Alþýðublaðið - 18.03.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 18. marz 1978
3
30 milljón
króna halli
Símaskráin fyrir áriö
1978 verður væntanlega til-
búin til afhendingar í lok
þessa mánaðar# en upplag
hennar er að þessu sinni
um 1000 þúsund eintök.
Ekki er ólíklegt að kostn-
aður vegna útgáfunnar
verði um 100 milljónir
króna» en tekjur vegna
auglýsinga og hvers kyns
»<aukaprentana" í skránni
nemi um 70 milljónir
króna. Halla af skránni má
þvi áætla um 30 milljónir
króna.
Að sögn Jóns Skúlasonar
póst- og simamálastjóra
nam kostnaður vegna út-
gáfunnar á siðasta ári 84
milljónum króna, entekjur
sem komu á móti voru 58
milljónir» eða því sem næst
70% af kostnaði.
Jón var inntur eftir þvi hvort
ekki hefði komið til greina að
gera útgáfu simaskrárinnar
ódýrari, til dæmis með þvi aö
gefa hana út i heild sinni á
tveggja til þriggja ára fresti, þótt
svo að breytingar frá ári til árs
væru gefnar út árlega. Sagði Jón
að vissulega hefði slikt verið
skoðað, en staðreyndin væri sú,
aö breytingar á skránni milli ára
Frh. á 10. siðu
Fjáröflunardag-
ur Ekknasjóds
Arlegur fjáröfiunardagur fyrir
Ekknasjóð tslands er 2. sunnu-
dagur i marsmánuði. Hann er
næstkomandi sunnudagur. Verð-
ur þá eins og endranær ieitað eftir
framlögum tii sjóðsins við allar
guðsþjónustur og einnig verður
merkjasala.
Hlutverk þessa sjóðs er,aö veita
aðstoð ekkjum, sem eiga I fjár-
hagserfiðleikum. bað var sjó-
mannskona, sem stofnaði sjóöinn
með myndarlegu framlagi. Hún
hafði þá einkum sjómannskonur i
huga. En allar þurfandi ekkjur
eiga rétt.á styrk úr sjóðnum.
Einnig fráskildar konur.
Þrátt fyrir aukna félagslega
forsjá eru margar ekkjur til, sem
þurfa á hjáíp að halda og hefur
Ekknasjóður tslands getaö veitt
nokkurt liðsinni i timabundnum
erfiðleikum. Þvi miður hefur
sjóðurinn aldrei oröið nægilega
öflugur til þess að geta greitt
verulega úr fyrir mörgum. En
jafnan hefur fjáröflunardagur
hans borið nokkurn árangur.
Gjöfum til sjóðsins skal komið til
presta eða á biskupsstofu, Klapp-
arstig 27, Heykjavik. Beiðnum
um styrki skal komiö jil sömu að-
ilja.
Upplagskönnun dagblaða
Vísir gengur
nú fram fyrir
skföldu
Vlsir hefur nú gengið
fram fyrir skjöldu að
hreyfa að nýju umdeildu
máli, þar sem er könnun
á upplagi dagblaða. Hef-
ur blöðunum verið sent
bréf, undirritað af Herði
var ekki nærri nógu skýrt
mótaður.
Hörður sagöi að blöðin ættu að
stofna með sér sitt „verkalýðsfé-
lag,” þar sem þau kæmu fram á
sama hagsmunagrundvelli, án
tillits til hvaða samtök eða aöilar
stæðu að útgáfunni.
Hörður gerði sér vonir um að fá
skjótlega svör frá öðrum blöðum
um málið, en aö öðrum kosti yrði
reynt að ýta á um viðræöur, þeg-
ar hæfilegur tlmi þætti í frá lið-
inn. AM
Þessir kokkar og þjónaefni sýndu blaöamönnum listir sinar við góöar undirtektir þeirra siöar-
nefndu.
Matreiðslu- og þjóna-
nemar sýna hæfni sína
— í húsnæði Hótel og veitingaskólans um helgina
I dag og á morgun efna
nemar i fjóröa bekk Hótel
og veitingaskóla islands til
sýningar í skólanum þar
sem gestum gefst kostur
að lita hverja upprennandi
snillinga við eigum í
matargerðarlist og
þjónustustörfum.
Sýning þessi sem er hin 6. i
röðinni verður haldin i húsnæði
skólans á 2. hæð hótel Esju
(gengið inn af bilastæðunum
aftan viö húsið).
Blaðamenn fengu af eigin raun
að kynnast hæfni nemenda skól-
ans fyrir skömmu. Þótti þeim
mikið til koma og ástæða til að
hvetja fólk að koma á sýninguna.
A sýningunni gefst fólki kostur
að líta hvað hæfni og góður
smekkur geta gert í matar-
gerðarlist og framreiðslu. Þarna
verða til sýnis handverk veröandi
matgeröarmeistara þjóðarinnar
og . borðskreytingar
veröandi þjóna.
Sýningin sem stendur frá kl.
13.00-20.00 i dag og frá kl. 10.00-
20.00 á morgun er haldin I fjár-
öflunarskyni vegna væntanlegrar
náms og kynnisferðar nemenda
til Bandarikjanna þar sem þeir
munu kynna sér skóla f sömu
grein og Hótel og veitingaskólinn. klúbbur matreiöslumeistara þátt
Aðgangseyrir er aðeins 200 krón- i herlegheitunum, auk þess sem
ur og má telja þeim vel varið þvi ýmis fyrirtæki I matvælaiönaði
auk sýningar nemanna tekur verða kynnt.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
boðar til fundar um atvinnumál á höfuð-
borgarsvæðinu að Hótel Loftleiðum
(Kristalsal) sunnudaginn 19. mars kl.
14.00.
FUNDAREFNI:
1. Borgarstjórinn i Reykjavik, Birgir ís-
leifur Gunnarsson, flytur ræðu um at-
vinnumálastefnu sína.
2. Þórður Gröndal, verkfræðingur og
Gunnar S. Björnsson, húsasmiðameistari,
flytja erindi um afstöðu Landssambands
iðnaðarmanna til atvinnumála á svæðinu.
3. Almennar umræður.
Félagsmenn aðildarfélaga Landssam-
bandsins eru hvattir til að mæta á fundinn.
Einarssyni, þar sem
hann skýrir viðhorf sin
til þessa máls. Kemur
fram i bréfinu að Verzl-
unarráð sé heppiiegasti
aðilinn til að annast
könnunina, en á þvi
skeri steytti fyrri tilraun
til slíkrar framkvæmd-
ar, meðal annars, þegar
málið bar siðast á góma.
Blaðið hafði i gær tal af
Herði Einarssyni, vegna
þessa.
Höröur sagði að Vísír víldi hafa
forgöngu um að þessu máli yrði
enn hreyft, þvi hann vissi að á-
hugi hjá blöðunum væri fyrir
hendi, aðeins heföi strandað á
rammaákvæðum um fram-
kvæmdina. Þótt I bréfinu væri
mir.nst á Verzlunarráð, sagði
Hörður aö þeir á Vísi mundu ekki
gera þaö að neinu úrsiitaatriði, ef
blöðin gætu komið sér sáman um
annan aðila. Hins vegar kvaöst
Hörðúr treysti Verzlunarráði vel
tií verksins, þótt hálf-óhöndug-
lo.ga hefði þar verið að verki stað-
ið ! fyrra,en þá gengu Verzlunar-
ráðsmenn um með samning um
slika könnun, þar. sem ramminn
sem framkvæmd yerksins sneri í
VESTUR-ÞÝSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA
SfcÖSSttS