Alþýðublaðið - 10.11.1979, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 10.11.1979, Qupperneq 1
alþýðu- blaðið i Laugardagur 10. nóv. 1979 —169. tbl. 60. árg. Ríkisstjórnin hefur stöðvað 28 verðhækkanir — sjá viðtal við Benedikt Gröndal forsætisráðherra bls. 2 AF HVERJU KOSNINGAR? Sax. . | Í | • w.. Nokkur söguleg atriöi 1. Stjórnarf lokkarnir deildu um dýrtiðarmálin í allan fyrravetur. Efna- hagstögin voru að vísu samþykkt á Alþingi fyrir páska, en Alþýðubanda- lagið var í raun andvígt þeim og spillti fyrir framkvæmd þeirra. 2. í allt sumar stóðu deilur milli stjórnar- flokkanna um viðbótar- tekjur I rikissjóð, sem Tómas Arnason heimtaði, að aflað yrði með sölu- skattsauka og auknu vörugjaldi. Þessi deila leystist ekki fyrr en um miðjan september. 3. I sambandi viö þessa nýju skattheimtu lagöi Alþýðuflokkurinn á ríkis- stjórnarfundi 4. septem- ber fram tillögur um markmið í efnahagsmál- um áriö 1980, og voru þær í 7 liðum Þessar tillögur fengust aldrei formlega afgreiddar i ríkisstjórn- inni og ráöherrar Alþýöu- bandalagsins lýstu hvað eftir annaö yfir, að þeir vsru ósammála mörgum liðanna. 4. Átökin um efnahags- mál innan ríkisstjórnar- Astæöan fyrir stjórnarslitum var ósamkomulag stjórnarflokkanna um efna- hagsmál og þar af leiðandi lítill árangur í baráttunni gegn óöaveröbólgu. Tijlögur Alþýöuf lokksins fengu ekki stuðning i stjórninni. Þessu árangurslausa stjórnarfari taldi Alþýðuflokkurinn fráleitt aö halda áfram. innar urðu svo hörð og langvinn, að Tómas Arnason, f jármálaráð- herra, stöðvaði greiðslur til annarra ráðuneyta til að leggja pressu á ráð- herra hinna flokkanna. 5. Tómas stöövaöi meö- al annars greiðslur til Tryggingastofnunar rik- isins og til sjúkrahúsa. Þegar gamla fólkið fékk ekki ellilaun greidd, lýsti Benedikt Gröndal yfir á ríkisstjórnarfundi 6. september, að ráðherrar Alþýðuflokksins myndu ekki taka þátt í afgreiðslu neinna mála, fyrr en Tryggingarnar fengju sitt fé og ellilaun yröu greidd. Þessi hótun bar þegar árangur, og fjár- málaráðuneytið greiddi féð. 6. Hinn 30. ágúst lagði Steingrímur Hermanns- son fram tillögur sex- mannanefndar um stór- fellda hækkun búvöru, sem byggðist meðal ann- ars á þvi, að bændum var reiknuð meiri kauphækk- un en aðrar stéttir höfðu fengið. Málinu var frest- að í 2 vikur. 7. A stjórnarfundi 13. september var þessi mikla búvöruhækkun samþykkt af fram- sóknar- og alþýðubanda- lagsráðherrum gegn hörðum mótmælum Al- þýöuf lokksins, sem lét bóka afstööu sina. Þaö er einsdæmi, aö einn stjórn- arf lokkur sé þannig beitt- ur ofriki i stórmáli innan rikisstjórnar. Þetta mál var kveikjan aö umræð- um í þingflokki Alþýðu- flokksins um það, hvort unnt væri að sitja áfram i slíkri ríkisstjórn. 8. Þegar deilum um fjáröflun linnti, var f jár- lagafrumvarpið tekið til meðferðar. Bæði Alþýðu- flokkurinn og Alþýðu- bandalagið gerðu ágrein- ing um veigamikil atriði. Tókst ekki að ná sam- komulagi og flutti fjár- málaráðherra frumvarp- iðáeigin ábyrgð. Fjárlög eru undirstaða ríkis- stjórnsýslu, og er það grundvallaratriði, að rík- isstjórn sé sammála um þau. Það samkomulag var ekki til. 9. Samkvæmt efna- hagslögunum bar forsæt- isráöherra skylda til að leggja fram þjóöhagsá- ætlun í upphafi þings. Ekki náðist samkomulag um forsendur hennar og gaf ólafur Johannesson á stjórnarfundi 18. septem- ber yfirlýsingu um, hvernig hann mundi hafa áætlunina. Hann taldi þá, að ekki væri kostur eöa ráörúm til aö ná sam- komulagi innan rfkis- stjórnarinnar um heil- stæöar eöa samræmdar aðgerðir I efnahagsmál- um. Alþýðubandalags- menn voru svo andvígir áætlun ólafs, aö þeir töl- uöu um stjórnarslit. 10. Samkvæmt stjórn- arsáttmálanum átti að endurskoða hann á árinu. i september kröf ðust ráð- herrar Alþýðubandalags- ins þess, að hafist yrði handa um þessa endur- skoðun. Þeir drógu ekki dul á, að þeir ætluðu fyrst og fremst að gera kröfur um breytta stefnu í utan- ríkis- og varnarmálum. Oruggt er að þeir hefðu engum árangri náð á því sviði, enda traustur meirihluti á Alþingi með rikjandi stefnu. Þessi mál hefðu vel getað leitt til stjórnarslita í vetur, þar sem djúp var á milli stjórnarf lokkanna í þess- um málum. 