Alþýðublaðið - 08.12.1978, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 8. desember 1978
alþýði blaðiö i- j
Útgefandi: Alþýöuflokkurinn Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er i Slöumúla 11, slmi 81866. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverö 2200 krónur á mánuöi og 110 krónur I Iausasölu.
Iðnaðurinn og aðrar
atvinnugreinar
Málefni iðnaðarins hafa mikið verið til umræðu
að undanförnu. Á það hefur verið bent hvað eftir
annað, að islenzkum iðnaði er ætlað það megin-
hlutverk að taka við stórum hluta þeirrar
aukningar á vinnuafli, sem hér kemur á markað
næstu árin.
Iðnaðurinn býr hvergi nærri við sambærileg
kjör og aðrar undirstöðugreinar atvinnulifs hér á
landi. Lán og styrkir til iðnaðar eru ekki nema
brot af þvi, sem sjávarútvegur og landbúnaður
fá. útlit er fyrir, að litil breyting verði á þessum
hlutföllum á næsta ári.
Iðnfyrirtæki eiga nú við ramman reip að draga
i fjármálum. Aðlögunartimi iðnaðarins vegna
tollalækkana aðildarlanda Friverzlunarsamtaka
Evrópu reyndist ekki nógu langur. Iðnaðurinn
hefur ekki náð að þróast i þá veru að hann sé fylli-
lega samkeppnisfær við erlendar iðnaðarvörur,
þótt mjög hafi miðað i áttina.
Aðrar þjóðir, sem aðild eiga að Friverzlunar-
samtökunum hafa beitt rangindum. Þær hafa
veitt iðnaði sinum stórfellda rikisstyrki, sem
islenzkur iðnaður fær ekki. Þetta er brot á þeim
lögmálum, sem gilda áttu, þegar samningurinn
um friverzlun aðildarlandanna var undirritaður.
Af þessum sökum er sú krafa Félags islenzkra
iðnrekenda um að fresta tollalækkunum um
næstu áramót, skiljanleg. Hún er hins vegar ekki
framkvæmanleg. Hún er beint brot á gerðum
samningum og myndi hafa i för með sér refsi-
aðgerðir, sem vafalaust myndu bitna mjög
harkalega á útflutningi sjávarafurða.
Hins vegar hefði fyrrverandi rikisstjórn og
núverandi átt að hefja samningaviðræður fyrir
löngu við Friverzlunarsamtök Evrópu og Efna-
hagsbandalagið um frestun þessara tollalækkana
á grundvelli þess, að iðnaður hér á landi hefði
ekki fengið nægan aðlögunartima og að Islend-
ingar hefðu verið beittir rangindum vegna rikis-
styrkja annarra þjóða til samkeppnisiðnaðar.
Nú hafa iðnrekendur lagt fram skynsamlegar
tillögur um stuðning stjórnvalda við iðnaðinn. Er
þar gert ráð fyrir 6% hækkun jöfnunargjalds og
6% innflutningsgjalds, er taki gildi um næstu ára-
mót og geti komið i stað niðurfellingar tolla.
Þessum tillögum verður að taka á jákvæðan hátt
og hraða mjög athugun þeirra, þvi skammur timi
er til stefnu.
í öllum umræðum um islenzkan iðnað verður
rikisvaldið að hafa i huga þann kjarna þessa
máls, að höfuðáherzla verði lögð á sjónarmið
arðseminnar, þegar fjárfestingarmál ber á
góma. Augljós er arðsemi i flestum greinum
iðnaðar, og það getur ekki gengið til lengdar að
iðnaðurinn sé hornreka, þegar kemur til fyrir-
greiðslu við atvinnugreinar i landinu.
Efling iðnaðarins er ein bezta trygging
þjóðarinnar fyrir nægri atvinnu. Aðrar atvinnu-
greinar taka ekki við meira vinnuafli á næstunni,
og jafnvel er fækkun mannafla í sumum þeirra
fyrirsjáanleg. En iðnaðurinn hefur þó dregist
aftur úr einmitt á kostnað annarra atvinnu-
greina.
—ÁG
Nýr
minnis-
peningur
í tilefni af hundruöustu ártlB
Jóns Sigurössonar, sem er i
desember 1979, hefur Hrafns-
eyrarnefnd látiö slá minnis-
pening, sem nú er boöinn til sölu.
