Alþýðublaðið - 10.11.1979, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 10.11.1979, Blaðsíða 8
KÚLTÚRKORN Fyrirlestur í dag, laugardaginn 10. nóvem- ber mun finnlandssænska skáldiö og rithöfundurinn Solveig Vor Schoultz tala I Norræna húsinu. Solveig Von Schoultz fæddist 1907 I Borgá i Finnlandi. Hún hef- ur sent frá sér fjölda bóka, bæöi ljóð og óbundiö mál, en fyrsta bók hennar „Petra och silverapan” kom út 1932. 1 þeirri bók veröur þegar vart viö sálfræöilegt innsæi höfundar, sem æ siöan kemur fram I verkum hennar. í mörgum smásagnasöfnunum skrifar hún um börn, t.d. I „Ansa och samvet- et” (1954), en af öörum smá- sagnasöfnum má nefna „Den blomstertid” (1958) og „Dár stár du” (1973). Fyrsta ljóöabók henn- ar „Min timme” kom út 1940, og auk hennar hefur hún sent frá sér aörar sjö, siöust þeirra var „Klippbok” (1968). Þessi ljóö hafa skipaö höfundinum f fremstu röö finnlandssænskra ljóöskálda. A sl. ári kom út bókin „Portratt av Hanna”, sem er ævisaga móö- ur hennar. Þaö var listmálarinn Hanna Frosterus-Segerstrale. Þá bókætlar Solveig Von Sxhoultzaö kynna i Norræna húsinu i dag kl. 16.00, og einnig mun hún tala um ljóölist i Finnlandi i dag, og lesa úr Ijóöum sinum. Leiklist Leikfélag Keflavlkur: Otkall I Klúbbinn. Leikfélag Keflavikur frumsýnir nýtt islenskt leikrit I Stapa sunnu- daginn 11. nóv. kl. 9. titkall i Klúbbinn er eftir Hilmar Jónsson. Leikstjóri er Gunnar Eyjólfsson. Leikendur eru um 20. Þetta er annaö verkefni Leikfélags Kefla- vikur á þessu ári. önnur sýning veröur á mánudag, en vegna mik- illar eftirspurnar er ákveöiö aö hafa aukasýningar kl. 11. Þannig veröa tvær sýningar á miöviku- dag 14. nóv. kl. 8,30 og 11. Bækur Út er komin hjá Almenna bóka- félaginu bókin Þeir vita þaö fyrir vestaneftirGuömundG. Hagalin. Meö þessu bindi hefur Hagalin lokiö 9 binda ævisögu sinni, þeirri lengstu og einhverri fjörlegustu sjálfsævisögu, sem komiö hefur út á lslandi. 1 káputexta segir: Þeir vita þaö fyrir vestan fjall- ar um þau 23 ár sem umsvifamest hafa orðið i ævi Guömundar G. Hagalins. Fyrst dvaldist hann 3 ár i Noregi, liföi þar fjölbreyti- legu lífi og feröaðist viösvegar um landiö til fyrirlestra halds. Sföan var hann blaðamaður viö Alþýöublaöið tæp 2 ár, unz hann fluttist til Isafjaröar 1929 og þar tók hann ríkulegan þátt I bæjarllfi og stjórnmálum þau 15 ár sem hann átti þar heima. Meginhluti bókarinnar eru tsa- fjaröarárin. Isafjöröur var þá sterkt vlgi Alþýöuflokksins og kallaöur „rauöi bærinn”. Hagalin var þar einn af framámönnum flokksins ásamt Vilmundi Jóns- syni, Finni Jónssyni, Hannibal Valdimarssyni o.fl. A þessum ár- um skrifaöi Hagalln auk þess ým- is af meiriháttar verkum slnum, svo sem Kristrúnu I Hamravik, Sturlu I Vogum, Virka daga og Sögu Eldeyjar-Hjalta. Bókin einkennist ööru fremur af llfsfjöri og kimni, og hvergi skortir á hreinskilni. Þeir vita þaö fyrir vestan er 414 bls. Bókin er prentuö i Prentstofu G. Benediktssonar og bundin i Prentsmiöju Hafnarfjaröar. Út er komin bókin Meö lifiö I lúkunum. — Rögnvaldur Sigur- jónsson i gamni og alvöru — eftir Guörúnu Egilson. Framh.