11. Meðan öllu þessu fór fram, fór óðaverðbólgan vaxandi í 50-55%. Víst mátti telja, aö framund- an væru hrossakaup stjórnarf lokkanna um fjárlög, þjóöhagsáætlun, lánsf járáætlun og önnur atriði efnahagsvandans, sem sagt endurtekning á siðasta vetri með gagns- lausum skammtima- lausnum án þess aö verö- bólgan lækkaöi til muna. 12. Þessu vildi Alþýðu- flokkurinn ekki una, og á stjórnarfundi 9. október var lögð fram lausnar- beiðni ráðherra hans. At- burðarásin síðan er öllum kunn. SJO PUNKTAR ALÞYÐUFLOKKSINS SEM EKKI FENGUST SAMÞYKKTIR Hér fara á eftir tillögur þær I 7. liDum, um efnahagsmál, sem ráöherrar Alþýöuflokksins lögDu fram i rikisstjórn á.september og aldrei fengust samþykktar, aDallega vegna andstöDu AlþýDu- bandalagsins. „1 sambandi viD ákvörDun ritósstjórnarinnar um útgáfu bráDabirgDalaga um nýja tekjuöflun fyrir rlkissjóD sök- um fyrirsjánlegs hallarekst- urs á rikisbúskapnum á árinu 1979 samþykkir rikisstjórnin eftirfarandi markmiD f efna- hags- og rikisfjármálum fyrir áriD 1980: 1. Fjáröflunin samkvæmt bráDabirgDalögunum ásamt öDrum föstum tekjustofnum ritóssjóDs dugi til þess aD tryggja jafnvægi f rikisbú- skapnum á árinu 1980. GerD fjárlaga fyrir áriD 1980 verDur af hálfu rikisstjórnarinnar viD þaD miDuD. 2. JöfnuDur á rekstri rikis- sjóOs verDi jafnframt viD þaD miOaOur, aD tekjur og útgjöld ritóssjóös fari ekki fram úr 28—29% af vergri þjóDarfram- leiDslu ársins 1980. 3. Lánsfjár- og fjárfest- ingaráætlun ársins 1980 verDi I öllum aDalatriDum miDuD viD sama mark og gilti um láns- fjár- og fjárfestingaráætlun ársins 1979. 4. Rlkisstjórnin áformar aD taka upp viröisaukaskatt eigi siDar en 1. janúar 1981. Þá mun rikisstjórnin einnig á þinginu 1980—81 láta endur- skoDa nýlega samþykkt lög um tekjuskatt og eignaskatt i ljósi þeirrar reynslu, sem af þessum lögum fæstá næsta ári og I þá átt aO fella niDur tekjuskatt af almennum launatekjum og taka upp staögreiöslu beinna skatta á árinu 1981. 5. Rikisstjórnarflokkarnir eru sammála um aD stuDla fyrir sitt leyti aD framgangi þeirrar tekjustefnu, sem forsendur fjárlagafrumvarps ársins 1980 miOast viD og rikis- stjórnin telur auDsætt aD ekki sé, viO núverandi efnahagsaO- stæDur, unnt aO stefna aO kaupmáttaraukningu á árinu 1980. Leitast verDi viD aO tryggja þaD kaupmáttarstig og veröi veröhækkunum hald- iö neöan viö fyrrgreindar forsendur fjáriagafrumvarps. Rikisstjórnin mun leitast viD aD ná samningum viD starfs- menn rikisins Ut frá þessum sjónarmiOum og mun hvorki heimila opinberum fyrir- tækjum né einkaaöiium meiri veröhækkanir eöa veröbreyt- ingar en samræmast slfkum launabreytingum. Þetta viö- horf sitt mun rlkisstjórnin ?era aDilumvinnumarkaOarins sérstaklega kunnugt I tæka tiO, þannigaDþeir getisamiDá eigin ábyrgD út frá þvi. 6. Ritósstjórnin mun beita sér fyrir þvi aó frumvarp um eftiriaun aldraöra frá þvi i fyrra, sem ekki fékkst afgreitt á siDasta Alþingi, hljóti af- greiDslu fyrir n.k. áramót og taki þá þegar gildi. Jafnframt samþykkir rikisstjórnin aO stefna aO þvi aO ný lög um samræmt lifeyrisréttindakerfi fyrir ailalandsmenn geti tekiD gildi eigi sIDar en á þinginu 1980—1981. Auk þess áformar rikisstjórnin aD ný lög um almennt húsnæDislánakerfi veröi afgreidd á næsta Alþingi. 7. Rikisstjórnin mun stuDla aO þvi aD verötryggingar- og peningamáiastefna laganna um stjórn efnahagsmála nr. 13/1979 verDi framkvæmd eins og lögin mæla fyrir um.” ANDSTÆÐUR Megin andstæður i þessum málum hafa verið milli Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins. Alþýðuflokkurinn vill hefja samræmda sókn gegn dýrtíðinni á sviði peningamala, rikisfjármála, fjárfestingar, dýrtiðaruppbóta og launamála. Þjóðin verður að sigrast á óðaverðbólgunni. Alþýðubandalagið vill auka ríkisútgjöld, hækka skatta, auka peningaprentun, auka lántökur innanlands og utan. Það er þensluflokkur, en ofþensla er aðalorsök dýrtíðarinnar. Alþýðubandalagið er þvi verðbólguflokkur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.