Alþýðublaðið - 09.02.1979, Qupperneq 1
alþýðu
Föstudagur 9. febrúar 1979, 29. tbl. 60. árg.
Grín eða alvara!
Alþýðublaðinu barst frumvarp
til laga um lausn
á efnahagsvanda þjóðarinnar.
Er þar m.a. lagt til að hver
landsmaður éti helmingi meira
af landbúnaðarafurðum en hann
hingað til hefur gert.
Sjá nánar á bls. 3
Er áfengislöggjöfin raunhæf aðhaldslög eða
steindautt plagg? Sjá grein á baksíðu
Að loknu fyrsta starfsári Borgarfjarðardeildar N.S.
Neytendasamtökin í Borgar-
firði geta ekki mælt með við-
skiptum við Ferðamiðstöðina hf.
— nema því aðeins að þessir aðilar sjái
að sér og sýni meiri sanngirni
Alþýðublaðinu hefur
borist fréttabréf frá
Borgarfjarðardeild
Neytendasamtakanna
og kemur þar eftirfar-
andi fram:
Eitt ár er nú liðið
frá þvi að Neytendasamtökin
hösluðu sér völl hér i Borgar-
firði, en 21. janúar á sl. ári var
haldinn hér fjölmennur
kynningarfundur sem var upp-
hafiðá þvi starfi sem hér hefur
veriðhaldið uppi. Þá vorufélag-
ar á starfssvæði deildarinnar 6,
en eru nú 123 og sýnir það best
hve mikilvægt er að hafa starf-
andi deildir sem víðast urn
landið, auk þess sem slikt fyrir-
komulag hefur sýnt sig að hafa
ótalmarga aðrakosti fyrirhinn
almenna neytanda.
Verðkannanir
Við timamót sem þessi er ekki
úr vegi að staldra við og rifja
upp ihverjumeginstarf deildar-
innar hefur veriö fólgiö. tJtgáfa
fréttabréfsins hefur að öðru ó-
löstuðu verið viöamestur og
fjárfrekastur. Bréfi þessuhefur
veriðdreifti öll hús á svæði sem
afmarkast af Hafnarfjalli að
sunnan verðu og vestur á
Breiöuvik. Eflaust má deila um
gildi verðkannanna sem þarna
hafa birst, en þess má geta að i
nokkrum tilfellum hefur vöru-
verð fengist lagfært i framhaldi
af þessum verðkönnunum. Auk
þess er visst samstarf á milli
Neytendasamtakanna og verð-
lagseftirlitsins og fær deildin
allar tilkynningar þaðan um
samþykktir verölagsnefndar
um nýtt vöruverð. Hér er einnig
rétt að geta þess að aðeins hluti
af þeim vörutegundum sem við
könnum, birtist f fréttabréfinu,
en að sjálfsögðu könnum við
réttmæti vöruverös á öllum
þessum vörutegundum sem eru
um 100 talsins.
Kvörtunarþjónusta
Annar stór hluti i starfinu er
kvörtunarþjónustan og eins og
áður hefur verið getið er árang-
ur þar mjög góöur, öll mál unn-
ist aö einu undanskildu, mál
sem varðar Ferðamiöstöðina
h.f., en unnið er i þvi máli nú.
Þvimiður er staða þess máls nú
súog þá sérstaklega framkoma
forstöðumanns þessarar ferða-
skrifstofu þannig með ein-
dæmum, að stjórn Borgar-
fjarðardeildar Neytendasam-
takanna getur ekki mælt með
viðskiptum við þessa ferða-
skrifstofu, nema þá aðeins að
þessi aðili sjái að sér og sýni
meiri sanngirni.
Pétur Snæland h.f.
brást vel við
Sem beturferer það þó svo að
flestir þeir aðilar sem deildin
hefur þurft að hafa afskipti af,
sýna miklu meiri skilning og
sannar það að þeir taka fullt
mark á hinum frjálsu samtök-
um neytenda. Hérmá t.d. nefna
fyrirtækið Pétur Snæland h.f.,
en einn félagi deildarinnar
keypli þar vöru nýlega sem
reyndist vera litilsháttar gölluð,
galli sem reyndar sást varla
Bætur þær sem kaupandi fékk
voru þannig, að þær eru fyrir-
tækinu til sóma og væri vonandi
að önnur fyrirtæki sýndu um-
kvörtunum kaupenda jafnmik-
inn skilning og sanngirni.
Réttur neytandans?
Annar hluti i starfi kvörtunar-
þjónustunnar er könnun á ýms-
um fyrirspurnum um vöruverð
og margt fleira, t.d. réttindi
neytenda. En þvi miður er það
svo að allt of oft er leitað til okk-
ar þegar neytandinn hefur sætt
Framhald á bls. 3
Geymslukostnaður smjörfjallsins
1000 milljónir á ári
Nú munu vera i landinu birgð-
ir af um 1400 tonnum af smjöri.
Það er álit manna er til þekkja,
að ef svo fer fram sem horfir
verði birgðirnar um 2000 tonn að
ári. Þá fékk Alþýöublaðið það
staðfest hjá Stéttarsambandi
bænda að geymslukostnaður
vegna 1 kilós af smjöri muni
nema um 600 kr. á ári.
