Alþýðublaðið - 05.12.1979, Page 1
alþýöu
blaöiö
nS
m
Miðvikudagur 5. des, 1979—186 tbl. 60. árg.
Stjórniri biðst lausnar
Mun gegna störfum þar til nýtt
ráduneyti verður myndað
Fréttatilkvnning frá skrifstofu ar fyrir sig og ráöuneyti sitt.
forseta ísiands. Forseti féllst á lausnarbeiðnina
en fól jafnframt rikisstjórninni,
Benedikt Gröndal, forsætisráð- að gegna störfum þangað til nýtt
herra, gekk á fund forseta tslands ráðuneyti yrði myndað.
laust fyrir hádegi og baðst lausn- Reykjavik, t.desember 1979.
MUNUM EKKI
LÁTA DEIGAN SÍGA
— segir Kjartan Jóhannsson
varaformaður Alþýðuflokksins
„Við munum ekki láta deigan
siga, heldur starfa áfram f sama
anda,” sagðiKjartan Jóhannsson
varaformaður Alþýðuflokksins er
hann var inntur álits á niður-
stöðum kosninganna.
Kjartan bætti þvi við að hann
teldi Framsóknarflokkinn hafa
fengið atkvæði frá þeim kjósend-
um sem ellegar hefðu kosið Sjálf-
stæðisflokkinn. „Efnahagsstefna
Sjálfstæðisflokksins var ekkert
nema yfirboð”, sagði Kjartan.
„Fólkið sá að þetta var
óframkvæmanleg vitleysa. t
rauninni var þetta ekkert annað
en stríð á hendur kjósendum
Sjálfstæðisflokksins.”
Að lokum sagði Kjartan:
„Þrátt fyrir þessi úrslit vil ég
þakka það traust sem okkur var
sýnt, svo og öllu þvf fólki sem
starfaði fyrir kosningar.”
— G.Sv.
Togveiöar bannaðar á
Vopnaf jaröargrunni
Fréttatilkynning um bann við
togveiðum á Vopnafjarðargrunni.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur i
dag gefið út reglugerð um bann
við togveiðum á Vopnafjarðar-
grunni. Samkvæmt reglugerð
þessari eru allar botnvörpu- og
flotvörpuveiöar bannaðar á
svæði, sem afmarkast af eftir-
greindum punktum:
1. 66gr. 22’N og 13gr05’V
2.66 gr 23’N og 12 gr 12’N
3. 66 gr 03’N og 12 gr 22’V
4. 65 gr 59’N og 13 gr 27,5’V.
Veiðar á svæði þessu eru bann-
aðar þar sem athugun r/s Bjarna
Sæmundssonar sýndi, að hlutfall
smáþorsks undir 60 cm. reyndist
vera frá 40% upp i 79’ af afla.
Svæði þetta er lokað um
óákveðinn tima, en Hafrann-
sóknarstofnunin mun fylgjast
áfram með þessu svæði.
Sjávarútvegsráðuneytið,
4. desember 1979.
Hinn nýi þingflokk-
ur Alþýðuflokksins
i
Benedikt Gröndal, 4. þingmaður Reykv-
íkinga
Kjartan Jóhannsson 2. þingmaður
Reykjaneskjörd.
Magnds H. Magndsson 5. þingmaður
Suðurlands.
Karvel Pálmason 6. landskjörinn
þingmaður.
Sighvatur Björgvinsson 3. þingmaður
Vestfirðinga.
Vilmundur Gylfason, 9. þingmaður
Reykvikinga.
Eiður Guðnasou, 5. þingmaður Vestur-
■ lands.
Arni Gunnarsson 6. þingmaður
Norðurlands eystra.
Karl Steinar Guðnason 3. landskjörinn
þingmaður
Jóhanna Sigurðardóttir 10. landskjörinn
þingmaður.
Ólafur Ingólfsson:
AÐ SPILAÁ KERFIÐ
Telur þú þig vera verðbólgu-
braskara: Viltu þiggja stórgjaf-
ir af öldruðum og öðrum spari-
fjárcigendum?
Ef svo er reynir þú að spifa á
kerfið og slá lán með meðgjöf.
Og þú styður þá flokka, sem
vilja viðhalda óheilbrigðu og
hróplega ranglátu lánakerfi. Þú
átt þriggja kosta völ. Þú getur
valið einn Kröfluflokkanna.
1. Þú getur stutt Alþýðu-
bandalagið sem hefur nákvæm-
lega ekkert fram að færa gegn
verðbólgu, en hefur þvert á móti
stutt nær allar kröfugerðir og
eyðsluhugmyndir, sem fram
hafa komið.
2. Þú getur stutt Framsókn,
sem verðbólguáratugurinn hef-
ur verið kenndur við. Fram-
sóknarmenn undu sér vel sem
skömmtunarstjórar hér áður
fyrr, Það er þvi skiljanlegt að
þeir vilji viðhalda núverandi
kerfi, þar sem annars vegar er
rænt fé af sparif járeigendum og
skattgreiðendum, og siðan út-
hlutað sem gjöfum og styrkjum
i formi lána með neikvæöum
vöxtum.
3. Og svo getur þú náttúrulega
stutt ihaldið ef þú telur þig
braskara.
Hins vegar, ef svo er ekki, og
þú aðhyllist réttlæti i lánamál-
um og villt að lán hætti að verða
gjafir sem rænt er af ráð-
deildarsömu fólki, þá styður þú
Alþýðuflokkinn. Þú ert sam-
mála þvi að núverandi kerfi sé
sjúkt. Það viðheldur stórkost-
legu óréttlæti og býður heim
spiliingu og hrossakaupum.
Vissir menn hafa stórhagnað af
þvi að viðhalda verðbólgunni,
en flestir tapa, þ.á.m. ýmsir
sem kannski trúa þvi, að þeir
séu að græða, en gleyma að
reikna dæmið til enda.
Fróðir menn hafa reiknað út
að við höfum tapað á þessum
áratug um 400 milljörðum á
verðbólgunni.
Alþýðuflokkurinn hefur tillög-
ur sem myndu, ef framkvæmd-
ar yrðu, vinna bug á verðbólg-
unni, og það án stórra „fórna”,
eins og sumir flokkar eru að
boða , og án þess að skerða kjör
hinna lægst launuðu og valda at-
vinnuleysi.
Og Alþýðuflokksmenn vilja
standa við orð sin. Þeir standa
upp úr þægilegum ráðherrastól-
unum fremur en sitja meðan
sætt er, eins og draugarnir á
Fróðá forðum daga, og eins og
óii Jó og Geir fyrir rúmu ári.