Alþýðublaðið - 02.04.1978, Side 3

Alþýðublaðið - 02.04.1978, Side 3
Sunnudagur 2. apríl 1978 >3 Mikið hefur verið rætt og ritað um þá aðstoð, sem verkalýðs- hreyfingin og jafnaðarmanna- flokkarnir á Noröurlöndum buðu fram til Alþýðublaðsins. Þessi aðstoð, sem raunar er mjög smávægileg, var þegin að hluta. Hún er fólgin i fyrir- greiðslu vegna pappirskaupa i Noregi. Um leið og tekin var ákvörðun um að þiggja þennan stuðning var skilmerkilega greint frá málinu: engu leynt og ekkert falið. Jafnaðarmannaflokkar um heim allan hafa frá upphafi veitt hvorir öðrum þann stuðn- ing, sem þeir hafa getaö. Þetta er i anda þeirrar alþjööahyggju og bræðralagshugsjónar, sem lýöræðis sósialistar hafa haft að leiöarljósi. Þetta er stefna frjálsrar verkalýðshreyfingar og stuðningsflokka hennar. Verkalýössamtökin á Norður- löndum, nema á íslandi, eru fjársterk. Hún og jafnaðar- mannaflokkarnir hafa veitt fjármagni til margra bræðra- flokka og verkalýðshreyfinga, sem hafa átt við fjárhagsörðug- leika að etja. Þannig hafa verkaiýðssam- tökin á Norðurlöndum aðstoðað verkaiýðshreyfingar i Portúgal, anna hafa Islendingar ávallt verið þiggjendur. Þær hafa lagt fram verulegt fjármagn til margvlslegrar starfsemi hér á landi. Fyrir gjafafé hafa veriö stofnaðir sjóðir, sem Islending- ar njóta góðs af. Skemmst er að minnast þjóðargjafar Norö- manna, sem meðal annarra ungir Sjálfstæðismenn ferðast fyrir. Jafnvel Islenzkir þing- menn hafa ferðast fyrir „krata- guli”, og þá ekki eingöngu Alþýöuflokksmenn. Eða skyldi nokkur þora að halda þvi fram, að Islendingar væru öörum þjóðum háðir vegna aöstoöar hinna norrænu þjóöanna viö Vestmannaeyinga og þjóðina I heild eftir Vestmannaeyjagos- ið? Gerir Norræni fjárfestinga- sjóðurinn Islendinga háða frændum sinum á hinum Norðurlöndunum ? Þannig mætti lengi rekja margvislegan stuðning frændþjóðanna við Is- lendinga. Afstaða Þjóðviljans Þjóðviljinn, málgagn Alþýöu- bandalagsins, hefur gengið harðast fram I þvl að gagnrýna Alþýðublaöið og Alþýðuflokkinn verkalýðshreyfingunum. Stuön- ingurinn er nefnilega staðfest- ing á þvi, að norræna verkalýös- hreyfingin lltur á Alþýðuflokk- inn sem hinn eina sanna jafn- aðarmannaflokk á Islandi. Þetta kemur illa við þa menn I Alþýðubandalaginu, sem á und- anförnum árum hafa leitað eftir þvi á Norðurlöndum og vlöar, að Alþýðubandalagið yröi viður- kennt sem lýöræöis-sóasialist- Iskur flokkur. Þessi viöurkenn- ing hefur ekki fengist. Norrænir jafnaðarmenn hafa lesið stefnu- skrá Alþýöubandalagsins og telja hana ekki koma heim og saman við þeirra eigin stefnu. Þeir geta ekki viðurkennt Alþýðubandalagið sem só- sialistiskan lýðræðisflokk. Til þess hefur sambandið við Moskvu verið of náið. Ritstjórar Þjóöviljans vita, aö Ihaldsflokkarnir á Islandi, þar með taliö Framsóknar-Ihaldið, ráða yfir liðlega 80% af öllum blaðakosti þjóðarinnar. Stuðn- ingsblöð verkalýðshreyfingar- innar eru aöeins tvö, Alþýöu- blaðið og Þjóðviljinn. Hræsni Þjóðviljamanna gagnvart verkalýðshreyfingunni má greina, þegar þeir vilja