Alþýðublaðið - 10.01.1980, Síða 3

Alþýðublaðið - 10.01.1980, Síða 3
Fimmtudagurinn 10. janúar 1980 3 Þjóðkjörinn forsætisráö herra í stað samsteypu stjórna? alþýdu- blaöið Alþýöublaftiö: Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guömundsson Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibalsson Blaöamenn: Garöar Sverris- son _ ólafur Bjarni Guöna- son ' og Helgi Már Arthurs- son. Auglýsingar: Elín Haröardóttir: Dreifingarstjóri: Siguröur Steinarsson Gjaldkeri: Halldóra Jóns- dóttir Ritstjórn og auglýsingar eru aö Siöumúla 11, Reykjavik simi 81866. 1 Enn sem komið er er ógerningur aö meta viðhorf flokksformanna og þingflokka til þjóöstjórnarhugmyndar Geirs Hallgrimssonar. Hins vegar vekur athygli, að formaöur Sjálfstæðisflokksins hefur haft á oröi að verkefni slikrar stjórnar skuli vera tvi- þætt: Annars vegar aðgerðir gegn verðbólgu, hins vegar að koma fram breytingum á kjör- dæmaskipan og kosningalögum. Úrræði Sjálfstæöisflokks og Alþýðubandalags i efnahags- málum I þessum viðræöum eru enn sem komiö er óþekktar stærðir. Tillögur Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks I efna- hagsmálum liggja hins vegar fyrir og hafa verið ræddar og skýröar all rækilega I þessu blaði. Flestir virðast álita aö þjóðstjórnartal Geirs Hallgrimssonar sé fyrst og fremst spurning um vinnubrögö á þessu stigi málsins. Með umræðum um þjóðstjórn nú hyggist hann byggja brú yfir til nýsköpunarstjórnar, eða ,,Stefaniu”, þ.e. þriggja flokka stjórnar Sjálfstæðisflokks, Alþýöuflokks og Framsóknar- flokks, allt eftir þvi hver málflutningur flokksformanna /erður á næstu dögum. Meðan óvissa rikir um innihald afnahagstillagna Sjálfstæöis- flokksins og Alþýðubandalags ^eröur ekki endanlegt mat lagt i þessa stjórnarmyndunarhug- mynd. Hins vegar er ástæða til að reifa i stuttu máli þær hugmyndir, sem helzt hafa veriö á dag- skrá, varðandi breytingar á kjördæmaskipan og kosninga- lögum. Róttækasta hugmyndin sem fram hefur komið er vafalaust sú, að leita fyrirmynda um ger- breytt kerfi t.d. i Frakklandi eða Bandarikjunum. Þessi hugmynd hefur enn ekki veriö reifuð fræðilega i stjórnarskrár- umræðum hér. Hún hefur hins vegar nokkuð veriö rædd og þá einkum innan Alþýðuflokksins. Kjarni hugmyndarinnar er sá, aö handhafi framkvæmda- valdsins, hvort heldur hann nefnist forsætisráðherra eöa forseti, verði kosinn i beinum kosningum. Þjóðkjörinn forsætisráðherra velur sér siðan samstarfsmenn sem ráöherra að vild. t Frakklandi eru einmenningskjördæmi, en kosiö i tveimur lotum. I þessu kerfi er þvi innbyggö hvatning, eða> jafnvel nauðung, til flokkanna. um aö mynda kosningabanda- lög, fyrirkosningar. Þannig eru það flokkasamsteypur sem berjast um völdin i Frakklandi. Aö baki Giscard d’Estaing Frakklandsforseta stendur flokkasamsteypa hægri og mið- flokka. Sósialistaflokkur Mitterands og franski kommúnistaflokkurinn hafa til skamms tima haft með sér að visu nokkuð görótt kosninga- bandalag i þing- og forsetakosn- ingum. Hugsanlegt er að taka upp beint kjör forsætisráðherra, enda þótt kjördæmaskipun og kosningalög væru eftir sem áður meö öðrum hætti. eynzla tslendinga af samstey pustjórnum, sérstaklega þriggja flokka, þar sem enginn einn aðili viröist vera ábyrgur orða sinna né gerða, er orðin afar slæm. Stjórnarkreppur virðast ætla að verða æ lang- dregnari, og breytir engu þótt þær fari fram eins og nú, i skugga alvarlegrar efnahags- kreppu, sem