Alþýðublaðið - 29.10.1979, Blaðsíða 7
Alþýðublaðið 60 ára
7
ðsmaður
snir
rannsóknarinnar, sem lyktaði-
meö þvi að ákveðið var að visa
hinum tékkneska „gesti” tafar-
laust úr landi.
Fréttatilkynning dómsmála-
ráðuneytisins hljóðar svo:
„Hinn 19. þ.m. skýröi Sigurður
ólafsson, flugmaöur, Hamrahlíð
21 hér i bæ, frá þvi i utanrikis-
ráðuneytinu, að V. Stochl, tékk-
neskur borgari, sem hér starfaði
á vegum tékkneska sendiráðsins
á árunum 1956-1971, en nú kom
hingaö til landsins 13. þ.m., að þvi
er hann segir i viðskiptaerindum,
hefði fariö þess á leit við sig i s.l.
viku aö hann tæki að sér nú og
framvegis að afla upplýsinga
varðandi flugvélakost varnarliðs-
ins á Keflavikurflugvelli. Málefni
þetta sendi utanrikisráðuneytið
dómsmálaráðuneytinu til með-
ferðar og fól það ráöuneyti sak-
sóknara rikisins að hlutast til um,
að dómsrannsókn færi fram i
málinu. Sú rannsókn hefur nú far-
iö fram fyrir sakadómi Reykja-
vikur meö þeim hætti, er nánar
greinir i meðfylgjandi endurriti
dómsrannsóknar. (Sjá opnu.)
Dómsmálaráðuneytið hefur nú
ákveðið með hliösjón af þvl, sem
fram hefur komið við rannsókn
málsins, að hinn tékkneski borg-
ari V. Stochl skuli veröa af landi
brott þegar i stað”.
Dómsskjal nr. 3: frásögn
Endurrit dómsrannsóknar-
innar er mjög langt, og verður
hér aöeins birt úr þvi skjal nr. 3,
frásögn.
Sigurður ólafsson flugmaður,
kom hér i ráðuneytiö i dag og
greindi frá þvi, að árið 1954 hefði
hann keypt tékkneska flugvél. Vél
þessi hefði reynzt hinn mesti
gallagripur og hefði hann átt
stöðugar viðræður um kvartanir
á vélinni við tékkneska sendiráöið
hér i Reykjavik og eins mun við-
skiptamálaráðuneytið hafa tekið
málið upp við tékknesk stjórn-
völd.
Nú i vetur heföi hann á ný rætt
máliö við tékkneska sendiráðiö og
hefði það tjáð honum, aö um
miðjan mai væri væntanlegur til
Islands sérfræðingur frá Motokov
i Prag, sem mundi ræöa við hann
um máliö.
Sérfræðingur þessi reyndist vera
Vlastimil Stochl, er var starfs-
maður i tékkn. sendiráðinu hér
á árunum 1956 til 1961. Stochl tók
Sigurði Ólafssyni mjög vinsam-
lega, enda var hann honum kunn-
ugur frá fyrri dvöl hér. Bauð hann
Sigurði aö borða með sér hádegis-
verö á Hótel Borg og ræddu þeir
þar um möguleika á því að Sig-
uröi yrði bætt tjón þaö, sem hann
hefði orðið fyrir vegna galla á
tékknesku flugvðlinni. Akveöið
var aö Stochl skyldi koma heim til
Sigurðar að Hamrahllö 21 til þess
að ræða málið nánar og kom hann
þangaö um miðja þessa viku.
Stochl kom gangandi og einn til
heimilis Sigurðar og þar geröi
hann honum það tilboö, aö tékk-
nesk yfirvöld skyldu láta Sigurö
fá nýja flugvél tékkneska I skipt-
um fyrir þá gömlu gegn þvi, að
hann léti Tékkum I té nákvæmar
upplýsingar um gerðir og flug-
vélategundir varnarliðsins á
Keflavikurflugvelli, sérstaklega
ef um breytingar væri að ræða á
flugvélagerðum þar. Atti Sigurð-
ur að skrifa þessar upplýsingar á
þunnan pappir og mundi hann fá
nánari fyrirmæli, hvert ætti aö
koma upplýsingunum, en Stochl
sýndi honum holan blýant, sem
ætlaður. væri til þess að flytja
upplýsmgar á milli.
Stochl tók fram við Sigurð, að
þetta tilboð hans væri gert án
þess að starfsfólk tékkneska
sendiráösins hér vissi nokkuð um
málið og væri það þvi sendiráð-
inu algerlega óviðkomandi. Sig-
urður tók sér umhugsunarfrest
um málið og ræddi um það við
Svein Sæmundsson, lögregluþjón,
sem ráðlagði honum að hafna til-
boðinu eindregið og tilkynnti Sig-
urður sfðan Stochl, að hann heföi
ekki áhuga á viðskiptum á þess-
um grundvelli. Hins vegar væri
hann til viðræðu um og hefði
áhuga á að fá bætt úr tjóni sinu,
m.a. með þvi að skipta á fugvél
gegn milli greiðslu, eöa tékknesk
stjórnvöld keyptu gömlu flugvél-
ina og tækju einhvern þátt i tjóni
hans. Stochl sem býr á Hótel Borg
til 21. þ.m., bað Sigurð að hafa
samband viö sig, ef hann breytti
um skoðun á þessu máli, eða
skrifaði sér um það, ef hann væri
áfram til viöræöu á fyrrnefndum
grundvelli.
Reykjavik, 19. mai 196)
—N.P.S.
Maðurinn á herbergi nr.