á bls,6 í leccum tón ú lau^atóegi Svavar Gestsson Nú styttist óöum til kosninga. Dagur skuldaskilanna nálgast. Þann 2. og 3. desember gellur lúðurinn og á mánudagskvöldiö þann 3ja liggja úrslitin fyrir. Þaö er lika kominn kosninga- skjálfti I ýmsa frambjóöendur og þaö heldur betur. Þeir þjóta nú af einum vinnustaö á annan, úr einum kaffitimanum i annan til þess aö boöa trú sina og framtiöarhugsjónir. Meira aö segja óli Jd er lagöur af staö og birtast nú myndir af honum á vinnustööum, sem hann hingaö til hefur tæplega vitaö aö væru til. Einn daginn var hann t.d. I Hampiöjunni og glotti gleitt aö vanda. Við hliö hans stóö stúlka sem eftir myndinni aö dæma, haföi tilbúna snöru, hvort sem þetta var tilviljun eöa ekki. Geir Hallgrimsson er lika á ferðinni eftir aö hafa jafnaö sig eftir áreiö sina á Suöurland, en þar haföi hann ekki erindi sem erfiöi. Tapaöi hann þar manni og var þó varla ábætandi eftir Slúttnesævintýriö fyrir noröan. Annars er Sjálfstæöisflokkur- inn ekki I neinum vanda meö aö stjórna landinu eftir kosning- arnar. Hann segist ætla aö spara 35 milljaröa á næsta ári, þaö er eitthvaö annaö en garm- urinn Tommi, skattar eiga aö lækka, erlend lán veröa engin tekin, og kaupmáttur aukinn, og svo rúsinan i pylsuendanum þetta á ekki aö bitna á neinum. Alþýöubandalagiö lætur held- ur ekki sitt eftir liggja. Aukinn sparnaður, aukinn kaupmáttur, engin erlend lán, lækkaöir skattar, bætt þjónusta og stór- aukin samneysla. og þetta á lika aö koma af sjálfu sér, ef þeir bara hafa frið fyrir krötunum sem alltaf og ævinlega stand i vegi þeirra og hindra þá i góö- um áformum. Og svo húmors- Guörún Helgadóttir lauster þetta liö aö þaö er engu likara en þaö trúi þessu sjálft, en þaö er þá lika þeir einu sem trúa. Jafnvel barnalega andlitiö hennar Guörúnar Helgadóttur er rist rúnum yfirþyrmandi al- vöru og sorga yfir heimsins ranglæti og vonsku kratanna. Hún trúir þvi jafnvel aö hún sé öreigi, af þvi aö hún segist vinna fyrir kauplnu sinu. Hún nefnir, aö vlsu, ekki hvaö kaupiö henn- ar sé hátt. þaö er nátúrlega gert af hllfö viö hina öreigana, hún er ekkert aö leggja saman deildar- stjöralaunin, borgarfulltrúa- launin, plúss ritlaunin ogbarna- bæturnar, já og bráöum bætast þingmannslaunin viö. En Guö- rún Helgadóttir er öreigi skv. eigin frásögn og staöhæfingu og einn skeleggasti málssvari launafólks og talsmaður hinna snauöu skv. útleggingu Þjóö- viljans. Og Gunna litla trúir þessu skyldu fleiri trúa þessu, þaö kemur bráöum I ljós. Maður heitir Asmundur Asmundsson og er mikil kempa til vopna sinna og miönefndar maöurmeöal herstöövaand- stæöinga. Hannhefur einkum og sérilagi orðiö frægur fyrir baráttu sína i Kópavogi viö bæjaryfirvöld þar til þess aö losna viö fjársjóöi er bæjar- stjórnin reyndi aö þröngva uppá hann fyrir einhverja snúninga I þágu bæjarins. Þessu heilaga striöi lyktaöi á þann veg aö Ásmundur þessi beiö herfileg- an ósigur og varö aö sitja uppi meö peningana þó aö hann á engan hátt vildi þiggja þá. Nú hefur téöur Asmundur krafist skýrra svara af Svavari Gests- syni um þaö hvort hann meinti Asmundur Asmundsson nokkuö meö fjasi sinu um aö herinn skyldi á brott og lsland úr Nató. Svar fyrir kosningar segir Ásmundur. Svavar gefur loöin'svör og dregur dám af Lúlla Jós. Viö munum gera þaö sem viö getum segir Svavar, viö getum engu lofaö um framkvæmdir i þess- um efnum fyrrverandi stjórn var mynduö viö