Alþýðublaðið - 24.11.1979, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.11.1979, Blaðsíða 1
Alþýduflokkurinn — Aðventukosningarnar 1979 í stað stjórnleysis alþVðuflokkurinn vill leggja TIL ATLÖGU GEGN ÖNGÞVEITINU Alþýðuflokkurinn vilt að ríkisvaldið byrji á því að gera hreint fyrir eigin dyrum með því að ná jafnvægi í ríkisfjármálum 1. Lægri skatta 2. Nýjar aðferðir við f járlagagerð. 3. Tekjur ákveðnar fyrst — siðan útgjöld. 4. Greiðslujöfnuð — lækkun skulda. 5. Afnám sjálfvirkni í ríkisútgjöldum. 6. Þak á f járfestingu 7. Stýringu fjárfestingar í arðbær verkefni. 8. Þak á erlenda skuldasöfnun. 9. Ríkisstofnanir starfi fjárhagslega á eigin ábyrgð. 10. Framkvæmdir og f járhagsleg ábyrgð í opinberum rekstri fylgistað. 11. Hægjum á opinberum byggingarframkvæmdum í bili. 12. Afnemum tekjuskatt á miðlungstekjur. 13. Staðgreiðslu útsvars og tekjuskatts og sameiginlega innheimtu. 14. Virðisaukaskatt i stað söluskatts. 15. Verðaukaskatt á verðbólgugróða. 16. Skattlagning fyrirtækja taki mið af samkeppnishæfni. Alþýðuflokkurinn vill að ríkisstjórnin noti þau völd sem hún hefur til þess að ná jafnvægi í peninga- og lánsfjármálum 17. Verðtryggingu inn- og útlána. 16. Lengri lánstima — jafnari greiðslubyrði 19. Innlendan sparnað í stað erlendra skulda. 20. Arsfjórðungsleg mörk á aukningu peningamagns í umferð. 21. Sömu takmarkanir á útlán bankanna. 22. Gengissig innan marka verðbólguhjöðnunar. Þegar ríkisstjórnin hefur mokað sinn eiginn flór vill Alþýðuflokkurinn ná fram kjarasáttmála um jafnvægi í verðlags- og kaupgjaldsmálum 23. Stöðvum víxlhækkun kaupgjalds og verðlags. 24. Ríkisvaldið bjóði kaupmáttartryggingu lægstu launa. 25. Með af námi tek juskatts á miðlungstekjur og skattfrelsi ellilífeyris. 26. Lækkun niöurgreiðslna, hækkun barnabóta og ellilífeyris. 27. Ársf jórðungsleg mörk á kauphækkun i krónutölu. 28. Samsvarandi mörk á verðhækkun innlendrar þjónustu. 29. Kjarasamningar fari fram samtímis fyrir alla og haf i sama gildistima. 30. Félagslegar umbætur í húsnæðismálum, lifeyrisréttindamáium og mannrétt indamálum þeirra, sem búa við skerta starfsorku. Samhliða þessu vill Alþýðuflokkurinn breytta atvinnustefnu og aukið atvinnuöryggi 31.. Afnemum sjálfvirk framlög til úreltra verkefna i landbúnaði. 32. Afnemum útflutningsbætur i áföngum. 33. Minnkum fjárfestingu í fiskiskipum og opinberum byggingum. 34. Fjárfesting í orkuframkvæmdum, fiskvinnslu og útflutningsiðnaði hafi for- gang. 35. Fiskveiðistefna samræmist veiðiþoli fiskistofna. 36. Virkjunarframkvæmdir taki mið af þörfum orkufreks iðnaðar. ÞETTA ER GERBREYTT EFNAHAGSSTEFNA IFRAMKVKMD

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.