Alþýðublaðið - 27.04.1978, Blaðsíða 7
7
immtudagur 27. apríl 1978
Minning
Gudmundína
Þorleifsdóttir
fædd 14. desember 1901
dáin 3. apríl 1978
Amma er dáin. Við barna-
börnin sitjum eftir hnipin og
sorgmædd. Erfitt er að triía
þessu og sætta sig við þá til-
hugsun. Amma hafði alltaf ver-
ið svo hraust. Amma fæddist að
Lykkju i Garði en ólst upp i
Garðbæ. Foreldrar hennar voru
hjónin Hólmfrlður Helgadóttir
og Þorleifur Guömundsson.
Systkinin voru alls 10 en aðeins 4
þeirra komust vel til fullorðins-
ára.
Amma fluttist til Hafnar-
fjarðar með foreldrum sinum
árið 1919 og átti þar ætíö siðan
heima.
Þann 28.júni 1924 giftist hún
Gunnari Jónssyni, f. 7.júni 1894,
d. 8.marz 1978. Þau voru mjög
samrýmd. Þau bjuggu fyrstu 3
árin hjá foreldrum afa, en fluttu
þá i eigið hús að Hellisgötu 22
sem afi hafði byggt að miklu
leyti sjálfur.
Þau eignuðust alls 5 börn, en
misstu dreng, Baldur, sex mán-
aða gamlan. Hin búa öll I
Hafnarfirði. Þau eru:
Þorleifur Hólm, giftur Guörúnu
Jónsdóttur, Jón Erlendur giftur
Olöfu Oskarsdóttur, Helgi giftur
Ingveldi Einarsdóttur og
Guðrún gift Gunnari Hólm-
steinssyni.
Amma var mikið ein með
börnin þar eð afi var langdvöl-
um á sjónum, þegar þau voru
ung. Hann stundaði sjómennsku
I nær 40 ár. Amma vann einnig
talsvert utan heimilis fyrr á
árum meðan harðast var i búi,
til að drýgja tekjur heimilisins.
Þau voru bæði góðir liðsmenn
verkalýðsfélaganna á þeim
árum.
Það var gott að koma til
ömmu og afa. Þau voru alltaf
glaðleg og góð. Amma var hæg-
gerö og hlédræg. Hún var engu
að sfður tilfinningarik en bar til-
finningar sinar ekki á borð þó
eitthvað bjátaði á. Hún var trú-
uð kona og setti traust sitt á
Guð, bæði i sorg og i gleði.
Amma og afi áttu fallegt og
snyrtilegt heimili og voru þau
samhent um að prýða það, en
umfram annað var það þó
hlýjan sem einkenndi það eins
og viðmót þeirra sjálfra.
Marga fallega muni gerðu
þau amma og afi bæði fyrir
heimilið sitt og til að gleðja með
börnin og barnabörnin. Þau
voru bæði listfeng vel.
I desember siðastliðnum
fluttu þau að Hrafnistu i Hafn-
arfirði og undu þau þar hag sin-
um vel.
Við barnabörnin og litla
barnabarnabarnið, sem enn er
svo litið, að hún skilur ekki hvað
hún hefur misst, spyrjum. Af
hverju. Við þvi fæst ekki svar.
Enginn má sköpum renna.
Lif þeirra var fagurt og
hamingjurlkt og við geymum
minningu um gæskurika ömmu
og afa.
Guð blessi minningu þeirra.
Erla Jónsdóttir
40 sjöttu bekkingar
úr Menntaskólanum á
Akureyri dvöldust i
höfuðborginni i siðustu
viku til að kynna sér
störf i ýmsum stofnun-
um og fyrirtækjum.
Dreifði liðið sér á ólik-
legustu staði, i
fangelsi, á Alþingi,
Landhelgisgæzluna,
heilbrigðisstofnanir,
fjölmiðla o.fl. o.fl. og
fylgdist með og tók þátt
i störfum þar i vikunni.
Hingað á Alþýðu-
blaðið kom Árni Daniel
Júliusson, ættaður úr
fegurstu sveit landsins,
Svarfaðardal. Árni
Daniel glímdi við
frétta- og greinaskrif
eins og aðrir blaða-
menn, á meðan á dvöl-
inni stóð, og þvi var
ekki óeðlilegt að byrja
á þvi að spyrja hann,
hvort hann gæti hugsað
sér að leggja blaða-
mennsku fyrir sig i
framtiðinni.
Arni Daniel Júllusson
— Dvölin hérna var auðvitaö
of stutt til að kynnast blaða-
mennsku nægilega vel, en mér
sýnist þetta vera þokkalegasta
starf. Ég tek t.d. eftir þvi, að þið
hérna vinniö fremur sjálfstætt
og virðist geta unnið mikið eftir
eigin höfði. Mér likaöi dvölin vel
og hér er hressilegt og gott
starfslið.
— Nú eru stúdentsprófin
framundan næstu vikurnar.
Hvað á svo að gera?
— Ég reikna með þvi að vinna
á Akureyri næsta sumar og vet-
ur. Það er ágætt að hvila sig frá
skóla og breyta til. Ætli ég fari.
ekki i fisk eða eitthvaö annað.
Siðan er meiningin að fara i Há-
skólann og velja trúlega félags-
visindadeildina. Annars er ekk-
ert endanlega ákveðið um fram-
haldið,sagði Árni Daniel Július-
son.