óvenju- legar kringumstæöur og þá var ekki hægt aö minnast á þetta, Þaö veit exnginn hvort kringum- stæöurnar veröa hagstæöari viö myndun næstu stjórnar, en þiö megið treysta okkur, viö gerum þaö sem viö getum. Verst aö þaö er ekkert aö marka Framsóknarflokkinn I þessum efnum um hina vitum viö. En þaö er hárrétt hjá nefnd- um Asmundi aö Alþýöubanda- lagiö veröur nú aö gera hreint fyrir sinum dyrum. Gerir þaö brottför hersins og uppsögn Natósamningsins aö skilýröi fyrir stjórnarþátttöku eöa ekki. A þvi svari veltur hvort þaö er hugsanlegt aö Alþýöubandalagiö fari i næstu stjórn eöa ekki Máiiö er svona einfait. Þessvegna heimta Islenskir kjósendur skýr svör fyrir kosn- ingarnar. Þaö veröur tekiö eftir svari Svavars Gestssonar og félaga hans næstu daga. Og blessuð dúkkulísan hún Guörún litla Helgadóttir veröur lika aö aö gera hreint fyrir slnum dyr- um. Ætlar hún aö stökkva óvin- unum á flótta eöur ei, öreigarnir heimta svör af foringjum sinum hinir snauöu vilja vita hvar tals- maöur þeirra stendur i þjóö- ernisbaráttunni. Nú veröur aö standa viö stóru oröin. Frá Kosningaskrifstofu Alþýðuflokksins Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins f Reykjavfk er að Skólavörðustfg 16. Símar 16682 og 16736. Kæruf restur vegna Alþingiskosninganna 2. og 3. desember rennur út 17. nóvember. Þeir sem óska eftir aðstoð Alþýðuf lokksins vegna kæru eru beðnir að hafa sam- band við skrifstofu Alþýðuflokksins, eða umboðsmenn framboðslistanna strax. Alþýðuf lokkurinn. Utankjörfundarkosning hófst 10. nóvember og stendur fram á kjördag. Stuðningsmenn A listans, sem ekki verða heima á kjördag, eru hvattir til að kjósa sem fyrst, og þeir sem vita af fólki sem verður að heiman kjördagana, er beðið að hvetja það til að kjósa sem fyrst, og jafnframt gefa skrifstof um f lokksins upplýs- ingar um það. Sá sem kýs utankjörf undar á að vita bókstaf þess lista sem hann kýs, og skrifa A skýrt og greinilega. Utankjörfundarþjónusta Alþýðuflokksins er á skrifstofu flokksins, Hverfisgötu 8—10, sími29244, opinalla daga nema sunnudaga kl. 9:00—22:00, á sunnudögum kl. 13:00—19:00. Á RATSJÁNNI alþýðu- blaðió Laugardagur 10. nóv. 1979 I hrein- skilni sagt Baráttumál. Kæru samherjar, hér mun ég kynna fyrir ykkur, eitt helsta baráttumál Kristilega vöruskiptajafnaöarmannaflokks- ins, þ.e. hreyfanlegan þingstyrk, eöa þaösem viö köllum stundum, „afl (greiddu atkvæöanna”. Þiö rekiö auövitaö upp stór augu,og spyrjiö ykkar innra sjálf, hvers vegna datt okkur ekki þetta I hug? Þiö getiö lesiö ykkur til um ástæöuna i sérlega stimúlerandi grein eftir „Jón Þ. Arnason” I Morgunblaöinu I gær, en sú grein ber nafniö „Þaö er tortimingar- leiö aö láta eyöluvaxtarátrúnaö móta framtiöarviöhorf” (?). Þegar þiö lesiö tilvitnunina I Schiller, muniö þiö skilja. Snúum okkur aftur aö hreyfan- legum þingstyrk, þiö skiljiö kannski ekki viö hvaö ég á. Leyfiö mér aö útskýra nánar. Samkvæmt siöustu tölum frá Hagstofu Islands (sem vér flokksbræöur viljum aö veröi yfirtekin af einkaaöilum), er fjöldi kjósenda um 140 þúsund. Segjum til þæginga aö f jöldinn sé akkúrat 140 þúsund, fjöldi þingmanna er 60. Þaö hlýtur aö vera mikiö réttindamál fyrir þann fjölda kjósenda sem situr heima I hverjum kosningum, aö þetta vantraustsatkvæöi þeirra