Alþýðublaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 30. ágúst 1979 St. Jósepssprtali — Landakoti Hjúkrunarfræðingar, stöður eru lausar til umsóknar strax á lyflæknis-, og hand- lækisdeildum. Hlutavinna kemur til greina. Einnig er deildarstaða laus á skurðstofu. Hjúkrunarfræðing vantar á uppvakn- ingardeild i hlutavinnu. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu hjúkrunarfor- stjóra milli kl. 11 og 15. St. Jósepsspitalinn Landakoti. Frá Flataskóla Garðabæ Skólinn tekur tii starfa mánudaginn 3. september. Aimennur kennarafundur verður mánudaginn 3. sept. kl. 9.00 árdegis. Arganga- og skipulagsfundir verða 4., 5. og 6. sept. og hefjast kl. 9.00 f.h. alla dagana. Nemendur komi i skólana föstudaginn 7. sept. sem hér segir: Flataskóli: 6. bekkur kl. 9 f.h. 5. bekkur kl. 10 f.h. 4. bekkur kl. 11 f.h. 3. og 2 bekkur kl. 13.00 1. bekkur kl. 14.00 6 ára börn komi kl. 10.30 f.h. Ath. öll 6 og 7 ára börn úr Silfurtúni sækja Flataskóla I vetur. Hofstaðaskóli: 3. bekkur kl. 9 f.h. 2. bekkur kl. 10 f.h. 1. bekkur kl. 11 f.h. 6 ára börn komi kl. 13.00 Innritun nýrra nemenda fer fram I Flataskóla daglega frá kl. 10.00—12.00 og kl. 13.00.-15.00 slmi 42756. Nýir nemendur hafi með sér skilriki frá öðrum skólum. Nemendur, sem fiytja, tilkynni brottflutning sinn nú þeg- ar. FRÁ Nýja tónlistarskólanum Skólinn verður settur 15. september. Kennslugreinar: Forskóli fyrir börn 6 til 8 ára, pianó, orgel (sigilt), strokhljóðfæri, söngur. Eldri nemendur staðfesti umsóknir sinar fyrir 1. sept. Tekið á móti nýjum umsóknum um skóla- vist frá 3. til 7. september. Skrifstofa skólans i Breiðagerðisskóla er opin milli kl. 5 og 7, simi 39210. Skólastjóri Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum i oliukatla fyrir kyndi- stöð Höfn i Hornafirði. Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavik, frá og með fimmtudeginum 30. ágúst 1979. Tilboðin verða opnuð mánudaginn 17. september kl. 14.00, að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS FRÁ MENNTASKÓLAN ÍIM VID HAMRAHLÍÐ Nýnemar komi til viðtals föstudaginn 31. ágúst kl. 10. Kennarafundur sama dag kl. 14. Skólasetning laugardag l.sept. kl. 10. Stundaskrár afhentar að henni lokinni. Kennsla hefst 3. sept. skv. stundaskrá i dagskóla og öldungadeild. Styrktarfélag vangefinna á Austurlandi: Mikið starf í gangi Nýlega afhenti kvenfélagið Bláklukkur á Egilsstöðum 500 þús. kr. og kvenfélagið i Fella- hreppi 300 þús. kr. Hamrahliðarskólinn i Reykja- vik hélt söngskemmtun á Egiils- stöðum fyrir nokkru og gaf ágóðann, hátt á þriðja hundrað þúsund kr. til Vonarlands. Att- hagasamtök Héraðsmanna hafa gefið kr. 172.681. Úr dánarbúi Láru Jónasdóttur frá Bakka i Reyðarfirði hafa borist kr. 500 þús, sem systkini hennar hafa afhent og er samkv. ósk hennar i minningu foreldra þeirra Jónasar Bóassonar og Valgerðar Bjarnadóttur. Séra Þórir Stephensen dómkirkjuprestur i Reykjavik hefur afhent S.V.A. kr. 262.467, sem eru samskot sem inn komu á fjölskyldusamkomu, haldinni i tilefni barnaársins, þ. 11. mars si. Þá hafa borist