Alþýðublaðið - 10.03.1978, Page 7

Alþýðublaðið - 10.03.1978, Page 7
6 Föstudagur 10. marz 1978 Föstudagur 10. marz 1978 7 samningur um sam- starf á svidi íþrótta Jónsson, sendiherra Islands i 24. febrúar s.l. var undirritaður i Moskvu sovézk-islenzkur samn- ingur um samstarf á sviði iþrótta, þar sem m.a. er gert ráð fyrir aukinni þátttöku sovézkra sérfræðinga i þjálfun islenzkra i- þróttamanna. Samning- ur Júri Ilitsjefs við Val var framlengdur um þrjú ár. Á þessu ári hef- ur íþróttanefnd SSSR i hyggju að senda tvo aðra þjálfara til ís- lands: skákþjálfara og júdóþjálfara. Auc^sencW! AUGLYSiNGASlMI BLADSINS ER 14906 Þetta er fyrsti samningur sinn- ar tegundar sem gerður er milli sovézku Iþróttanefndarinnar og islenzka Menntamálaráðuneytis- ins. Af hálfu Sovétmanna undir- ritaði Viktor Ivonin, varaforseti Iþrótanefndarinnar, samninginn, en af Islendinga hálfu: Hannes SSSR. I ræðu sem Viktor Ivonin flutti við þetta tækifæri sagði hann m.a. að samningurinn markaði tima- mót i sögu sovézk-Islenzks i- þróttasamstarfs. ,,Þótt samskipti okkar á sviði iþrótta séu tak- mörkuð af hlutlægum ástæöum Myndir og viðtal: Kristján Ingi Einarsson Frá afhendingarathöfn prófsklrteina þeirra er luku prófum frá Háskóla tslands f lok haustmisseris. 42 luku prófum frá Háskóla íslands, þar af 17 konur (40%), í frétt frá Háskóla Is- lands kemur fram aö sam- tals hafa 42 stúdentar lokið prófum frá Háskóla is- lands i lok haustmisseris námsársins 1977—78, þar af 17 konur með rúmlega 40%. Flestar hafa konurn- ar lokið námi frá heim- spekideíld en einnig frá verkfræði- og raunvísinda- deild sem félagsvísinda- deild. Hér fylgir skrá yfir stúdentana er luku próf- um: Kandidatspróf i viðskiptafræði (7) Dýri Guðmundsson Guðmundur Geir Gunnarsson Hans Herbertsson Hilmar Kr. Victorsson Jón Þorbjörn Hilmarsson Ólafur W. Finnsson Stefán Sigtryggsson Kandidatspróf i sagnfræði (1) Siguröur Eggert Davíösson B.A.-próf i heimspekideild (21) Albert Jónsson Anna ólafsdóttir Björnsson Arngrimur Arngrimsson Björn Sigfússon Ingibjörg Sigtryggsdóttir Ingveldur Sveinbjörnsdóttir Jónína Ragnarsdóttir Kirsten Olsen Magnús Guðnason Monika Blöndal Mörður Árnason Ólafur Jónsson Sigrún Daviðsdóttir Sigrún Steingrimsdóttir Sigurborg Jónsdóttir Vilhjálmur Árnason Þórður Kr. Kormáksson Þórður Kristinsson Þórgunnur Skúladóttir Þorsteinn Helgason Þórunn Skaptadóttir Verkfræði- og raunvisindadeild B.S.-próf i raungreinum (11) Liffræði Dagmar Vala Hjörleifsdóttir Ingibjörg H. Halldórsdóttir Július B. Kristinsson Magnús Jóhannsson Margrét Geirsdóttir Jarðfræði Hafliði Hafliðason Sigfinnur Snorrason Landafræði Birgir H. Sigurðsson Inga I. Guðmundsdóttir Jón Gauti Jónsson Jarðcðlisfræði Kristján Tryggvason B.A.-próf i félagsvisindadeild (2) Aðalbjörg Sigmarsdóttir Karitas Jensdóttir Sovézk-íslenzkur SVIÐIN ERU SVO MANNLEG — rætt við bandaríska stúlku, sem stundar nám við Menntaskólann við Sund eru þau þó orðin að hefð. Hvað okkur snertir viljum við gera allt sem i okkar valdi stendur til þess að nýi samningurinn verði fram- kvæmdur, en hann gerir ekki að- einsráðfyrir þátttöku i keppnum, heldur einnig skiptum á þjálfur- um og leiðbeinendum.” Hannes Jónsson sagðist undir- rita þennan samning með á- nægju, enda væri hann til vitnis um vaxandi samskipti sovézkra og fslenzkra iþróttamanna. „Við munum sem áöur eiga þess kost aö notfæra okkur þjónustu sov- ézkra þjálfara, en störf þeirra metum við mikils” — sagði hann. Enda þótt hér sé um að ræða fyrsta samninginn af þessari gerð milli SSSR og Islands, hefur þó þegar fengist talsverð reynsla i samstarfi