Geymslukostnaðurinn mun
vera margþættur svo sem hús-
næðiskostnaður, lánakostnaður
ofl. Ef lögð er til grundvallar sú
meöaltals aukning sem spáð er
að verði á smjörfjallinu á næsta
ári, þá má reikna með að meðal
birgðir ársins verði um 1700
tonn. 1700 tonn eða 1700000 kg
munu þá valda geymslukostn-
aðiá næsta ári upp á 1040 miljón
ir króna. Stjórnvöld með land-
búnaðarráðherra i broddi fylk-
ingar munu hafa uppi áform um
að draga úr framleiðslunni, en
gárungarnir segja að bændur
hafi séð við yfirvöldum þegar
þauboðuðu hækkun á kjarnfóðri
með skattlagningu, þá hafi
bændur fundið aur hér og þar og
hamstrað kjarnfóöur.
Það kom fram i viðtölum sem
Alþýðublaðið átti við seljendur
kjarnfóðurs, að salan hafi verið
töluvert meiri i desember en á
sama tima áður, hins vegar
hefði breyting orðið á nú i janú-
ar frá þvi sem var i desember
og mætti segja aö salan nú væri
eölileg miðað við árstima. Þá
má i þessu sambandi geta þeirr-
ar þróunar sem átt hefur sér
stað á notkun kjarnfóðurs hér-
lendis. Samkvæmt skýrslum
Stéttasambands bænda kemur
fram i reikningum fyrir sk. bú-
reikningsbú að á árinu 1975 hafi
meðal notkun kjarnfóðurs á ær-
gildi numiö 26,5 kilóum. Hins
vegar hefði kjarnfóðurnotkunin
numið 37,5 kilóum á ærgildi áriö
1977.
Þá mun ástand mála i land-
búnaðinum viðar vera háska-
legt. Heyrst hefur að fram-
leiðsla siðasta árs hafi verið slik
á landbúnaðarafuröum að i stað
6 milljarða I útflutningsbætur
eins og lög leyfa og ætlað er á
fjárlögum þessa árs þá muni
þurfa að tvöfalda þá upphæð og
nemi hún um 12 milljörðum.
Ef af yrði þá næmu útflutn-
ingsbætur einar saman um 3
milljónum króna á hvern bónda
i landinu. Þá gefur það auga leiö
aö við svo búiö veröur ekki un-
aö, þvi verður aö fara fram at-
hugun á þvi hver erlendur til-
kostnaður sé við landbúnaðar-
framleiðsluna. Þegar sá kostn-
aöur er fenginn sést hve núver-
andi landbúnaöarstefna er hag-
kvæm fyrir þjóöarbúið.
B.
VÖRUTEGUND KJÖRBÓÐ KB VÖRUMARKAÐUR KB NESKJÖR VERSLUN JÓNS EGGERTSS
Sykur 2 kg 378.- 341.- 340.- 340.-
Flórsykur, dansulcker 1/2 kg. 153.- 162.- 150,- 153.-
Púiursykur, brun farin 1/2 kg. 194.- 179.- - 149.r
Hveiti Robin Hood 10 lbs.974.- Robin Hood - 5 lbs. 432.- 10 lbs. 864,- Pillsburys 10 lbs.900.- Pilsburys 10 lbs.820.-
Pama hrismjöl 350 gr. 243.- 219.- 233.- 225.-
Kartöflumjöl 1 kg. 249.- 266.- 300.- 220,-
Rúgmjöl 2 kg. 411.- 2 kg. 391.- 5 kg. 725.- 2 kg. 290.- 1 kg. 138.- 2 kg. 276.-
River Rice hrísgrjón 454 gr. ' 186.- 168.- - 175.-
Cheerios 198 gr. 326.- - 330.- 300.-
Coco Puffs 226 gr. 456.- - 456.- 430.-
Royal lyftiduft 450' gr. 435.- 383.- 307.- 456.-
Vanilludropar 90.- - 90.- 85.-
Kókósmjöl 100 gr. 137.- 171,- - 160.-
Royal vanillubúöingur 90 gr. 117.- 105.- 104.- 110.-
Vilko súpa 264.- 230.- 201.- 195.-
Holts mjólkurkex 250 gr. 199.- 173.- 198.- 195.-
Frón mjólkurkex 400 gr. 300.- 226,- - 270.-
Frón kremkex 305.- 254.- 279.- 335.-
Franskbrauð 140.- - 136.- 130,-
Grænar baunir, stór dós Coop 364.- Coop 318.- K.jónss.317.- ORA 327.-
Tómatsósa, 340 gr. Libbys 268.- Coop 240.- Libbys 260.- Libbis 340,-
Egg 1 kg. 1.170.- - 1.100.- 750,-
Bananar 1 kg. 480.- - 360,- N 360.-
Epli 1 kg. 420.- - 430.- 400.-
Appelsínur 1 kg. 440.- - 425.- 420.-
Vex þvottaefni 3 kg. 1.542.- 1.384,- 1.450.- -
C-ll þvottaefni 3 kg. i 1.630,- 1.376,- 1.360.- 1 kg.í L.422.- 3 kg. 1.266,-
Þessa verökönnun geröi Borgarf jaröardeild Neytendasamtakanna 30. januar s.l. 1 henni kemur f ram aö verslun Jóns Eggertssonar býður upp á hagstæðustu kjörin. Td. má benda á aö hjá Jóni kostar eitt kg. af eggjum kr. 750 en aftur á móti 1170 í Kjörbúðinni, eða kr. 420 i m;..mun. Fyrir þennan mismun má kaupa t.d. eitt kg. af eplum. Meö þvi aö gefa sér örlitinn tima til aö skyggnast ofan í þessa könnun getur fólk sparað sér mikinn pening.