmennum, i sam- bandi við heimilisstofnun, þar sem tvö legðu þá saman, til kaupa á ibúðarhúsnæði, til kaupa einhvers konar atvinnu- tækja, bila, báta, smáverk- stæða, verkfæra eða hvers sem vera skal, án ihlutanar kerfis- ins. Til að foröast allan misskiln- ing vil ég strax taka þaö fram, að ég er ekki með þessar hug- myndir i kollinum vegna minna eigin barna, þvi þau eru komin yfir þennan aldur. En eins og segir i upphafi Brekkukotsann- áls, „að næst þvi að missa móð- ur sina sé fátt hollara ungum börnum en aö missa föður sinn,” — sem sé þau misstu föður sinn ung, og voru þvi svo „heppin,” ef svo mætti taka til orða, að fá örlitinn arf eftir föð- urforeldra sina, sem fleytti þeim yfir erfiöasta hjallann 1 byrjunbúskapar. Hefur sú vitn- eskja styrkt trú mina, að þessar hugmyndir, ef af yrði, gætu ein- hverju bjargað. Einnig geri ég mér ljóst, aö þeir, sem væru ný- komnir yfir aldursmörkin, yrðu ekki alltof hressir, og mættu þvl nota einhverjar tilfærslur, með- an skriðan væri að skriða af stað. Þetta eru i örfáum oröum hugrenningar minar. Mér þætti gaman að vita, hvort þær yrðu dæmdar algjört rugl, eða hvort einhver heil brú væri i þeim. Þrír heidradir í Félagi ísl. bóka- útgefenda Á síðasta aðalfundi Félags ísl. bókaútgefenda 20. maí 1977 voru þrír núverandi og fyrrverandi félagsmenn k jörnir heiðurfélagar. Menn þess- ir voru Ragnar Jónsson, bókaútgefandi, Ragnar Jónsson, hæstaréttarlög- maður, og Hilmar ó. Sigurðsson, framkvæmda- stjóri. Miðvikudaginn 1. marz sl. afhenti formaður félagsins, Orlygur Hálfdánarson, þeim þre- menningunum heiðurskjöl sin að viðstaddri stjórn félagsins og framkvæmdastjóra þess. Fór for- maður nokkrum orðum um störf þessara manna i þágu félagsins og bókaútgáfunnar i landinu. Þáttur Ragnars Jónssonar i islenzkri bókaútgáfu er alþjóö kunnur. Forlag hans, Helgafell, hefur um áratuga skeið verið i fremstu röð islenzkra bókafor- laga og hefur annazt útgáfu flestra verka fremstu rithöfunda þjóðarinnar um árabil. Frh. á 10. siðu Frá vinstri Hilmar 0. Sigurösson, framkvæmdastjóri, Ragnar Jónsson bokaútgefandi, og Ragnar Jónsson liæstaréttarlögmaöur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.