Alþýðublaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 15. marz 1978! >£>5^ vHef mestan áhuga á ad treysta innviðu sambandsins” — segir Guðmundur Þ. Jónsson, nýkjörinn formaður Lands- sambands iðnverkafólks í Alþýðublaðinu f gær var greint frá ályktunum og stjórnarkjöri á nýaf- stöðnu þingi Landssam- bands iðnverkafólks. Nýkjörinn formaður sambandsins er Guð- mundur Þ. Jónsson, sem tekur nú við starfinu af Birni Bjarnasyni og náði blaðið tali af Guðmundi ( gær. Guðmundur sagði að á þinginu hefði gætt mikils áhuga og eindrægni full- trúa, en helztu mál væru nú að berjast fyrir óskertum samningsrétti og að samningar við verkalýðsfélög yrðu haldnir. Þessari baráttu væri fram haldið í 10 manna nefnd verkalýðs samtakanna, en Guðmundur á sem lands- sambandsformaður nú sæti i nefndinni og sat sinn fyrsta fund í gær. Guðmundur sagði aðiLands- sambandinu væru nú fimm félög, Iðja á Akureyri og Iðja i Reykjavik, og þrjár iðnaðar- fólksdeildir i þrem verkalýðs- félögum, þe. Fram á Sauðár- króki, Verkalýðsfélagi Fljóts- dalsheraðs og Verkalýðs- félaginu Rangæingi á Hellu. Einn fulltrúi er fyrir hverja 100 félaga og séu færri, er eigi að siður sendur fulltrúi frá viðkomandi félagi, sem skilja gefur. Guðmundur kvað það nú sitt helzta áhugamál að treysta inn- viðu sambandsins, en það yrði fyrst og fremst gert með þvi að fá fleiri verkalýðsfélög úti um land til að stofna deildir iðn- verkafólks innan félaganna og treysta þannig tengsl þess við sambandið, sem nú hefði eigi að siður nokkuð samband við þetta fólk með ráðgjöf, auk þess sem það semdi fyrir þess hönd. Landssamband iðnverkafólks hefur opna skrifstofu allan daginn að Skólavörðustíg 16, i húsakynnum Iðju, en Guðmundur hefur frá 1974 verið starfsmaður Iðju i hálfu starfi og hjá Landssambandinu i hálfu starfi og þvi þessum málefnum mjög vel kunnur. Nýlega eru sem kunnugt er hafnar viðræður við Vinnu- veitendasamband Islands og þvi liklegt að hinn nýi formaður fái að beita þekkingu sinni og starfskröftum til hins itrasta, þegar i upphafi starfsferils. Alþýðublaðið sendir honum og iðnverkafólki kveðjur og ósk um sigursæla sókn i kjarabaráttu þess. AM Rannveig Eckoff í Norræna hús- inu í kvöld Norska sópransöngkonan Rannveig Eckhoff syngur sem gestur Norræna hússins á miðvikudagskvöld 15. marz. Undirleikari verður Guðrún Kristinsd. Rannveig Eckhoff er aðeins 29 ára gömul, en hefur þegar skipað sér meðal beztu óperusöngkvenna Norðmanna. Hún söng hlutverk kátu ekkj- unnar i Stokkhólmi 1974, en sú sýning var sýnd 275 sinnum fyrir fullu húsi. Rannveig Eckhoff starfar nú við óperuna i Mann- heim i V-Þýzkalandi. Hér mun hún syngja annars vegar norsk verk, og hins vegar franska söngva, sem sjaldan eru fluttir hérlendis. Sovézk-pólsk kvikmynd í MÍR-salnum: „Mundu nafnið þitt^ Sovésk-pólsk kvikmynd frá árinu 1975, „Mundu nafniðþitt!", verður sýnd í MíR-salnum, Laugavegi 178, n.k. laugardag 18. marz kl. 15. Mynd þessi er byggð á sann- sögulegum atburðum og segir frá vist sovéskrar konu