stórgjafir til Vonarlands frá félögum og ein- staklingum i Neskaupstaö og hefur veriö nánar sagt frá þvi i einu blaði áður. En þar er um að ræða yfir 1,1 millj. kr. i pening- um. Ennfremur hefur veriö samiö við verkstjóra i frystihúsi Sildarvinnslunnar h.f. i Neskaup- stað um það , að þeir sem vilja gefa dagsverk til Vonarlands, megi koma og vinna, er þeir vilja. Þeir sem hafa áhuga á þessu, geta snúið sér til verkstjóranna. öllum sem hér eiga hlut að máli skulu færöar innilegustu þakkir. Þess má að lokum geta að aöal- fundur Styrktarfélags vangefinna á Austurlandi var haldinn á Seyðisfirði sunnudaginn 26. ágúst. Þorsteinn Sigurðsson tal- kennari var gestur fundarins og flutti erindi. Styrktarfélag vangefinna á Austurlandi var stofnaö 30.júni 1973. Strax á stofnfundinum var gerð ályktun um könnun á þörf fyrir hjálparstofnum fyrir van- gefna á Austurlandi og athugun á möguleikum á stofnun slikrar aðstöðu, ef þörf reyndist fyrir hana. Þörfin reyndist vera fyrir hendi, og tók félagið þá aö vinna markvisst að þvi að koma upp slikri hjálparstofnun. Jafnframt var hugað að þvi mikilvæga atriði, að sérmenntað fólk yrði þar tiltækt til starfa. Hefur félagið i þessu augnamiði styrkt fólk til sérnáms i þjálfun og umönnun vangefinna. Vistheimili félagsins fyrir van- gefna var valinn staður i Egils- staðakauptúni og gefið nafniö Vonarland. Byggingarnefnd heimilisins var kosin 8.júli 1974. Mikið starf fór fram, áður en framkvæmdir við byggingu gátu hafist og f jármálin hafa ætið veriö erfið viðureignar og dregið fram- kvæmdir á langinn. En þann 7.ágúst 1977 var tekin fyrsta skóflustunga að byggingu Vonarlands. Þá hófust fram- kvæmdir viö fyrsta áfanga af þremur, sem þar eru fyrir- hugaðir. Alls eiga að risa sex hús á byggingarsvæði Vonarlands, en i fyrsta áfanga eru tö hús, annað þeirra með kjallara, og ennfremur kjallari þriðja hússins, þar sem verður kynding og áhaldageymsla. Þessum fyrsta áfanga tilheyrir einnig að ganga frá nær allri lóöinni að fullu svo og leiktæki. Fyrsti áfanginn er þvl nokkru stærri og kostnaðarmeiri en hinir tveir, en þeir þurfa að fylgja fast i kjöl- farið, svo að vistheimilið komi sem fyrst að þvi gagni, sem þvi er ætlað. 1 húsunum tveimur i fyrsta áfanga er rými fyrir átta vist- menn og auk þess aöstaða fyrir stjórnun, æfingar og kennslu. Stærð hvers húss um sig er 210 ferm. t upphafi var áætlaö, að unnt yrði að ljúka fyrsta áfanga á einu ári, en fyrirsjáanlegt er nú, að framkvæmdir dragast töluvert á þriðja ár. Er þar fyrst og fremst þvi um að kenna, að fjárframlög hins opinbera hafa verið of lág og minni en vonir stóðu til. En Vonarland er byggt fyrir opinbert fé og verður opinber eign. Lionsklúbbarnir á Austurlandi hafa tekið að sér að styrkja félagið við byggingu litillar yfir- byggðar sundlaugar við Vonar- land. I sumar er fyrirhugað að grafa fyrir lauginni og steypa upp grunn hennar. Þaö verk munu félagar I Lionsklúbbnum Múla i Fljótsdalshéraði annast i sjálf- boðavinnu. Hönnun vistheimilisins hefur annast Teiknistofan Óðinstorg, þ.e.a.s. arkitektarnir