Alþýðublaðið - 24.11.1979, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 24.11.1979, Blaðsíða 3
Áttþú SAMLEID með okkur? Menningarmál Alþýðuf lokkurinn vill að ríkisvaldið taki virkan þátt í mótun menningarstefnu. Á undanförnum árum hefur það hins vegar verið svo, að menningarmál.bæði í skóla- kerf i og í listum, hafa verið afskipt vegna þess, að sjóðir sem til slíkra verkefna hafa verið ætlaðir, hafa stöðugt rýrnað. Það hef ur ekki nógsamlega verið vakin á því at- hygli, hvernig verðrýrnun undanfarinna ára hefur dregið úr heilbrigðri þátttöku ríkisvaldsins í menningar- málum. • Starfsumhverfi og vinnuvernd Alþýðuflokkurinn vill halda áfram að vinna að stór- bættu starfsumhverf i fólks og auknu öryggi á vinnustöð- um. Þar verður enn að gera stórátak mjög víða. • Atvinnulýðræði Alþýðuflokkurinn vill að starfsfólk stærri fyrirtækja, bæði einkafyrirtækja og félagslegra fyrirtækja,taki virk an þátt í stjórn fyrirtækjanna, með því að eiga f ulltrúa i stjo'rnum þeirra • Gegn skattsvikum Skattsvik eru áberandi sjúkdómseinkenni verðbólgu- þjóðfélagsins. Það verður að hreinsa til. Þegar Alþýðu- flokkurinn kynnir nú tillögur og krefst úrbóta, segjast þeir allir hafa ætlað að gera þetta. En af hverju hafa þeir þá ekki gert það? • Auðhringalöggjöf Alþýðuflokkurinn vill stranga löggjöf um auðhringa, hvort sem þeir heita Islenskir aðalverktakar, SfS eða eitthvað annað. Framsóknarf lokkur ogSjálfstæðisf lokk- ur felldu á siðasta Alþingi tillögu Alþýðuf lokksins um að farið væri ofan í rekstur (slenskra aðalverktaka. Skrýt- ið? Kannski ekki. SIS á hluta í fyrirtækinu. Fyrirtækið hefur ríkisvernduð einokunarviðskipti, hvernig svo sem það samrýmist ,,frjálshyggju" íhaldsins. • Opnun stjórnkerfis í verðbólguþjóðfélaginu hefur almenningur fengið æ minni upplýsingar um það, hvernig stjórnkerf ið er raun- verulega rekið. Hvað veit fólk til dæmis um það, hverjir haf a f engið mest lán — sem ekki haf a verið endurgreidd nema að litlum hluta — og til hvers? Bankakerf ið hef ur verið lokað. Það verður að opna stjórnkerf ið, því upplýst almenningsálit er besta tryggingin f yrir réttum leikregl- um. • Vaxtamál Vextir í verðbólgu eru ekki aðeins ef nahagslegt vanda- mál. Þar verður lika að huga að f jármálasiðferði, réttu og röngu. Gróðamyndunaraðferð undanfarinna ára hefur legið í gegnum verðbólgu og lokað lánakerfi. Þannig hefur mikill óverðskuldaður auður safnast í hendur fárra. Alþýðuflokkurinn vill uppræta verðbólgubraskið — og á sama tima lengja lánatíma og draga úr af borgunarbyrði félagslegra lána. X- • Húsnæðismálin Alþýðuf lokkurinn vill, eins og Magnús H. Magnússon hefur ítrekað lagt til, koma á sterkum lánasjóði fyrir húsbyggjendur, þar sem lán eru verðtryggð en á mjög lágum vöxtum, þannig að afborgunarbyrðin verði mun léttari fyrst í stað og jafnari. Verðtryggður sjóður mun tryggja að á skömmum tíma verður hægt að hækka láns- hlutfall í 80% af kostnaðarverði meðalíbúðar. • Endurskipulagning á olíusölu Alþýðuflokkurinn vill stórauka eftirlit ríkisins með olíufélögunum og auka hagkvæmni í olíudreifingu. • Þjóðareign á landi Alþýðuf lokkurinn vill, að landið allt verði þjóðareign, þannig að brask með landið, gögn þess og gæði,heyri for- tíðinni til. Afréttur, jarðvarmi, fallvötn,veiðiréttindi og bæjar- og borgarlönd eiga að nýtast samfélaginu sam- eiginlega,. Bændur munu aðvitað eftir sem áður nýta jarðir sínar — en jarðabraski verður að linna. • Neytendasamtök og neytendavernd Alþýðuflokkurinn vill efla mjög neytendasamtök og neytendavernd, enda er það lykilatriði í nútíma sam- félagi, þar sem neysluvenjur breytast ört, að neytendur haf i tryggingu fyrir því að verð sé lágt og vörugæði mik- • Tryggingafélögin Alþýðuflokkurinn vill endurskipuleggja trygginga- starfsemi í landinu í þeim tilgangi að fækka þeim og koma á aukinn! hagræðingu. • Virkara lýðræði Þingmenn Alþýðuflokksins fluttu á síðasta Alþingi frumvarptil laga um aukið lýðræði í Samvinnuhreyf ing- unni, þannig aðæðstu ráðamenn yrðu kosnir beinni kosn- ingu félaga í hreyfingunni. Þetta frumvarp náði ekki fram að ganga. Framsóknarmenn snerust gegn því af heift, þeirri heift sem þeim virðist lagin og Ölafur Jóhannesson sýndi i sjónvarpi á miðvikudagskvöld. Það verður aðauka lýðræði í félagslegum hreyf ingum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.