Alþýðublaðið - 27.04.1978, Side 3
Fimmtudagur 27. apríl 1978
Manneldisfélag
íslands stofnad
Holl fæða
undirstada
gódrar heilsu
Það þarf að auka
skilning íslendinga á,
þeirri staðreynd að góð
fæða er undirstaða vel-
liðunar og góðrar heilsu.
i þessu skyni stendur til
að stofna Manneldisfé-
lag íslands. Stofnfundur
verður haldinn i kvöld i
stofu 101 Lögbergi, húsi
Lagadeildar Háskóla ís-
lands og hefst hann kl.
20.
Félagið á að vera vettvangur
skoðanaskipta fyrir áhugamenn,
veita fræðslu og koma á framfæri
upplýsingum um næringargildi
og hollustuhætti meðal þeirra,
sem vinna að framleiðslu, vinnslu
eða framleiðslu matvæla og
stuðla að nýtingu innlendra hrá-
efna til mannelrlis
Magnús A. Árnason afhendir Hrólfi Sigurðssyni styrkinn.
Styrkveiting úr minningarsjóði
— Mynd ATA
Barböru Árnason:
hlaut styrkinn
— Það er von min að
aðrir verði til að stofna
slíka sjóði um fleiri list-
greinar. Gunnar Gunn-
arsson hefur þegar
stofnað sjóð og leikarar
hafa minningarsjóð
Stefaniu Guðmundsdótt-
ur, sagði Magnús Á.
Árnason, en hann ásamt
Vifli syni sinum stofnaði
minningarsjóð um Bar-
böru Árnason listakonu,
árið 1976.
Fyrsta styrkveiting úr sjóðnum
fór fram þann 19. april s.l., en
þann dag hefði Barbara Arnason
orðið 67 ára gömul hefði hún lifað.
Það var Hrólfur Sigurðsson
myndlistarmaður semhlaut styrk-
inn að þessu sinni, en nafn hans
var dregið úr nöfnum þeirra 20
umsækjenda sem sóttu um styrk-
inn.
Minningarsjóður Barböru
Arnason var sem fyrr segir stofn-
aður 1976, en stofnfé var ágóði af
yfirlitssýningu á verkum Barböru
sem þeir feðgar gengust fyrir.
—GEK
hafípdrættisár!
100 bílar
Hér má sjá einn leiguhjalla Heykjavikurborgar. Um hús þetta, er mun eiga að standa til frambúðar,
segir svo i skýrslu Arbæjarsafns um Grjótaþorp, en skýrslan var samin undir stjórn Nönnu Her-
mannsson borgarminjavarðar 1976: „Klæðning að utan er mjög illa farin vegna viðhaldsleysis.
Gluggar eru flestir fúnir, gerekti horfin og blikk negltyfir karma”... ,,A 2. hæð eru 2 ibúðir, litlar og
hvorug góð. ,,Þá kemur og fram i skýrslunni að húsið þarfnast 50—80% endurnýjunar. Er það reynd-
ar engin furða þar eð það mun rúmlega 100 áragamalt. — Mynd:ATA
Jökull Jakobsson látinn
1 fyrradag lézt Jökull Jakobs-
son, leikskáld, i Borgarspitalan-
um i Reykj'avik og var bana-
mein hans hjartabilun. Jökull
var nýkomin utanlands frá, tii
þess að fylgjast með æfingum
vegna væntanlegs flutnings á
nýju leikverki, „Sonur skóarans
og dóttir bakarans. Er i ráði að
forsýningar á þvi verki verði á
Listahátið i sumar.
Jökull varð ungur kunnur fyr-
ir ritsmiðar sinar, en fyrsta
skáldsaga hans, „Tæmdur bik-
ar,”kom út, þegar hann var að-
eins sautján ára. Enn samdi
hann skáldsögurnar „Ormar”,
„Fjallið,” „Dyr standa opnar,”
og loks „Feiinóta i fimmtu sin-
fóniunni”, sem út kom fyrir jól
1976. Eftir Jökul liggur og smá-
sagnasafnið „Næturheimsókn.”
Þó er Jökull kunnastur fyrir
leikritun sina, en frumraun
hans á þvi sviði var,,Pókók”
(1960) Siðari verk voru „Hart i
bak,” (1963) „Sjóleiðin til Bag-
dad” (1965) „Sumarið 37”
(1968) „Dóminó” ( 1972),
„Klukkustrengir” (1973)
„Kertalog,” (1975), og loks
„Herbergi 213” (1975). Enn hafa
verið flutt i sjónvarpi og út-
varpi mörg verk eftir Jökul og
hann var vinsæll útvarpsmaður
um langt skeið.
AM
skýringar
I grein undirritaös er
birtist i blaðinu í fyrradag
undir fyrirsögninni:
Heilsuspillandi leiguhús-
næði: ,/Þetta er allt þræló-
löglegt" starfsmaður heil-
brigöiseftirlits á vett-
vangi: i greininni segir svo
m.a.: //En þó munu þeir
ekki einu sökudólgarnir í
þessum efnum/ þar á
mestur leigusali hérlend-
ur, Reykjavikurborg, einn-
ig nokkurn hlut að máli.
Reykjavíkurborg hefur á
sínum snærum 910 íbúðir,
af þeim 111 þeirra er kann-
aðar voru af heilbrigðis-
fulltrúa reyndust hvorki
meira né minna en 64 lé-
LADA SPORT í maí
ALFA ROMEO í águst
FORD FUTURA í október
Auk þess parhús í Hafnarfirði og fjöldi
annarra glæsilegra vinninga. Lægsti
vinningur 25. þúsund kr.
Sala á lausum miðum og endurnýjun
flokksmiða og ársmiða stendur yfir.
Dregið í 1. flokki 3. maí.
legar en 24 hreint og beint
slæmar."
Matthias Garðarsson heilbrigð-
isfulltrúi hafði samband við und-
irritaðan þá er greinin hafði birzt
i blaðinu og vildi koma á fram-
færi viðbótarskýringu við ofan-
greinda tilvitnun. Matthias sagði
það vissulega rétt sem i greininni
hefði staðið, en þvi hefði mátt
bæta.við að þær 111 ibúðir er heil-
brigðiseftirlitið lét kanna og eru i
eigu Reykjavikurborgar voru þær
ibúðir er taldar voru i lélegu á-
standi. Þannig að segja mætti að
af þeim 910 ibúðum er borgin leig-
ir út munu 64 hafa verið taldar lé-
legar, og 24 hreint og beint slæm-
ar.
En hér með þessari viðbótar-
skýringu heilbrigðisfulltrúa kom-
ið á framfæri við lesendur blaðs-
ins.
J.A.
Til frekari
Hrólfur Sigurdsson