Alþýðublaðið - 30.08.1979, Qupperneq 3
Fimmtudagur 30. ágúst 1979
3
alþýðu
írrFr>Tr.j
Framkvæmdastjóri: Jóhannes
Guömundsson
Abyrgöarmaöur: Bjarni P.
Magnússon
Ritstjórnarfulltrúi: Guöni Björn
Kjærbo
Auglýsingar: Ingibjörg Siguröar-
dóttir
Dreifingarstjóri: Siguröur Stein-
arsson
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru aö
Siöumúla 11, Reykjavik, simi
81866.
1 Reykjavikurbréfi Morgun-
blaðsins á sunnudag er þvi
haldið fram, að Alþýðuflokk-
urinn sé að efna til óvinafagn-
aðar milli skattgreiðenda i
þéttbýli og framleiðenda land-
búnaðarafurða.
Hér er um að ræða rakalaus
ósannindi. Hér getur verið átt
við tillögur þær, sem Eiður
Guðnason lagði fram i svo-
kallaðri harðindanefnd. Eiður
Guðnasonlagði einfaldlega til,
að 1.5 milljarður króna yrði
færður til framleiðenda land-
búnaðarafurða frá skatt-
greiðendum. En jafnframt
yrði bundið i áætlunina að
þreifa sig hægt og sigandi frá
hinu skefjalausa kerfi útflutn-
ingsbóta, sem kostað hefur
skattgreiðendur of fjár á
undanfömum árum.
Hér var um að ræða bæði
ábyrgar og skynsamlegar til-
lögur. Þvi má ekki gleyma, að
kerfið i landbúnaðarfram-
leiðslunni er svo brjálað, að
svokallaður vandi i landbún-
aði, sem harðindanefnd var að
fjalla um, stafaði fyrst og
fremst af þvi, að árið 1978 var
einstakt góðæri i landbúnaði.
Þess vegna var framleitt mikl-
um mun meira en þörf var
fyrir á innanlandsmarkaði, og
miklum mun meira en rúmað-
ist innan marka þess útflutn-
ingsbótakerfis, sem gilt hefur
undanfarin ár.
Það sér hvert barn, að þegar
framleiðslukerfi er svo upp
byggt, að góðæri leiðir til
meiri háttar vandræða, þá eru
skekkjumar orðnar yfirgengi-
legar. Það er þessu kerfi sem
verður að gerbreyta. Breyt-
ingar á þessu kerfi, sem
miðuðu að þvi að hverfa hægt
og i áföngum frá uppbóta- og
styrkjakerfi, þjóna auðvitað
baeði neytendum og fram-
leiðendum, þegar til lengri
tima er litið.
Þvi má ekki gleyma, að
verulegur hluti landbúnaðar-
framleiðslunnar nýtur engra
styrkja, niðurgreiðslna eða
uppbóta. Hér er átt við til-
dæmis svina- og kjúklinga-
rækt, eggjaframleiðslu og yl-
rækt. Þessar atvinnugreinar
hafa gengið mjög þokkalega,
þar hafa orðið örar framfarir,
og vert er að hvetja aðstand-
endur þessara búgreina enn til
dáða.
Hins vegar segir sig sjálft,
að öll samkeppni á þessum
markaði hlýtur að vera bæði
óheilbrigð og óeðlileg, þegar
hluti landbúnaðar nýtur stór-
kostlegra rikisstyrkja. Slikt
hlýtur að hafa óæskileg áhrif á
neyzluvenjur og þróun neyzlu.
Verð á svinakjöti annars
vegar, og nautakjöti hins
vegar, er auðvitað engan veg-
inn sambærilegt, þegar
framleiðendur annarrar vöm-
tegundarinnar njóta mikilla
rikisstyrkja i margþættu
formi, en framleiðendur hinn-
ar tegundarinnar njóta engra
slikra styrkja. Ekki er óliklegt
að neytendur vildu haga sér
allt öðru visi, ef meiri jöfnuður
væri með tilliti til framleiðslu-
skilyrða.
Landbúnaðarstefna fram-
sóknar og ihalds hefur
haldið niðri lifskjörum á
íslandi um árabil. Þegar
Morgunblaðið ræðst að
Alþýðuflokknum vegna land-
búnaðarmála, þá á það sér
hins vegar aðrar orsakir,
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið svo rótklofinn i þessum
málaflokki, að þar er um að
ræða tvo stjórnmálaflokka en
ekki einn. 1 þéttbýli þykjast
þeir vera sérstakir talsmenn
skattgreiðenda. í dreifbýli
ástunda þeir hins vegar að
yfirbjóða rikisstyrkjastefnu
Framsóknarflokksins. Fyrir
vikið hefur landbúnaður á
íslandi þróast i ranga átt, til
tjóns fyrir bæði bændur og
neytendur.