knýr á um sterka rikisstjórn, án tafar. Þá er á það að benda, að hlutur kjósenda i okkar kosn- ingakerfi er i reynd óþolandi og ósamboðinn lýðræðislegri stjórnskipan. Kjósendur hafa ekki minnstu hugmynd um það fyrir kosningar, hvers konar rikisstjórn þeir eru að kjósa yfir sig. Það fer allt eftir þvi, hvernig kaupin gerast á eyrinni milli flokksforingjanna aö kosn- ingum loknum. Frægasta dæmið um þetta úr nýliðinni stjórnmálasögu er það, þegar kjósendur höfnuðu Ólafi Jóhannessyni og flokki hans i kosningunum 1978. Tveimur mánuðum seinna dúkkaði hann upp úr kafinu á stóli forsætis- ráðherra. Ístjórnleysisástandi eins og þvi, sem hér er, er auðvelt að mikla fyrir sér kosti franska kerfis- ins. Það ætti að fela i sér umtalsverða styrkingu fram- kvæmdavaldsins, en á þvi sýnist ekki vera vanþörf i okkar þjóð- félagi. Það neyðir stjórnmála- menn og stjórnmálaflokka til samstarfs — fyrir kosningar, og gefur kjósendum ótviræöari kosti aö velja eða hafna. Hinu er ekki að neita að á franska kerfinu eru lika sýnilegir gallar, sem reynslan hefur leitt i ljós á þeim tveimur áratugum, sem liönir eru frá valdatöku de Gaulle. Þeir gallar viröast aðallega varöa sam- skipti hins þjóökjörna forsætis- ráöherra og þingsins. Hugsan- legt er, aö meirihluti þings sé i pólitiskri andstöðu viö forsætis- ráðhérra, eins og iðulega gerist i hinu bandariska kerfi. Þetta getur leitt af sér árekstra, sem draga úr virkni, eða jafnvel lama, framkvæmdavaldiö, sem kemur þá ekki fram nauösyn- legri lagasetningu. Hörmuleg reynzla af viðvar- andi stjórnleysi samsteypu- stjórna á þessum áratug ætti hins vegar aö knýja okkur til alvarlegrar umhugsunar um róttækar breytingar á stjórnskipan okkar. Stjórnlaga- fræðingar okkar geröu þjóö sinni mikinn greiða með þvi aö hefja hlutlæga, fræðilega umræðu um, hverra kosta við eigum völ i þessum efnum, og um reynslu grannþjóða okkar af ólikum kosningakerfum og stjórnskipan. -JBH. Kosningarnar á Indlandi: Indíra rís úr öskustónni Þótt endanleg lirslit kosning- anna á Indiandi, sem fram fóru dagana 3. og 6. janúar siðastliö- inn, séu enn ekki kunn I smá- atriöum, er þaö ljóst, að Indira Gandhi og Kongressflokkur hennar hafa unnið stórsigur. ósigur Indiru Gandhi i kosningunum i marz 1977 kom ekki verulega á óvart. Hún hafði stjórnaö i ellefu ár eöa frá árinu 1966. A þeim tima margfaldað- ist atvinnuleysi á Indlandi, þjóðarframleiðsla snarminnk- aöi siöustu valdaár hennar og hún neyddist til, aö stjórna landinu i skjóli bráðabirgöalaga siðustu tvö árin. Þetta vakti mikinn kurrmeöal andstæðinga hennar og náði einnig langt inni eigin raðir Kongressflokksins. Arið 1974 sameinuöust einir sjö stjórnmálaflokkar I einn, san nefndur var Þjóöarfiokkur- inn, og eftir að kosningar höfðu verið ákveönar árið 1977 gekk þessi flokkur til samstarfs viö aðra þrjá flokka svo úr varö Janataflokkurinn, eða Janata- bandalagiö. Þetta bandalag vann umtalsveröan kosninga- sigur i marz ’77. Fékk flokkur- inn 293 menn kjörna, en flokkur Indiru Gandhi aðeins 150, en hafði áður haft 350. Fátt var sameiginlegt þeim flokkum og flokksbrotum er stóðu aö stofnun Janatabanda- lagsins annaö en þaö, að vera svarnir andstæöingar Indiru Gandhi og þessofrikis, sem hún þótti sýna af sér innan eigin flokks og utan. Enda kom það fljótlega i ljós, aö þessi öfl gátu ekki komið sér saman um leiðir til aö leysa helztu vandamál, sem blöstu við, er valdaferli Indiru Gandhi