Alþýðublaðið - 22.04.1978, Qupperneq 4
4
Laugardagur 22.apríl 1978
Útgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Einar Sigurös-
son. Aösetur ritstjórnar er i Siöumúla 11, simi 81866. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild,
Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Askriftar- ,og kvartanasími: 14900. Prentun: Blaðaprent h.f.
Áskriftaverö 2000 krónur á mánuöi og 100 krónur I lausasöiu
Að fagna sumri
íslendingar hafa
fagnað nýju sumri. Að
venju eru miklar vonir
bundnar við þennan aðal-
bjargræðistima þjóðar-
innar, jafnt til sjávar og
sveita. Sumarið getur
orðið sögulegt fyrir
margra hluta sakir.
Framundan eru kosn-
ingar með öllu þvi bram-
bolti, sem þeim fylgir. Og
ekki þarf að minna á
óvissuna í efnahags-
málum og átök á vinnu-
markaði.
En sumarkoman ætti
að hvetja þjóðina til dáða,
styrkja hana í trúnni á
landiðog auðlindum þess.
Fátt er nú mikilvægara
en að efla samhetdni og
samstarf til lausnar á
þeim vandamálum, sem
hvarvetna blasa við.
Hefja þarf sókn til
útrýmingar h>/erskonar
gerviþörfum og óJhófi.
Um leið verður að stuðla
að meiri ráðdeild og
nægjusemi, sparnaði og
fjármálalegu siðgæði.
Ekki væri úr vegi að
forystumenn þjóðarinnar
sýndu einhvern lit. Þeir
kref jast þess, að þjóðin
dragi saman seglin, fari
að lögum og reglum og
taki á sig birgðar, sem
þvi fylgir að ráðast gegn
verðbólgunni. En for-
dæmi þeirra eru vægast
sagt af skornum
skammti.
Ekki hefur hvarflað að
ráðherrum og þing-
mönnum að lækka laun
sin sem nemur kjara-
skerðingu launþega í
landinu. Ekki dettur ráð-
herrum og bankastjórum
i hug að draga úr eigin
hlunnindum. Ekki kemur
frumkvæði frá þing-
mönnum um að greina
skatty f i rvöld um frá
ýmsum aukagreiðslum.
Þvert á móti notaði stór
hópur þingmanna sumar-
daginn fyrsta til að sitja
veizlu Landsvirkjunar við
Sigöldu og í Árnesi.
Þingmenn og ráðherrar
hafa setið fleiri veizlur,
t.d. vegna Kröflu, sem
ekki framleiðir eitt ein-
asta kílówatt af raf-
magni. Þessi fáránlegu
veizluhöld valda því, að
almenningur i landinu
tekur ekki hið minnsta
mark á varnaðarorðum
ráðamannanna.
Á sama tíma og íslend-
ingar eru hvattir til að
spara gera ríkisendur-
skoðendur athugasemdir
víð ríkisreikning vegna
óhóflegrar notkunar á
bílaleigubílum. Þannig
notaði Kröflunefnd tæp-
lega 11 milljónir króna
árið 1976 í biialeigubíla,
Orkustofnun um 54 millj-
ónir og Rafmagnsveitur
rikisins 94 milljónir. Allar
þessar tölur má tvöfalda,
ef reikna skal til verðlags
dagsins í dag.
Þetta eru aðeins nokkur
dæmi um þversagnirnar í
islenzku þjóðfélagi. Mörg
önnur væri hægt að telja
upp. Ef forystumenn
þjóðarinnar vilja, að
fólkið i landinu taki mark
á þeim, verða þeir i verki
að viðurkenna þann
vanda, sem við er að
glíma. ,,Það, serrr höfð-
ingjarnir hafast að, hinir
ætla sér leyfist það".
Sumarið er komið.
Vonandi hef ur veizlan við
Sigöldu ekki verið tákn-
ræn um framhaldið. Nú
væri ráð að hætta öllum
veizluhöldum og segja
gerviþörfunum stríð á
hendur. Um það verða
allir að sameinast, ef
unnt að vera að sigrast
á sameiginlegum óvini.
Stjórnmálamenn bera
mikla ábyrgð, og ef þeir
treysta sér ekki til að axla
hana, eiga þeir að vikja.
Sóun, sukk og flottræfils-
háttur er að koma þjóð-
inni á kaldan klakann.
Nýbyrjað sumar getur
valdið straumhvörf um,
ef rétt verður á málum
haldið.
—ÁG
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvcgi 3 — Sími 25800
Brynja í nýjum búningi
Húsnæöi by g g i ng a v ö r u -
verzlunarinnar Brynju hefur nú
verið fært i nýjan búning.
Komið hefur verið fyrir nýjum
innrét tingum og sjálfs-
afgreiðsla tekin upp.
Brynja er með elztu starfandi
verkfæra-, járn- og bygginga-
vöruverzlunum iandsins og má
geta þess að á næsta ári eru liðin
60 ár frá þvi að verzlunin var
settá stofn.
lí Útboð
Tilboö óskast i aö byggja skóladagheimili viö Völvufell I
Reykjavík. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fri-
kirkjuvegi 3, Reykjavik gegn kr. 10 þúsund skilatrygg-
ingu. Tilboöin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 9.
maí 1978 kl. 14.00.
Eirm þekktasti brúduleikhúsmadur
Rosers. Verður aðeins efnt til sunnudaginn 23. april i hátiðarsal
einnar sýaingar hér á landi, Hagaskólans. Hefst hún kl. 20.00.
heims í heimsókn
Hinn 22. þ.m. er lands einn þekktasti
væntanlegur hingað til brúöuleikhúsmaður
heims um þessar mund-
ir, þjóðverjinn Albrecht
Roser.
Roser kynntist
leikbrúðulist af tilviljun,
þegar hann 29 ára
gamall hóf að fást við
ýmsar listgreinar, m.a.
að skera út leikbrúður.
Hreifsthann svo af þeim
og þeim möguleikum
sem þær bjóða upp á, að
hann hélt ótrauður út á
leiklistarbrautina.
Samanstendursýning Rosers af
skopstælingu og látbragðsleik, en
þó einkum af dansi. Hann hefur
sérstakt dálæti á hinum grátbros-
lega heimi fiflsins og loddarans.
Enginn leiktjöld eru notuð né
leiksviðsútbúnaður, heldur eru
nokkur borð og upphækkaður
pallur allt og sumt. Þá er þessi
leikbrúðusýning einnig frábrugð-
in öðrum slikum að þvi leyti, að
hún er ekki ætluð börnum yngri
en 15 ára. Orsök er sú, að sýning
Rosers er mjög viðkvæm fyrir
öllum truflunum, og þvi ekki vel
til þess fallin að sýna hana yngsta
aldurshópnum.
Roser hefur ferðast viða um
heim með leikbrúður sinar, og
eru sýningarnar ekki háðar neinu
ákveðnu tungumáli, heldurer öllu
fremur verið að sýna einstök
atriði.
Það er Göthe-stofnunin, þýzka
bókasafnið og UNIMA á Islandi
sem standa fyrir hingaðkomu