Talandi dæmi um þennan
klofning i Sjálfstæðisflokknum
er yfirmáta vandræðalegt álit
Steinþórs Gestssonar i
harðindanefnd. Hann leggur
að visu til, ásamt með fulltrúa
Framsóknarflokks og Alþýðu-
bandalags, að 3 milljarðar
verði færðir frá skatt-
greiðendum til framleiðenda
landbúnaðarafurða. Hins
vegar leggur hann jafnframt
til að þessir fjármunir verði
útvegaðir á annan hátt en með
skattheimtu!!
Þessi afstaða er afstaða
Sjálfstæðisflokksins i land-
búrtaðarmálum i hnotskurn.
Þeir eru borubrattir þegar
þeir segja við bændur, að enn
eigi að auka til þeirra styrki.
Þeir eru borubrattir þegar
þeir segja við skatt-
greiðendur, að það eigi að
lækka skatta.
En Morgunblaðið veit sem
er, að þegar til lengdar lætur
sjá bæði bændur og skatt-
greiðendur i gegn um þennan
ómerkilega málflutning.
Árásir Morgunblaðsins á
landbúnaðarstefnu Alþýðu-
flokksins skipta þess vegna
engu meginmáli. Stefna
Alþýðuflokksins i landbún-
aðarmálum er vel þekkt. Bæði
bændur og skattgreiðendur
geta gengið að henni visri.
Hvorki bændur eða skatt-
greiðendur hafa hins vegar
hugmynd um hver er stefna
Sjálfstæðisflokksins i bessum
efnum. —VG.
Abyrg landbúnaðarstefna
Aðalfundur Náttúruvemdarsamtaka Austurlands 1979:
FMMHAIDSVINNA V»
nAttúruminiaskrá
— og undirbúningur friðlýsingar næstu verkefnin á komandi starfsári
Náttúruverndarsamtök
Austurlands — NAUST — héldu
aöalfund sinn viö Snæfell i skála
Feröafélags Fljötdalshéraös dag-
ana 18. og 19. ágúst og sóttu hann
75 manns, félagar i samtökunum
og gestir þeirra frá flestum
byggöarlögum á Austurlandi. Var
ekiö aö Snæfelli um Hrafnkelsdal
og fræöst i leiöinni um byggöa-
sögu dalsins af Sveinbirni Rafns-
syni, Siguröi Þórarinssyni og
Stefáni Aöalsteinssyni, er voru
þar staddir viö forleifarannsókn-
ir. Viö Snæfell var dvaliö i tvo
daga i hagstæöu veöri og fariö i
gönguferöir á f jallið og um Eyja-
bakkasvæöiö og greindi Oddur
Sigurösson jaröfræöingur frá
mótun svæöisins og jarösögu. A
kvöldvöku greindi Skarphéöinn
Þórisson llffræöingur frá um-
fangsmiklum rannsóknum, sem
hófust I sumar á hreindýrastofn-
inum, en mest er um hreindýr I
sumarhögum i grennd Snæfells.
Hafa norskir sérfræðingar lagt á
ráöin um þessar rannsóknir, sem
kostaöar eru af Orkustofnun og
eru þær iiöur i umhverfisathug-
unum i tengslum viö virkjunar-
áætlanir á þessum slóöum.
A aöalfundinum, sem sumpart
var haldinn úti viö i góöviöri var
fjallaö um störf samtakanna og
samþykktar nokkrarályktanir. A
komandi starfsári er m.a. lögö
áhersla á framhaldsvinnu viö
náttúruminjaskrá ogundirbúning
friðlýsinga, þar á meöal athugun
á verndun sérstæöra steinteg-
unda og steingervinga oghét Arni
Reynisson framkvæmdastjóri
Náttúruverndarráös, er sótti
fundinn, stuöningi ráösins við þaö
verk.
í NAUST eru nú um 230 ein-
staklingar sem félagar og 38
fyrirtæki og stofnanir sem
styrktaraöilar. A fundinum uröu
verulegar breytingar á forystu i
félaginu. Hjörleifur Guttormsson
sem veriö hefur formaöur þeirra i
9 ár, allt frá stofnfundi 1970, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs og
var i hans stað kjörinn formaöur
Einar Þórarinsson jaröfræöingur
i Neskaupstaö. Auk hans skipa
stjórnina: Anna Þorsteinsdóttir,
Eydölum, varaformaöur, Sigriö-
ur Kristinsdóttir, Eskifiröi, gjald-
keri, Anna Kjartansdóttir, Höfn,
ritari, Magnús Hjálmarsson,
Egilsstööum, meöstjórnandi.