lauk. Innbyröis deilur og ösamkomulag forystu- mannanna þeirra Charan Singhs, Jagjivan Rams og Morarji Desais kom I veg fyrir þetta. Fyrir réttu hálfu ári tók Charan Singh að sér aö veita forystu nokkurskonar bráða- birgöastjórn, sem I raun hefur þýtt, aölndland hefurverið nær stjórnlaust á þessum tima. Indiru Gandhi er vandi á höndum. Óllklegt veröur aö telja, I ljósi fyrra valdatimabils hennar,að hún fái miklu áorkaö viö iausn þeirra vandamála er við blasa. Sannkallaö kreppu- ástandrikir á Indlandi, fyrst og fremst i efnahagsmálum. Vafa- samt er að kosningasigur henn- ar breyti þar nokkru um. Erfiö- leikar eru I landbúnaöi, orku- skortur hefur stórminnkað námuvinnslu, verðbólga er vax- andi og I sumum héruðum rikir algert stjórnleysi. Þaö virðist þvi I fljótu bragði ekki vera mikil von til þess, að breytinga sé von I þessum fátæka heims- hluta. Þrátt fyrir valdahroka og spillingu hefur Indiru Gandhi tekist að sigra i kosrtingunum. Þrátt fyrir að hafa sett i gildi herlög I fyrri valdatiö og þrátt fyrir að hún hafi sfðar verið fundin sek um að hafa gerst brotleg gegn landslögum, vann hún stórsigur. Gamlar erföa- stéttir, iðjuhöldar.landeigendur og stærsti hluti millistéttarinnar studdu hana til valda. Almenn- ingur á Indlandi á betra skilið. Vonandi rofar til I málefnum stærsta „lýðræðisrikis” heims. HMA 1 . . 4 SKIPAUTGCRB RÍKISINS M.s. Coaster Emmy fer frá Reykjavik þriðjudag- inn 15. þ.m. vestur um land til Akureyrar og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Þing- eyri, Isafjörð (Flateyri, Súg- andafjörð og Bolungarvik um tsafjörð) Akureyri, Siglufjörð og Sauðárkrók. Vörumóttaka alla virka daga til 14. þ.m. M.s. Baldur fer frá Reykjavik þriðjudaginn 15. þ.m. og tek- ur vörur á eftirtaldar hafnir: Patreksfjörð (Tálknafjörð og Bildudal um Patreks- fjörð) og Breiðafjaröarhafn- ir. Vörumóttaka alla virka daga til 14. þ.m. M.s. Esja fer frá Reykjavík fimmtu- daginn 17. þ.m. austur um land til Seyðisfjarðar og tek- ur vörur á eftirtaldar hafn ir: Vestmannaeyjar, Horna- fjöröur, Djúpavog, Breiö- dalsvik, Stöövarfjörð, Fá- skrúösfjörð, Reyðarfjörö, Neskaupsstað og Seyöis- fjörð. Vörumóttaka alla virka daga til 16. þ.m. M.s. Hekla fer frá Reykjavik föstudag- inn 18. þ.m. vestur um land i hringferö og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Patreks- fjörö, (Tálknafjörö og Bildu- dai um Patreksfjörö) Þing- eyri, tsafjörð (Flateyri, Súg- andafjörö, og Bolungarvik um tsafjörö) Norðurfjörö, Siglufjörð, ólafsfjörö, Akur- eyri, Húsavik, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafjörö, Vopnafjörö, og Borgarfjörö eystri. Vörumóttaka alia virka daga til 17. þ.m. Laus staða Staða skrifstofustjóra Tryggingastofnun- | ar rikisins, sem jafnframt gegnir starfi aðstoðarforstjóra stofnunarinnar, er laus ; til umsóknar. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðuneytinu fyrir 6. febrúar n.k. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 8. janúar 1980 Akraneshöfn Laust er til umsóknar starf vogarmanns við hafnarvogina á Akranesi. Umsóknar- frestur er til 20. janúar n.k. og sé skrifleg- um umsóknum skilað á bæjarskrifstofuna. Nánari upplýsingar gefur undirritaður i sima 93-1211. Akranesi 7.1. 1980 Bæjarstjóri Dregið hefur verið í Lands kosningahappdrætti Alþýduflokksins, eftirtalin númer hlutu vinning: 784 1818 4341 6002 6251 7929 8557 10917 11999

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.