Vilhjálmur og Helgi Hjálmarssynir og Vifill Oddsson verkfræðingur. Reynir Vilhjálmsson, landslagsarkitekt hefur séð um skipulag lóðar. Húsiðjan h.f. á Egilsstöðum er byggingarverktaki vistheimilis- ins og sér um alla þætti fram- kvæmda. Styrktarfélagið og fjölmargir aðilar aðrir á Austurlandi vinna stöðugt að fjársöfnun fyrir vist- heimilið og þá sérstaklega til hús- búnaðar og ýmissa tækja. Félaginu berast stöðugt gjafir og áheit. Sérstaklega hafa kvenfélögin og lionsklúbbarnir átt stóran þátt i að styrkja félag- ið. Að undanförnu hafa félaginu borist stórgjafir auk þeirra sem áður hefur verið sagt frá. Útvarp í kvöld kl. 20.40: „Maðurinn, sem seldi konu sína” — eftir Anton Tsjekhov Fimmtudaginn 30. ágúst kl. 20.40 verður flutt leikritið „Maðurinn sem seldi konuna sina”, gamansamt verk byggt á sögu, eftir Anton Tsjekhov. Þýð- andi er Ólafur Jónsson, en Helgi Skúlason annast leikstjórn. Með meiri háttar hlutverk fara þau Steindór Hjörleifsson, Helga Bachmann, Gisli Halldórsson og Róbert Arnfinnsson. Gitarleikari er Gunnar Jónsson. Flutningur leikritsins tekur tæpar 70 minút- ur. Það var áður á dagskrá út- varpsins árið 1961. Spiridon Nikolajevits er blaða- maður. Hann er góður vinur Rogovfjölskyldunnar, einkum þó konu Rogovs, Lisu Mikhailóvnu. Hún á raunar fleiri aðdáendur, og von er að slikt fari i skapið á Rog- ov. En hann þarf á peningum að halda og geti hann grætt á konu sinni, hikar hann ekki við að selja hana. Anton Paviovitsj Tsjekhov fæddist i Taganrog I Suður-Rúss- landiáriö 1860. Hann stundaði nám i læknisfræði og fór snemma að skrifa i blöö og tímarit. Tsjekhov samdi fjögur stór leikrit og all- mörg smærri, en auk þess fjölda smásagna, sem margar hverjar hafa verið þýddar á islenzku. Um margra ára skeið hafði Tsjekhov nána samvinnu við Listaleikhúsið I Moskvu, og ein af leikkonum þess varð eiginkona hans. Hann veiktist af berklum á unga aldri og baröist löngum við þann sjúk- dóm, unz hann léstsumarið 1904 i Badenweiler i Þýskalandi. Útvarpið hefur flutt allmörg leikrit eftir Tsjekhov, og nokkur hafa verið sýnd hér á leiksviði. Kennara vantar að Barnaskóla Vestmannaeyja. Gott húsnæði i boði. Upplýsingar veitir skólastjóri i sima 98- 1944 eða heima i sima 98-1793. Skólastjóri IRI í|i Frá Borgarbókasafninu BreytUr afgreidslutimar AÐALSAFN — ÚTLÁNSDEILD, Þing- holtsstræti 29a. Opið mánud. — föstud. kl. 9-21, laugar- daga 13-16 AÐALSAFN — LESTRARSALUR, Þing- holtsstræti 27. Opið mánud. — föstud. kl. 9-21, laugar- daga 9-18, sunnudaga 14-18. BÚSTAÐASAFN — ,Bústaðakirkju, Opið mánud. —• föstud. kl. 9-21, laugar- daga 13-16.. Fjarhitun Vestmannaeyja óskar eftir tii- boðum i lagningu 8. áfanga hitaveitu- dreifikerfis. Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrif- stofunum Vestmannaeyjum og verkfræði- stofunni Fjarhitun h.f. Reykjavik gegn 30 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð i Ráðhúsinu Vest- mannaeyjum þriðjudaginn 4. september kl. 16.00 Stjórn Veitustofnana Vestmannaeyjabæj- ar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.