Alþýðu- blaðið feigt, þótt verkalýðs- lagsins af ýmsum flokksfyrir- tækjum. Frá fyrri árum er eng- ar upplýsingar að fá. Eöa hvernig hefur Alþýðubandalag- iö eignast hús og fyrirtæki, sem nú eru látin standa undir rekstri Þjóðviljans. Hvernig varð gamla Þjóðviljaprentsmiöjan til? Er það virkilega alþýöa þessa lands, sem stendur undir rekstri Alþýöubandalagsins og Þjóðviljans? Þjóðviljamenn geta þess aö engu, aö það voru norskir jafnaöarmenn, sem komu fót- unum undir Þjóðviljann i Blaða- prenti, þar sem Alþýðublaðið, Tlminn, Visir og Þjóðviljinn eru prentuð. Norskir jafnaðarmenn veittu mikla og dýrmæta tækni- lega aðstoö við stofnun Blaða- prents hf.. Þá aðstoð er unnt að meta á miljónir króna. Þjóðvilj- inn hefur þegjandi og ánægður notið ávaxtanna af þeirri að- stoð. Það hlýtur að vera Ihugunar- efni fyrir marga, að sjá hversu sammála Þjóðviljinn og Morgunblaðið eru i fordæmingu á „kratagullinu”. Þessi for- dæmingtekur á sig hinar furðu- legustu myndir. Þjóðviljinn segir Alþýðuflokkinn ekki sósialistiskan flokk, en Morgun- reikningi. Danskir kaupmenn greiddu lika á sinum tima aug- lýsingar I Morgunblaðinu. Skyldi það ekki einnig koma fram hjá Vilhjálmi Finsen. Sjál fs tæðism enn eiga Morgunblaöið. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn hafa á undanförnum árum og áratug- um haft miklar tekjur af marg- vislegum umsvifum fyrir varnarliðið á tslandi. Varla greiðir það með íslenzkum krónum! Þegar svo fulltrúar þessara flokka taká höndum saman á þingi við Alþýðubanda- lagið um flutning á frumvarpi, sem banna á erlendan fjár- stuðning við islenzka stjórn- málaflokka, væri fróðlegt að vita hvernig’þeir ætla að tryggja, að slikt fjármagn kom- ist ekkiinn i landið. — Alþýðu- flokkurinn heföi getað, þegjandi og hljóðalaust, þegið hina nor- rænu’aðstoð. Það vildu forystu- menn hans ekki. Þeir þáðu að- stoðina fyrir opnum tjöldum, og leggja það í dóm kjósenda hvort þeir hafa gert rétt eða rangt. Staða Alþýðublaðsins. Það má öllum vera ljóst, að sá stuðningur, sem hér um ræðir er „Hrcsni Þjóðviljamanna gagn- vart verkalýðshreyfingunni má greina, þegar þeir vilja Alþýðu- blaðið fcigt, þótt verkalýös- hreyfmgar á hinum Norður- löndunum vilji styðja við bakið á því svo það geti þjónað ís- lenzkri verkalýðshreyfíngu” 99. Kratagull” rublur og erlendir kaupmenn í tilefni siðvæðingar Þjóðviljans og „Afstaða ihaldsins.... því minni áhrif verkalýðshreyfingarinn- ar, — þvi betra”. Grikklandi og I löndum Afriku og Aslu. Sama gildir um jafnaðarmannaflokkana. Sænskir jafnaðarmenn veittu dönskum jafnaöarmönnum stuðning fyrir siðustu þingkosn- ingar I Danmörku, og þótti eng- um mikið. Lýðræöis-sóasialist- ar vita sem er, aö þetta er ein af fáum aðferðum, sem þeir geta beitt I baráttunni viö auðveldið. Styrkur verkalýösins og flokka þeirra liggur i samstöðunni, samvinnunni og bræðralags- hugsjóninni. Af þeim sökum er Alþýðuflokksmönnum meina- laust að vera þátttakendur I þessu samstarfi. Fyrir fjöldamörgum árum fékk Alþýðuflokkurinn einhvern smávægilegan