Alþýðublaðið - 22.07.1978, Side 2
2
Laugardagur 22. júlí 1978 SBS"
alþýðu1
Ctgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaöur:
Arni Gunnarsson.
Aösetur ritstjórnar er i Siöu-
múla 11, sími 81866.
Prentun: Biaöaprent h.f.
Askriftaverð 2000 krónur á
mánuöi og 100 krónur í lausa-
sölu.
7T
Gamla
gufuradíóid”
Loks er runninn upp sá merki
dagur, að fyrsta skóflustunga
hefur verið tekin að nýju út-
varpshúsi. Vonandi líður ekki á
löngu þar til Ríkisútvarpið getur
f lutt í eigið húsnæði eftir áratuga
flæking á milli leiguhúsnæðis
víða um Reykjavíkurborg. —
Ástæða er til að þakka mennta-
m á I a r á ðh er r a, Vilhjálmi
Hjálmarssyni, þá ræktarsemi og
hlýhug, sem hann hefur sýnt
Ríkisútvarpinu og jafnframt
Gylfa Þ. Gíslasyni, fyrrverandi
menntamálaráðherra, sem á
verulegan þátt í því, að nú hef ur
verið hafist handa.
Ríkisútvarpið er ein merkasta
stofnun þessarar þjóðar. Það
hef ur meiri og sterkari tengsl við
allan almenning í landinu og er
stærri þáttur í hversdagslíf inu en
nokkur önnur sambærileg stofn-
un. AAargt mikilhæft fólk hefur
komið við sögu i þróun Ríkisút-
varpsins frá stofnun. Það hefur
menntað og frætt, skemmt og
glatt Islendinga og tekið þátt í
gleði þeirra og sorgum.
Hins vegar er því ekki að neita,
að þröngur húsakostur hefur
beinlínis staðið stofnuninni fyrir
þrifum á undanförnum árum.
Tiltölulega fámennu starfsliði er
ætlað að útbúa dagskrá frá
klukkan sjö að morgni og til mið-
nættis, alla daga ársins. Dag-
skráin hefur stöðugt verið að
lengjast og kröfur um fjölbreytt-
ari og vandaðri dagskrá komið
fram. En húsrýmið hefur ekki
aukist og tækjakostur verður
stöðugt úreltari.
Það er þvi höf uð f orsenda þess,
að hægt verði að gera betur,
breyta og bæta, að Ríkisútvarpið
fái betri aðstöðu. Húsbygging-
arsaga Ríkisútvarpsins er sorg-
arsaga. Fyrrverandi útvarps-
stjórar hafa gert ítrekaðartil-
raunir til að hef ja smíði útvarps-
húsa og jafnvel teikningar hafa
verið tilbúnar. Yfirvöld hafa
gengið af þessum tilraunum
dauðum, hirt fjármuni, sem til
hliðar hafa verið lagðir, en í stað-
inn verið tilbúin að skófla mikl-
um peningum í leigugjöld.
Tryggja verður að smíði út-
varpshússins gangi áfallalaust.
Ríkisútvarpið á sjálft all digran
byggingarsjóð, og væntanlega
verða honum ákveðnar tekjur til
framhaldsins. Jafnframt getur
stofnunin hugað að margvísleg-
um sparnaði í rekstri, sem þá
yrði talinn henni til tekna í
3S-
byggingarsjóð. — „Gamla guf-
uradióið" á kannski betri daga í
vændum.
Samningar
eða
hrossakaup
Ungir menn, sem byrja að
skipta sér af stjórnmálum, kom-
ast fljótlega að raun um það, að
hugmyndir þeirra um hrein-
skilna og opinskáa umræðu, eiga
erfitt uppdráttar.„Stjórnmál eru
litið annaðen stöðugir samningar
og málamiðlun", sagði hinn
merki st jórnmálamaður, Ey-
steinn Jónsson, í sjónvarpsvið-
tali. Auðvitað er þetta hárrétt.
En gera verður greinarmun á
samningum og hrossakaupum.
Samningum lýkur og hrossakaup
hefjast, þegar menn setjast við
samningaborð, án þess að vera
heilshugar í því að láta samninga
takast, gefa eitthvað eftir af
kröfum sínum og fá öðrum
f ramgengt.
I þeim efnum verður að ganga
hreint til verks. Látalæti og
hverskonar dráttur á því að kom-
ast að kjarna hvers máls er ein-
göngu til þess fallið að vekja tor-
tryggni og gera allar viðræður
erfiðari. Vandamálin bíða óleyst
og það eru þau, sem öll umræðan
á aðsnúast um. Sjálft valdataf lið
verður að biða betri tíma.
—ÁG—
AUGLÝSINGASTOFA KRISTlNAR 1«=^— 15.20
Enn eykur Olíufélagið þjónustu sína.
Nu i Nesti i
Olíufélagið hefur endurbyggt bensínstöð sína og verslun
í Fossvoginum og býður þar upp á fyrsta flokks þjónustu.
HRAÐVIRKAR RAFEINDADÆLUR
Eitt ár er síðan Olíufélagið tók að nota hraðvirkar
rafeindadælur á bensínsölustöðum sínum. Þeim fjölgar stöðugt og
nú bætist Nesti í Fossvogi í hóp þeirra.
RÚMGÓÐ VERSLUN
I versluninni, sem er helmingi stærri og rúmbetri en áður,
býðst nú fjölbreytilegt vöruúrval.
ÞVOTTAAÐSTAÐA
Og þvottaplanið, stendur sem fyrr, fyrir sínu.
VERTU VELKOMINN í FOSSVOGINN
Olíufélagið hf