Við á ritstjórninni sendum
honum kveðjur góðar og þökk-
um samstarfiö. -ARH-
> <
Auglýsingasími
bladsins er
14906
Kynnti sér störf á Alþýðublaðinu í eina viku:
„Blaðamenriskan er
ágætt starf”
Getraunaspá Aiþýðublaðsins:
Við kveðjum og
þökkum fyrir
okkur
Jæja góöir hálsar.
Þetta verður síðasti
getraunaseðillinn á þess-
um vetri, því síðasta um-
ferð ensku deildar-
keppninnar fer fram á
laugardaginn kemur.
Sérfræðingur vor hefur
ekki náð þeim árangri,
sem hann bjóst sjálfur
við, en árangur hans er
samt sem áður vel viðun-
andi. Bezti árangur
vetrarins voru 10 réttir
(tvisvar) og sá lakasti 3
réttir. En algengast mun
hafa verið 6-7 réttir, en
Kr. 100
© The Footba!! League
Leikir 29. april 1978
Arsenál - Middlesbro
Aston Villa - Ipswich
Bristol City - Coventry
Everton - Chelsea . .
Leicester - Newcastle
Man. City - Derby ....
Norwich - W.B.A........
Nott'm Forest - Birming’n
Q.P.R. - Leeds .......
West Ham - Liverpool
Wolves - Man. Utd. ..
South'pton - Tottenham
1 X
það er einmitt niðurstað-
an i síðustu leikviku (7
réttir).
5 seðlar komu fram með 11 réttum og var vinn-
ingur á hvern miða 143.500 krónur. 87 voru með 10
rétta og var vinningur 3.500 krónur fyrir hverja röð.
Arsena I—Midd lesbro.
Arsenal mun aðöllum líkindum hljóta f jórða sæt-
ið í fyrstu deildinni að þessu sinni. Gott lið þeirra
verður tæpast í erfiðleikum með Middlesbro.
Heimasigur.
Aston Villa—Ipswich.
Villa hefur tekið sig verulega á undir lok tíma-
bilsins. Sú staðreynd og það, hve Ipswich er slakt á
útivelli sannfærir okkur um öruggan heimasigur á
laugardaginn.
Bristol City—Coventry.
Þessi leikur hefur ekki mikla þýðingu, það væri
helzt að Coventry reyndi að komast í eitt af f imm
efstu sætunum, en til þesseru ekki miklar líkur. Við
spáum jafntefli, en útisigri til vara (Fyrsti tvöfaldi
leikurinn).
Everton—Chelsea.
Everon heldur enn í vonina um að hljóta annað
sætiðifyrstu deildinni. Tapi liðiðá laugardaginn, er
sú von úti. Baratta Chelsea á botninum er þó mun
mikilvægari. Við spáum hörðum og jöfnum leik,
sem Everton vinnu að lokum. Heimasigur.
Leicester—Newcastle.
Derby er það lið, sem hef ur valdið áhangendum
sinum hvað mestum vonbrigðum í vetur. I liðinu er
valinn leikmaður í hverju rúmi, en þeir virðast bara
ekki ná saman. Við spáum því, að City vinni þennan
leik næsta auðveldlega.
Norwich—WBA.
Sem fyrr er sagt, tapar Norwich ekki mörgum
leikjum á heimavelli sínum en þeir hafa heidurekki
unnið marga leiki í seinni tíð. Við spáum jaf ntef li.
Nottingham Forest—Birmingham.
Forest er þegar orðið enskur meistari. Liðið, sem
kom upp úr annarri deild í fyrra, og það með harm-
kvælum og heppni mikilli. Yfirburðir Forest i
fyrstu deildinni í ár hafa verið makalaust miklir og
gæti munað um allt að 9 stigum á Forest og næsta
liði þegar upp verður staðið. Við spáum heimasigri.
QPR—Leeds.
QPR hef ur barizt hetjulega undanfarnar vikur en
fallhættan hefur vofað yfir liðinu um langt skeið.
Við spáum heimasigri en jafntefli til vara (Annar
tvöfaldi leikurinn).
West Ham—Liverpool.
West Ham stendur einnig f stórræðum þessa dag-
ana. Fall vofir yf ir liðinu og ekkert stig má tapast
ef liðið á að eiga nokkra möguleika á því að halda
sæti sínu I fyrstu deild. Við spáum heimasigri en
jafntefli til vara (Þriðji tvöfaldi leikurinn).
Wolves—Manchester United.
Ulfarnir eiga einnig í fallbaráttunni. Liðið hefur
leikið slaka knattspyrnu hluta vetrar og það á
tæpast skilið að halda sæti sínu í deildinni. Við
spáum útisigri en jafntefli til vara (Fjórði og síð-
asti tvöfaldi leikurinn).
Southampton—Tottenham.
Þetta er leikur vikunnar. Það væri grátlegt ef
Tottenham næði ekki að endurheimta sæti sitt i
fyrstu deildinni, en liðið hefur/Verið við topp ann-
arrar deildar í allan vetur.. Segja má, að Bolton og
Southampton séu næsta gulltryggð í fyrstu deildina
en baráttan stendur milli Brighton og Tottenham.
Við spáum jafntefli í leik þessum. ATA