fjárstuðning frá dönskum jafnaðarmönnum. Morgunblaöið skýröi frá þess- um stuðningi með stórum orð- um og hótunum. Þá var það að Kristján Albertsson ritaöi fræga grein og andmælti Morgunblað- inu. Hann sagði þá meöal ann- ars, að alþjóöahyggja og bræðralagshugsjón jafnaöar- manna væri viröingarverð og út i hött að amast við henni. Kristján Albertsson hefur verið einaröur Sjálfstæðismaöur alla tlð. — Þegar Alþýðuhúsiö var reist veittu verkalýðshreyfing- arnar á Norðurlöndum fjár- stuðning. Viö honum tóku nokkrir þeirra manna, sem ver- ið hafa I forystusveit þeirra flokka er skópu Alþýðubanda- lagið. Peningar frá frænd- þjóðunufn. I samstarfi Norðurlandaþjóö- fyrir aö þiggja fjárstuðning frá _ verkalýðshreyfingunum á“ Norðurlöndum. Blaðiö hefur hins vegar aldrei andmælt, þeg- ar Alþýðusamband Islands hef- ur leitað eftir fjárstuðningi frá norrænum verkalýðshreyfing- um, þegar ASI hefur átt I hörö- um verkfallsátökum. Enda mun það mála sannast, að ekki eru allír Alþýðubandalagsmenn sammála ritstjórum Þjóðvilj- ans. Þeir eru auðvitað að reyna að gera Alþýðuflokkinn tor- tryggilegan svona rétt fyrir kosningar. Enginn láir þeim það I þeirri erfiöu stöðu, sem Alþýðubandalagið er I. Það hefur hins vegar aldrei þótt gæfulegt aö kasta steinum úr glerhúsum. Gamlir forystu- menn Kommúnistaflokksins, Sósialistaflokksins og Alþýðu- bandalagsins vita, að þessir flokkar hafa fengið fjárstuöning erlendis frá. Munurinn er bara sá, að frá honum hefur aldrei verið skýrt. Eða hvert skyldi hagnaöurinn af viðskiptum fyrirtækja Alþýðubandalagsins viö Austur-Evrópuþjóðir hafa runnið. Alþýðubandalagið hefur aldrei gert grein fyrir rekstri fyrirtækja sinna, en á því sviði er bandalagið mun umfangs- meira en flesta grunar. Alþýöu- bandalagsmennirnir vita sem er, að I þessum efnum er ekkert hægtaðsanna. Þó er undirrituö- um ekki grunlaust um, að fyrr en siöar muni einhver opna á sér munninn og segja sannleik- ann. Reiði Þjóöviljamanna I garð Alþýöuflokksins stafar einkum af þvi, að þeir sjálfir fá ekki þennan stuðning frá norrænum hreyfingar á hinum Norður- löndunum vilji styðja við bakiö á þvi svo það geti þjónað Is- lenzkri verkalýðshreyfingu. Getur það veriö, að Alþýðu- bandalagsmenn vilji stuðla að dauða annars blaðsins af tveimur, sem islenzk verkalýðs- hreyfing styðzt við? Varla er það I anda gömlu mannanna, sem reistu Alþýðuhúsið. Og vart geta fulltrúar verkalýðsfélag- anna unað þeirri stefnu Þjóö- viljans. En kannski munu Þjóðvilja- menn og Morgunblaðsmenn sameinast ámikilli sigurhátlð, ef Alþýöublaðið leggur upp laup- ana. Og ekki er „kratagullið” svo þungt að það nægi til að stuðla að útgáfu Alþýöublaösins nema rétt fram yfir kosningar. Þær tölur, sem Þjóðviljamenn hafa logið að lesendum sinum, eru fjarstæða. — Af viöbrögðum Þjóðviljans má ráða, að hann myndi ráðast af hörku gegn Al- þýðusambandi Islands, ef I ljós kæmi, að það fengi fjárhags- stuðning frá verkalýðshreyfing- um hinna Noröurlandanna. Eða hvað? Opið reikningshald Alþýöu- flokksins og umræðurnar um „kratagullið” hafa leitt til þess, að Þjóðviljamenn hafa orðiö aö gera nokkra grein fyrir fjár- reiðum sinum. Það hefur þó verið gert með þeim hætti, aö fleiri spurningum er ósvarað en áður. Nafnalistar með NN og ÞÞ segja ekki mikla sögu. Tölur um ágóða af happdrætti, sem ekkert eftirlit er meö, segja heldur enga sögu. Ekki hefur eitt einasta orö fallið um tekjur Þjóðviljans og Alþýðubanda- blaðið segir, að hann túlki skoðanir Marxista-Leninista. A meðan slik gagnrýni kemur fram getur Alþýðuflokkurinn unað glaður við sitt. Þáttur Morgunblaðs- ins. Morgunblaðið hefur að und- anförnu tekið undir blaðrið i Þjóðviljanum. Aður en Morgun- blaðið heldur lengra á þeirri braut ættu ritstjórar þess, að lesa bók Vilhjálms Finsen „Alltaf á heimleið”, þar sem hann lýsir þvi, ererlendir kaup- menn keyptu Morgunblaðið. Vilhjálmur segir frá þvi með miklum trega. Hann segir frá þvi, þegarhonum barst greiðsl- an i hendur fyrir hluta i Morgunblaðinu. Hún kom frá kaupmanni I Lundúnaborg og hún var i sterlingspundum. Hann segir, að erlendir kaup- menn hafi ekki aðeins viljað selja Islendingum vörur, þeir hafi einnig viljað eiga landið. Til þess, meðal annars, hafa þeir keypt Morgunblaðið. — En kannski er þetta bara liðin tið, sem Sjálfstæðismenn vilja gleyma. Þegar Morgunblaðið ræöir um erlendtfjármagn, sem renni til Alþýðublaðsins, skyldu rit- stjórarnir hafa hugfast að nokk- ur hluti tekna blaðsins kemur fyrir auglýsingar á erlendum vörum. Auglýsingareikningar af þvi tagi eru oftar en ekki greiddir með erlendu fé, sem umboðsaðilar fá samkvæmt ekki þeginn meö glöðu geði. Al- þýðublaðið hefur frá stoftiun stuðst við framlög flokksmanna og margir hafa lagt mikið af mörkum. Blaðið hefur enga aðrafjármagnsuppsprettu. Svo hart hefur verið i ári, að starfs- fólk fékk ekki iaun sín greiddsvo mánuðum skipti. Forystumenn flokksins gengust i svo miklar fjárskuldbindingar, að eignir þeirra komust undir hamarinn. Blaðið gat aldrei leitað til auð- magnsins eða Sambandsins. Framtið Alþýðublaðsins er nú mjög á huldu og allt eins vist, að það lifi ekki fram að 60 ára af- mæli sinu i lok þessa árs. Það verður ugglaust ihaldsöflunum i landinu til óblandinnar ánægju: ihaldsöflunum i Alþýðubanda- laginu og Sjálfstæðisflokknum. En af undarlegum rótum er runnin gleði Alþýðubandalags- mannanna. Viðbrögð þeirra sýna aðeins og sanna, að óskir og vonir lýðræðis-sósialista um meiri samvinnu innan verka- lýðshreyfingar og utan stranda enn á afturhaldssömum komm- únistum. Afstaða ihaldsins i Sjálfstæðisflokknum er skiljan- leg, þvi minni áhrif verkalýðs- hreyfingarinnar, þvi betra. — En Alþýðuflokkurinn hefur ekki hugsað sér að gefast upp. Stað- an eftir næstu kosningar mun móta afstöðu hans til útgáfu Al- þýðublaðsins. Vonandi munu is- lenzkir kjósendur ekki virða aö vettugi tilraunir flokksins til heiðarlegri og betri starfsemi islenzkra stjórnmálaflokka. Einmitt sú tilraun veldur gengdarlausum árásum and- stæðinganna á Alþýðuflokkinn. —AG—

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.