404
Alþýðublaðið reyndi að sjálf-
sögðu að ná sambandi við njósn-
arann sjálfan. Hér kemur frásögn
blaösins af þvi hvernig til tókst:
V. STOCHL, Tékkinn, sem i dag
heldur frá Islandi eftir misheppn-
aða tilraun til að stofna til skipu-
lagðra njósna hér á landi, neitaöi
meö öllu að svara spurningum
blaðamanna, þegar Alþýðublaðið
reyndi i gærkvöldi að hafa sam-
band viö hann. Hann lét bera Al-
þýðublaðsmönnum þau skilaboð
úr herbergi sinu nr. 404 á Hótel
Borg, að hann vildi ekki taka við
blaðamönnum og mundi hvorki
svara munnlegum né skriflegum
spurningum frá þeim.
Arni Sigurjónsson, starfsmaöur
hjá útlendingaeftirlitinu, sem
gætti Stochl, hafði milligöngu um
að koma skilaboðum til hans. En
Arni gætti þess vandlega að
blaðamennirnir gætu ekki séö inn
i herbergiö, þar sem Tékkinn beiö
morguns — og brottferöar. —
Myndin er af Arna í dyragættinni
á herberginu, og er hún tekin um
miðnætti i gær.
Vlastimil Stochl er fæddur 29.
nóvember 1923 I bænum Zajecon i
Tékkóslóvakiu. Hann á að baki
fimm ára starfsferil á vegum
tékkneska sendiráösins I Reykja-
vik. Hann er giftur og á tvö börn
og mun annað þeirra fætt á Is-
landi.
tslenskur maður, sem kynntist
Stochl, tjáöi Alþýðublaðinu I gær-
kvöldi, að hann kæmi vel fyrir.
Litið d)a ekkert virtist hann hafa
lært af islensku meðan hann
dvaldist hér, og notaði hann
ensku í viðskiptum sinum við ís-
lendinga.
Stochl farinn
Alþýöublaðiö skýrði frá brott-
för tékkneska njósnarans þ. 23.
mai, undir ofanritaðri fyrirsögn.
Fer frétt blaðsins hér á eftir:
TÉKKNESKI njósnarinn
Valstimil Stochl fór frá Islandi kl
rúml. 8 i gærmorgun meö Hrim-
faxa. tJtlendingaeftirlitið og lög-
reglan fylgdu honum að flugvél-
inni — og ennfremur var þar full-
trúi frá tékkneska sendiráöinu.
Hrimfaxi átti að fara til Glashow
og Kaupmannahafnar.
Stohl var i herbergi sinu á Hótel
Borg nóttina áöur en honum var
fylgt úr landi. Útlendingaeftirlitið
gætti þess, aö enginn hefði sam-
band við hann, en nokkru fyrir kl.
8 I gærmorgun fór fulltrúi frá
tékkneska sendiráðinu inn á Hótel
Borg.
Skömmu siðar var Stochl fylgt
út i leigubifreiö til að flyja hann
um borð i flugvélina. Gættu hans
þeir Arni Sigurjónsson, frá út-
lendingaeftirlitinu, og Óskar Óla-
son, varðstjóri, Tékkneski sendi-
ráösmaöurinn kom einnig með
þeim út.
Kl. 8 steig Stochl upp i Hrim-
faxa, sem skömmu siðar hóf sig
til flugs. Var njósnaranum fylgt
fast að stiganum af varögæslu-
mönnum hans og ennfremur
sendiráðsmanninum, en ekki tal-
aði hann orð við landa sinn.
Yfirsakadómarinn i Reykjavik,
Logi Einarsson, afhenti i gær Sig-
uröi Ólafssyni, flugmanni, tékk-
nesku myndabókina og hálsklút-
inn, sem Stochl hafði gefiö hon-
um. Holi blýanturinn, sem nota
átti til að fela I blað með upplýs-
ingunum á, var tekinn i vörzlu
dómsmálaráöuneytisins.
Tékkneska sendiráðið boðaöi i
gær blaöamannafund kl. 5 siðd.
Nokkru siðar var fundurinn af-
boöaður. Þegar Alþýöublaðiö
spurðist fyrir i sendiráöinu um
orsakirnar, skýrði talsmaöur
þess svo frá, að sendifulltrúinn
Jordanes, væri mjög önnum kaf-
inn og hefði þvi verið ákveöið að
fresta fundinum,. en ekki hætta
við hann.
Talsmaöurinn sagði, að liklega
yrði fundurinn i dag eða á morg-
un.
UNGT FÓLK!
Þið sem unnuð fyrir Alþýðuflokkinn i siðustu kosningum eða ætlið að vera með i þeirri baráttu sem nú
fer i hönd, eruö velkomin til fundar i kvöld kl. 8.30 i Ingólfskaffi uppi.
A fundinum munu Jóhanna Sigurðardóttir og Vilmundur Gylfason ræða stjórnmálaástandið og svara
fyrirspurnum fundarfólks.
Félag ungra jafnaöarmanna
I Reykjavik.
HAMPIOJAN HF
Blýteina
þróaðir á íslandí
Blýteinarnir frá Hampiójunni eru Viö bjóðum blýtóg í eftirtöldum
þróaóir í samstarfi viö íslenska sverleikum: 8 — 10—11 —12
sjómenn. —14-16- og 18 mm.
Því samstarfi verður fram haldið Hráefni eru þrenns konar: PPF —
enda kappkostar filma PPS-staple fibre PEP
Hampiójan aö framleiða þann 30 faóma teinn vegur frá 4.6
besta blýtein, sem völ er á. kg. upp í 37.5 kg.