Minnispeningurinn veröur seldur
i öllum ríkisbönkunum, spari-
sjóöum á Vestfjöröum og mynt-
sölum I Reykjavik. Ágóði af sölu
peningsins á aö renna öl fram-
kvæmda á fæöingarstaö for-
setans, en um þær er einkum
þetta aö segja:
A sinum tima var ráögert aö
byggja á Hrafnseyri hús, sem átti
aö vera prestsetur og barnaskóli
með heimavist fyrir börn úr
sveitum beggna megin Arnar-
fjaröar. Meiri hluti þessa húss
var byggður.
Siöan hafa mál skipast svo, aö
prestakallið er sameinaö ööru og
skólamál leyst á annan veg en þá
var hugsaö.
Hrafnseyrarnefnd er nú aö láta
ljúka byggingu hússins og er viö-
bótin komin undir þak. 1 nýja
hlutanum er kapella, sem jafn-
framt er þó miöuð viö almenn
fundahöld. En jafnframt þessuer
stefnt aö þvi aö koma upp á
Hrafnseyri minjasafni um Jón
Sigurösson og lifsstarf hans. Er
ætlast til, aö þessum fram-
kvæmdum veröi lokiö 17. júní
1980.
Sönglög
eftir Sigfús
Halldórsson
Sigfús Halldórsson hefur gefiö
út safn 59 sönglaga eftir sjálfan
sig. Þetta er endurútgáfa, og þó
mjög aukin, þvi þarna eru 13 ný
lög, sem ekki voru i fyrri útgáf-
unni. Allir kannast viö mörg létt
sönglög eftir Sigfús, þar nægir aö
nefna lög eins og Litlu fluguna,
Vegir liggja til allra átta, og Litilí
fugl á laufgum teigi.
Ljóöin, sem lögin eru samin
viö, eru eftir ýmis þekkt ljóö-
skáld, eins og Tómas Guömunds-
son og Stefán frá Hvitadal, og
ýmis önnur, sem minna eru
þekkt, eins og Sigurö Einarsson,
Vilhjálm frá Skálholti, Úlf Ragn-
arsson og Braga Sigurjónsson, —
svo aöeins séu nefnd dæmi. Slö-
asta lag bókarinnar er ekki samiö
viö ljóö, þaö heitir „Þökk”.
Bókin „Sönglög” eftir Sigfús
Halldórsson fæst á eftirtöldum
stööum: I Hljóöfæraverslun Poul
Bernburg viö Rauöarárstíg, Tón-
verkamiöstööinni viö Laufásveg,
Bókaverslun Lárusar Blöndal I
Vesturveri, og Bókaversluninni
Veda i Kópavogi.
Loðnuveið-
ar bannað-
ar frá 15.
desember
Ráöuneytiö hefur gefiö út
reglugerö, þar sem loönuveiöar
erubannaöarfrá 15. desember til
9. janúar n.k.
Bann þetta er sett til aö draga
úr sókn I loðnustofninn, en Haf-
rannsóknastofnunin hefur lagt til,
aö ekki veröi veidd meira en 1
miDjón lesta á timabilinu frá 1.
júll 1978 til 1. júll 1979. Er timi
þessi vallnn aö höföu samráöi viö
helstu hagsmunasamtök I veiöum
og vinnslu loönu.
Si áv a rút ve gs r á öu ney tiö,
23. nóvember 1978
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
——————
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur meö sjálfsafgreiðslu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL SAGA
Grilliö opiö alla daga. Mimisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miövikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ* " "
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Slmi 12826.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Vörumarkaðurinn hf.
I Ármúla
1 A.
Ingólfs-Café
Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.
Ert þú með bækur
í vanskilum frá
Bókasafni Kópavogs
í tilefni af 25. ára afmæli bókasafnsins á
þessu ári verða vanskila sektir felldar
niður af öllum bókum sem skilað er i des-
ember. Notið þvi tækifærið og losið ykkur
við gamlar vanrækslusyndir.
Bókasafn Kópavogs hefur opið alla virka
daga frá kl. 2-9 og laugardaga frá kl. 2-5.
Fyrir börn
FatnaÖur í úrvali. Leikföng í úrvali.
Húsgögn i barnaherbergi.
Opið til kl. 10 föstudag }
Opiö til kl. 6 laugardag