á þessu sviði. Nánustu tengslin eru á sviði knattspyrnu, frjálsiþrótta, skákiþróttarinnar og handknattleiks. Sovézki þjálfarinn Ilitsjef hefur náð góöum árangri með knatt- spyrnuliöinu Val, og hefur samn- ingur hans nú verið framlengdur um þrjú ár, að þvi er mér var tjáð i íþróttanefndinni. Frá ársbyrjun 1978 hefur annar sovézkur þjálf- ari starfað á Islandi, frjálsi- þróttaþjálfarinn Bobrof. I ár er þess vænzt að tveir aðrir þjálfar- ar fari til Islands á vegum Iþróttanefndarinnar og muni þeir þjálfa Islendinga i skák og júdó. Einnig er verið að kanna mögu- leika á þvi að Jón Arnason, heimsmeistari unglinga i skák, verði tekinn i framhaldsnám við skákskóla Botvinniks. ,,Ég er bjartsýnn á framtíð sovézk-islenzkra iþróttatengsla” — sagði Hannes Jónsson sendi- herra i viðtali við fréttamenn. — „Það er islenzkum iþróttamönn- um til mikils gagns að fá tækifæri til að keppa við sterka iþrótta- menn frá Sovétrikjunum og ég vænti þess þvi að samskiptin milli landanna á sviði iþrótta muni halda áfram að eflast og blóm- gast”. Sergei Serebrjakof (APN) Esther meö fjölskyldunni, Guörúnu og Holger Clausen ásamt syni þeirra Einari. Hvad er AFS? AFS eru samtök sem starfa i yfir 50 löndum og hafa það að mark- miði að auka skilning þjóða i milii með nem- endaskiptum unglinga á aldrinum 16-18 ára. AFS bjóða ungling- um á aldrinum 16-18 ára að kynnast af eigin raun annars konar menningu og lifnaðar- háttum en þeir hafa átt að kynnast hingað til með þvi að fara til Bandarikjanna eða Evrópu, og dveljast sem meðlimur þar- lendrar fjölskyldu og ganga þar i skóla i eitt ár. tslandsdeild AFS tekur einnig á móti erlendum unglingum til dvalar hjá islenskum fjölskyld- um, bæði árs nemum og sumar- nemum. Hingað til hafa 81 ungl- ingur dvalizt sem sumarnemar hjá íslenskum fjölskyldum og 3 ársnemar. 289 islensk ungmenni hafa dvalizt sem ársnemar i Banda- rikjunum og Evrópu á vegum AFS. Einu skilyrðin til að sækja um AFS styrk er að vera á aldr- inum 15-17 ára. Þeir unglingar sem valdir eru til að fara á vegum samtak- anna frá Islandi hefja ferðina i ágústmánuði en koma heim um miðjan júlimánuð ári seinna, Nemendum er séð fyrir friu uppihaldi af fjölskyldum. Ferð- in milli landa er borguð af nem- endum sjálfum svo og vasapen- ingar. Skólagjald og læknisað- stoð ef hennar gerist þörf er greidd af AFS. Nú er að hefjast umsóknan timi fyrir fjölskyldur, hvort heldur sem þær hafa hug á að taka sumarnema eða ársnema. —KIE Mamma er að kenna mér að prjóna. Ég er búin að prjóna sokka og er núna að prjóna mér lopapeysu. Einnig hef ég mjög gaman af að hlusta á allskonar músik. Ég hef sungið með Söng- sveitinni Filharmoniu og skóla- kórnum, og reyni að fara eins oft á sinfóniuhljómleika og ég get. Spilverk þjóðanna finnst mér al- veg frábært. Og svo er ég i saumaklúbb með stelpunum i skólanum og finnst gaman að fara á skiði. Hvers saknaröu mest aö heim- an? Ég er jafnvel farlan aö segja Guö og ha. 1 atsrhf rcéiduia! Auðvitað hamborgarana! En þegar þú kemur heim hvers heldur þú saknir mest héöan? Aö komast allra minna ferða i strætó og blaðsölustrákanna niður i bæ sem syngja Dagblaöiö og Visir. Hvaö tekur svo viö þegar heim kemur? Ég þarf að ljúka Menntaskólan- um og ætla svo að reyna að fara i mannfræði við háskóla. Viltu segja eitthvaö aö iokum? Ne^ég held ekki, mér er orðið svo illt t höfðinu. Hér ræöir Esther viö skólasystur. Ég les islenzku, sögu, stærð- fræði, jarðfræði og ensku. Mér gengur náttúrulega bezt með stæröfræði og ensku, en að lesa islenzkuna er dálftið erfitt. Ég reyni bara aö fylgjast vel með kennaranum