og ungs sonar hennar i fangabúðum nasista i Ausvitsch, aðskilnaði þeirra i fangelsinu skömmu fyrir uppgjöf Þjóðverja og endurfundum tveimur áratugum siðar. Leik- stjóri er Sergei Kolossof, en i hlutverki konunnar er Lúdmila Kassatkina og hefur hún hlotið verðlaun á kvikmyndahátiðum erlendis fyrir leik sinn i þessu hlutverki. Kvikmyndin er sýnd meft enskum skýringa rtex tum. Aðgangur aft sýningunni i MIR- salnum er ókeypis og öilum heimill. Sýnir krítar- kola- og vatnslita- myndir Um þessar mundir stendur yfir sýning á verk- um eftir Þorbjörgu Sig- rúnu Harðardóttur á Mokka. Þorbjörg, sem er sjálfmenntuð listakona, sýnir þar um 20-30 verk, sem unnin eru með kol, krít og vafnslitum. Verð mynd- anna eru frá 13.500 krónum og upp í 35.000 krónur. Myndir þessar eru allar gerðar á siðasta ári. Sýningin stendur til 8. apríl. Tónleikar Tónlistarfélags Reykjavíkur: Ursula Ingólfsson Fass- bind leikur á píanó -rkvow 1 kvöld klukkan 19 hefjast I Austurbæjarbiói áttundu tóa- Ieikar Tónlistarfélags Reykja- vikur fyrir styrktarfélaga, starfs- veturinn 1977-1978. Þaft er Ursula Ingólfsson Fassbind pfanóleikari er leika mun verk eftir J.S. Bach þ.e. hin svo nefndu Goldberg-tH- brigði, W.A. Mozart, A. Webern og Frans List. Ursula er Svisslendingur að ætt og uppruna, frá þýzkumælandi borginni Zurich. Hún hlaut fyrstu kennslu i tónlist mjög ung aft árum og var lengi, sem barn, nemandi pianóleikarans Theodor Lerch. Ursula hóf einleikaranám 17 ára gömul við Sava Savoff Tónlistarháskólann i heimaborg sinni. 20 ára lauk hún þaðan kennaraprófi og fjórum árum siðar einleikaraprófi. Þá stundaöi hún einnig tónlistarnám erlendis. Ursula hefur haldift hljómleika viða i Sviss. Hún kom i fyrsta skipti fram á hljómleikum hérlendis með Sinfóniuhljómsveit íslands 1969. Hún fluttist til Islands 1973, og er nú kennari vift Tónlistarskólann i Reykjavik. „Á sama tfma að ári9’: Þjóðleikhúsið sýnir í Vestmannaeyjum — mikil hrifning á sýnlngunum á Húsavlk Um næstu helgi sýnir Þjóft- leikhúsið í Vestmannaeyjum bandariska gamanleikinn ,,A sama tima að ári”. Leikrit þetta var frumsýnt á Húsavfk og var sýnt þar i alls 9 skipti. Húsvik- ingar tóku leikritinu fádæma vel og var sýnt fyrir troðfullu húsi og urðu margir frá að hverfa. Ekki var hægt að hafa fleiri sýningar nyrðra, vegna þess aft heimamenn þurftu á húsnæðinu að halda vegna sýninga á leik- ritinu Skjaldhamrar, sem þeir eru nú að æfa. Sem fyrr segir veröur nú farift með leikritið til Vestmannaeyja og verða sýningar þar á föstu- dags- laugardags- og sunnu- dagskvöld. Siðan verður leik- ferftinni haldið áfram. Sýnt verður á meinningarvikunni á Selfossi annan dag páska og siöan verða sýningar viða á Suðurlandi. I april verður sýnt á Vesturlandi, Vestfjörftum og i mai er gert ráö fyrir sýningum á Norður- og Austurlandi. Leikstjóri er Gisli Alfreðsso, leikmynd er eftir Birgi Engil- berts,en hlutverkin tvö eru i höndum Bessa Bjarnasonar og Margrétar Guðmundssonar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.