á stjórnmálamenn hafi einhver áhrif á gang mála. Þaö er skoöun okkar Kristilegra vöruskipta- jafnaöarmanna, aö fjöldi þing- manna skuli ráöast af fjölda kjósenda.hverjusinni. Þannig aö þegar aöeins 75% kjósenda neyta atkvæöisréttar sins, muni aöeins 75% þingsæta veröa fyllt. Þ.e.a.s., ef 35 þúsund kjósenda sitja heima 2-3 desember n.k. mun aðeins 45 þingsætum úthlutaö Vandamál. Vér Kristilegir vöruskipta- jafnaöarmenn gerum okkur ljósa grein fyrir þeim vandamálum sem upp munu koma viö fram- kvæmd þessa máls. I fyrsta lagi mun þingiö þurfa aö samþykkja þessa tillögu, og þaö er heldur óliklegt aö þaö gerist, þvi eins og hefur komiöfram uppá siökastiö, er offramboð á þingmönnum á vinnumarkaönum, og þess vegna ekki liklegt aö þingmenn kjósi yfir sig atvinnuleysi. Eins þarf aö breyta kosningalögum, i þá áttaö landiö allt veröi eitt kjördæmi, þvl ekki veröur auövelt aö ákveöa á annan hátt hverjir þingmanna skuli falla út. Kæru vinir. lesiö hugleiöingar „Jóns Þ. Arnasonar”. Skemmtiö yöur konunglega, meö kveöju. Orövar. Að vera vitur eftir á Formaöur Framsóknaríiokks- ins, Steingrlmur Hermannsson, segir frá þvl I viötali viö Tlmann, aö Framsóknarflokkurinn muni leggja á þaö megináherslu I kosn- ingabaráttunni, hvers vegna Alþýöuflokkurinn rauf stjórnar- samstarfiö. Ef þetta er virkilega ennþá aö vefjast fyrir þeim Framsóknar- mönnum, viljum viö ráöleggja þeim aö rifja upp eftirfarandi: Eins og kunnugt er ber rikis- stjórn, skv. ólafslögum, laga- skylda til þess aö leggja fram i upphafi Alþingis svokallaöa þjóö- hagsáætlun, en þaö er áætlun rikisstjórnarinnar um þjóöarbú- skapinn á næsta ári, sem lögum samkvæmt á aö byggja á stefnu- mótun rikisstjórnar um allar helztu stæröir þjóöarbúskapar- ins, svo sem eins og I skatta- málum og rikisfjármálum al- mennt, erlendum lántökum, I framkvæmdum hins opinbera, i peninga- og vaxtamálum, I verö- lagsmálum, I launamálum o.s.frv. 1 þjóöhagsáætlun á rlkis- stjórnin m.ö.o. aö leggja fram stefnu sina, sem m.a. er hvorki meira né minna en forsenda fyrir fjárlagafrumvarpi. Rlkisstjórnin //Strikuð út" Forsætisfáöherra haföi einn i höndum handrit af þjóöhagsáætl- un. Aöur en þaö handrit var tekiö til prentunar var alls staöar strik- aö út úr handritinu oröiö „rikis- stjórn”. „Rikisstjórnin” var fyrst strikuö út á titilsiðu áætlunarinn- ar, þar sem átti aö standa „Skýrsla rikisstjórnrinnar um þjóöhagsáætlun 1980” — og slikt hiö sama var gert alls staöar i skýrslunni, þar sem þetta vafa sama orö kom fyrir. Hvers vegna? Vegna þess aö rikis- stjórnin var ekki sammála um neitt þaö, sem fram kom I þessari skýrslu, og hún gat þess vegna ekki skoðast sem framlag rikis- stjórnarinnar. Vera má aö Framsóknarmenn, þ.m.t. formaöur þeirra Steingrlmur Hermannsson, meti stólana meira en stefnumálin. Þaö gerir Alþýöuflokkurinn hins vegar ekki. Þess vegna sprakk rikisstjórnin. -Ogri. BOLABÁS Eftir aö sparnaöarhug- myndir Ihaldsins voru kynntar af Geir Hallgrims- syni, hafa menn smiöaö sér aö Geir ætli aö ráöa sérstaka hjúkrunarkonu, til þess eins aö hræöa og reka sjúklinga útaf sjúkrahúsunum: Þaö er sagt aö hún muni heita Nolence Frightengale. — Ekki „konan meö lampann”, heldur „konan meö lurkinn”.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.