i timum, en ég er oft komin með dynjandi hausverk eftir að hafa hlustað á islenzku allan daginn og reynt að skilja. En hver er munurinn á aö vera iskóla á tslandi og 1 Bandarikjun- um? Námsefnið er mjög svipað hérna og heima. Aðalmunurinn finnst mér vera skólakerfið eða réttarasagt bekkjakerfið. Hérna er maður með sama fólkinu i öll- um timum, en heima fer maöur á milli bekkja eftir þvi hvaða fagi maður er i. Svo notum við ekki skólatösku heldur berum við bæk- urnar i fanginu, en ég er nú búinn að sauma mér tösku svo ég get verið eins og hinir. Er gott að vera útlendingur á tslandi? Já, það finnst mér. Fólkið er mjög gott og vill allt fyrir mann gera. En aftur á móti er erfitt að kynnast Islendingum, þeir eru svo lokaðir. En ef maður hittir Islending sem er við skál, þá virð- ist dæmið snúast við. Þá er eins og maður hafi þekkt hann i mörg ár. Annars er islenzka þjóðfélagið svo ólikt þvi bandariska, að það er varla hægt að bera það saman: — fólkið, veðrið, maturinn, húsin og nánast allt er öðruvisi. Mat- inn hérna finnst mér mjög góður, sérstaklega fiskurinn. Ýsa með kartöflum og smjöri er það bezta sem ég fæ. Annars er maturinn ekki eins kryddaður hérna og heima og fjölbreyttari. Það er næstum allur maður i dósum og eins á bragðið i Bandarikjunum. En það sem hefur komið mér mest á óvart hér eru sviðin. Mér fanst skritið að borða þau. Ég gat ekki fyrir nokkurn mun borðað tunguna og augun, þau voru svo mannleg. Annars finnast mér sviðin mjög góð. Mér fannst lika skritið að sjá hvað húsþökin eru marglit hérna, heima eru öll þök eins á litinn, grá eða svört. Mér finnst ólikt skemmtilegra aðhafa þau svona i öllum litum. Hvaö gerir þú svo í fritimum þér til skemmtunar? Siðan byrjaðirðu i Menntaskól- anum i september. Hvernig var það? Það var svolitið skritið vegna þess að ég skildi ekki orð og þekkti engan. Það var erfitt að kynnast krökkunum i skólanum. Þau voru svo feimin, horfðu bara á mig eins og einhvern furðuhlut, sem þau höfðu aldrei séð áður. Svo er ég nú dálitið feimin sjálf, en ég kynntist krökkunum fljót- lega og nú á ég marga góöa vini og finnst bara ofsa gaman i skól- anum. Hvaöa námsgreinar lest þú og hvernig gengur aö lesa islenzk- una? Hvernig stendur á þvi að þú stundar nám i tnenntaskóla á Islandi? Ég sótti um eins árs styrk á vegum AFS, þar sem ósk min var að komast til Spánar, vegna þess að ég hafði lært spönsku i 4 ár. En þegar svar um skólastyrkinn kom var mér boðið að fara til Islands en ekki Spánar. Um tsland hafði ég aldrei heyrt og vissi ekkert um landið. Ég fékk mér þvi alfræði- bækur og reyndi að lesa mér til og ákvað eftir það að taka boðinu um að fara hingað. Ég kom siðan 18. ágúst i haust á afmælisdegi Reykjavikurborgar. Við fréttumaf bandarískri stúlku, Esther Hanke, sem er skiptinemi á vegum AFS á islandi. Esther, sem varð 18 ára gömul 4. marz s.l., stundar nám í 2. bekk við Menntaskólann við Sund í Reykjavik. Hún býr hjá íslenzkri f jölskyldu í Hraunbænum, hjónun- um Guðrúnu og Holger Clausen ásamt börnum þeirra.Kristbjörgu og Einari. Esther býr þar sem einn af fjölskyldunni og kallar þau Guðrúnu og Holger mömmu og pabba. Þau Guðrún og Holger hafa áður haft skiptinema á vegum AFS og var það yfir sumartíma. Þau voru mjög ánægð með þá reynslu og ákváðu að taka ársnema í haust. Esther féllst á að ræða við okkur eina kvöldstund i siðustu viku, um dvölina á Islandi. Þess skal getið að Esther talar mjög góða íslenzku og það án greinanlegs hreims eftir aðeins sex mánaða dvöl á landinu. í lok haustmisseris

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.