Alþýðublaðið - 01.12.1979, Síða 1

Alþýðublaðið - 01.12.1979, Síða 1
Laugardagur 1. des. 1979 —184. tbl. 60. árg. REYKVIKINGAR! Munið kosningahátíð Alþýðuflokks• ms i Haskolabioi i dag, laugardag 1. desember kl. 14,00. REYKVÍKINGAR! Tryggjum kjör Jóns Baldvins í siðustu kosningum fékk Alþýðuflokkurinn 11.159 atkvæði i Reykjavik og fjóra menn á þing. Jón Baldvin Hannibalsson skipar f jórða sætið — baráttusætið — að þessu sinni. Ef við höldum okkar hlut verður Jón Baldvin á Alþingi. FLOKKURINN SEM ÞORIR Alþýöuflokkurmn Benedikt Gröndal Vilmundur Gylfason Jóhanna Siguröardóttir Jón Baldvin Hannibalsson NÝ PÓLITÍK FYRIR NÝJA TIMA Alþýðuflokkurinn gekk til síðustu kosninga með endurnýjaða stefnu, endurnýjaða starfshætti og e'ndurnýjaða sveit frambjóð- enda. Árangurinn varð mikill kosningasigur. Þingf lokkurinn sem kosinn var 1978, kom róti á störf Alþingis. Hann gerði harðar kröfur til þess, að beitt yrði markvissri stefnu gegn óðaverðbólgu og spillingu í f jármálakerf i þjóðarinnar. Hinir stjórnarf lokkarnir vildu fara troðnar slóðir hægfara hrossakaupa. Alþýðubandalagið sýndi algeran skort á vilja til að berjast við verðbólguna og tillögur þess voru þvert á móti verðbólguaukandi. Framsókn rokkaði á milli. Það var nýnæmi i islenskri pólitík, þegar Alþýðuf lokkurinn sleit stjórnarsamstarf i af því að það náði ekki árangri. Þetta var eina leiðin til að vekja f lokkana og vekja þjóðina til skilnings á háska verðbólgunnar. Nú verður þjóðin að tryggja með atkvæðum sínum, að næsta ríkisstjórn ráði niðurlögum óðaverðbólgunnar, hvað sem það kostar, og halda henni í skef jum. Þetta er algert skilyrði fyrir öruggri afkomu, öruggri atvinnu og öruggum, alhliða f ramförum á komandi árum. Skoðanakannanir benda til hættu á því, að f lokkakerf ið detti aft- ur í farveg valdahlutfalla f rá 1949—1950. Það væri hættulegt aftur- hvarf. (slendingar þurfa nú nýja pólitík fyrir nýja tíma. Hinir óráðnu kjósendur geta nú ráðið, hver framvinda stjórn- málanna verður næstu ár. Þeir hafa óvenjulega aðstöðu og geta nú haft óvenjuleg áhrif. Sterkur Alþýðuflokkur er nauðsyn hér á landi. Stjórnmál okkar mega ekki verða að einvígi öfganna, Alþýðubandalags og íhalds. Alþýðuflokkurinn opnaði glugga stjórnkerfisins i síðustu kosn- ingum og hleypti inn ferskum blæ. Hver vill nú loka gluggunum aftur? Fylgismenn A-listans láta ekki hugfallast, þótt árangur í fyrstu lotu yrði ekki meiri en raun bar vitni. Þeir sækja fram á ný, stað- ráðnir að komast lengra í annarri lotu. Vinnið vel að sigri A-listans í kosningunum! Tryggið þjóðinni nýja pólitík, sem hæfir nýjum tímum! Benedikt Gröndal

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.