Varamenn: Jón Einarsson, Nes-
kaupstaö, Óli Björgvinsson,
Djúpavogi, Guörún A. Jónsdóttir,
Hlööum.
Á fundinum voru fráfarandi
formanni færöar þakkir fyrir
brautryöjendastörf i þágu félags-
ins.
Þær ályktanir sem samþykktar
voruá aöalfundi NAUST viö Snæ-
fell 1979 eru svohljóöandi:
Aöalfundur NAUST 1979 minnir
á, aö þrátt fyrir ýmsa ávinninga
og aukinn skilning á umhverfis-
málum á siöustu árum, er þörf á
verulega efldu starfi opinberra
aöila Og áhugafólks um náttúru-
vernd.
Auk þess sem marka þarf skýra
stefnu um hóflega nýtingu auö-
linda lands og sjávar og hverfa
frá rányrkju, minnir fundurinn á
eftirtalin brýn verkefni er varða
Austurland og aöra landshluta:
1. AB skipuleggja þarf landnotkun
meö fjölþætta nýtingu og
verndun i huga, ekki sist i
grennd þéttbýlisstaöa. Eru
sveitarstjórnir eindregiö hvatt-
ar til þess aö gefa þessum mál-
um meiri gaum en veriö hefur.
2. Að auka þarf skrá um náttúru-
minjar og vinna aö friðlýsingu
þeirra svæöa er verömætust
eru og hætta steöjar aö. Sér-
staklega þarf að huga að svæö-
um sem sérstæö eru hvaö varö-
arsteintegundir, bergtegundir
og steingervinga. Setja þarf
skoröur viö stórfelldari steina-
söfnun og raski sem henni fylg-
ir.
3. Aö bæta þarf aöstööu fólks til aö
feröast ogfræöast um landiö og
kynnabetur gildandi reglur um
náttúruvernd og umgengni,
m.a. erlendum feröamönnum.
4. Aö sérstakt átak veröur aö gera
á næstunni til aö giröa fyrir
mengun frá fiskimjölsverk-
smiöjum.
5. Að sorpeyðingu, frágangi
skólplagna og meöferö úrgangs
frá vinnslustöövum er enn víö-
ast mjög ábótavant.
6. Að þegar i staö veröi hætt aö
nota hafiö og hafsbotninn sem
ruslakistu, t.d. veröi hætt aö
sökkva gömlum skipum sem
auðveldlega má eyöa meö
öðrum hætti.
7. Að auka þarf skiining á bættri
umhirðu og sparnaöi, m.a.
vegna breyttra viöhorfa i orku-
málum, og stuöla ber aö fúll-
nýtingu hráefna og endur-
vinnslu, eins og frekast er unnt,
t.d. má benda á að enn er öllu
slógi úr bolfiski hent, en þaö er
stór hluti af aflamagni.
Aðalfundur NAUST 1979 telur
áriöandi aö vel sé búiö aö opin-
berum stofnunum, svo sem
Náttúruverndarráöi og Heil-
brigöiseftirliti rikisins, sem lög-
um samkvæmt er ætlaö mikið og
vaxandi hlutverk á sviöi um-
hverfismála. Varöar aöstaöa
þessara stofnana ekki sist þá
landshluta, sem fjarri eru höfuö-
staönum. Telur fundurinn brýnt
að komiö veröi á fót og efldar
miðstöövari landshlutunum til að
hafa svæöisbundna forystu I um-
hverfismálum i samvinnu viö
sveitarstjórnir og samtök áhuga-
manna um náttúruvernd.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
MATRÁÐSKONU — KARL til starfa með
vinnuflokki á Vestfjörðum. Ráðningartimi
1-2 mánuðir.
AÐSTŒ)ARKONU — KARL i mötuneyti.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá
starfsmannadeild Pósts- og simamála-
stofnunarinnar.
Einkarítari
Starf einkaritara er laust til umsóknar nú
þegar. Hæfni i vélritun, ensku og dönsku
áskilin. Umsóknir á þar til gerðum eyðu-
blöðum sendist skrifstofustjóra embættis-
ins fyrir 8. september.
Tollstjórinn i Reykjavík
Tryggvagötu 19, simi 18500